Morgunblaðið - 02.12.1995, Side 6
6 C LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Sögustund í
Kaffileikhús-
inu fyrir börn
o g unglinga
EFNT verður til sögustundar fyr-
ir börn og unglinga í Kaffileikhús-
inu í Hlaðvarpanum, Vesturgötu
3, sunnudaginn 3. desember kl.
14. Þar verða kynntar bækur fyr-
ir börn og unglinga sem gefnar
eru út nú fyrir jólin. Þeir sem
lesa úr verkum sínum eru verð-
launahöfundarnir Guðrún Helga-
dóttir, Elías Snæland Jónsson,
Guðrún H. Eiríksdóttir, Herdís
Egilsdóttir, Kristín Steinsdóttir
, og Þórey Friðbjörnsdóttir. Að-
gangur er ókeyppis og öllum
heimill.
Á sunnudaginn les Guðrún
Helgadóttir úr nýrri bók sinni,
Ekkert að þakka! Guðrún les einn-
ig úr Jóni Oddi og Jóni Bjarna,
en hún hefur nú verið endurútgef-
in. Þórey Friðbjörnsdóttir les úr
bók sinni Eplasneplar, Herdís
Egilsdóttir les úr bókinni Veisla
í barnavagninum, Guðrún H. Ei-
ríksdóttir les úr bók sinni Rön-
dóttir spóar fljúga aftur!, Kristín
Steinsdóttir les úr bók sinni
Abrakadabra! og Elías Snæland
Jónsson úr unglingabókinni
Krókódílar gráta ekki.
♦ ♦ ♦-----
Nýir geisladiskar
• ÚT er kominn geisladiskur með
píanóleik Jónasar Ingimundar-
sonar.
Um viðfangsefni hans segir
Halldór
Hansen í
meðfylgjandi
texta m.a.:
„Á þessum
geisladiski
Jónasar
Ingimundar-
sonar er að
finna safn af
píanólögum,
sem kalla
mætti „Lög
sem mér
finnst ég þekkja“ þar eð flest lag-
anna eru því marki brennd að
eiga beinan og milliliðalausan
aðgang að hug og hjarta áheyr-
andans á sama hátt og lög, sem
v allir þekkja" og síðar segir Hall-
dór Hansen: „Á tónleikum munu
flest af þessum lögum og önnur
svipaðs eðlis oftast heyrast sem
aukalög. Hvert og eitt þeirra
stendur þar með undir sér sem
sjálfstæð eining án frekari
tengsla við hin. Það sem heldur
þeim saman er að þau falla öll
ljúft að eyra.“
Á plötunni er að finna mörg
ólík verk eftir sautján höfunda.
Upptakan fór fram í Listasafni
Kópavogs undir stjórn Halldórs
Víkingssonar. Plata þessi hlaut
nafnið „Við slaghörpuna" en Jón-
as stendur fyrir tónleikum í Lista-
- safni Kópavogs með sama heiti.
Útgefandi erFermata, en Japis
sér um dreifmgu.
Jðnas
Ingimundarson
EIN ljósmyndanna á sýningunni.
Hafdís sýnir í London
NÚ stendur yfir sýning á Ijós-
myndum og listaverkum eftir
Hafdísi Bennett í Synergy Gall-
ery, London. Komu um 250
manns á opnunardaginn.
Á sýningunni eru 26 ljósmynd-
ir, flestar teknar síðastliðið sum-
ar í ferð um öræfín í kring um
Mýrdalsjökul, Tindfjallajökul og
Torfajökul. Auk þess eru til sýn-
is höggmyndir eftir Hafdísi, bæði
höggnar úr steini og steyptar í
brons.
Ef einhverjir Islendingar eru
á ferð í London og óska eftir að
sjá sýninguna er hún á 272 Ful-
ham Road, SW3, og er opin frá
kl. 11-12.30 og 2-5 alla daga. -
Lúðrasveitin
Svanur
65 ára af-
mælistón-
leikar
AFMÆLISTÓNLEIKARNIR
eru jafnframt árlegir aðventu-
tónleikar í Langholtskirkju
sunnudaginn 3. desmber kl. 17.
„Efnisskrá þessa tónleika lit-
ast af komandi hátíð, en þó eru
létt verk í bland," segir í kynn-
ingu. Flutt verða verk eftir tón-
skáldin Karl 0. Runólfsson og
Árna Bjömsson, sem lést
síðastliðið sumar. Meðal ann-
arra verka má' nefna Forget
me not eftir A. Bruckner, 0
dearest Lord eftir J.S. Bach,
Scherzo eftir M. Boekel og Alle-
gro and Intermezzo eftir C.T.
Smith.
Stjórnandi Lúðrasveitarinnar
Svans er Haraldur Ámi Har-
aldsson.
Aðgangur er 600 kr. og frítt
fyrir böm 12 ára og yngri.
