Morgunblaðið - 02.12.1995, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1995 C 7
MENNING/LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Kjarvalsstaðir Kjarval - mótunar-
ár 1885-1930. Sýn. Einskonar
hversdagsleg rómantík og sýn. Ein-
ars Sveinss. arkitekts til 9. des.
Önnur hæð Alan Charlton sýnir
út des.
Gallerí Sólon Islandus Myndaröð
eftir Sölva Helgason.
Gallerí Sævars Karls Gréta Mjöll
Bjarnadóttir sýnir.
Gerðuberg Sýn. VerGangur til
8. jan.
Ingólfsstræti 8 Ásgerður Búadótt-
ir sýnir til 22. des.
Gallerí Stöðlakot Messíana Tóm-
asdóttir sýnir til 16. des.
Nýlistasafnið „Viðhorf" góðar
steplur/slæmar konur sýna til 17.
des.
Gerðarsafn Ljósmyndasýn. Ragn-
ars Th. Sig. til 17. des., málverk
Margrétar Elíasd. og tréristur Þor-
gerðar Sigurðard.
Norræna húsið Sýn. „Samtímis“
til 3. des. Grafíksýn. til 3. des. í
anddyri; Berta Moltke frá Danm.
sýnir grafíkverk til 3. des. og Lína
Langsokkur/jólasýn. til 31. des.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Sýning á völdum andlitsmyiidum
eftir Sigutjón Ólafsson stendur í
allan vetur.
Gallerí Fold Katrín H. Ágústsdótt-
ir sýnir til 10. des. og Ásdís Sigur-
jiórsdóttir sýnir í Kynningarhorni.
Ásmundarsalur Tumi Magnússon
sýnir til 10. des.
Mokka Finnbogi Pétursson sýnir
til 8. des.
Gallerí Úmbra Iréne Jensen sýnir
til 6. des.
Gallerí Birgir Hannes Lárusson
sýnir til 15. des.
Listhúsið, Laugardal Eva Ben-
jamínsdóttir sýnir til áramóta og
Garðar Jökulsson sýnir til 3. des.
Myndás
Ljósm.sýn. Kristjáns Logas. til 15.
des.___________________________
TONLIST
Laugardagur 2. desember
Eaken-tríóið í Listasafni Siguijóns
Ólafssonar kl. 20.30. Menntaskól-
inn Laugarvatni og Sjölbraut í
Breiðholti halda sameiginlega að-
ventutónleika í Skálholtskirkju kl.
16. Karlakór Reykjavíkur og
drengjakór Laugarneskirkju í Hall-
grímskirkju kl. 17.
Sunnudagur 3. desember
Karlakór Reykjavíkur og drengja-
kór Laugarneskirkju í Hallgríms-
kirkju kl. 17. Aðventutónleikar
Lúðrasveitarinnar Svans í Lang-
holtskirkju kl. 17.
Mánudagur 4. desember
Gunnar Kvaran og Jónas Ingi-
mundarson í Listasafni Kópavogs
kl. 20.30.
Þriðjudagur 5. desember
Kammertónleikar í Listasafni
Siguijóns Ólafssonar kl. 20.30.
Laugardagur 9. desember
Fílharmónían i Kristskirkju kl. 17.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Þrek og tár lau. 2. des., fös., lau.
Taktu lagið, Lóa lau. 2. des., mið.,
fös., lau.
Sannur karlmaður sun. 3. des.
Kardemommubærinn lau. 2. des., sun.,
lau.
Glerbrot sun. 3. des., fím.
Borgarleikhúsið
Lína Langsokkur lau. 2. des., sun., lau.
Tvískinnungsóperan lau. 2. des.
Hvað dreymdi þig, Valenh'na? lau. 2.
des.
BarPar lau. 2. des., fós., lau.
Hádegisleikhús lau. 2. des á Leyni-
bamum.
Ijoftkastalinn
Rocky Horror lau. 2. des., þri.
Hafnaríjarðarleikhúsið
Hermóður og Háðvör sýnir Himna-
ríki, lau. 2. des., lau.
Islcnska óperan
Carmina Burana lau. 2. des.
Kaffileikhúsið
Sápa þtjú og hálft lau. 9. des.
Kennslustundin lau. 2. des., fös.
Lögin úr leikhúsinu mið. 6. des.
Stand-up fim. 7. des.
Leikbrúðuland
Jólasveinar einn og átta, sun. 3. des.
kl. 15 að Fríkirlquvegi 11.
Furðuleikhúsið
Bétveir sun. 3. des.
