Morgunblaðið - 28.09.1995, Page 4
smmBæmmmummBBí
Valsmenn
með flesta
„úrvals“-
dómara
Keflvíkingum
spáðsigrií
úrvalsdeildinni
ÍSLANDSMÓTIÐ í körfuknattleik hefst íkvöld með heilli um-
ferð, sex leikjum, iúrvalsdeiidinni. Mótið verður formlega sett
í íþróttahúsinu Smáranum í Kópavogi en þar mæta nýliðar
deiidarinnar, Breiðablik, liði íslandsmeistaranna frá Njarðvík.
Þetta er fjölmennasta mót sem haldið hefur verið, nú senda
60 félög lið í mótið og liðum hefur fjölgað um 30 frá því á síð-
ustu leiktíð. Úrvalsdeildin er leikin ítveimur riðlum. Eftirað
deildarkeppninni lýkur er riðlunum slegið saman og átta efstu
lið komast í úrslitakeppnina. Efsta iiðið leikur við lið í 8. sæti, lið
í öðru sæti við liðið í 7. sæti og svo framvegis.
VALSMENN virðast dugleg-
astir að fá menn til að dæma
fyrir félagið ef marka má
hvaðan þeir fjórtán dómarar
sem dæma í úrvalsdeildinni
koma. Fjórir koma frá Val;
Bergur Steingrímsson, Björg-
vin Rúnarsson, Eggert Aðal-
steinsson og Jón Bender. Tveir
dómarar eru frá Keflavík;
Kristinn Óskarsson og Þorgeir
J. Júlíusson, tveir frá Breiða-
bliki; Kristinn Albertsson og
Georg Andersen, tveir frá
Haukum; Einar Einarsson og
Leifur Garðarsson. Aðalsteinn
Hjartarson dæmir fyrir
Leikni, Einar Þ. Skarphéðins-
son fyrir Skallagrím, Helgi
Bragason fyrir IS og Kristján
Möller fyrir Njarðvík.
Afram
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
Nokkrar breytingar hafa orðið á
flestum liðum í deildinni og
sum eru með algjörlega nýjan mann-
skap. Keflvíkingar
hafa endurheimt
bakverðina Fal
Harðarson frá KR og
Guðjón Skúlason frá
Grindavík og mæta sterkir til leiks
enda er þeim spáð Islandsmeistara-
titlinum. Guðjón Skúlason sagði á
blaðamannafundi að sér sýndist spá-
in nokkuð raunhæf. „Það er alltaf
gott að koma vel út úr skoðanakönn-
unum og fínt að vera á toppnum í
byijun, hin liðin hræðast okkur þá
kanski. Við erum með sterkan og
breiðan hóp sem getur enst út vetur-
inn,“ sagði Guðjón. Lenear Burns
mun leika með Keflvíkingum.
íslandsmeisturunum úr Njarðvík
er spáð öðru sæti, en þar á bæ hafa
orðið talsverðar breytingar. Þrír af
leikreyndustu mönnum liðsins verða
ekki með, Valur Ingimundarson er
farinn til Danmerkur og þeir Ástþór
Ingason og Isak Tómasson hafa
ákveðið að hætta að leika í úrvals-
deildinni. Hrannar Hólm hefur tekið
við þjálfun meistaranna, en hann var
áður hjá Þór. Gunnar Örlygsson er
byijaður að leika á ný og Sverrir Þór
Sverrisson er genginn til liðs við
Njarðvík auk nokkurra ungra leik-
manna. „Við erum með stóran og
mikinn hóp sem æfír og veturinn
leggst vel í okkur. Eg held að mótið
verði jafnara en áður og keppnin í
A-riðlinum verður mjög jöfn. Það
hefur verið stígandi í leik okkar í
haust og við erum á réttri leið,“ sagði
Hrannar. Rodney Robinson mun leika
með UMFN eins og undanfarin ár.
Haukum er spáð þriðja sætinu, en
nú eru nokkur ár síðan Hafnarfjarð-
arliðið var uppá sitt besta. Þar á bæ
á að snúa þróuninni við og stefnan
er sett á úrslitakeppnina og síðan er
ætlunin að fara lengra. Haukar hafa
fengið „gamla“ Hauka heim eins og
Pálmar Sigurðsson og ívar Ásgríms-
son og Sigurður Jónsson er einnig
kominn á ný í raðir Hauka. Þá mun
Bandaríkjamaðurinn Jason Williford
leika með Haukum í vetur, en hann
er sagður mjög öflugur leikmaður.
