Morgunblaðið - 10.11.1995, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 10.11.1995, Qupperneq 1
KORFUKNATTLEIKUR KÖRFUKNATTLEIKUR: ÞÓR SIGRAÐISKALLAGRÍM í BORGARNESI / C2 Gunnar vill fá þrjá (slendinga til Hácken GUNNAR Gíslason, fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu, kom tíl Búdapest í gær til að fylgj- ast með íslensku landsliðunum gegn Ungverjum i þeim tilgangi að reyna að fá þijá íslenska leik- menn til Uðs við sænska 1. deildar liðið Hácken. Gunnar, sem Iék með sænska liðinu, var á dögunum ráðinn aðstoðarþjálfári liðsins en óskað hefur verið eftir að Thorbjöm Nielsen, fyrrum landsliðsmaður Svía og leikmaður Eindhoven og Kaiserslautern, verði aðalþjálfari. Gunnar sagði við Morgunblaðið í gær að miklar líkur væm á að hann yrði aðalþjálfari þess þar sem Thor- björa Nielsen ætti erfítt með að taka við liðinu vegna anna. Hácken er með ungt lið, en Gunnar sagði að það hefði fengið 19 unga stráka í hópinn í fyrra og verið væri að byggja upp með framtíðina í huga. Hann sagðist lítið þekkja til íslensku strák- anna en samt viidi hann fá ísienskan varnar- mann, miðvallarleikmann og sóknarmann í Uð Hácken. Hann reyndi að fá Hlyn Stefánsson en þá hafði Hlynur ákveðið að fara aftur til Eyja. Þá er Hlynur Birgisson inni í myndinni enGunn- ar sagði að framhaldið réðist af þvi hvað Örebro vUdi fá fyrir hann. Ungmennalið Ungverjalands og íslands leika í Búdapest í dag og Evrópuleikur A-landsIiða þjóðanna verður á morgun. Gunnar sagðist ætla að horfa á landsleikina og tala við einhvcrja leik- menn í kjölfarið. ísland mætir fýrst Lúxemborg í Evrópukeppninni ÍSLENSKA kvennalandsliðið er í riðli ineð ír- landi, DanmÖrku og Lúxemborg í Evrópukeppn- inni í tennis, 2. deild, sem hefst í Tennishöllinni í Kópavogi í dag klukkan 15. Lið íslands er skip- að þeim Hrafnhildi Hannesdóttur, Stefaniu Stef- ánsdóttur og Hlín Evu Dereksdóttur. Þjálfari liðsins er Raj Bonifacius en liðsstjóri er Iris Staub. Hver landsleikur samanstendur af tveimur einUðaleikjum og einum tvíliðaleik. Keppnin hefst eins og áður segir í dag og inætast þá ís- land og Lúxemborg og Danmörk og írland. Kl. 11 á morgun spila Island og Danmörk og Lúxem- borg og Irland en á sama tíma á sunnudag verð- ur viðureign Islands og írlands og Lúxemborgar og Danmerkur. Aðgangur er ókeypis. Sænska 1. deildar félagið Djurgárden var gert að greiða 350.000 sænskar krónur (um 3,5 millj. kr.) í sekt og meinað að leika fyrstu tvo heimaleikina næsta tíma- bil á heimaveili auk þess sem fyrstu tveir leikirnir heima verða að fara fram fyrir luktum dyrum. Knattspymusamband Svíþjóðar tók þessa ákvörðun í kjölfar óláta á Klocktomet leikvanginum í Stokk- hólmi 29. október sl., en þá létu stuðningsmenn Djurgárden öllum ill- um látum á leik liðsins gegn Halm- stad, hentu m.a. hlutum inn á völlinn og áreittu dómarann, sem flautaði leikinn af eftir 65 mínútur. Halmstad var dæmdur 3:0 sigur og fékk UEFA-sæti fyrir vikið á kostnað Djurgárden. Ólæti í Grikklandi Gríska félagið