Morgunblaðið - 01.10.1995, Page 2
2 C SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
NÝR Ford Fiesta með Zetec-SE léttmálms-
vél kemur á markað í byijun næsta árs.
Ford segir helsta kost nýju
vélarinnar þann að hún þarfnast
mun minna viðhalds en sambæri-
legar vélar. Ventlalokur þarf
aðeins að athuga á 150 þúsund
km fresti, kerti á 45 þúsund km
fresti og vélarolíu og olíusíu á
15 þúsund km fresti. Vélin er úr
áli, magnesíum og soggreinar
eru úr plasti.
Miðað við fyrri vélar Fiesta
gefur nýja Zetec-SE vélin frá sér
90% minna af kolvatnsefnum og
niturmónoxíð og 80% minna af
kolsýringi. Þetta þýðir í raun að
Ford betrumbætir staðla ESB
fyrir 1996 um 50%. Ford segir
að Zetec-SE vélarnar geti hugs-
anlega einnig uppfyllt reglugerð-
ir ESB sem rætt er um að taki
gildi árið 2000.
FORD sýndi nýjan Fiesta á bíla-
sýningunni í Frankfurt sem auk
þess að vera breyttur í útliti er
með nýrri 1,250 rúmsentimetra
léttmálsvél. Þá verða í boði end-
urbættar vélar úr Fiesta-línunni
og ný gerð gírskiptingar og kúpl-
ingar. Að utan er bíllinn kominn
með sporöskjulaga grill sem ein-
kennir alla Ford bíla, afturglugg-
inn er stærri og afturlugtirnar
breyttar. Nýr Fiesta kemur á
markað í Evrópu í byrjun næsta
árs.
Fiesta er boðin í fjórum út-
færslum, þ.e. Focus, Flair, Fun
og Ghia og verða þær nú allar
fáanlegar þriggja eða fimm dyra.
Auk þess er væntanlegur Iítill
sendibíll, Fiesta Courier.
Flair er grunngerð bílsins og
sú útfærsla sem miðuð er við
þarfir þeirra sem eru kaupa bíl
í fyrsta sinn. Engu að síður er
hann með lituðum, upphituðum
rúðum, fijókornasíu í loftræst-
ESTER Gísladóttir fékk afhent fyrsta mótorhjólið af
Gizmo-gerð nýlega.
Gizmo skellinöðrur
ingu, vökvastýri og niðurfellan-
legu aftursætisbaki. Fun er
sportútfærslan, með stífari fjöðr-
un, sambyggðri vindskeið á þaki,
sportsætum, snúningshraðamæli
og sérstökum frágangi að innan.
Ghia er hins vegar dýrasta-út-
færslan enda er staðalbúnaður
m.a. vökvastýri, fjarstýrðar
samlæsingar, hnakkapúðar í aft-
ursætum og glæsilegur frágang-
ur að innan.
Umhverfisvænni vélar
Vélarnar sem í boði eru upp-
fylla allar reglur Evrópusam-
bandsins um varnir gegn útblást-
ursmengun sem taka gildi á
næsta ári. 1,250 rúmsentimetra
léttmálmsvélin er nýr kostur en
hún skilar 75 hestöflum. Þessi
vél er ný útfærsla í Zetec-SE
vélarlínunni og 1,4 lítra Zetec-SE
vél kemur á markað á næsta ári
en vélarnar eru allar með 16
ventla tækni.
INGVAR Helgason hf. fékk ný-
lega fyrstu sendinguna af Gizmo
skellinöðrum frá Indlandi. Salan
hefur gengið vel að sögn starfs-
manna Ingvars Helgasonar og
nýlega var fyrsta hjólið afhent
Ester Gísladóttur. Jafnt fuilorðn-
ir sem unglingar hafa keypt hjól-
in en verðið er 84.000 kr. Hjólin
eru einföld í notkun og þau eru
sjálfskipt. Á annan tug hjóla hef-
ur verið sendur út á land. ■
Breyttur Fiesta
með léttmálmsvél
I Renault
Magnum til
Bouthéon
ÖKUMANNSHÚSIÐ er hátt og því gott útsýni yfir umferðina.
Myndin er tekin skammt frá Bouthéon.
SÝNING var haldin á vörubílum,
rútum og sendibílum ásamt marg-
víslegum búnaði tengdum slíkum
ökutækjum í París um miðjan sept-
ember. I tengslum við sýninguna
bauð Renault VI blaðamönnum í
heimsókn til gírkassa- og strætis-
vagnaverksmiðju sinnar skammt
frá Lyon. Segir hér af ferðinni
þangað.
Blaðamenn voru sóttir á hótel
sitt árla morguns og ferðast var til
Bouthéon, smábæjar utan Lyon, í
fulllestuðum Renault Magnum með
40 tonna farmi. Þar upplýsti Heiðar
Sveinsson sölumaður
hjá Bifreiðum og land-
búnaðarvélum, umboðs-
aðila Reriault, blaða-
menn um helstu atriði
varðandi þennan nútí-
malega flutningabíl.
