Morgunblaðið - 02.12.1995, Qupperneq 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
Wp
D
1995
LAUGARDAGUR 2. DESEMBER
BLAD
Þorbjörn Jensson landsliðsþjálfari
Ætlum að
klára þetta
ÍSLENSKA landsliðið í handknattleik leikur síð-
asta leik sinn í riðlakeppni Evópukeppninnar í
dag. Leikið verður gegn Pólverjum og fer leikur-
inn fram í í borginni Poznan og hefst kl. 15.30
að ísienskum tíma. Ferðalagið til Poznan var nokk-
uð langt og örugglega þreytandi því eftir að hafa
flogið til Hamborgar þurftu leikmenn að ferðast
með langferðabíl í 11 klukkustundir og komu
ekki á áfangastað fyrr en um miðja nótt.
„Það er allt gott af okkur að frétta. Við erum
búnir að ná úr okkur ferðaþreytunni og það fer
vel um menn hér,“ sagði Þorbjörn Jensson iandsl-
iðsþjálfari í samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi. „Strákarnir eru hressir og það er góður
andi í hópnum og allir staðráðnir i að kiára þetta,“
sagði Þorbjörn um leikinn í dag.
KNATTSPYRNA
Orebro tilbúið aðborga 8 millj.
fyrir Sigurð en ÍA vill meira
ÍA býður Sigurði þriggja ára framlengingu á samningi hans — til 1999
Brun-
meistar-
innbyrjar
mjögvel
LUC Alphand frá Frakklandi
byijar keppnistimabilið í brun-
inu vel, enhann sigraði á
fyrsta heimsbikarmótinu í
bruni sem fram fór í gær í
Vail í Colorado. Skilyrði voru
einstaklega góð og þvi ákvað
Alphand að vera seint í röðinni
og var númer 27, og þetta
herbragð hans heppnaðist.
Hann skíðaði svo tii óaðfinnan-
lega og sigraði á einni mínútu
37,93 sekúndum. „Égfann
ekki fyrir taugaspennu, var
mjög afslappaður og tók alla
áhættu sem ég gat. Þetta var
nvjög þægilegt allt saman,“
sagði Alphand eftir sigurinn.
Norðmaðurinn Lasse Kjus
varð að sætta sig við annað
sætið, en hann kom í mark á
1.38,47 og er þetta í áttunda
sinn sem hann verður í öðru
sætí á heimsbikarmóti. Patrick
Ortlieb frá Austurríki varð
þriðji á 1.38,61 og fjóðri varð
Xavier Gigandet frá Sviss,
fékktímann 1.38,74. Sviinn
Fredrik Nyberg kom á óvart
og kræktí sér í fimmta sætið
á 1.38,76, en hann var með
rásnúmer 63 og bjuggust fáir
við að maður sem væri svo
aftarlega í ráshópnum kæmi
til með að blanda sér í toppbar-
áttuna.
Nýliði í heimsbikarnum,
Roland Assinger frá Austur-
ríki, sýndi að vei er þess virði
að fylgjast með honum á næstu
árum, en hann varð sjöttí.
AKRAH6S!
SIGURÐUR Jónsson, Akurnesingur. Hann telur tilboð sænska
félagsins Örebro freistandl en forráðamenn ÍA eru ekki eins
ánægðir með það sem Svíarnir hafa boðið í landsliðsmann-
inn og vilja fá meira fyrir kappann.
FORRÁÐAMENN íslandsmeistara ÍA leggja mikla áhersiu á að
halda Sigurði Jónssyni hjá félaginu, en sænska 1. deildarliðið
Örebro, sem Arnór Guðjohnsen og Hlynur Birgisson eru hjá, hef-
ur sem kunnugt er boðið honum samning. Sigurður telur boð
sænska félagsins mjög freistandi og hefur áhuga á að fara utan,
en stjórn ÍA telur hins vegar tilboð sænska liðsins ekki viðun-
andi. Örebro hefur boðið 800 þúsund sænskar krónur í Sigurð —
andvirði 8 milljóna króna, skv. heimildum Morgunblaðsins, en
forráðamenn IA telja Sigurð mun meira virði og hafa reyndar ekki
enn svarað tilboði sænska félagsins.
