Morgunblaðið - 21.09.1995, Síða 2
2 D FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1995 D 3
ÚRSLIT
HANDKNATTLEIKUR
HANDKNATTLEIKUR
Fj. leikja U J T Mörk Stig
FH 2 2 0 0 59: 42 4
KA 2 2 0 0 66: 53 4
STJARNAN 2 2 0 0 47: 38 4
HAUKAR 2 t 1 0 40: 39 3
VÍKINGUR 2 1 0 1 44: 41 2
ÍR 1 1 0 0 21: 20 2
GRÓTTA 2 1 0 1 42: 42 2
VALUR 2 0 1 1 40: 41 1
ÍBV 1 0 0 1 22: 25 0
SELFOSS 2 0 0 2 38: 47 0
AFTURELD. 2 0 0 2 44: 57 0
KR 2 0 0 2 49: 67 0
Stjarnan - Valur 22:21
íþróttahúsið Ásgarður Garðabæ, íslands-
mótið í handknattleik — 1. deild karla, mið-
vikudaginn 20. september 1995.
Gangur leiksins: 1:0, 3:1, 3:3, 5:4, 7:4,
9:7, 9:9, 10.9, 12:9, 12:12, 14:12, 15:15,
18:15, 19:17, 19:19, 22:19, 22:21.
Mörk Stjörnunnar: Dimitrj Filippov 11/5,
Magnús Sigurðsson 5, Sigurður Bjarnason
3, Magnús Magnússon 2, Jón Þórðarson 1.
Varin skot: Axel Stefánsson 7/1 (þar af 1
til mótherja). Ingvar Ragnarsson 8 (þar af
2 til mótheqa).
Utan vallar: 4 mín.
Mörk Vals: Sigfús Sigurðsson 8, Ólafur
Stefánsson 5/2, Júlíus Gunnarsson 3, Davíð
Ólafsson 2, Jón Kristjánsson 2/1, Valgarð
Thorodsen 1.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 10
(þar af 1 til mótherja).
Utan vallar: 6 mín.
Dómarar: Gunnar Viðarsson og Sigurgeir
Sveinsson. Dæmdu vel.
Áhorfendur: Leikið fyrir luktum dyrum,
aðeins fáeinir starfsmenn og fulltrúar fjöl-
miðla.
KR-FH 20:34
Austurberg:
Gangur leiksins: 0:1,1:5, 3:10, 7:13 10:14,
10:15, 14:18, 14:23, 17:28, 18:32, 20:34.
Mörk KR: Guðmundur Albertsson 5, Sigur-
páll Ámi Aðalsteinsson 4, Björgvin Barðdal
3/1, Ágúst Jóhannsson 2, Einar B. Ámason
2, Hilmar Þórlindsson 2, Eiríkur Þorláksson
1, Gylfi Gylfason 1.
Varin skot: Siguijón Þráinsson 7/1 (þaraf
2 tii mótheija), Ásmundur Einarsson 4 (þar-
af 3 tíl mótheija).
Utan vallar: 10 mínútur.
Mörk FH: Siguijón Sigurðsson 8/1, Hans
Guðmundsson 6/1, Guðjón Ámason 5,
Gunnar Beinteinsson 5, Hálfdán Þórðarson
4, Sigurður Sveinsson 4, Pétur Petersen 2.
Varin skot: Jónas Stefánsson 20/3 (þaraf
6/2 til mótheija).
Utan vallar: 12 mínútur.
Dómarar: Sigurður Ólafsson og Valgeir
Ómarsson, eiga ýmislegt eftir ólært í faginu.
Áhorfendur: 150.
Grótta - Selfoss 22:21
íþróttahúsið Seltjarnamesi:
Gangur leiksins: 0:1, 2:4, 6:6, 8:8, 9:10,
11:11, 13:14, 15:18, 17:20, 19:21, 22:21.
Mörk Gróttu: Juri Sadovski 6/3, Davíð
B. Gíslason 4, Róbert Rafnsson 4, Jón Þórð-
arson 3, Bjöm Snorrason 2, Ólafur Sveins-
son 2, Þórður Ágústsson 1.
Varin skot: Sigtryggur Albertsson 12 (þar
af 3, til mótheija).