KVIKMYNDIR
MlR „Tundurskeytaflugsveitin“
sun, kl. 16.____________ ________________
LISTAKLÚBBUR
Lcikhúskjallurinn
Ljóðalestur - Ijóðasöngur mán. kl.
21.
Söngvarinn Einar Kristjánsson
TONLIST
Illjómdiskar
Ó, LEYF MÉR ÞIG AÐ
LEIÐA ...
Upptökur úr safni Ríkisútvarpsins.
Umsjón og samsetning hljóðs: Þor-
steinn Hannesson. Tæknideild RÚV,
tæknimaður: Þórir Steingrímsson.
Umsjón með útgáfu: Vala Krisljáns-
son. Framleiðsla: Sony DADC Austr-
ia. Dreifing: Japis. Útgefandi:
Smekkleysa S.m. hf. Smekkleysa
S.m. hf. RÚV SM 59CD (2).
GREIND, fágun, stílöryggi og
víð þekking eru meðal orða sem
koma upp í hugann, þegar hlustað
er á söng Einars Kristjánssonar.
Raddfegurð (ekki síður á lágum
nótum), innileiki og óvenju vandað-
ur textaframburður (ekki síður á
þýskunni)... og svona mætti halda
áfram!
Ef einhver skyldi efast um þetta
eða telja ofmælt mætti benda þeim
sama á að kynna sér feril Einars
Kristjánssonar á árun-
um 1932-53, árið sem
hann vann sinn stærsta
sigur í Kaupmanna-
höfn í óperunni Albert
Herring eftir Benjamin
Britten („Ætli yfirleitt
sé til nokkur annar
óperusöngvari nokkurs
staðar sem veldur
þessu hlutverki eins vel
og Einar Kristjáns-
son?“). Tveimur árum
síðar var önnur ópera
Brittens, The Rape of
Lucretia, sviðsett í
Konunglega... („Hver
mundi geta tekið við
hlutverki sögumanns
af Peter Pears eða Aksel Schiötz
og leyst það betur af hendi en Ein-
ar Kristjánsson?“).
Einar Kristjánsson var ákaflega
fjölhæfur söngvari, jafnvígur á
óperusöng í hverskonar stíl, óratór-
íur og ljóðasöng, enda allstaðar
virtur og dáður. Hann starfaði
einna mest við þýsk óperuhús, en
í Þýskalandi, Austur-
ríki og víðar kom hann
einnig fram sem fág-
aður ljóðasöngvari.
Allt of langt mál yrði
að tíunda söng Einars
og tónleikahald yfir-
leitt, í óperum og tón-
leikasölum, hvort sem
það var Vínaróperan
eða Musikverein (einn
þekktasti tónleikasal-
ur heims) eða Ham-
borgaróperan eða
Dresdenaróperan eða
Ríkisóperan í Stuttg-
art — eða Beethoven-
salur í Berlín eða Kon-
unglega leikhúsið í
Khöfn, eða Konunglega óperan og
Konserthuset í Stokkhólmi. Einar
var án efa einn af fremstu og
mest metnu söngvurum í Þýska-
landi um og fyrir síðari heimsstyrj-
öidina.
Sjálfa Vetrarferðina söng Einar
fyrst í Hamborg (1945), og um
þann flutning voru höfð mörg orð
og stór. 1946 efndi hann til þrennra
einsöngstónleika í Rvík, sönglaga-
tónleika, óperukvölds - og vetrar-
ferðin (á vegum Kammermúsik-
klúbbsins). Baldur Andrésson
skrifaði m.a.: „Að mínum dómi
hefur Einar aldrei unnið meiri sig-
ur hér í Reykjavík en með túlkun
sinni á þessum lögum..." Sár-
grætilegt til þess að hugsa að ekki
varð úr hljóðritun á þessum óvið-
jafnanlega söngvaflokki, og raunar
óskiljanlegt. - „Einar hafði fyrstur
íslenskra söngvara, að öðrum alveg
ólöstuðum, tileinkað sér til fulls
hina öguðu list ljóðasöngsins eins-
og hún verður hreinust og tærust,“
svo vitnað sé til ágætrar greinar
Jóns Þórarinssonar í bæklingi.
Á þessum tveimur hljómdiskum
er að finna íslensk og erlend söng-
lög og smáatriði úr óperum og sýn-
ishorn af óratóríusöng - í vægast
sagt misjöfnum upptökum, en auð-
vitað margt látið fljóta með, þrátt
fyrir augljósa tæknigalla, vegna
minjagildis.
Oddur Björnsson
Einar
Kristjánsson
EIN myndanna á sýningunni.
