Morgunblaðið - 05.12.1995, Qupperneq 2
2 C ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 1995
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Króatía 8 6 1 1 13 Rússland 6 4 0 2 8
Hvíta-Rússland 8 |0g 1 2 11 Rúmenía 6 4 0 2 8
ÍSLAND 8 5 1 2 11 ÍSLAND 6 4 0 2 8
Finnland 8 2 1 5 5 Pólland 6 0 0 6 0
Búlgaría 8 0 0 8 0
Jafntefli, 23:23, gegn Finnum í Finnlandi kostaði
ísland sæti í lokakeppninni í Portúgal 1994.
Óhagstæð markatala varð íslandi að falli.
ísland er úr leik þar sem útkoman i innbyrðis leikjum
gegn Rússlandi og Rúmeníu er óhagstæð, -6 mörk
gegn Rússlandi og -1 mark gegn Rúmeníu.
■ JÚGÓSLA VAR tóku Belga í
karphúsið í 3. riðli Evrópukeppninn-
ar í handknattleik í Belgrad um
helgina. Úrslitin urðu 21:12, en í
leikhléi var staðan 11:2. Júgósla-
var sigruðu einnig í fyrri leiknum,
í Belgíu, fyrir helgi - 27:17.
j ■ FRAKKAR fara í úrslitakeppn-
: ina úr 3. riðli ásamt Júgóslövum.
Heimsmeistaramir sigruðu Hvít
Rússa í seinni leik þjóðanna, 28:25,
á heimavelli í Besancon í Frakk-
: landi en höfðu tapað fyrri leiknum
j í Minsk, 28:31.
■ SVISS komst ekki í úrslita-
| keppnina. Liðið tapaði heima fyrir
Litháen í síðasta leiknum, 23:25
og fékk aðeins 5 stig úr riðlinum.
Danmörk og Þýskaland fara
áfram.
■ COREY Pavin sigraói á hinu
árlega Milljón-dollara móti í golfi í
Sun City um helgina. Pavin, sem
er 36 ára Kaliforníubúi, lék á 66
j höggum síðasta daginn — sex und-
ir pari — og en Nick Price frá
Suður Afríku varð annar á mót-
inu, fimm höggum á eftir. Fyrstu
FOI_K
verðlaun á mótinu eru alltaf milljón
dollarar, þannig að Pavin, sem fyrr
á árinu sigraði á opna bandaríska
mótinu, varð 65 millj. króna ríkari.
Þetta eru hæstu sigurlaun sem um
getur í golfi.
■ VALSMENN voru ekki allt of
ánægðir með dómarana í fyrri hálf-
leik á leik þeirra við Skagamenn
í úrvalsdeildinni í körfuknattleik á
sunnudaginn. Valur hafði fengið
17 villur en ÍA 7, eða tíu færri.
En eins og oft vill verða færðist
bros yfir andlit stuðningsmanna
þegar lið þeirra komst yfir og þá
voru dómararnir orðnir ágætir.
■ ÞRÁTTíyrir að Valsmenn virt-
ust ætla að komast í villuvandræði
snemma í síðari hálfleik var það
Skagamaður sem fyrstur fékk
fimm villur. Jón Þór Þórðarson
varð að fara af velli upp úr miðjum
síðari hálfleik.
■ ÞRÍR franskir knattspyrnu-
menn hafa fallið á lyljaprófum í
vetur. Tveir eru landsliðsmenn,
Fabian Barthez, markvörður Món-
akó og Stephane Paille, sem er
reyndar hættur, en lék með Mulho-
use og sá þriðji er Franck Fontan,
varamarkvörður Bordeaux. Hann
hefur þegar verið settur í tveggja
mánaða bann en ekki er ekki ljóst
hvaða refsingu hinir hljóta. Enn á
eftir að rannsaka seinna sýni úr
þeim. Staðfest hefur verið að ekki
er um að ræða að lyf hafi verið
tekin við að auka styrk og kraft
heldur er um einhvers konar eitur-
lyf að ræða.
É JÓN Þórir Jónsson, fyrrum leik-
maður Breiðabliks, hefur verið ráð-
inn þjálfari 3. deildarliðs Dalvíkur
í knattspyrnu. Hann lék með liðinu
sl. sumar undir stjórn Bjarna Svein-
björnssonar og var boðið starfið
eftir að Bjarni fór aftur til Þórs.
