Morgunblaðið - 02.12.1995, Page 2
2 C LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÁ SÝNINGU Turak
Théatre d’objets.
Upp-
gröftur í
eldhús-
inu
„CRITURES" - fornleifaupp-
gröftur í eldhúsinu er heitið á
leikriti sem sýnt verður í fyrsta
skipti af þremur þriðjudaginn
5. desember í Tjarnarbíói kl.
20.30. Leikhópurinn sem sýnir
verkið er franskur og kallast
„Turak Théatre d’objets“ og
kemur hingað fyrir tilstilli
Menningarmiðstöðvarinnar
Gerðubergs, Alliance Franca-
ise og AFAA.
„Critures" er nýjasta verk
leikhópsins sem starfað hefur
síðan árið 1985. Tveir leikarar
taka þátt í sýningunni ásamt
tveimur tæknimönnum sem
taka virkan þátt í því sem
gerist á sviðinu. Sýningar
hópsins eru án orða og eru því
ekki háðar landamærum
tungumála og höfða jafnt til
allra aldurshópa.
„Critures" gerist í eldhúsi
við enda borðs milli tveggja
ísskápa. I rökkri lifna hlutirnir
í eldhúsinu við, taka á sig
nýja mynd og verða persónur
og umhverfi sögunnar. Sýn-
ingin fjallar um tímann og leit-
ina að hinni einu sönnu ást.
Hún segir frá manni og konu
sem fara á mis allt lífið og
hittast ekki fyrr en á dauða-
stundu.
Önnur sýning á verkinu
verður laugardaginn 9. desem-
ber kl. 17 og sú þriðja sunnu-
daginn 10. desember kl. 17.
Skýjahöllin, barna- og f]ölskyldumynd eftir Þorstein Jónsson
SKÝJAHÖLLIN, barna- og
fjölskyldumynd Þor-
steins Jónssonar, fær lof-
samlega dóma í þýskum
dagblöðum en hún hefur verið
sýnd í kvikmyndahúsum í Berlin
síðastliðnar ellefu vikur.
„Sígild saga með frábærum
landslagsmyndum frá íslandi,"
segir meðal annars í TIP og
„skemmtileg, glettin og ævintýra-
leg saga fyrir börn og full-
orðna,“ segir í Frankfurter
Rundschau.
Þorsteinn segir að það sé afar
sjaldgæft að barnamyndir fái svo
góðar viðtökur í Þýskalandi en
myndin var meðal annars valin
kvikmynd mánaðarins af virtri
kvikmyndastofnun í Berlín.
Skýjahöllinni er dreift í þrett-
án eintökum í Þýskalandi og
verður meðal annars jólamynd
kvikmyndahúsa í níu borgum.
Eftir sýningar í kvikmyndahús-
um verður myndin gefin út á
myndbandi og sýnd í sjónvarpi.
Þá hefur hún verið keypt til sýn-
inga í þýska skólakerfinu.
Skýjahöllin, sem gerð er eftir
sögu Guðmundar Olafssonar um
Emil og Skunda, hefur reyndar
farið víðar og nýverið var hún
tekin til sýninga í kvikmyndahús-
um í Sviss og Noregi. Var aðal-
leikarinn Kári Gunnarsson, 12
ára Hafnfirðingur, viðstaddur
frumsýninguna í síðarnefnda
landinu.
Segir hann að ferðin hafi í alla
staði verið mjög vel heppnuð og
það sé mjög ánægjulegt að mynd-
inni skuli vegna jafn vel erlendis
og raun ber vitni. Kári kveðst
ekki hafa gert það upp við sig
hvort hann muni leggja leiklistina
fyrir sig í framtíðinni en vonar
þó að hann fái tækifæri til að
spreyta sig í fleiri kvikmyndum.
AÐALLEIKARINN Kári Gunnarsson og Þorsteinn Jónsson
Ieikstjóri við gerð Skýjahallarinnar.
EMIL og Skundi i hita leiksins.
Fær góða dóma
í Þýskalandi
Seld til sextán landa
Dreifingu Skýjahallarinnar
annast Nordisk Film, sem er
stærsti dreifingaraðilinn á þessu
sviði á Norðurlöndum og alls
hefur verið gengið frá sölu henn-
ar til sextán landa, aðallega í
sjónvarp og myndbandaútgáfu,
en einnig til sýninga í kvikmynda-
húsum. Eru þau — auk Noregs,
Sviss og framleiðslulandanna
Þýskalands og Danmerkur —
Brasilía, Slóvenía, Rússland, Pól-
Iand, Holland, Portúgal, Finn-
land, Italía, Austurríki, Eistland,
Litháen og Lettland en í septem-
ber var Skýjahöllin opnunar-
mynd á Norrænni kvikmynda-
viku í Riga.