Yfirlitssýning
á myndlistar-
verkum í eigu
Garðabæjar
í TILEFNI20 ára kaupstaðarrétt-
inda Garðabæjar 1. janúar 1996
verður opnuð yfirlitssýning á
myndlistarverkum í eigu bæj-
arins. Um er að ræða myndir sem
Garðabær hefur eignast í gegnum
tíðina og hanga uppi í ýmsum
stofnunum bæjarins. í kynningu
segir: „Á þessum tímamótum þyk-
ir vel við hæfi að koma eins mörg-
um verkum fyrir á einuin stað
og hægt er og leyfa Garðbæing-
um sem og öðrum listunnendum
að njóta verkanna við góðar að-
stæður. Menningarmálanefnd
Garðabæjar hefur fengið Einar
Hákonarson listmálara til liðs við
sig sem listfræðilegan ráðunaut
við val og röðun myndanna á sýn-
ingunni.“
Hátt á annað hundrað verka
eru í eigu bæjarins og eru lista-
menn m.a.: Alda Ármanna
Sveinsdóttir, Árni Elvar, Edda
Jónsdóttir, Eva Benediktsdóttir,
Garðar Jökulsson, Gísli Sigurðs-
son, Haukur Clausen, Haukur
Dór, Hringur Jóhannesson, Ingi-
björg Styrgerður, Jóhann G. Jó-
TONLIST
T ó n 1 c i k a s a I F í II
KAMMERTÓNLEIKAR
Camilla Söderberg, Ólöf Sesselja
Óskarsdóttir og Snorri Örn Snorra-
son fluttu franska, ítalska og þýska
barokktónlist. Þriðjudagurinn 28.
nóvember, 1995.
FÉLAG íslenskra tónlistar-
manna, FÍH, hefur haft það á
stefnuskrá sinni að gefa félögum
sínum kost á að halda tónleika í
sal félagsins, í Rauðagerði 27, og
voru þessir kammertónleikar liður
í tónleikaröð, er FIH hyggst standa
fyrir sérstaklega. Á efnisskránni
voru nær eingöngu tónverk frá 17.
og 18. öld er flest teljast til fyrri
hluta barokk tímabilsins, bæði
hvað varðar tónstíl og notkun
hljóðfæra. Tónleikarnir hófust á
sjöttu svítunni, eftir Boismortier,
fallegu verki, leikið á blokkflautu,
teorbo og viola da gamba. Þessi
hljóðfæraskipan var á þessum tíma
að víkja fyrir nýrri hljóðfærum en
Boismortier (1689-1755) var sam-
tíða Bach.
Marin Marais átti næsta verk,
sem var leikið á viola da gamba
og teorbo og voru það þættir úr
svítu í a-moll. Ólöf Sesselja og
Snorri fluttu þetta fínlega verk
hannsson, Jóhannes Geir, Leifur
Breiðfjörð, Pétur Friðrik, Ragn-
heiður Jónsdóttir, Snorri Arin-
bjarnar, ToIIi, Þórður Hall, Þór-
dís Árnadóttir o.m.fl. Auk þessa
er fjöldi útilistaverka í eigu bæj-
arins.
Menningarmálanefnd Garða-
bæjar hefur m.a. það hlutverk
að hafa umsjón með menningar-
sjóði Garðabæjar en úr þeim sjóði
hafa m.a. hlotið starfsstyrk
myndlistarmennirnir Ragnheið-
ur Jónsdóttir, Edda Jónsdóttir
Aðgætni
í hlustun
mjög fallega. Sama má segja um
flautu-rondó, eftir Hotteterre, sem
var leikið af Camillu og Snorra.
Eitt af veigameiri verkum tónleik-
anna var sónata í a-moll eftir
Francesco Mancini (1672-1737)
frá Napólí en eftir hann liggja um
20 óperur, 6 óratoríur og fiðlusón-
ötur og er þessi sónata umritun á
einni slíkri, fallegt verk, sem var
afburða vel leikið, sérstaklega af
Camillu, enda er flautan þar í for-
ustuhlutverki.
Fjögur lög frá tíma endurreisnar-
innar eftir Vincenzo Fontana og
Jacob Regnart, voru næst á efnis-
skránni, fallegar útfærslur á kór-
lögum, sem voru fluttar af innileik.
