Morgunblaðið - 22.11.1995, Síða 4
TENNIS
Becker lékk uppreisn æru
Þjóðverjinn stefnir enn að því að verða sá besti í heimi
■ ■■ m ■ XVCUICI
Fognudur og gleði
BORIS Becker var fagnaö vel í Frankfurt þegar hann slgraöl þar um helgina. Hann segir slgur-
Inn mlkllvægan fyrlr slg því margir hafl verið búnir aö afskrlfa hann sem tennisspilara.
ÞJÓÐVERJINN Boris Becker
vann Bandaríkjamanninn Mic-
hael Chang í úrslitaleik um
PTA-meistaratitilinn og þagg-
aði þar með niður i efasemdar-
röddum sem heyrst höfðu i
hans heimalandi um að hann
væri orðinn of gamall til að
sigra á einhverjum alvörumót-
um. Becker viðurkennir að
þegar hann sigraði fyrst á
Wimbledon sem táningur hafi
hann ekki búist við að hafa lifi-
brauð sitt af því að spila tenn-
is áratug síðar.
Becker verður 28 ára í vikunni
og er nú ráðsettur maður og
eiga hann og Barbara kona hans
ungan son, Noah Gabriel. Sigur
hans um helgina er fyrsti sigur
hans á stórmóti frá því hann sigr-
aði í Frankfurt árið 1992 en jafn-
framt þriðji sigur hans í ATP-móta-
röðinni. Hann hefur reyndar náð
langt síðan þá og komst meðal ann-
ars í úrslit á Wimbledon í sumar
en síðast sigraði hann í einu af fjór-
um stóru mótunum árið 1991 er
hann vann á Opna ástralska mótinu.
Þrátt fyrir að hinn sterklegi
Becker sé ekki ennþá jafnsprækur
og hann var þegar hann varð yngst-
ur allra til að sigra á Wimbledon,
aðeins 17 ára gamall, er hann enn
frábær tennisspilari. Gífurleg
reynsla hans vegur upp ákefð tán-
ingsins og hann þyrstir enn í sigur
— alltaf. Þrátt fyrir að Becker hafi
haft miklar tekjur af tennis síðustu
árin og geti því hæglega sest í helg-
an stein án þess að þurfa að hafa
áhyggjur af fjármálunum ætlar
hann að halda áfram.
„Ef ég á að vera alveg hreinskil-
inn þá hvarflaði það ekki að mér
fyrir tíu árum að ég yrði enn að
þegar ég væri orðinn 28 ára. Fyrstu
árin mín sem atvinnumaður voru
mjög viðburðarík, bæði í kringum
tennisinn og ekki síður í einkalífí
mínu, og ég hélt satt best að segja
að ég myndi ekki endast svona
lengi,“ sagði Becker á blaðamanna-
fundi eftir sigurinn um helgina.
„Ég hélt satt best að segj að löng-
unin til að leika tennis yrði aldrei
yfirsterkari því að vera allra og fá
aldrei stund út af fyrir sig. En ein-
hvem veginn hefur mér tekist að
tóra, þrátt fyrir að hafa lent í mörgu
og átt erfíða tíma. Það hafa komið
tímar þar sem tennis hefur ekki
verið aðalmálið hjá mér, en þrátt
fyrir allt hefur löngunin til að spila
alltaf blundað í undirmeðvitundinni
og ég held að það sé ástæðan fyrir
því að ég er enn að.“
Sigurinn á sunnudaginn var mjög
mikilvægur fyrir Becker. Fyrir það
fyrsta vegna þess að athygli fyöl-
miðla hefur beinst mikið að honum
síðasta áratuginn og að undanförnu
hefur hann ekki staðið undir þeim
væntingum sem sumir fjölmiðlar
hafa gert til hans. í annan stað
hefur Becker sagt að uppáhaldsvöll-
urinn hans sé í Festhalle í Frank-
furt þar sem leikið var um helgina,
en það er aðeins spölkörn frá heim-
ili Beckers í Leimen. Þegar Becker
tókst ekki að komast í gegnum
úrtökumótið fyrir þetta mót árið
1993 voru þýskir fjölmiðlar ekki
lengi að afskrifa hann og sögðu
hann orðinn of gamlan og timi
væri kominn fyrir hann að hætta.
Á sunnudaginn þaggaði hann niður
í öllu svoleiðis tali.
„Þetta var sérstaklega ánægju-
legur sigur fyrir mig vegna þess
að ég komst ekki í úrslitakeppnina
fyrir tveimur árum og þá sögðu
menn að ég væri of gamall — en
þá var ég bara 25 ára. Tíminn
stendur ekki í stað og þegar menn
hafa orðið fyrir mótlæti í vinnunni
eru sigrarnir sætari og svo lengi
sem ég er atvinnumaður mun ég
alltaf eiga mér þann draum að vera
bestur. Sem stendur viðurkenni ég
að Andrea Agassi og Pete Sampras
eru aðeins betri en ég, en ég stefni
að því að bæta mig,“ sagði Becker
sem var um tíma árið 1991 á toppi
heimslistans.