Tónskóli Sig-
ursveins
heldur tón-
leika
TÓNSKÓLI Sigursveins D. Krist-
inssonar heldur tónleika í dag og á
morgun sem hér segir;
í dag verða tónleikar strengja-
sveita í Seltjarnarneskirkju kl. 16.
Fram koma þrjár strengjasveitir
sem flytja fjölbreytta efnisskrá.
Á morgun verða tónleikar Breið-
holtsdeildar í sal skólans að Hraun-
bergi 2 kl. 14 og tónleikar Árbæjar-
deildar í Árbæjarkirkju kl. 17.
Hermóður og Háðvör
Fimmþúsundasti
gesturinn leystur út
með gjöfum
HAFNARFJARÐARLEIKHÚSIÐ
Hermóður og Háðvör fmmsýndi
Himnaríki eftir Áma Ibsen um
miðjan september síðastliðinn. Í
dag, laugardag, em tímamót hjá
leikhúsinu, því þá mun fimmþús-
undasti áhorfandinn koma á sýn-
inguna. Þessi sérstaki gestur
númer 5.000 verður leystur út
með gjöfum í lok sýningarinnar.
Nú fer sýningum fækkandi fyr-
ir jói og síðasta sýning fyrir hátíð-
ina verður laugardgskvöldið 9.
desember. Þráðurinn verður síðan
tekinn upp að nýju milli jóla og
nýárs, en þá verða tvær sýningar,
29. og 30. desember.
Nýjar bækur
Sárfættur
signrveg’ari
BJÖRG Gísladóttir hefur
sent frá sér ljóðabókina
Sigurvegarinn sárfætti.
Þetta er fyrsta ljóðabók
Bjargar, en hún vakti
athygli fyrir leikþáttinn
Þá mun enginn skuggi
vera til, sem hún samdi
ásamt Kolbrúnu Ernu
Pétursdóttur og fjallar
um sifjaspell og afleið-
ingar þess.
Sigurvegarinn sár-
fætti skiptist í þijá kafla
sem nefnast Fjötrar,
Fangelsi kuldans og
Sláttur á fiðlustreng.
í kynningu segir Soff-
ía Auður Birgisdóttir
bókmenntafræðingur: „í þessari
bók em ljóð sem sprottin em upp
úr reynslu Bjargar af kynferðisaf-
brotamálum, bæði úr
reynslu hennar
sjálfrar sem þolanda
og úr starfi hennar
hjá Stígamótum.
Björg yrkir af innsæi
og hugrekki um þetta
málefni sem lengst
af hefur verið þaggað
niður í okkar samfé-
lagi. En í bókinni era
önnur ljóð: Ljóð um
lífið, ástina og feg-
urðina, ljóð um allar
hliðar þess að vera
manneskja."
Sigurvegarinn sár-
fætti er 47 bls. og
unnin í Stensli hf.
Bókin fæst í bókabúð Máls og
menningar, Laugavegi, Eymunds-
son, Austurstræti og hjá höfundi.
Björg Gísladóttir
Ljóðafrum-
varp
/ .
FRUMVARP til ljóða nefnist nýút-
komin ljóðabók eftir Ólöfu Jóns-
dóttur. I bókinni em 47 ljóð ort á
síðastliðnum tveimur árum. Nokk-
ur ljóðanna
hafa áður
birst í Lesbók
Morgunblaðs-
ins.
í kynning-
artexta frá
Lóu segir:
„Nokkur
órímuð ljóð
frá baminu í
mér til barns-
ins í þér. Viltu
leika þér? Með mér?“
Útgefandi er höfundur. Bókin
sem er 51 blaðsíða er prentuð í
Stensli. Um hönnun sá Margrét
Rósa Sigurðardóttir. Kápumynd
er eftir Erlu Björk Jónsdóttur.
Bókin er til sölu hjá Eymundsson
og Bókabúð Jónasar á Akureyri.
Hún kostar 1.500 kr.
Nýjar bækur
• ÚT er komin bókin Frá Aðal-
vík ogAmeríku - Aldarminning
hjónanna Ólafs Helga Hjálmars-
sonar og Sigríðar Jónu Þorbergs-
dóttur frá
Látrum í Að-
alvík.
Bókin er
nokkurs kon-
ar sambland
af þjóðfræði
og ættfræði.
Hún inni-
heldur
sögukafla af
Ólafi og Sig-
ríði, sem
segja frá lífs-
hlaupi þeirra
frá sitt hvoru sjónarhorninu.
Kaflinn um Ólaf er skrifaður af
Kjartani T. Ólafssyni, syni hans,
en kaflinn um Sigríði er skrifaður
eftir hennar frásögn, en dóttir
hennar, Ásta Ólafsdóttir, skráði.
Einnig er í bókinni kafli sem
segir frá lífi og aðstæðum fólks
á Hornströndum, þar sem þau
bjuggu lengst af.
