Morgunblaðið - 10.11.1995, Side 4

Morgunblaðið - 10.11.1995, Side 4
SKÍÐI Stóru nöfnin ekki með á opnunarmótunum Alberto Tomba hótar að hætta verði reglunum ekki breytt ALBERTO Tomba er óánægur með nýju reglur FÍS og hótar að keppa ekkl á helmsblkarmótunum í vetur. SKÍÐAMENN hefja keppnis- tímabilið i heimsbikarnum í alpagreinum íTignes í Frakk- landi um helgina. ítalinn Al- berto Tomba, heimsbikarhafi » frá í fyrra, verður ekki með og Verni Schneider, heimsbikar- hafi kvenna frá Sviss, er hætt keppni. Tomba er óánægður með nýju reglurnar sem FIS samþykkti á keppnisfyrirkomu- laginu ívetur og hótar jafnvel að hætta. Tomba verður ekki með í Tignes vegna þess að hann er óánægður með fyrirkomulag keppninnar. Alþjóða skíðasamband- i . ið, FIS, samþykkti á fundi sínum } fyrir skömmu að gera breytingar á rásröð keppenda í síðari umferð. í vetur verður rásröð þrjátíu fyrstu eftir fyrri umferð snúið við í síðari umferð, þ.e.a.s. að sá sem nær besta tímanum í fyrri umferð fer niður númer þrjátíu í síðari umferð. Þetta er gert til að mæta kröfum áhorfenda. Reglumar eru þó ekki algildar því eftirlitsmenn FIS á keppnisstað geta einni klukku- stundu fyrir start tekið upp gamla skipulagið þar sem rásröð fyrstu 15 keppenda eftir fyrri umferð er snúið við í síðari umferð ef aðstæð- ur eru ekki taldar nægilega góðar. Tomba telur þessar nýju reglur , fáránlegar og finnst sér vera mis- munað, þegar á að senda hann nið- ur eftir að 29 skíðamenn em búnir að höggva djúp för í ísilagðar braut- imar. Hin hliðin á málinu er að fleiri keppendur geta blandað sér í bar- áttuna um heimsbikarinn. Rainer Salzgeber, landsliðsmaður Aust- urríkis, segir nýja fyrirkomulagið gott. „Það er ekkert meira niður- drepandi og að fara sautjándi niður í seinni umferð, vitandi að við mark- ið beinast allra augu að sigurvegar- anum sem stendur á meðal áhorf- enda og fagnar," sagði Salzgeber. Alþjóða skíðasambandið lætur ekki beygja sig í þessu máli þó svo að Tomba og fleiri kappar hóti að vera ekki með. Tomba er hins veg- ar farinn til Bandaríkjanna með ít- alska landsliðinu til að undirbúa sig fyrir mótin í Vail um miðjan mánuð- inn. „Ég legg ekki höfuðáherslu á heimsbikarinn í vetur því stóra markmiðið er að vinna heimsmeist- aratitil á HM í Sierra Nevada á Spáni í febrúar," sagði Tomba. Marc Girardelli frá Lúxemborg, sem hefur unnið heimsbikarinn oft- ast allra - eða fimm sinum, verður með í vetur. Hann verður að teljast til alls líklegur þó svo að honum hafi ekki tekist að vinna eitt ein- asta heimsbikarmót í fyrravetur. Hann átti í hnémeiðslum í fyrra en hefur æft mjög vel í sumar á Nýja- Sjálandi þar sem hann hefur verið með þýska landsliðinu í æfíngabúð- um. Svo má líka nefna Norðmann- inn Kjetil Andre Aamodt og Gunth- er Mader frá Austurríki, sem báðir eru jafnvígir á allar alpagreinamar fjórar; svig, stórsvig, risasvig og brun. Vreni Schneider, sem vann heimsbikarinn í þriðja sinn í fyrra, er orðin þrítug og segir að það sé kominn tími til að snúa sér að öðm og verður því ekki með. Það ætti að auka möguleika Katju Seizinger frá Þýskalandi, sem missti naum- lega af sigri í heimsbikamum bæði 1993 og 1995. Pemilla Wiberg frá Svíþjóð er einnig talin geta blandað sér í bráttuna ásamt austurrísku stúlkunni Anitu Wachter, Heidi Zeller-Baehler frá Sviss og Picabo Street frá Bandaríkjunum. FOLX ■ FRED WilHams, leikmaður körfuknattleiksdeildar Þórs á Ak- ureyri hefur verið dæmdur í eins leiks bann af aganefnd KKI vegna atburðar sem átti sér stað í leik Tindastóls og Þórs 31. október. Bannið tekur gildi á hádegi í dag og missir hann því af næsta leik sem er gegn Val á sunnudagskvöld. ■ ÞORSTEINN Halldórsson, sem lék með FH í 1. deildinni sl. tvö ár og þar áður með KR, hefur skipt yfír í Þrótt Reykjavík. Einar Örn Birgisson úr Víkingi, hafa einnig gengið til liðs við Þrótt. ■ HELGI Ragnarsson hefur