Utan vallar: 10 mínútur.
Mörk Selfoss: Valdimar Grímsson 9/4,
Einar G. Sigurðsson 6, Grímur Hergeirsson
2, Hallgrímur Jónasson 1, Sigurður Þórðar-
son 1, Siguijón Bjamason 1, Fihnur Jó-
hannsson 1.
Varin skot: Hallgrímur Jónasson 18 (þar
af 5, til mótheija).
Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: Einar Sveinsson og Þorlákur
Kjartapsson.
Áhorfendur: 300.
Haukar- Víkingur 21:20
íþróttahúsið við Strandgötu:
Gangur ieiksins: 3:0, 5:2, 5:4, 9:6, 11:9,
12:9, 12:11, 16:13, 18:14, 18:18, 19:19,
21:19, 21:20.
Mörk Hauka: Halldór Ingólfsson 6/2, Aron
Kristjánsson 4, Petr Baumruk 3, Björgvin
Þór Þorgeirsson 3, Viktor Pálsson 1, Hinrik
Öm Bjamason 1, Sveinberg Gíslason 1,
Óskar Sigurðsson 1, Jón Freyr Egilsson 1.
Varin skot: Bjari Frostason 16/1 (þaraf
11 til mótheija).
Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk Víkings: Knútur Sigurðsson 7/5,
Birgir Sigurðsson 5/1, Þröstur Helgason
4, Ámi Friðleifsson 2, Kristján Ágústsson
1, Guðmundur Pálsson 1.
Varin skot: Reynir Reynisson 8 (þaraf 6
til mótheija), Jón Valberg 3 (þaraf 1 til
mótheija).
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Rögnvald Erlingsson og Stefán
Arnaldsson. Ekki þeirra besti dagur.
Áhorfendur: Rúmlega 500.
KA - Afturelding 33:24
KA-heimilið:
Gangur leiksins: 1:0, 2:2, 5:2, 8:5, 10:8,
14:10, 16:14, 18:16, 21:17, 26:22, 30:22,
31:24, 33:24.
Mörk KA: Patrekur Jóhannesson 9, Julian
Duranona 9/3, Leó Örn Þorleifsson 7, Erl-
ingur Kristjánsson 4, Jóhann G. Jóhannsson
3, Björgvin Björgvinsson 1.
Varin skot: Guðmundur Arnar Jónsson 6
(1 til mótheija).
Utan vallar: 6 mín. (Atli Þór Samúelsson
fékk rautt spjald fyrir brot á Róbert Sig-
hvatssyni á 18. mfn. seinni háifleiks).
Mörk Aftureldingar: Jóhann Samúelsson
7, Róbert Sighvatsson 5, Ingimundur
Helgason 4/2, Páll Þórólfsson 3, Bjarki
Sigurðsson 2, Gunnar Andrésson 1, Viktor
Viktorsson 1, Þorkell Guðbrandsson 1.
Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson 6
(2 til mótheija), Sebastian Alexandersson 2.
Utan vallar: 6 mín. (Róbert Sighvatsson
fékk rautt spjald fyrir brot á Erlingi Krist-
jánssyni á 21. mín. seinni hálfleiks).
Dómarar: Guðjón L. Sigurðsson og Hákon
Siguijónsson. Tvístígandi á köflum en
röggsamir á mikilvægum augnablikum.
Áhorfendur: 754. Rífandi stemmning.
Knattspyrna
England
Fyrri leikimir i 2. umferð ensku deildarbik-
arkeppinnar
Aston Villa - Peterborough........6:0
Birmingham - Grimsby..............3:1
Bristol Rovers - West Ham ........0:1
Coventry - Hull...................2:0
Leicester - Bumley :..............2:0
Liverpool - Sunderland ...........2:0
ManchesterUnited-York ............0:3
Middlesbrough - Rotherham.........2:1
Millwall - Everton................0:0
Norwich - Torquay.................6:1
Reading-WBA.......................1:1
Sheffield United - Bury...........2:1
Stoke - Chelsea...................0:0
Swindon - Blackbum................2:3
Tottenham - Chester...............4:0
Wolves - Fulham...................2:0
Skotiand
Deildarbikarkeppnin, 8-liða úrslit:
Airdrie - Partick................1:1
■Airdrie vann í vítaspymukeppni.