Bókina prýðir fjöldi mynda,
nýrra og einkum þó gamalla, frá
Aðalvík og frá vesturströnd Am-
eríku, þar sem fjölskyldan bjó um
skeið áður en hún flutti aftur
norður á Hornstrandir.
Afkomendur Olafs og Sigríðar
gefa bókina útoger hægt að
nálgast hana hjá þeim.
• ÁSTIN Ijóðlistin ogönnur
Ijóð eftir franska skáldið Paul
Éluard, í þýðingu Sigurðar
Pálssonar eru komin út.
Paul Élu-
ard (1895-
1952) var
eitt af höfuð-
skáldum
Frakka á
þessari öld.
Hann var í
fararbroddi í
hreyfingu
súerrealist-
anna á þriðja
og fjórða
áratugnum, varð svo virkur
kommúnisti og í seinna stríðinu
urðu ljóð hans svo ástsæl meðal
frönsku þjóðarinnar að hann varð
að þjóðskáldi. „Ljóðmál hans var
liðugt og skýrt, lítið um hátíðleg
eða sjaldgæf orð, en ljóðmyndirn-
ar hins vegar iðulega flóknar og
óvæntar að hætti súerralista,“
segir í kynningu.
Margir frægustu myndlistar-
menn aldarinnar myndskreyttu
bækur hans, Picasso, Chagal,
Dalí og Max Ernst.
Uppistaða bókarinnar kemur
úr bók Éluards Ástin ljóðlistin frá
1929 og að auki eru í henni ljóða-
flokkar úr öðrum bókum hans frá
ýmsum tímum.
Þýðandinn Sigurður Pálsson
fylgir bókinni úr hlaði með ítar-
legum formála um skáldið og verk
þess.
Útgefandi er Mál og menning.
Ástin Ijóðlistin og önnur Ijóð er
113 bls., unnin íG. Ben. Eddu
Prentstofu hf. Ingibjörg Eyþórs-
dóttir gerði kápuna. Verð 1.680
kr.
Paul Éluard
Hctndverksfólk
Verkmiðstöðin í Þingholtssftræti 5
auglýsir eftir leigjendum í hina nýju verkmiðstöð Reykvíkinga,
Þingholtsstræti 5. Húsið er fjórar hæðir og samtals um 1.500 fm.
Húsið er ætlað fólki sem hefur atvinnu af handverki.
í boði eru vinnustöðvar frá 17 fm og til 60 fm að stærð og kosta
allt frá kr. 500 til kr. 790 á fermeterinn. í húsinu verður sameiginleg
söluaðstaða, aðgangur að markaðsráðgjafa og faglegum ráðgjafa,
svo og lítið kaffihús.
Verkefnið er styrkt af Reykjavíkurborg og liggja umsóknareyðu-
blöð frammi á skrifstofu Atvinnu- og ferðamálastofu
Reykjavíkurborgar í Aðalstræti 6, 2. hæð.
Umsóknarfrestur er til 31. desember 1995.
ÆFINGAR eru hafnar á nýju
íslensku verki, „Konur skelfa"
eftir Hlín Agnarsdóttur sem
jafnframt leikstýrir verkinu.
Leikritið er sett upp af Al-
heimsleikhúsinu í samstarfi við
Borgarleikhúsið með styrk frá
Leiklistarráði. Áætluð frum-
sýning er í lok janúar á litla
sviði Borgarleikhússins.
í kynningu segir: „Leikritið
gerist að vetrarlagi inni á
kvennaklósetti á íslenskum
skemmtistað þegar klukkan
nálgast miðnætti og dansinn
dunar við undirleik gortúgal-
skrar hljómsveitar. A einni
klukkustund kynnast áhorf-
endur ólíkum manneskjum sem
Konur
skelfa
fara út að skemmta sér. Inni á
klósettinu er heimur kvenna í
sinni nöktustu mynd, fyrir
framan spegilinn.
Leikstjóri sýningarinnar
segir að verkið sé „gamanleik-
ur sem um leið er harmsaga
sem fjallar um ástir, sigra og
vonbrigði. Enda verður gaman-
leikurinn aldrei verulega fynd-
inn nema þegar í honum liggur
harmsögulegur undirtónn."
Leikarar í „Konur skelfa“
eru Anna E. Borg, Ásta Arnar-
dóttir, Kjartan Guðjónsson,
María Ellingsen, Steinunn Ól-
afsdóttir og Valgerður Dan.
Leikmyndahönnuður er Jón
Þórisson, Áslaug Leifsdóttir
fatahönnuður saumar búninga
og Ogmundur Jóhannesson sér
um lýsingu.
Sýningarsljóri er Jón S.
Þórðarson. Hljómsveitin
„Skárra en ekkert" semur tón-
list við verkið. Aðstoðarmaður
við uppsetningu er Sigrún
Gylfadóttir og framkvæmda-
stjóri sýningarinnar er Þórný
Jóhannsdóttir."