Theodóra
bættisig
verulega
THEODÓRA Mathiesen,
skíðakona úr KR sem dvelur
I Noregi við æfingar, náði
góðum árangri á tveimur al-
þjóðlegum svigmótum í Rjuk-
an í Noregi um síðustu helgi.
Hún hafnaði í 4. sæti í fyrra
mótinu og hlaut fyrir það
47,38 styrkstig (FlS-stig). Sig-
urvegari var Cacili Sylvester
Jensen frá Noregi. í síðara
mótinu varð hún sjötta og þá
fékk hún 54,01 stig, en sigur-
vegari var Cathrine Mikkel-
sen frá Noregi. Theodóra er
því komin með samtals 50,70
stig á alþjóðlega FlS-listanum.
Hún átti áður best 90,63 stig
og hefur því bætt sig punkta-
lega um 56%.
Snjóbretti á
ÓLíJapan
FRAMKVÆMDARAÐILAR
næstu Vetrarólympíuleika sem
fara fram í Nagano í Japan
hafa ákveðið að keppni á siyó-
brettum verði fullgild grein á
leikunum 1998. „Þetta hefur í
för með sér að keppt verður í
fleiri greinum en áður en við
munum takmarka fjölda kepp-
enda við þrjú þúsund eins og
við höfum áður sagt,“ sagði
forsvarsmaður leikanna f Jap-
an. Þess má geta að forseti
Alþj óðaóly mpíunefndarinnar,
Juan Antonio Samaranch,
lagði til við framkvæmdaraðila
í ágúst að þeir bættu snjóbrett-
um við sem keppnisgrein.
Konur dæma
í Atlanta
KONUR verða meðal dómara
í knattspyrnu á Ólympíuleik-
unum í Atlanta á næsta ári,
að sögn talsmanns Alþjóða
knattspy rnusambandsins,
FIFA. Þetta verður í fyrsta
sinn sem konur dæma knatt-
spyrnuleik á Ólympfuleikum.
Konurnar sem dæmdu f HM
kvenna sl. sumar sönnuðu að
þær eru starfí sínu vaxnar.
„Við reiknum með að taka
fjóra kvendómara og fjóra
Ifnuverði til Atlanta og ef kon-
umar standa sig vel þar gæti
vel hugsast að þær myndu
dæma í úrslitakeppni HM f
Frakklandi 1998,“ sagði Michel
Zen-Ruffinen, framkvæmda-
stjóri FIFA.
KORFUKNATTLEIKUR
| GOLF
Hægt að velja NBA-
stjörnuliðin á alnetinu
Costantino Rocca
tekur sæti Jose-
María Olazabal
ÁHUGASAMIR Bandaríkjamenn
geta sem fyrr valið byrjunarliðin
i stjörnuleik NBA-deildarinnar í
körfuknattleik sem verða tilkynnt
25. janúar en nú gefst fólki um
allan heim í fyrsta sinn kostur á
- að ve(ja sitt byijunarlið með því
að fara inn á heimasíðu NBA á
alnetinu og kjósa þar. Þetta kemur
fram í fréttabréfi NBA-deildar-
innar. Fyrir þá sem hafa áhuga á
að taka þátt í valinu er slóðin
http://www.nba.com og hægt er
a ve(ja fram til 12. janúar. í fyrra
var rúmlega 6,2 miljjónum at-
kvæðaseðla skilað inn og var það
met, en almenningur valdi byrjun-
arliðin fyrstárið 1975.
Nokkrir körfuknattleikssér-
fræðingar úr röðum blaða- og
fréttamanna ve(ja 100 leikmanna
hóp, 50 úr hvorri deild, á atkvæða-
seðilinn árlega og kosið er á milli
þeirra þegar valið er í byijunarlið-
ið. Þar er um að ræða 20 bak-
verði, 20 framheija og 10 mið-
heija úr hvorri deild. Þjálfarar
Sfjörnuliðanna velja síðar sjálfir
sjö varamenn hvor um sig.
Meðal þeirra sem eru í kjöri nú
eru allir þeir tíu sem skipa
,jDraumaliðið“ sem tekur þátt í
Óly mpíuleikunum á næsta ári og á
seðlinum má einnig finna kappa
eins og Michael Jordan, Scottie
Pippen, Charles Barkley, Karl
Malone og John Stockton, sem all-
ir eiga sameiginlegt að hafa verið
kjömir bestu menn Stjörnuleiks.
Italinn Costantino Rocca mun taka
sæti Spánverjans Jose-Maria
Olazabal í milljón dollara golf-
keppninni, sem fer fram í Sun City
í Suður-Afríku í næstu viku.
Olazabal á við meiðsli að stríða á
fæti og mun hann heldur ekki getað
tekið þátt í Johnny Walker heims-
bikarkeppninni, sem fer fram á
Jamaíku í næsta mánuði.
Þeir sem keppa í Sun City eru:
Nick Price (Zimbabwe), Nick Faldo
(Englandi), Bernhard Langer
(Þýskalandi), Ernie Els og David
Frost (Suður-Afríku), Colin Mont-
gomerie og Sam Torrance (Skot-
landi), Corey Pavin, Phil Mickelson
og Tom Lehman (Bandaríkjunum),
Vijay Singh (Fijieyjum) og Costant-
ino Rocca (Ítalíu).