Dundee - Hearts..................4:4
■Dundee vann í vítaspymukeppni 5:4.
Motherwell - Aberdeen............1:2
Vináttulandsleikir
Tókýó, Japan:
Japan - Paraguay..................1:2
Kazuyoshi Miura (23.) - Nestor Isashi (33.),
Virgilio Ferreira (56.).
Salonika, Grikklandi:
Júgóslavía - Grikkland............2:0
Dragan Curcic (55.), Savo Milojevic (85.).
30.000.
Madrid, Spáni:
&>pann - Argentma Pizzi (35.), Guerrero (68.) - Ortega (80.).
32.000.
Belgía
1:0
Seraing - Lommel 2:1
FC Briigge - Antwerpen 2:0
Mechelen - Harelbeke :. 1:0
1:0
Aalst - Lierse 1:2
Charleroi - CS Briigge 1:1
Ekeren - Standard Liege 2:0
Waregem - Molenbeek 0:1
Staða efstu liða:
FCBriigge.............9 7 1 1 22: 6 22
Aalst.................9 5 2 2 16: 9 17
Lierse...............9 5 2 2 15:10 17
Harelbeke.............9 5 1 3 14: 8 16
Standard Liege........9 4 4 1 17: 8 16
Charleroi............9 4 4 1 18:14 16
Molenbeek.............9 4 4 1 10: 8 16
Anderlecht............8 5 0 3 14: 9 15
Sviss '
Neuchatel Xamax - Lausanne............4:2
Servette - Lugano.....................2:3
Sion- Luzern..........................1:3
FC Ziirich - Young Boys...............0:0
Staða efstu liða:
Grasshopper....... 971121:8 22
Luzem..............11 6 2 3 19:15 20
Sion...............10 6 1 3 14:13 19
Neuchatel..........11 6 1 4 21:15 19
Holland
RKC Waalwijk - Volendam...........2:0
Groningen - Vitesse Amhem.........2:0
Sparta Rotterdam - Utrecht........0:0
NEC Nijmegen - Go Ahead Eagles....0:2
Roda JC Kerkrade - Feyenoord......1:1
PSV Eindhoven - Twente Enschede...3:0
■Ronaldo skoraði tvö mörk og Faber eitt.
24.850.
Ajax - Fortuna Sittard............4:0
■F. de Boer, Kanu, R. de Boer og Overm-
ars skomðu mörk Ajax. 19.192.
Willem II Tilburg - Heerenveen....1:1
Staða efstu liða:
Ajax.................5 5 0 0 22:0 15
Willem II............5 4 1 0 14:1 13
PSV Eindhoven........5 4 0 1 12:5 12
Groningen............5 3 11 9:4 10
Feyenoord............5 2 2 1 13:7 8
Heerenveen...........5 2 2 1 7:9 8
Þýskaland
2. umferð bikarkeppninnar:
Bayer Leverkusen - Gladbach.......2:0
Meinz - Werder Bremen.............2:3
Sachsen Leipzig - Karlsruhe.......0:2
Sandhausen - Homburg..............1:2
Greifswalder - Rot Weiss Essen....1:4
Stendal - Hertha.................3:2
Jena - Chemnitz...................2:5
Mannheim - Zwichau...............2:0
í kvöld
Handknattleikur
1. deild karla:
Vestm’eyjar: ÍBV - ÍR.kl. 20.00
Körfuknattleikur
Reykjavíkurmótið
Meistaraflokkur karla,
undanúrslit:
Seltj’nes: KR - Breiðablik.kl. 20
Golf
Bændaglíma LEK í golfi verður á
Hlíðarvelli í Mosfellsbæ á laugar-
daginn og hefst kl. 10.30. Skráning
í síma 5667415
Þurfum
að hysja
uppum
okkur
lllvið-
ráðanlegir
buxumar
- sagði Jón Kristjáns-
son, þjálfari og leik-
maður Valsmanna
Viggó Sigurðsson, þjálfari
Stjörnunnar, var ánægður
með sigurinn á Val í gærkvöldi.