PAOK á von á allt að 10 leikja heimaleikjabanni og lið- ið missir a.m.k. þijú stig í grísku deildinni vegna óláta áhorfenda í vik- unni. Þá ruddust um 300 manns inn á völlinn meðan leikur liðsins stóð yfir og slösuðust 30 manns í ólátun- um, þar á meðal dómarinn. Leikurinn var flautaður af þegar tvær mínútur voru eftir af leiktímanum en þá var staðan 3:1 fyrir mótheijana- og standa úrslitin. Forseti féiagsins sagði af sér vegna málsins. Sigurbjöm Bárðarson kaupir Loga frá Skarði BLAÐ Bönnog sektirí kjölfar óláta Morgunblaðið/Ásdis Valdimar Kristinsson skrifar Iannað skipti á þessu ári skipt- ir stóðhesturinn Logi frá Skarði um eiganda. Sigurbjöm Bárðarson hefur nú keypt hestinn af Kristni Guðna- syni bónda í Skarði sem keypti hestinn í haust. Kaupverð var ekki gefið upp en talið er að verð- mæti hesta á borð við Loga sé í kringum sex milljónir króna. Segir Sigurbjörn að Kristinn hafi lofað sér forkaupsrétti á hest- inum ef hann seldi hann aftur sem hann hafi svo staðið við. Sagði hann Ijóst að Logi færi ekki úr iWh»rgtntMii&i& landi að svo komnu máli. „Það verður spennandi að sjá hvemig afkvæmi hans koma út á næstu tveimur árum og þá ræðst hvort hann verður seldur úr landi, fyrr ekki,“ sagði Sigurbjörn. Aðspurður kvað hann ekki ákveðið með hvaða hætti notkun hans yrði háttað næsta sumar, þ.e. hvort hann yrði leigður út eða hvort hann notaði hann einvörð- ungu á sínar hryssur. Þá sagði hann ekki ákveðið hvort hann mætti með hann' til keppni í sum- ar en Logi hefur staðið efstur í B-flokki gæðinga hjá Fáki tvö ár í röð sem er fágætt afrek auk þess að vera í fremstu röð á landsmóti á sama vettvangi. Sagði Sigur- björn að það yrði bara að koma í ljós hvort hann mætti með hann til leiks en ef af því yrði væri stefnan að sjálfsögðu tekin á íjórðungsmótið á Gaddstaðaflötum. Logi var einnig í frétt- um fyrr á árinu þegar í ljós kom að hann væri undan Hrafni frá Holtsmúla en ekki Ljóra eins og talið hafði verið. Kristinn sagði að hann Slgurbjörn Bárðarson væri alltaf að kaupa og selja hesta og væri Logi bara einn af mörgum þar á meðal. „Sigurbjöm hafði lengi sýnt hestin- um áhuga auk ýmissa annarra sem höfðu lýst áhuga á að kaupa hlut í honum. Þau áform sem ég hafði í huga gengu ekki upp sem skyldi og taldi ég því málum best kom- ið á þann veg að Sigur- björn fengi hestinn,“ sagði Kristinn. HAUKARsigruðu Keflvíkingaí 12. umferð úrvalsdeildarinnar í körfu- knattleik í gærkvöldi en liðin voru efst og jöfn fyrir leikinn, höfðu bæði sigrað í sjö leikjum í röð. Úrslit annarra leikja urðu eins og búast mátti við nema hvað Þórsar- ar frá Akureyri gerðu sér lítið fyrir og sigruðu Skallagrím í Borg- amesi. Valsmenn em enn á botnin- um, hafa ekki unnið leik enn sem komið er. Hér er besti maður Kefl- víkinga, Lenear Buras, í baráttu við þá Jason Williford og Berg Eðvarðsson. 1995 ■ FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER Haukar unnu og eru á toppnum HESTAR KNATTSPYRNA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.