BYRJUN
Islenskur handknattleikur er
kominn á byrjunarreit, eftir
velgengni frá 1984 þegar íslenska
landsliðið hafnaði í sjötta sæti á
Ólympíuleikunum í Los Angeles,
endurtók leikinn í HM í Sviss 1986
— hámarkinu var náð í Frakklandi
1989. bar sem íslenska
liðið vann frækilegan ■HHi
sigur í B-keppninni —
fékk gullið í París. Fljót-
lega eftir keppnina í
Frakklandi sendi Bogd-
an Kowalczyk landsliðs-
þjálfari tóninn frá
Stupava í Tékkóslóvakíu — nokkr-
um mánuðum fyrir HM-keppnina
sem fór þar fram 1990. Bogdan
var afar óhress þegar hann sá að
margir af bestu leikmönnum sínum
voru ekki með í för til að taka þátt
í æfingamóti í Bratislava, þegar
hann kom til móts við landsliðið
frá Póllandi. „Égstend nú við spila-
borðið án ásanna," sagði Bogdan,
þegar hann sá að það vantaði átta
af leikmönnunum sem hann vildi
fá til Tékkóslóvakíu.
Bogdan sagði þá í viðtali við
undirritaðan, sem vakti mikla at-
hygli á íslandi: „Það er eins og
margir á íslandi séu ekki komnir
heim frá París. Það er eðlilegt fyr-
ir íslendinga — þeir vilja liggja
lengi á sigrinum og gleðjast. Síðan
þarf að koma áfall til þess að
menn vakni upp af þyrnirósar-
svefninum.“
Margir sögðu þá að Bogdan
væri byijaður að undirbúa jarðveg-
inn fyrir sig, að hann gæti kennt
undirbúningnum um ef illa færi.
Það má ve! vera, en Bogdan hafði
rétt fyrir sér — menn sofnuðu á
verðinum og skellurinn kom í HM
í Tékkóslóvakíu; Ísland varð aftur
B-þjóð. Það var Ijóst að landsliðið
stóð á tímamótum. Þegar liðið
tryggði sér rétt til að leika í HM
í Svíþjóð 1993 með þriðja sæti í
B-keppninni í Austurríki 1992, þar
sem gömlu refirnir, Sigurður
Sveinsson og Kristján Arason, létu
undan þrýstingi ti! að leika og léku
aðalhlutverkið, var rétti tíminn
runninn upp til að gera breytingar.
Það var þá sem kynslóðaskiptin
Handknattíeikslands-
liðið er komið á ný
á byrjunarreit
áttu að verða I íslenskum hand-
knattleik — það átti að gefa þrem-
ur ungum leikmönnum 21 árs
landsliðsins, sem léku lykilmenn
fyrir utan í bronsliðinu í HM í
Egyptalandi, tækifærið til að öðlast
reynslu og leika stór hlutverk í HM
í Svíþjóð. Hér er átt við Patrek
Jóhannesson, Dag Sigurðsson og
Ólaf Stefánsson. Það var ekki gert,
því miður. Þeir fengu ekki nægilega
mikla reynslu fyrir heimsmeistara-
keppnina á íslandi, því fór sem fór.
Nú þegar íslend er úr leik í
Evrópukeppni landsliða — kemst
ekki í lokakeppnina á Spáni, þar
sem keppt var um Ólympíusæti í
Atlanta 1996 og sæti í HM í Japan
1997, eru fá spennandi verkefni
framundan. Landsliðið verður að
taka þátt í forkeppni Evrópukeppni
landsliða, til að vinna sér rétt til
að leika í undankeppni EM 1998.
Það þýðir þó ekkert að leggja árar
í bát þó að á móti blási — það
verður hiutverk Þorbjöms Jensson-
ar að stappa stálinu í landsliðs-
menn íslands og koma liðinu á
þann stall sem það hefur verið á
síðan 1984. Þorbjöm og strákarnir
verða að fá stuðning á þeirri grýttu
leið sem er framundan.
Sigmundur Ó.