„Þessi byijun í mótinu lofar góðu,
við erum með fjögur stig eftir tvo
erfiða leiki og það er víst ekki
hægt að gera betur. Þetta var
spennandi leikur og við vorum með
frumkvæðið allan leikinn. Við vor-
um með þriggja marka forskot þeg-
ar rúmlega tvær mínútur voru eftir
og klaufar að missa það niður í
lokin og þeir fengu færi á að jafna.
Ég er sérstaklega ánægður með
varnarleikinn og markvörsluna í
þessum leik. Það hefði verið gaman
að hafa fullt hús áhorfenda í kvöld.“
Jón Kristjánsson, þjálfari Vals,
var ekki ánægður með sína menn.
„Við spiluðum illa og alls ekki eins
og við ætluðum okkur í upphafi.
Það var algjört stemmningarleysi
yfir þessu hjá okkur og líklega er
ástæðan sú að engir áhorfendur
voru í húsinu og það var skrýtið
að spila við þessar aðstæður. Það
er alltaf dapurt að byija mótið
svona illa og nú þurfum við að
hysja upp um okkur buxurnar fyrir
næsta leik. Ég held að mótið verði
mjög jafnt og spennandi og enginn
leikurinn unninn fyrirfram,“ sagði
þjálfari íslandsmeistara Vals.
Morgunblaðið/Bjami Eiríksson
MAGNÚS Magnússon, sem gekk tll liðs við Stjörnuna úr KR, lék vel með sínu nýja félagi gegn íslands-
meisturum Vals. Hann skoraðl tvö mörk og fiskaði tvö vítaköst. Hér reynir Valsmaðurinn Eyþór Guðjóns-
son að stöðva Kann á línunni.
Axel launaði lambið gráa
AXEL Stefánsson, markvörður
Stjörnunnar og fyrrum markvörður
Vals, færði nýja félaginu sinu bæði
stigin í leiknum gegn Val sem spil-
aður var fyrir luktum dyrum í Ás-
garði í gærkvöldi. Hann varði vítak-
ast frá Ólafi Stefánssyni þegar leik-
tíminn var úti og Stjarnan fagnaði
sigri, 22:21, eftir spennandi loka-
mínútur. „Eg ákvað að setja Axel
inn á til að freista þess að verja
vítið þó svo að ingvar [Ragnars-
sonj hafi varið vel. Axel þekkir
þessa stráka í Val,“ sagði Viggó
Sigurðsson, þjálfari Stjörnunnar,
kampakátur eftir leikinn.
valur B.
Jonatansson
skrifar
Það var skrýtin tilfínning að vera
viðstaddur leik þessara stórliða í
nánast tómu íþróttahúsi. Nú skynjaði
ég það hversu áhorf-
endur eru stór hluti af
handboltaleik. Það var
lítil stemmning yfir
leiknum og það heyrð-
ist hvert einasta orð sem leikmenn létu
frá sér fara og þegar Bjarni Felixson,
íþróttafréttamaður RÚV, sem lýsti
leiknum, var farinn að yfirgnæfa leik-
menn báðu leikmenn hann að lækka
róminn!
Leikurinn var ekki í háum gæða-
flokki og leikmenn náðu ekki almenni-
legri einbeitingu og skal engan undra
við þessar aðstæður. Stjörnumenn voru
þó kraftmeiri og höfðu meiri vilja til
að sigra þó sigurinn hafi hangið á blá-
þræði í lokin. Þeir léku varnarleikinn
skynsamlega, 5-1-vörn, með Filippov
fyrir fram til að trufla sóknarleik Vals
og gerði hann það vel, enda náði
Stjarnan mörgum hraðaupphlaupum.
Valsmenn voru ekki með sjálfum sér
lengst af og náðu aldrei að komast
yfir í leiknum, en nokkrum sinnum að
jafna. Boltinn náði ekki að ganga
nægilega vel í sókninni og lykilmenn
liðsins brugðust algjörlega.
Filippov var besti leikmaður Stjörn-
unnar, gerði 11 mörk og lék vamar-
leikinn sérlega vel. Markvarslan hjá
Axel og Ingvari var í góðu lagi, vörðu
samtals 15 skot. Magnús Sigurðsson
og Sigurður Bjarnason voru ógnandi
fyrir utan og Magnús Magnússon, línu-
maður sem lék áður með KR, fellur
vel inn í Stjörnuliðið.