Grindvíkingar hafa orðið fyrir
nokkurri blóðtöku og Ijóst að liðið
verður ekki eins sterkt og það hefur
verið undanfarin tvö ár. Fjórir af tíu
manna hópnum eru farnir. „Já, það
hafa orðið talsverðar breytingar hjá
okkur,“ sagði Guðmundur Bragason.
„Þetta hefur verið fremur stirt hjá
okkur í haust en við vonum að þetta
fari að smella. Deildin verður held
ég mjög jöfn og við ætlum okkur
hærra en spáin segir til um,“ sagði
Guðmundur.
Óvæntur sigur Rússa
Bandaríkjamenn lögðu heimsmeistara Svía og mæta Rússum
Rússar og Bandaríkjamenn leika
til úrslita um Davis-bikarinn í
tennis. Rússar unnu Þjóðverja 3:2 í
undanúrslitum í Moskvu og Banda-
ríkjamenn sigruðu núverandi heims-
meistara, Svía, 4:1 í hinum undanúr-
slitaleiknum sem fram fór í Las
Vegas á sunnudag.
Það var gríðarleg spenna í leik
Rússa og Þjóðveija. Staðan var jöfn
2:2 þegar Andrei Chesnokov mætti
Michael Stich í úrslitaleik og sigraði
Rússinn 6-4, 1-6, 1-6, 6-3 og 14-12
í sannkölluðum maraþonleik sem stóð
yfír í fjórar klukkustundir og 18 mín-
útur. Þetta var í annað sinn á tveim-
ur árum sem Rússar slógu Þjóðveija
út í undanúrslitum keppninnar.
Bandaríkjamenn sigruðu heims-
meistara Svía nokkuð létt, 4:1. Það
var Todd Martin sem tryggði sigur-
inn í fjórða leik er hann lék gegn
Thomasi Enqvist 7-5, 7-5 og 7-6 og
sigurinn þá í höfn 3:1. Pete Sampras
lék síðan við Mats Wilander í loka-
leiknum sem skipti engu máli og
Sampras hafði betur 2-6, 7-6 og 6-3.
Þetta er í 58. skipti sem Bandaríkin
leika til úrslita um heimsmeistaratit-
il landsliða.
samstarf
milli DHL
og KKÍ
BJARNI Hákonarson, frá DHL
hraðflutningum, og Kolbeinn
Pálsson, formaður KKÍ, undir-
rituðu samning um samstarf í
vetur á blaðamannafundi á
mánudaginn. DHL og KKÍ
gerðu þriggja ára samning í
fyrra og var ákveðið að end-
umýja hann en báðir aðilar
gátu sagt honum upp. „Það var
ekki erfið ákvörðun að halda
áfram að vinna með körfunni,“
sagði Bjarni við þettatæki-
færi.
Nýtt lið í
1. deild
kvenna
NÝTT lið verður með í 1. deild
kvenna sem hefst laugardag-
inn 7. október, en það eru
Skagastúlkur. Þær hafa ekki
áður verið með í fyrstu deild-
inni og nú eru tíu lið þar og
leikinn verður tvöföld umferð
og fjögur efstu liðin komast í
úrslitakeppnina. Fjögur lið,
Njarðvík, KR, Grindavík og
Breiðablik, hafa þegar fengið
erlenda stúlku til liðs við sig
og er búist við deildinni jafnri
og spennandi.
ÍR-ingar komu verulega á óvart í
fyrra og þeir eru með svipaðan leik-
mannahóp núna og ef þeim tekst að
hafa jafn gaman af íþróttinni í vetur
og í fyrra ættu þeir að ná langt.
„Síðasta ár var eins og ævintýri og
vonandi verður þetta jafn skemmti-
!egt,“ sagði John Rhodes leikmaður
og þjálfari liðsins.
KR-liðið er mikið breytt og KR-
ingar segjast ekki ósáttir við spána.
„Við munum reyna að klekkja eitt-
hvað á þeim liðum sem eru fyrir ofan
okkur og hinum líka. Við látum verk-
in tala,“ sagði Lárus Árnason sem
hefur snúið í Vesturbæinn á ný. Jon-
athan Bow verður með KR í vetur.
