Morgunblaðið - 22.11.1995, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 1995 B 3
IÞROTTIR
KNATTSPYRNA
KORFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN
Besti leikur Jurgens Klinsmanns með Bayern Munchen á tímabilinu
Skemmtilegt að fá
svona sendingar
Jiirgen Klinsmann var hetja Bay-
em Miinchen þegar liðið vann
Benfica frá Portúgal 4:1 í fyrri leik
liðanna í 16 liða úrslitum Evrópu-
keppni félagsliða í knattspymu í
gærkvöldi. Kappinn gerði öll mörk
heimamanna á 19 mínútna kafla
og hefur ekki leikið betur með
Bayem á tímabilinu. „Það er
skemmtilegt að fá svona sending-
ar,“ sagði Klinsmann sem hefur
gert níu mörk í Evrópukeppninni
að þessu sinni.
Ein helsta ástæða Klinsmanns
fyrir því að skipta úr Tottenham í
Bayem var sú að Bayem var í
Evrópukeppni og hann naut þess
svo sannarlega í Miinchen í gær-
kvöldi. Hann braut ísinn á 27. mín-
útu eftir sendingu frá Mehmet
Scholl og skallaði í netið skömmu
síðar eftir að Dimas hafði jafnað
fyrir gestina. Klinsmann gerði síðan
annað mark með skalla eftir bar-
áttu í vítateig Benfica og skallaði
enn í netið í byijun seinni hálfleiks
eftir sendingu frá Scholl. Bayem
gat bætt við en Búlgarinn Emil
Kostadinov, sem kom in ná sem
varamaður, skaut í slá eftir gagn-
sókn. „Hann var frábær,“ sagði
Otto Rehhagel, þjálfari Bayern, um
Klinsmann. „Þetta er þægileg for-
ysta og hún ætti að nægja en þetta
er ekki búið. Það verða 100.000
áhorfendur í Portúgal."
PSV vann Werder Bremen 2:1.
Brasilíumaðurinn Ronaldo skoraði
úr vítaspymu fyrir heimamenn á
áttundu mínútu og Belginn Luc
Nilis gerði sigurmarkið sjö mínútum
fyrir leikslok en Marco Bode skor-
aði fyrir Werder Bremen á 54. mín-
útu.
Bröndby sigraði Roma
Bröndby sló út Liverpool í 32 liða
úrslitum og byijaði vel í 16 liða
úrslitum, vann Rgma 2:1 í Kaup-
mannahöfn eftir að ítalska liðið
hafði náð forystu.
Heimamenn fengu tvö góð mark-
tækifæri fyrsta stundarfjórðunginn
en Daniel Fonseca skoraði með
skalla fyrir Roma á 16. mínútu
rétt eftir að Bröndby missti Dan
Eggen meiddan af velli. Peter Möll-
er jafnaði undir lok fyrri hálfleiks
og Ole Bjur gerði sigurmarkið 11
mínútum fyrir leikslok.
Varamaðurinn Paul McGregor
tryggði Nottingham Forest 1:0 sig-
ur gegn Lyon á 83. mínútu. Florent
Laville varði með hendi og bjargaði
þannig marki en var vikið af velli
og heimamenn fengu vítaspyrnu.
Stuart Pearce skaut beint á mark-
vörðinn Pascal Olmeta sem hélt
ekki boltanum og það nýtti
McGregor sér. Leikurinn þótti frek-
ar leiðinlegur og gerðist fátt mark-
vert fyrir utan umrætt atvik.
Betur gekk hjá hinu franska lið-
inu, Bordeaux, sem tók á móti
Real Betis og vann 2:0. Bordeaux
vann sér rétt til að leika í keppn-
inni eftir að hafa byijað í Intertoto-
keppninni og hefur leikið 13 Evr-
ópuleiki á tímabilinu en 18 í frönsku
deildinni.
Spurs og
Arsenal á
sigurbraut
LUNDÚNARLIÐIN Tottenham
og Arsenal færðust upp töfluna
með því að sigra í leikjum sín-
um í ensku úrvalsdeildinni í
gærkvöldi. Arsenal náði að
leggja Sheffield Wednesday 4:2
með mörkum frá Hollendingn-
um Dennis Bergkamp, sem
gerði íjórða mark sitt í sfðustu
fimm leikjum, Nigel Winter-
burn, Paul Dickov og vara-
manninum John Hartson. Wed-
nesday, sem hefur tapað síð-
ustu fjórum leikjum sínum, náði
þó forystu 2:1 eftir 20 mínútur
og gerðu David Hirst og Chris
Waddle mörkin.
Tottenham færðist úr niunda
sæti upp í það fimmta með 1:0-
sigri á Middlesbrough. Sigur-
markið kom á 72. mínútu frá
Chris Armstrong, sem hefur
gert fimm mörk í síðustu sex
leikjum. Tottenham er fyrsta
liðið sem nær sigri gegn Midd-
Iesbrough á nýja heimavellin-
um, Riverside-Ieikvangjnum.