Þorsteinn segir að þessar við-
tökur séu staðfesting á því, að
mögulegt sé að framleiða kvik-
myndir fyrir alþjóðlegan markað
í litlu eins manns fyrirtæki í
Reykjavík. Segir hann þetta ekki
síst ánægjulegt í ljósi þess að
samkeppnin á evrópskum kvik-
myndamarkaði sé hörð enda fylgi
jafnan flóð auglýsinga bandarísk-
um kvikmyndum. „Við þetta
erum við að keppa með lítið á
bak við okkur — og getum því
ekki verið annað en ánægðir."
Þorsteinn segir að viðtökurnar
ytra séu mikil hvatning og er
fyrirtæki hans, Kvikmynd, að
leggja drög að fleiri kvikmyndum
um þessar mundir. Næstu myndir
verða að Iíkindum Bergmál í fjöll-
unum eftir frumsömdu handriti
Þorsteins, sem hugsanlega verð-
ur frumsýnd í apríl 1997, Æsku-
blóð eftir sögu Guðjóns Sveins-
sonar Ört rennur æskublóð og
mynd eftir handriti Gunnars Ein-
arssonar sauðfjárbónda á Daða-
stöðum sem hefur vinnuheitið
Fjöregg.
f/já í wH \ \ ♦ J
r y?‘ W($p
r Jt'ÍM 1
í Grýlulandi
í TÍVOLÍHÚSINU í Hveragerði, sem nú er
búið að breyta í risastórt'Jólaland, verður
miðstöð hátíðarinnar opin frá kl. 13-19
fímmtudaga, föstudaga, laugardaga og
sunnudaga.
í boði verður fjölbreytt dagskrá fyrir börn
og fullorðna, sem Sánkti Kláus stjórnar.
Fluttir verða leikþættir, sérsamin dagskrá
um íslensku jólasveinana, Brúðubíllinn
skemmtir, kórar, hljómsveitir og önnur tón-
listaratriði verða í boði og margt fleira.
Meðal flytjenda eru Möguleikhúsið, Leik-
félag Hveragerðis og tónlistarfólk á öllum
aldri úr Hveragerði og nágrenni.
Dagskráin verður á þessa leið þá daga
sem Jólaland er opið: Kl. 13 ýmis tónlistar-
triði, kórar og hljómsveitir. Kl. 14. Brúðubíll-
inn skemmtir. Kl. 14.30 Sánkti Kláus heils-
ar, syngur og segir sögur. Kl. 15. Tónlistar-
atriði. Kl. 15.30 leikþátturinn í Grýluhelli.
Kl. 16. Tónlistaratriði, hljómplötukynningar.
Kl. 17. „Fyrir löngu á fjöllunum“, dagskrá
um íslensku jólasveinana. Kl. 18. Leikritið
„Smiður jólasveinanna“. Kl. 18.45 Sánkti
Kláus syngur og kveður. Kynnir er álfurinn
Mókollur og Sánkti Kláus verður á ferli.
RÚNAR Hartmannsson, sem Leppalúði
Morgunblaðið/Sverrir
Á efnisskrá strengjasveitarinnar verða verk eftir
Jón Leifs, J.S. Bach og Dvorák.
Strengj asyeitin í
Listasafni Islands
IDAG kemur strengjasveit
skipuð 22 hljómlistar-
mönnum, sem flestir eru
félagar í Sinfóníuhljóm-
sveit íslands, saman í annað
skipti til tónlistarflutnings á
Islandi. Tónleikarnir verða
haldnir í Listasafni Islands
oghefjastkl. 17.30. Stjórn-
andi verður Lan Shui, hljóm-
sveitarstjóri Sinfóníuhljóm-
sveitar Detroit-borgar í
Bandarikjunum, og einleikari
og konsertmeistari verður
fiðluleikarinn Zheng Rong
Wang en bæði eru þau Islend-
ingum kunn fyrir leik sinn
með Sinfóníuhljómsveit ís-
Iands og strengjasveitinni.
Strengjasveitin brúar bilið
á milli smærri kammersveitar
og sinfóníuhljómsveitar.
Stærð hennar hentar vel
flutningi verka sem sjaldan
heyrast á tónleikum á ís-
landi. Á efnisskrá tónleik-
anna í dag verða verkin Fine
II op. 56, Kveðja til mannlífs-
ins eftir Jón Leifs, fiðlukon-
sert í E-dúr eftir J.S. Bach
og serenaða fyrir strengi í
E-dúr eftir Dvorák.
Tónleikarnir áttu að fara
fram í Tjarnarbíói en af ófyr-
irsjánlegum ástæðum varð að
flytja þá í Listasafnið.