Snorri lék tvö lútuverk eftir Robert
Ballard, sem nefnast Inngangur
fyrir lútu og Dans þrælanna og nú
tók hann fram lútuna og lék þessi
verk mjög vel. Síðasta franska verk-
ið var fimmta svítan í op. 1, eftir
Pierre Philidor (1681-1731) en
hann var sá 9. í Philidor ættinni,
er stundaði tónlist, en alls voru það
tólf er gátu sér gott orð sem tón-
og Pétur Bjarnason. Fjármunum
úr sjóðnum er einnig varið til
eflingar tónlistar og leiklistar,
til kynningar á bókmenntum og
til annarrar menningarstarfsemi
i bænum.
Sýningin verður opnuð laugar-
daginn 2. des. kl. 15 í Sparisjóðn-
um í Garðabæ, Garðatorgi 1, og
verður opin til kl. 17.
Sýningin verður síðan opin á
opnunartíma Sparisjóðsins frá
kl. 8.30 til 16 alla virka daga til
19. janúar nk.
skáld og hljóðfæraleikarar og störf-
uðu allir í París og Versölum. Þessi
svíta er með forskrift Froberger og
endar á Gigue, skemmtilegt verk
sem var sérlega vel flutt.
Aðalverk tónleikanna var fiðlu-
sónata eftir Corelli, sú íjórða í op.
5 og hér umrituð fyrir blokkflautu.
og teorbo í stað fiðlu og sembals.
Þetta er glæsilegt verk og var það
vel flutt, með sérlega góðu jafn-
vægi á milli hljóðfæra. Það þarf
vart að tíunda það frekar, að Cam-
illa Söderberg er frábær blokk-
flautuleikari og hefur staðið fyrir
flutningi á tónverkum frá snemm-
barokk tímanum, ásamt Snorra
Erni Snorrasyni og Ólöfu Sesselju
Óskarsdóttur, sem öll hafa lagt sig
eftir að leika á þau hljóðfæri, sem
notuð voru í Evrópu allt fram und-
ir miðja 18. öldina. Á þessu sviði
hafa þau unnið gott verk og haft
forgöngu um frábæran flutning á
annars gleymdum verkum snemm-
barokk snillinganna. Þessi hljóðláta
og fíngerða tónlist útheimtir sér-
stakt næði og aðgætna hlustun,
sem er að verða sérlega eftirsóknar-
verð, sem andsvar við þrumandi
tónflutningi nútímans og hefur því
öðlast sérstakt gildi fyrir þá sem
ástunda innhverfa íhugun og vilja
koma kyrrðarskipan á hugsana-
gang sinn.
Menningar-
kvöld í
Skálafelli
MYNDLISTARMAÐURINN
og rithöfundurinn eijó (Einar
Jón Eyþórsson) heldur sýn-
ingu á nokkrum málverkum í
Skálafelli Mosfellsbæ sunnu-
daginn 3. desember. Jafn-
framt verður kynning á nýút-
komnum geisladiski Leós G.
Torfasonar, „Draumsýn".
Sýningin verður opnuð kl.
12 á hádegi og stendur til kl.
23.30.
■ Um kvöldið kl. 21 les eijó
upp úr bókinni sinni „Ávöxtur
efasemda“, nýrri skáldsögu,
þeirri fyrstu sem hann sendir
frá sér.
> '
Asgerður í
Lóuhreiðrinu
OPNUÐ hefur verið sýning á
vatnslitamyndum eftir Ás-
gerði Kristjánsdóttur frá Bol-
ungarvík í Lóuhreiðrinu við
Laugaveg.
Þar sýnir hún 27 upp-
hleyptar vatnslitamyndir.
Þetta er 6. einkasýning henn-
ar auk samsýningar á Akra-
nesi 1990.
Ásgerður er fædd og uppal-
in í Bolungarvík, þar hélt hún
sína fyrstu sýningu árið 1988.
Hún bjó á ísafirði í 11 ár en
flutti suður árið 1989. Hún
er að mestu sjálfmenntuð.
Sýningin í Lóuhreiðrinu
stendur út desembermánuð.
Gerðarsafn
Ljósmynda-
sýning Ragn-
ars Th. fram-
lengd
VEGNA mikillar aðsóknar
hefur ljósmyndasýningin
Norðurslóðir í Gerðarsafni,
Listasafni Kópavogs, verið
framlengd til 17. desember
nk._
Á sýningunni eru 32 Ijós-
myndir, flestar mjög stórar,
eftir Ragnar Th. Sigurðsson.
Tvær aðrar sýningar
standa yfir í safninu; málverk
Margrétar Elíasdóttur og
tréristur Þorgerðar Sigurðar-
dóttur.
Safnið er opið alla daga
nema mánudaga frá kl.
12-18.
Jón Ásgeirsson