Middlesbrough hefur ekki unn-
ið leik sfðan Brasilíumaðurinn
Juninho kom til liðsins.
Reuter
PSV Eindhoven sigraði Werder Bremen 2:1 á heimavelli sínum. Hér þjarma hollensku varnar-
mennirnir Stan Valckx og Marciano Vink að Marco Bode, framherja Werder Bremen, í leiknum.
PENNY Hardaway var í miklu stuði og skoraði 29 stig fyrir
Orlando Magic gegn Golden State Warriors.
Oriando ósigrað
heima án O’Neal
ORLANDO Magic án Shaquille
O'Neal, vann enn einn sigurinn,
101:95, gegn Golden State
Warriors ífyrrinótt. Dennis
Scott skoraði þrettán af 27
stigum sínum ífjórða leikhluta
og Penny Hardaway skoraði 29
fyrir Magic, sem hefur unnið
sjö fyrstu leiki sína heima á
keppnistímabilinu, sem er liðs-
met. Liðið hefur unnið fjórtán
heimaleiki f röð f NBA-deildinni
— sigurgangan hefur staðið
yfirfrá 3. mars.
Sigurinn færði Orlando forystu í
Atlantashafsriðlinum í Aust-
urdeildinni — átta sigrar, tvö töp,
ásamt New York. Orlando lék einnig
án Horace Grant, sem meiddist á
hné í leik gegn Maimi um sl. helgi.
Chris Muliin skoraði flest stigin fyr-
ir Golden State, eða 23.
Houston Rockets vaon sinn
fimmta sigur í röð — þegar liðið
vann í Boston, 93:98. Hakeem
Olajuwon skoraði 24 stig Clyde
Drexler 18 fyrir Rockets, þá skoraði
Robert Horry 16 stig og tók 15 frá-
köst Greg Minor skoraði 21 stig
fyrir heimamenn og Dino Radja 13
og tók 17 fráköst.
Chris Morris skoraði 22 stig fyrir
Utah Jazz gegn sínum fyrrum félög-
um hjá New Jersey Nets, 105:79.
Adam Keefe skoraði 16 stig og tók
17 fráköst, Karl Malone skoraði 14
stig og náði að bijóta 9.000-frákas-
tamúr sinn í NBA-deildinni. Þetta
var fimmti sigur heimamanna í röð.
P.J. Brown skoraði 14 og Armon
Gilliam 13 fyrir gestina, sem töpuðu
sínum fimmta leik í röð á ferðalagi
sínu.
Rod Strickland og Clifford Robiri-
son skoruðu fimmtán stig þegar
Portland Trail Blazers skoraði nítján
stig í röð án þess að ieikmenn Los
Angeles Lakers náði að svara fyrir
sig í þriðja leikhluta — þessi góðu
leikkafli hafði mikið að segja fyrir
heimamenn, sem unnu 113:94.
Strickland skoraði alls 27 stig, Rob-
inson 25 og Arvydas Sabonis skor-
aði flest stig sín í leik í NBA, eða
20 — þar af rötuðu öll níu skot hans
af gólfi niður í körfuna. Terry De-
here skoraði 17 stig og Malik Sealy
16 fyrir Clippers.
ísland niður um
fjögur sæti
ÍSLENSKA landsliðið í knattspyrnu hefur fallið niður um fjögur
sæti á styrkleikalista alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA. Lið-
ið er nú í 48. sæti, en var í 44. sæti í október. Brasilíumenn eru
sem fyrr í fyrSta sæti, en síðan hafa Þjóðverjar skipt um sæti
við Spánverja — eru komnir úr þriðja sæti í annað. Italía heldur
fjórða sætinu og Rússland því fimmta.
FJAROFLUN
Stórtónleikar SKÍ og KKÍ
Skíðasamband íslands og Körfu-
knattleikssaniband íslands
standa fyrir stórtónleikum í Kola-
portinu fimmtudaginn 30. nóvember.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.30. Flest-
ar þekktustu hljómsveitir landsins
mæta og segja má að hér sé um að
ræða landslið tónlistarmanna. Að-
gangur er 1.000 krónur og eru mið-
ar seldir hjá Japís og Skífunni. Kynn-
ar kvöldsins verða Radíusbræður.
Meðal þeirra sem fram koma á
tónleikunum eru: Sálin hans Jóns
míns, Stjórnin, Vinir vors og blóma,
Hunang, Hálft í hvoru, Bjarni Ara.,
Maus, Cigarette, Emiliana Torrini,
Fjallkonan, Fantasia, Sónata, Zebra,
Sólstrandargæjarnir, Páll Óskar
Hjálmtýsson og Stefán og Eyfi.
Eins og kunnugt er hefur verið
spilaður götukörfubolti í Kolaportinu.
alla virka daga en fimmtudaginn 30.
nóvember fellur hann niður vegna
stórtónleikanna. SKÍ og KKÍ vinna
saman í fyrsta sinn að sameiginlegri
fjáröflun, en sérsamböndin innan ISÍ
hafa á undanförnum árum neyðst
til að fara óhefbundnar leiðir til að
fjármagna starfsemi sína.