Morgunblaðið - 15.09.1995, Blaðsíða 1
rogtmltfafrUk
B
1995
FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER
BLAÐ
Logi fylgist
með Asgeiri
fyrir leikina
ÁSGEIR Elíasson landsliðsþjálfari á eftir að
sijórna landsliðinu í tveimur leikjum í Evrópu-
keppni landsliða, áður en Logi Ólafsson tekur
við stjórninni. „Eg fæ tilvalið tækifæri til að
fylgjast með undirbúningi landsliðsins fyrir
leikina gegn Tyrkjum og Ungverjum,“ sagði
Logi í gær. Kveðjuleikur Ásgeirs á íslandi
verður gegn Tyrklandi á Laugardalsvellinum
11. október og iokaleikur hans með liðið verð-
ur í Búdapest í Ungveijalandi 11. nóvember.
Síðast þegar islenska landsliðið lék þar, stjórn-
aði Ásgeii’ því tii sigurs, 2:1 —1992 í undan-
keppni HM.
KNATTSPYRNA
Knattspyrnusambandið ekki lengi að ráða nýjan landsliðsþjálfara
Logi tekur við af Asgeiri
með landsliðið,“ sagði Logi, sem
stendur á vissum tímamótum sem
þjálfari. „Eins og ég sagði, þá er
spennandi verkefni framundan.
Með nýjum mönnum koma nýir sið-
ir.“
Logi sagði að hann myndi ekki
fara að hugsa um landsliðið, fyrr
en starfi hans hjá ÍA sé lokið. „Við
erum með í Evrópukeppni, þannig
að ég hef nóg að hugsa um eitt-
hvað fram eftir vetri,“ sagði Logi,
sem átti greinilega við að IA kæm-
ist áfram aðra umferð í UEFA-
keppninni, eftir seinni leikinn gegn
Raith Rovers.
Næsta stórverkefni landsliðsins
er undankeppni HM í Frakklandi
1998. Dregið verður í riðla í Frakk-
landi í desember. „Það verður fyrst
þá, þegar ég veit hverjir móthetjar
okkar verða, að ég get farið að
skipuleggja starf mitt sem lands-
liðsþjálfari."
EGGERT Magnússon, formaður Knattspyrnusambands ís-
lands, og Logi Ólafsson sitja fyrlr svörum ð fréttamanna-
fundi eftir að tilkynnt var að náðst hefði samkomulag við
Loga um að hann tæki við starfi Ásgeirs Elíassonar. Logi
hefur áður starfað fyrir KSÍ — var landsliðsþjálfari kvenna.
Morgunblaðið/Ásdís
Aftur til KSÍ
LOGI Ólafsson, þjálfari ís-
landsmeistara Skagamanna og
fyrrum landsliðsþjálfari
kvenna, mun taka við starfi
sem þjálfari karlalandsliðsins.
Hann tekur við í nóvember af
Ásgeiri Elíassyni, sem sagði
starfi sínu lausu á dögunum —
eða eftir að Ásgeir hefur
stjórnað landsliðinu gegn Ung-
verjum f Búdapest í Evrópu-
keppni landsliða.
Logi tók boði Knattspyrnusam-
bands íslands, eftir að hafa
fundað með stjórn Knattspymufé-
lags ÍA í gær. KSÍ mun ganga frá
samningi við Loga eftir Islandsmót.
„Ég var ekki lengi að hugsa mig
um — þegar boðið kom frá KSI,
og framundan er spennandi verk-
efni. Það varð að vera mikið í boði,
til að ég sleppti Skagaliðinu — að-
eins landsliðsþjálfarastarf hefði
fengið mig til þess. Það er stórkost-
legt að starfa á Akranesi, þar sem
andrúmsloft og aðstæður eru þær
bestu hjá félagsliði á íslandi. Ég
hef unnið áður hér í herbúðum KSI
— hér er gott að vera,“ sagði Logi
Ólafsson í stuttu spjalli við Morgun-
blaðið í gærkvöldi.
Stutt í breytingar
Logi tekur við landsliðinu, sem
er á nokkrum tímamótum — ljóst
er að stutt er þar til að mannabreyt-
ingar verða í landsliðinu. „Ég geri
mér grein fyrir að nokkrir leikmenn
liðsins eru komnir á efri árin, ef
svo má að orði komast. Ég mun
ekki gera miklar breytingar í einu
stökki — vel bestu leikmenn íslands
hveiju sinni í landsliðshópinn, án
þess að horfa í aldur leikmanna.
Við eigum stóran hóp af efnilegum
leikmönnum, sem nú þegar eru
byijaðir að banka á landsliðsdyrn-
ar.“
Logi sagði að hann vissi vel að
það væri mikil pressa sem fylgdi
því að vera landsliðsþjálfari og þá
sérstaklega þegar um val á lands-
liði væri að ræða. „Ég tek við góðu
búi og vona að ég nái að feta í
fótspor Ásgeirs Elíassonar, sem
hefur unnið mjög gott starf og tókst
vel upp að velja sterkasta liðið
hveiju sinni. Ásgeir er mjög hæfur;
ég kynntist því þegar ég starfaði
sem þjálfari kvennalandsliðsins í tvö
ár. Þá fór ég með karlalandsliðinu
til Frakklands, þar sem það lék vin-
áttuleik gegn Sádí-Arabíu. Það var
gott að starfa við hliðina á Ás-
geiri, sem náði ágætum árangri
KR-ingar óheppnir
gegn Everton
KR-ingar léku geysilega vel en urðu engu að síður að
sætta sig við tap, 2:3, í Evrópuleiknum gegn ensku bikar-
meisturunum í Éverton á Laugardalsvelli í gærkvöldi.
Vesturbæjarliðið átti í fullu tré við ensku atvinnumennina,
Mihajlo Bibercic gerði bæði mörk KR — jafnaði tvívegis
frá vítapunktinum en það var Nígeríumaðurinn Daniel
Amokachi sem gerði sigurmarkið á næst síðustu mínútu.
Frábær frammistaða / B2
Morgunblaðið/Kristinn
■■■■■■■■■■■■ |||ÍW#IÍÍI1 i - ' '• - ' '1 y ‘•-- O.i ' - i-.. ti J1a-j, fci „ . -Ái£', .‘‘‘Jir - —- - • 11 I -Í 1 A- 'li J i,- '-'-3, •í'.j' .? -J- j-iíu. .jííív- - „ - - li-- J— 'i’ "" \ 'í-. lí V-. t -•
KNATTSPYRIMA: TEITUR ÞORÐARSON HÆTTIIGÆR HJA ULLESTROM / B2