Haft var eftir Sven Dahlkvist,
þjálfara Örebro, í sænsku blaði
í vikunni að hann væri hissa á að
hafa ekki fengið svar við tilboði sínu.
„Maður er farinn að furða sig á því
hvað sé á seyði þarna á Akranesi,
fyrst ekkert heyrist frá þeim. Sigurð-
ur hefur sjálfur talað við formann
ÍA og á milli þeirra er til munnlegt
samkomulag um að Sigurður megi
fara frá liðinu. Samkvæmt mínum
upplýsingum eru þó aðrir í stjórn ÍA
á öðru máli, enda hefur Sigurður
skriflegan samning við félagið."
Sigurður á eitt ár eftir af samn-
ingi sínum við ÍA og í framhaldi af
áhuga Svíanna hefur stjórn félagsins
ákveðið, í þeirri von að halda honum
á Akranesi, að bjóða honum þriggja
ára samning til viðbótar því eina ári
sem hann á eftir, þannig að hann
verði hjá ÍA næstu fjögur keppnis-
tímabil — til hausts 1999. Slíkt til-
boð verður Sigurði gert um helgina,
skv. heimiidum Morgunblaðsins.
Dæmið verður lagt þannig upp að
fari Sigurður ekki utan næsta haust
framlengist samningur hans sjál-
krafa til þriggja ára.
„Það er ljóst að bæjarbúar leggja
mikla áhersiu á að halda Sigurði og
við erum sama sinnis í stjórninni,“
sagði Gunnar Sigurðsson, formaður
Knattspyrnufélags ÍA. Hann vildi
ekkert láta hafa eftir sér frekar um
málið en vísaði á Guðjón Þórðarson,
framkvæmdastjóra félagsins. „Guð-
jón fer með þessi mál fyrir okkar
hönd og hann að ræða við Sigurð
um hugsanlega áframhaldandi veru
hans hjá félaginu."
Forráðamenn Örebro hafa lýst því
yfir, eftir því sem Morgunbiaðið
kemst næst, að félagið sé ekki til-
búið að hækka tilboð sitt til Akurnes-
inga. Staðan virðist því þannig í dag
að ef stjórn ÍA snýst ekki hugur
varðandi þá upphæð sem Svíarnir
hafa boðið, verði ekkert af því að
Sigurður leiki með Örebro næsta
sumar.
Sigurður Jónsson er 29 ára. Hann
hefur nú verið fjögur leiktímabil með
ÍA að nýju, eftir að hann snéri heim
úr atvinnumennsku í Englandi. Þar
lék hann með Sheffield Wednesday
og Arsenal en varð að hætt vegna
meiðsla.
Þóðverjar fá góðan vasa-
pening fyrir sigur
L ANDSLIÐSMENN Þýskaiands í knattspyrnu fá heldur betur
góða vasapeninga ef þeir verða Evrópumeistarar í Englandi, eða
andvirði 4,5 miiy. isi. kr. á mann. Þessi bónusgreiðsla er jafnmik-
il og háskólakennarar hafa í árslaun í Þýskalandi. En sagan er
ekld öll sögð, því að ieikmennirnir fengu 450 þús. kr. fyrir hvern
leik sem þeir léku í undankeppninni. Sigur i Englandi þýðir að
þeir leikmenn sem hafa leikið alla leikina í undankeppninni og
verða með í Englandi fá 9 millj. ísl. kr. fyrir þátttöku sína i
Evrópukeppni landsliða, en þess má geta að hver ieikmaður þýska
liðsins sem varð heimsmeistari 1990 á Ítalíu, fékk 5,6 millj. króna.
KNATTSPYRNA: FIMM NÝIR ÞJÁUFARAR í 1. DEILDINNINÆSTA SUMAR / D4