Sigfús Sigurðsson, línumaður hjá
Val, var þeirra langbesti maður og
gerði 8 falleg mörk og fiskaði eitt víti.
Júlíus Gunnarsson komst ágætlega frá
sínu þær fáu mínútur sem hann fékk
að spreyta sig. Jón, Ólafur og Dagur
fundu sig alls ekki í tómu húsi og
munar um minna.
KA-menn
Bikarmeistararnirfara vel af stað
„NEI, ég er ekki kominn tii að vera í vörninni. Tveir skiptimenn
í vörn voru meiddir og ég neyddist til að spila í dag. Það verður
ekkert áframhald á því,“ sagði Alfreð Gfslason, þjálfari KA og
sennilega sterkasti varnarmaður landsins, eftir glæstan sigur
liðsins á Aftureldingu. Lokatölurnar urðu 33:24 en Alfreð kom
inn í vörnina við mikil fagnaðarlæti áhorfenda þegar tæpar sjö
mínútur voru liðnar af seinni hálfleik. Þá var staðan 20:17 og
átti Alfreð óneitanlega sinn þátt í því að Afturelding skoraði
aðeins 7 mörk það sem eftir lifði leiks en KA13.
Stefán Þór
Sæmundsson
skrifar frá
Akureyri
Leikurinn var jafn og spennandi
í fyrri hálfleik og mörg falleg
tilþrif sáust. Þetta á við um
sóknina því mikið var skorað en
markvarslan var í
molum. Þannig varði
Guðmundur aðeins 1
skot í KA-markinu
og Bjöm ekkert en
Bergsveinn 4 skot í marki Aftureld-
ingar og öll frá Duranona. KA-menn
komust í 12:8 en þá fór Jóhann
Samúelsson að taka til sinna ráða
hjá Aftureldingu og skoraði 5 mörk
á skömmum tíma. Munurinn var
Haukar til
fyrirmyndar
HAUKARléku sinn fyrsta hei-
maleik í handboltanum í gær-
kvöldi og þeir hafa tekið upp
þá ánægjulegu nýjung að
bjóða blaðamönnum uppá fyr-
irmyndaraðstöðu. Blaða- og
fréttamenn hafa afnot af her-
bergi handknattleiksdeildar-
innar þar sem boðið er uppá
kaffi og kók fyrir leik og I
leikhléi auk þess sem menn
geta þar komist í síma og fax-
tæki ef þess gerist þörf. Auk
þess útbúa þeir sérstakt blað
með nöfnum allra leikmanna
þar sem hægt er að færa inn
ýmsar upplýsingar svo sem
hvernig menn skora og hve-
nær, en á sumum stöðum hefur
það oft verið vandamál að fá
ljósrit af leikskýrslu. Frábært
framtak þjá Haukum sem
blaðamenn kunna vel að meta.
Auðvelt hjá FH
Ivar
Benediktsson
skrifar
FH-ingar voru ekki í
vandræðum með að leggja slakt
lið KR í Austubergi í gær-
kvöldi. Strax í upphafi leiks tóku
leikmenn FH öll völd
á vellinum og náðu
öruggri forystu sem
þeir bættu smátt og
smátt við allt þar til
yfir lauk. Lokatölur urðu 34:20, eftir
að staðan í hálfleik var 14:10, Hafn-
firðingum í hag.
Það mátti glöggt sjá strax á upp-
hafsmínútum leiksins að FH-ingar
voru KR-ingum fremri á flestum
sviðum, vömin var sterk, sóknarleik-
urinn ákveðinn og markvarslan góð.
Leikmenn FH voru komnir með fjög-
urra marka forystu strax eftir tíu
mínútna leik, 5:1, og náðu mest sjö
marka forystu, 3:10. Sóknarleikur
KR var í molum, kraftlaus og þung-
lamalegur og auðvelt að veijast hon-
um. Þegar fimm mínútur vom til
leiksloka stóðu leikar 14:7 fýrir FH.
Strax í byijun síðari hálfleiks tóku
FH-ingar ráðin í sínar hendur og
KR-ingar fengu ekki neitt við ráðið.