Um lið Þórs frá Akureyri er lítið
vitað, en ef marka má spána verður
það um miðja deild. Jón Guðmunds-
son, liðsstjóri Keflvíkinga til margra
ára, er þjálfari liðsins og með honum
úr Keflavík kom ungur og efnilegur
strákur, Kristján Guðlaugsson. Þórs- '
arar stóðu sig vel á æfingamóti Vals
í haust og ef þeir leika eins og þeir
gerðu þar gætu þeir hæglega orðið
ofar en spáin segir.
Borgnesingar komu svo sannar-
lega flestum á óvart í fyrra með
góðri frammistöðu. Nú er Henning
Henningsson farinn til náms í Dan-
mörku og Bragi Magnússon kominn
í staðinn frá Val. „Þetta er svipaður
hópur, en hann er lítill, við erum
bara tólf sem æfum þannig að við
megum ekki við miklum forföllum,"
sagði Tómas Holton sem þjálfar liðið
eins og í fyrra. Hann sagði að liðið
byggði ekki á stórum nöfnum, heldur
liðsheild sem væri tilbúin að leggja
sig fram. „Það er enginn í Borgar-
nesi sem telur að árangur okkar í
fyrra hafí verið heppni,“ sagði Tómas.
Hreinn Þorkelsson verður þjálfari
Skagamanna í vetur. ÍA hefur feng-
ið nokkum liðsstyrk frá því í fyrra
Væntanlegur meistari?
JÓN Kr. Gíslason og lærlsvelnar hans f Keflavfk verða ís-
landsmelstarar ef marka má spá forráðamanna llðanna.
og segir þjálfarinn stefnuna vera að
hækka sig að minnsta kosti um eitt
sæti miðað við spána. Milton Bell,
sem lék með KR í fyrra, verður með
Skagamönnum í vetur.
Tindastóli er spáð tíunda sætinu
og þar á bæ sætta menn sig ömgg-
lega ekki við slíkt. Páll Kolbeinsson
þjálfar og John Torrey leikur með
liðinu, sem er svipað og í fyrra. Bar-
áttujaxlinn úr Grindavík, Pétur Guð-
mundsson, er þó genginn til liðs við
Tindastól.
Breiðablik er með nýtt lið. „Sum-
arið fór í að búa til liðið því þeir sem
komu liðinu upp eru allir famir. Þetta
er sem sagt nýtt lið,“ segir Birgir
Guðbjörnsson þjálfari. „Þetta er þó
allt á réttri leið og ég er með þokka-
lega sterkan hóp og það þarf bara
að beija þá saman og tryggja Breiða-
bliki sæti í úrvalsdeildinni," sagði
Birgir. Af 14 manna hópi hafa sex
aldrei leikið í úrvalsdeildinni og í
raun má segja að Birgir Mikaelsson
sé, sá éini sem sé með verulega
reynslu.
Valsmönnum er spáð falli. „Ég
legg til að fjölgað verði í deildinni,"
sagði Torfi Magnússon þjálfari Vals
þegar spáin var ljós. Hann var hinn
léttasti og sagði meðal annars: „Það
eru miklar breytingar, nýr þjálfari
og margir leikmenn farnir." Hvort
hann sá samhengi þama á milli skal
ósagt látið. Hann er með ungt lið í
höndunum og stefna Vals er að
byggja upp hjá sér og „skríða eitt-
hvað ofar en spáin segir,“ eins og
þjálfarinn orðaði það.
Spá liðanna
FORRÁÐAMENN liðanna í
úrvalsdeildinni spáðu fyrir um
stöðu liðanna í deildinni og fer
hún hér á eftir. Fyrir framan
er tilgreint í hvorum riðlinum
liðið er:
A. Keflavík..........328 stig
A. Njarðvík..........296 stig
A. Haukar............283 stig
B. Grindavík.........264 stig
A. ÍR................254 stig
B. KR................214 stig
B.ÞÓr................171 stig
B. Skallagrímur.....153 stig
B. Akranes...........118 stig
A.Tindastóll.........112 stig
A. Breiðablik.........54 stig
B. Valur..............46 stig
KORFUKNATTLEIKUR
TENNIS / DAVISBIKARINN
VIKINGALOTTO: 11 16 18 22 26 30 + 14 35 40