Það eru sjaldnast þeir
sem nota flutningabíl-
ana, þ.e. bílstjórarnir,
sem velja sér vinnutæk-
in heldur eru það oftast
eigendur flutningafyrir-
tækja. Engu að síður
hefur orðið mikil þróun
í gerð slíkra ökutækja,
einkum hvað varðar það
sem lýtur að aðbúnaði
ökumanns. Eigendurnir
sjá mikilvægi þess að vel fari um
ökumenn í langkeyrslum með dýr-
mæta farma.
Ökumannshús Magnums bíls
Renault er loftfjaðrandi, þ.e.a.s.
undir fjórum hornum hússins eru
loftpúðar sem gera það að verkum
að húsið „flýtur" ofan á grindinni.
Fyrir vikið er aksturinn þýður eins
og í fólksbíl. Rúður eru mjög stórar
í Magnum og útsýni úr bílnum yfir
umferðina eins og best verður á
kosið. Gólfið er slétt því húsið situr
ofan á vélinni og enginn kassi er á
milli bílstjórasætis og farþegasætis
sem auðveldar mjög allan umgang
um bílinn. í fermetrafjölda talið er
ökumannshúsið á Magnum fjórir
fermetrar.
Rafstýrt og fjarstýrt
Bíllinn sem ferðast var í til Bout-
héon var búinn öllum hugsanlegum
þægindum og má þar nefna loft-
ræstikerfi þar sem ökumaður
stjórnar hvaða hitastig er inni í
húsinu, rafstýrðar rúður og úti-
speglar, fjarstýrðar samlæsingar,
rafstýrð gluggatjöld á fram- og
hliðarrúðum, öflug hljómflutnings-
tæki, fatahengi í hliðumj fjölstillan-
leg sæti og tvær kojur. Ur kojunum
er hægt að stjórna miðstöðinni, ljós-
um og hljómflutningstækjunum.
I Magnum er hraðastillir sem
gerir það að verkum að bíllinn fer
ekki hraðar en 90 km á klst. Eftir
áramót verður skylda að vera með
slíkan búnað hér á landi í stórum
flutningabílum. Tveir hraðamælar
eru í bílnum, annar í mælaborðinu
beint fyrir framan ökumann en hinn
er í ökuritanum sem skráir akstur,
hraða og snúning vélar.
Með því að setja ökumannshúsið
ofan á vélina er í raun búið að skipta
bílnum í tvennt. Annar hlutinn,
húsið, tilheyrir ökumanninum en
hinn hlutinn, vélin, tilheyrir eigand-
anum. Vélin er 12 lítra, 416 hest-
afla Renault-vél. Hámarkstog er
1.980 Nm við 1.200 snúninga á
mínútu.
Tölvuskiptlng
í mælaborðinu er lítill stafrænn
skjár sem veitir ökumanninum upp-
lýsingar um hvenær ráðlegt er að
skipta um gír en bíllinn er með
tölvuskiptingu, þ.e. fjögurra gíra
háifskiptan kassa með háu og lágu
drifi og skriðgír í lægri kassanum.
Alls hefur ökumaður um 18 gíra
að velja. Hægt er að velja um tvenns
konar stillingar á skiptingunni, þ.e.
sparnaðarstillingu og kraftstillingu
með því að þrýsta á lítinn hnapp á
gírstönginni. í sparnaðarstillingu
gefur tölvan upplýsingar sem auð-
' Morgunblaðið/GuGu
RENAULT Magnum sem ekið
var í til Bouthéon.
veldar bílstjóranum að halda vélinni
á hagstæðasta snúning með olíu-
eyðslu og tog í huga á 1.200 til
1.600 snúningum. Kraftstillingin
miðast við að fá sem flest hestöfl
út og þar af leiðandi hærri snún-
ing, (um 2.000 snúninga á mín-
útu), og hentar vel þegar ekið er
undan brekku og þörf er á mikilli
notkun mótorbremsu sem virkar
betur á háum snúningi.
Svona búinn var Renault Magn-
um sýndur á vörubílasýningunni í
París um miðjan september, en
einnig Magnum með 530 hestafla
vél. Þar var einnig hugmyndabíllinn
Virage sem er með grind úr áli og
hægt að færa öxlana til. Einnig
sýndi Renault byltingarkenndan
strætisvagn, Agora, sem er með
þeirri nýjung að engar tröppur eru
í vagninum. Annar vagn, Karosa
B-931, sem smíðaður er í samvinnu
við samnefnt fyrirtæki Renault V.I.
í Ungveijalandi og er talinn henta
vel fyrir aðstæður í Austur-Evrópu.
■
Guðjón Guðmundsson
RENAULT Agora er bylting í smíði
strætisvagna því engar tröppur eru í
vagninum sem auðvelda mjög allan um-
gang, ekki síst fyrir þá sem mest nota
strætisvagna, börn og gamalmenni.