Ekki stóð steinn yfir steini í vörn
þeirra í hálfleiknum og markvarsla
var vart merkjanleg. Sóknarnýting
FH í hálfleiknum var 69%, en KR-
ingum tókst einungis að nýta tæp-
lega þriðju hveija sókn sína. Slíkt
getur ekki endað nema á einn veg.
Spurningin var einvörðungu sú þegar
líða tók á leikinn hversu stór FH-sig-
urinn yrði og að leiklokum munaði
fjórtáji mörkum, 20:34.
Eins og fyrr segir stóð lengst af
leiks ekki steinn yfir steini í leik
KR-inga, hvort sem það var í vörn
eða sókn. Sóknin mjög bitlaus og
kraftlaus og leikmenn flestir virka
þungir auk þess sem lykilmenn sókn-
arinnar voru alltaf að stinga niður
knettinum í stað þess að láta boltann
ganga og sækja á markið. Mikið var
um ónákvæmar sendingar og klaufa-
mistök sem andstæðingurinn, í þessu
tilfelli FH, refsar miskunnarlaust
fyrir með hraðaupphlaupum enda
skoruðu FH-ingar ellefu mörk með
þeim hætti auk tveggja sem mark-
vörður KR varði.
Fínar varnir, sóknin slök
Skúii Unnar
Sveinsson
skrifar
Haukar mörðu 'sigur á Víkingum
21:20 í íþróttahúsinu við Strand-
götu í gærkvöldi og eru komnir með
þijú stig úr fyrstu tveim-
ur umferðunum. Bæði
lið léku ágæta vörn en
sóknarleikurinn var
staður, einhæfur og and-
laus. Greinilegt að mikið
hefur verið lagt upp úr varnarleiknum
á undirbúningstímabilinu.
„Vörnin virkaði alla vega vel í kvöld
og hún og markvarslan er lykillinn að
velgengni í handbolta," sagði Gunnar
Gunnarsson fyrrum þjálfari Víkinga og
núverandi þjálfari Hauka eftir leikinn.
„Sóknin var frekar styrð hjá okkur og
það vantar alla mýkt í hana en nú höf-
um við fjórtán daga til að mýkja hana.
Það vantar hreyfingu án bolta þannig
að menn vinni fyrir félagann. En stigin
voru góð.“
Haukar byijuðu mjög vel og virtust
ætla að sigla yfir Víkinga, en þeir
breyttu fljótlega í 5-1 vörn og þá fóru
sóknir Hauka að verða erfiðari. Þeir
höfðu þó undirtökin allan leikinn ef
undan er skilinn smá kafli í síðari hálf-
leik er Víkingar náðu að jafna, 18:18
og 19:19. Þrátt fyrir að vera tvívegis
tveimur fleiri tókst þeim aðeins að gera
eitt mark á þeim kafla og þegar 36
sekúndur voru eftir var dæmt vítakast
á Hauka sem Bjarni Frostason, besti
maður Hauka, varði.
„Við spiluðum ekki vel í kvöld, sem
var slæmt því ég taldi okkur eiga mögu-
leika gegn Haukum með þokkalegum
leik,“ sagði Árni Indriðason þjálfari
Víkinga eftir leikinn. „Við létum veija
allt of mikið frá okkur úr góðum fær-
um, og þegar lítið er skorað vegur það
þungt,“ bætti Árni við.
Víkingar virðast vera með betra lið
en búist var við. Þrátt fyrir að mikið
sé af ungum leikmönnum þá standa
þeir fyllilega fyrir sínu, eða gerðu að
minnsta kosti í gær. Vörnin var ágæt
og í sókninni var mun meiri hreyfing
en á sóknarmönnum Hauka. Guðmund-
ur Pálsson er snaggaralegur leikstjóm-
andi, Þröstur Helgason getur vel skotið
og Knútur Sigurðsson á að geta það
einnig þó svo ekki hafi farið mikið fyr-
ir honum í gær. „Ég held að menn
hafi afskrifað Víkinga full fljótt," sagði
Gunnar Gunnarsson þjálfari Hauka um
Víkingsliðið. „Það er ef til vill eðlilegt
þegar um það bil heilt handboltalið
hættir á sama tíma, en ég held að Vík-
ingur eigi eftir að tína mörg stig í vet-
ur,“ sagði Gunnar. Árni þjálfari Víkinga
sagði að hann væri með ungt og jafnt
lið sem gæti oft verið happasælt. „Það
tekur auðvitað sinn tíma fyrir ungu
strákana að axla þá ábyrgð sem þarf
en ég held þeir hafi gert það ágætlega
það sem af er,“ sagði Árni.