verið endurráðinn þjálfari 3. deildarliðs Gróttu í knattspymu. Hann hefur verið með liðið sl. tvö ár. ■ KRASSIMIR Balakov, leik- maður hjá Stuttgart og landsliðs- maður Búlgaríu, var útnefndur besti leikmaður októbermánaðar í Þýskalandi af fyrirliðum, þjálfur- um og Berti Vogts, landsliðsþjálf- ara, sem segir að kappinn sé kom- inn í sama gæðaflokk og Diego Maradona var í. Jörgensen landsliðs- þjálfari í kvondó KVONDÓNEFND ÍSÍ ákvað á síðasta fundi sínum að ráða Danann Mikael Jörgensen sem landsliðsþjálfara. Til- gangur með ráðningu lands- Uðsþjálfarans er að undirbúa íslenska liðið fyrir Norður- landamótið í Tækvondó sem verður haldið hér á landi í janúar á næsta ári. Mikael Jörgensen er flestum kvondó- iðkendum að góðu kunnur hér á landi því hann hefur verið þjálfari kvondóliðs ÍR-inga. Hann er 32 ára og hefírr ver- ið búsettur hér á landi í sex ár en var áður þjálfari Norð- manna. Hann hefur æft kvondó í 17 ár og er með 4 dan svart belti. Sigurjón æfirí Flórída SIGURJÓN Arnarsson, kylf- ingur úr GR, er nú við æfíng- ar í Flórída í Bandaríkjunum þar sem hann hyggst halda áfram þjálfun til keppni á mótum atvinnumanna. Á mið- vikudag lauk hann keppni á þriggja daga móti í Tommy Armour mótaröðinni sem fram fór á Cypress Creek goIfveUinum í Orlando. Hann lék á 221 höggi, 70,77 og 74 höggum og hafnaði í 26. sæti af 60 þátttakendum. VöUur- inn er par 72 og SSS 74 og mótið vannst á 207 höggum. Shearer á heimleið? ENSK blöð greindu frá því um síðustu helgi að Kevin Keegan vildi kaupa enska landsliðsmiðherjann Alan Se- arer frá meisturum Black- burn og væri tilbúinn að borga 10 miþjónir punda fyrir — andvirði rúmlega eins nriljj- arðs króna. Blackburn hefur gengið afleitlega í vetur og Shearer, sem er fæddur í Newcastle, hefur áðurfyrr lýst yfir áhuga á að leika fyr- ir félagið. Eftir að fréttirnar birtust sagðist hann hins veg- ar ekkert vita um sannleiks- gUdi þeirra. Hann væri samn- ingsbundinn Blackburn og vildi ekki ræða máUð frekar. Karlsruhe mætir Diisseldorf Karlsruhe, sem sló meistara Dortmund úr úr þýsku bikar- keppniuni, mætir Diisseldorf í undanúrsUtum keppninnar. Karlsruhe, sem vonast til að vinna bikarinn í fyrsta sinn síðan 1956, fékk heimaleik er dregið var í gær. í hinum und- anúrslitaleiknum mætast Kaiserslautern og Bayer Le- verkusen. Leikimir fara fram 12. oglB. mars. IÞROTTIR FATLAÐRA Hans Petersen styrkir fatlaða íþróttamenn Þeir peningar sem þessi samningur færir okkur eru ómetanlegir og verða eymamerktir Ólympíumóti fatlaðra og þroskaheftra sem fram fer í Atlanta á næsta ári, enþangað sendum við að vanda þátttakend- ur,“ sagði Olafur Jensson, formaður Iþróttafélags fatlaðra, er hann hafi undirritað samning við Hans Petersen hf. þess efnis að nú fyrir jólin renna fimm krónur af hverju seldu jólakorti í verslunum fyrirtækis- ins til félagsins. Gert er ráð fyrir að hlutur íþróttafélags fatlaðra nemi um 650.000 krónum auk þess sem félagið fær filmur og framköllun hjá Hans Petersen að verðmæti 150.000 krónur. „Ég vil bara þakka fyrir þann hlýhug sem okkur er sýndur með þessum styrk. Það kostaði félagið um tíu milljónir króna að undirbúa okkar besta fólk til þátttökunnar og til keppninnar og þetta mun hjálpa , þeim til að ná sem bestum árangri," sagði Ólafur ennfremur. Guðrún R. Eyjólfsdóttir, sölustjóri hjá Hans Peter- sen, sagði að nokkur undangengin ár hefði fyrirtækið látið hluta af verði hvers jólakorts renna til góðgerðarmála og nefndi hún að S fyrra hefði fyrirtækið styrkt Samtök krabbameissjúkra bama og árið þar áður rann styrkurinn til Foreldrafélags blindra og sjónskertra bama. Morgunblaðið/Jón Svavarsson ÓLAFUR Jensson formaður iþróttafélags fatlaðra og Guðrún R. Eyjólfsdóttlr sölustjórl Hans Petersen undirrlta hér samninginn um að hlutl af Jólakortasölu þelrra rennl til ÍF.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.