Morgunblaðið - 05.12.1995, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
+
jao rjjmiWaíi tí*
c
1995
ÞRIDJUDAGUR 5. DESEMBER
BLAÐ
TENNIS
Reuer
Guðmundur
sigraði á stórmóti
í Ðanmörku
GUÐMUNDUR E. Stephensen, íslandsmeistari
I borðtennis, sigraði um helgina á sterkasta
unglingamóti sem árlega er haldið í Dan-
mörku. Það fór fram í Oðinsvéum og voru þar
samakomnir allir bestu unglingar Dana, Svía
og Norðmanna auk tveggja íslendinga, Guð-
mundar og Adams Harðarsonar.
Guðmundur sigraði í einliðaleik í flokki
drengja 15 ára og yngri og einnig sigraði hann
í tviliðaleik unglinga, 15-17 ára, ásamt Michael
Maze, sterkasta borðtennismanni Dana í ungl-
ingaflokki. Maze þess er annar sterkasti borð-
tennismaður Evrópu í þessum aldursflokki
samkvæmt styrkleikalista alþjóða borðtennis-
sambandsins og telja forráðamenn Borðtennis-
sambandsins það mikinn heiður fyrir Guðmund
að fá að spila með honum. Þeir félagar munu
að ölium líkindum leika saman í tvfliðaleik á
næsta Evrópumóti unglinga næsta sumar, þar
sem þeir eru taldir eiga mikla möguleika á að
sigra.
Þjóðirnar sem
leika í EM á Spáni
NÚ er yóst hvaða tólf þjóðir leika til úrslita í
Evrópukeppni landsliða í handknattleik á Spáni
næsta smnar. Það eru Spánverjar, Evrópu-
meistarar Svía, Króatar, Slóvenar, Tékkar,
Ungveijar, Júgóslavar, Frakkar, Rússar, Rúm-
enar, Danir og Þjóðveijar.
Dregið verður í riðla í keppninni í Sevilla
22. desember.
Sigurður hafnaði
nýjum samningi
frá Skagamönnum
SIGURÐUR Jónsson, landsliðsmaður í knatt-
spymu, hafnaði þriggja ára framlengingu á
samningi sem Skagamenn buðu honum um
helgina í kjölfar tilboðs frá sænska liðinu
Orebro. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins
hefur Orebro boðið 8 milljónir í Sigurð, en
forráðamenn í A telja hann mun meira virði.
Að sögn Gunnars Sigurðssonar, formanns í A,
var ákveðið á fundi í gærkvöldi að svara til-
boði sænska liðsins, en hann vildi ekki gefa
upp í hveiju svarið væri fólgið. „Við erum
ekki tilbúnir að sleppa besta leikmanni ís-
lands, sem er enn samningsbundinn okkur. Við
reynum allt sem við getum til að halda hon-
um,“ sagði Gunnar.
HANDKNATTLEIKUR
íslendingar í forkeppni
fyrir næstu EM-keppni
Næsta verkefni handknattleikslandsliðsins er Lotto Cup í Noregi
Bandaríkja-
menn sigruðu
Í31. sinn
BANDARÍKJAMENN unnu Davis-
bikarinn í tennis í 31. sinn á sunnu-
daginn er þeir lögðu Rússa að
velli í úrslitaleik í Moskvu. Það
var Pete Sampras sem tryggði
sigurinn í fjórða leik er hann
mætti Kafelnikov og staðan þá
orðin 3:1. Það var því aðeins
formsatriði að ljúka fimmta leikn-
um en þar tapaði Courier fyrri
Chesnokov. Hinir leikirnir fóru
þannig: Sampras vann Andrei
Chesnokov á laugardag, Jim Co-
urier tapaði fyrir Yevgeny Ka-
felnikov og Sampras og Todd
Martin unnu Kafelnikov og Andrei
Olkhovsky í tvíliðaleik. Þetta var
í annað skiptið á jafn mörgum
árum sem Rússar tapa úrslitaleik
á heimavelli því í fyrra tóku Svíar
bikarinn. Á myndinni hér fyrir
ofan fagna Bandaríkjamennirnir
Pete Sampras og Andre Agassi.
Íslenska landsliðið í handknattleik
þarf að taka þátt í forkeppni
fyrir næstu Evrópukeppni landsliða
í handknattleik. í forkeppninni
tryggja tíu þjóðir sér rétt til að
taka þátt í undankeppninni, eins
og íslenska landsliðið tók síðast
þátt í — lék í riðli með Rússlandi,
Rúmeníu og Póllandi. Tíu þjóðir sem
leika í EM á Spáni næsta sumar
sleppa við aðlaka þátt í forkeppn-
inni — fara beint í riðlakeppnina,
þá fara Erópumeistararnir og gest-
gjafar beint í aðalkeppnina.
Forkeppnin er riðlakeppni. Það
eni mörg sterk lið í hópi þeirra sem
koma til með að keppa um sætin
tíu — liðin sem há þá baráttu eru:
ísland, Pólland, Sviss, Litháen,
Hvíta-Rússland, Belgía, Makedónía,
Slóvakía, Tyrkland, Austurríki, Kýp-
ur, Eistland, Bosnía-Herzegóvína,
ísrael, Grikkland, Holland, Búlgaría,
Úkraína, Lettland, Portúgal, Noreg-
ur, Lúxemborg, Azerbaídsjan, Italía,
Finnland og Georgía.
Þess má geta að Norðmenn
máttu þola tap fyrir Belgíumönnum
í sínum riðli í síðustu forkeppni, en
landslið Lúxemborgar og Azerbaíd-
sjan léku einnig í riðlinum.
Eins og sést á hvaða þjóðir eu í
pottinum, þá getur orðið löng ferða-
lög framundan hjá íslenska lands-
liðinu í forkeppninni, sem hefst á
næsta ári.
ísland í Lotto Cup
Næsta verkefni landsliðsins í
handknattleik er þátttaka í Lotto
Cup í Noregi í febrúar, þar sem
fimm landslið mæta til leiks —
Noregur, ísland, Svíþjóð, Danmörk
og Austurríki.
KÖRFUKIMATTLEIKUR: HAUKAR FÖGIMUÐU í KEFLAVÍK í FRAMLENGDUM LEIK / C4