Hjá Haukunum var Bjarni góður í
markinu og fyrir framan hann var Petr
Baumruk sterkur í vörninni og einnig
Hinrik Örn Bjarnason. Björgvin Þór er
lunkinn á línunni og Halldór ógnandi
fyrir utan og einnig Aron - í síðari
hálfleik.
aðeins 2 mörk í leikhléi en vert er
að geta þess að Afturelding átti 5
stangarskot í fyrri hálfleik.
Eins og vikið er að í upphafi fór
að síga á ógæfuhliðina hjá Áftureld-
ingu fljótlega í seinni hálfleik eða
eftir að Alfreð kom inn í vörnina
fyrir Leó Örn Þorleifsson. Leó hafði
átt í miklum vandræðum með Jó-
hann en lék hins vegar listavel í
sókninni. Nú var búið að setja fyrir
þennan leka og munurinn jókst jafnt
og þétt. Patrekur, Duranona og Leó
röðuðu inn mörkum fyrir KA og
skemnitilegar Iínusendingar og fjöl-
breytt skot glöddu augað. KA náði
6 marka forskoti sem Afturelding
minnkaði niður í 4 mörk um miðjan
hálfleikinn. Róbert skoraði þá af lín-
unni og KA-maðurinn Átli Þór
Samúelsson fékk rautt spjald fýrir
að kippa í hann aftan frá. Með frá-
bærri vörn tókst KA samt að auka
muninn á ný. Róbert fékk rautt
spjald skömmu síðar fyrir samskon-
ar brot á Erlingi Kristjánssyni þegar
fyrirliði KA læddi sér inn af línunni.
KA-menn léku stórvel í seinni
hálfleik og hafa nú unnið báða leiki
sína en Afturelding, sem spáð var
mjög góðu gengi, hefur tapað báðum
sínum. Patrekur, Duranona, Leó,
Erlingur og Alfreð voru firnasterkir
en Akureyringurinn Jóhann Samú-
elsson og Róbert á línunni voru
öflugastir gestanna.
Alfreð ánægður
„Þegar leið á leikinn fórum við
að síga örugglega fram úr. Það kom
upp dálítið óöryggi hjá okkur í fyrri
hálfleik þegar Jóhann var að spila
svona vel en það lagaðist þegar leið
á leikinn og ég er mjög ánægður
með úrslitin,“ sagði Alfreð Gíslason.
„Við misstum alveg dampinn í
lokin. Vörnin var alls ekki nógu
sannfærandi og það var slæmt að
tapa en fall er fararheill. Það er
mikið eftir af mótinu ennþá. Auðvit-
að er gaman að skora mikið gegn
KA en það hefði verið mun betra
að sigra,“ sagði Jóhann Samúelsson.
Morgunblaðið/Asdís
RÓBERT Rafnsson skorar eitt af fjórum mörkum sínum fyrir
Gróttu gegn Selfossí, án þess að Finnur Jóhannsson koml
við vörnum þrátt fyrir fimlega tilburði.
Davíð gerði
sigurmarkið
GRÓTTA lagði Selfoss með
eins marks mun, 21:20, á Sel-
tjarnarnesi í gærkvöldi. Davíð
B. Gíslason skoraði sigurmark
Gróttu þegar tíu sekúndur voru
til leiksloka og var þetta eina
skiptið í síðari hálfleik sem
Grótta komst yfir.
Leikurinn var ákaflega dapur í
fyrri hálfleik og nýting liðanna
rétt rúmlega 30 af hundraði. Jafn-
ræði var með liðun-
Stefán um> þau skiptust á
Eiríksson að hafa forystu, en
skrifar Selfoss hafði yfir í
hálfleik, 9:10.
Selfyssingar náðu yfirhöndinni í
síðari hálfleik og höfðu á tímabili
þriggja marka forskot. Gróttumenn
gáfust þó ekki upp, börðust jafnvel
af meiri krafti eftir því sem á leið
og uppskáru eins og þeir sáðu.
Gróttumenn náðu að jafna þegar
tæpar Ijórar mínútur voru eftir, og
Selfyssingar náðu ekki að skora í
rúmlega þriggja mínútna sókn og
fengu dæmda á sig töf að lokum.
Grótta hélt í sókn þegar innan við
mínúta var eftir og lauk henni með
marki frá Davíð B. Gíslasyni eins
og áður sagði, þegar tíu sekúndur
voru eftir.
„Þetta á eftir að einkenna okkur
í vetur, við erum í góðu formi enda
með besta líkamlega þjálfarann og
stefnan er að halda leikina út og
klára þá á síðustu mínútunum.
Þetta voru fyrstu tvö stigin af
mörgum, ég lofa því að við eigum
eftir að reyta mörg stig af liðunum
í vetur. Sjón eru sögu ríkari,“ sagði
Davíð B. Gíslason, hetja Gróttu-
manna, eftir leikinn.
Leikurinn var dapur lengst af,
mikið um mistök, en óneitanlega
spennandi undir lokin. Uppúr stóð
góð barátta Gróttumanna á loka-
mínútunum, þeir gerðu þijú síðustu
mörkin og héldu hreinu síðustu átta
mínúturnar. Róbert Rafnsson var
áberandi á lokakaflanum, sem og
Davíð Gíslason og Juri Sadovski.
Selfyssingar léku af litlum krafti,
og voru í senn hugmyndasnauðir
og áhugalausir. Fáir þorðu að taka
af skarið í sóknarleiknum, leik-
stjórnun í molum og úthaldið lítið.
Hallgrímur markvörður gerði heið-
arlega tilraun til að halda sínum
mönnum á floti, varði eins og ber-
serkur er á leið en allt kom fýrir ekki.
KNATTSPYRNA / ENSKA DEILDARBIKARKEPPNIN
York skelKi Man. Utd.
MANCHESTER United fékk
heldur betur skell á Old Traf-
ford, þegar liðið tapaði, 0:3,
fyrir 2. deildarliðinu York í fyrri
leik liðanna í ensku deildarbik-
arkeppninni.
Bæði United og York misstu leik-
menn af leikvelli. Pat McGibb-
on hjá United var rekinn af leikvelli
á 50. mín., eftir brot og fimmtán
mín. fyrir leikslok var Paul Baker
hjá York rekinn af leikvelli, eftir
sína aðra áminningu. Paul Barnes
skoraði fýrsta mark York á 24.
mín. og bætti öðru marki við úr
vítaspyrnu á sjöttu mín. seinni hálf-
leiksins. Tony Barras skoraði þriðja
markið tveimur mín. síðar.
Deildarbikarmeistarar Liverpool
lögðu Sunderland, 2:0. Steve
McManaman skoraði fyrra markið
með þrumufleyg af 20 m færi eftir
átta mín. og varamaðurinn Michael
Thomas bætti við marki á 72. mín.,
en hann kom inná sem varamaður
fyrir 8,5 millj. punda manninn Stan
Collymore.
Swindon veitti Blackburn harða
keppni og skoruðu þeir Wayne Alli-
son og Steve Finney, 2:0, á 25. og
26. mín. Chris Sutton svaraði fyrir
gestin tveimur mín. seinna - með
sínu fyrsta marki frá 4. apríl. Alan
Shearer tryggði Blackburn sigur
með mörkum á 42. og 83. mín.
Fjórum mín. fyrir leikslok varði Tim
Flowers vítaspyrnu frá Paul Bodin.
Aston Villa vann Peterborough
6:0 með mörkum Mark Draper,
Dwight Yorke (tvær vítaspyrnur),
Tommy Johnson, Greg Heald,
sjálfsmark, og Gareth Southgate.
Chris Armstrong skoraði tvö
mörk fyrir Tottenham, 4:0, gegn
Chester - hans fyrstu mörk fyrir
liðið, og Teddy Sheringham og
Ronny Rosenthal bættu mörkum við.
West Ham lagði Bristol Rovers,
1:0, með marki John Moncur af 30
m færi á 34. mín.