Steinarsson
l
Átti Haukamaðurínn JÓN ARNARINGVARSSON von á svona góðu gengi liðsins?
Styttist ekkert
í tapleikinn
ÞRÁTT fyrir að vera aðeins 23 ára hefur Jón Arnar Ingvars-
son leikið 64 A-landsleiki f körf uknattleik og 20 með yngri
iandsliðum. Jón Arnar er fæddur í Reykjavík 3. júní 1972 en
flutti til Hafnarfjarðar þegar hann var tveggja ára og hefur
búið þar síðan. „Ég er ekki alveg alvöru Gaflari," segir Jón
Arnar. Sambýliskona hans er Dadda S. Árnadóttir og sonur
þeirra Uni Þeyr sem er fjögurra ára.
Eftir
Skúla Unnar
Sveinsson
Faðir Jóns Arnars er Ingvar
Jónsson sem var þekktur
körfuknattleiksþjálfari í mörg ár,
en er í fríi frá þjálf-
un í vetur. „Ætli
faðir minn hafi
ekki haft töluverð
áhrif á að ég fékk
áhuga á körfu. Hann var að þjálfa
og það smitaði út frá sér,“ segir
Jón Arnar.
En varð körfuknaitleikurínn
strax fyrir valinu?
„Neeei. Ég hafði meiri áhuga á
fótboltanum framan af. En fljót-
lega byijaði að ganga vel í körf-
unni á sama tíma og það gekk
frekar illa í fótboltanum í yngri
flokkunum hjá Haukum."
Ykkur hefur gengið vel í vetur.
Bjóstu við svona gengi?
„Já, ég átti von á þessu. Við
erum búnir að byggja þetta upp í
rólegheitunum í nokkur ár og starf-
ið í yngri flokkunum hjá okkur er
gott þannig að framtíðin er einnig
björt. Við eigum nógan mannskap
til að taka við í framtíðinni.“
En fer ekki að styttast í að þið
tapið ieik?
„Neei, ég hef ekki trú á því —
ekki alveg á næstunni. Við erum
að hugsa um að klára þetta ár til
að bytja með. Við erum búnir að
vinna í íjórum leikjum í röð núna
en þar áður voru níu sigurleikir í
röð áður en við töpuðum fyrir ÍR.“
Hvernig finnst þér körfuboitinn
í vetur?
„Þetta er miklu skemmtilegra
núna — enda gengur okkur betur.
En svona yfirhöfuð held ég að
körfuboltinn sem leikinn er í vetur
sé skemmtilegri en í fyrra. Það
eru fleiri sterk lið og meiri breidd
en áður og það er skemmtilegra
þegar ekkert lið er afgerandi eins
og verið hefur undanfarin ár.“
Þú fylgist mjög vel með körfu-
knattleik, bæði hér heima, íBunda-
ríkjunum og ekki síður Evrópu.
Er áhuginn alveg ódrepandi?
„Já ætli megi ekki segja það.
Ég reyni að komast yfir allt sem
Morgunblaðið/Þorkell
JÓIM ARNAR Ingvarsson og félagar hans í Haukum eru meö
besta árangurlnn í úrvalsdeildinni það sem af er og hefur
Jón Arnar verið í lykilhlutverki hjá Hafnarfjarðarliðinu.
ég get, sérstaklega um körfuknatt-
leikinn í Evrópu. Fjölmiðlar hér
segja ekki frá úrslitum í Evrópu,
ég verð að skjóta aðeins á ykkur,
og því er ekkert hlaupið að því að
komast í þessar upplýsingar. Mér
finnst mjög slæmt hve lítið er fjall-
að um Evrópuboltann því ég veit
að mikil stemmning er fyrir leikj-
um þar og víða er verið að leika
alveg toppbolta."
En NBA?
„Svona dálítið en ekkert sér-
staklega mikið fyrr en komið er
í úrslitin. Mér finnst háskólabolt-
inn í Bandaríkjunum miklu meira
spennandi. Kannski vegna þess
að maður veit orðið ailt um NBA
boltann og línurnar skýrast svo
fljótt hverjir komast í úrslit þann-
ig að það er hægt að fylgjast með
deildinni með öðru auganu. Há-
skólaboltinn er miklu líkari evr-
ópskum bolta, óútreiknanlegri.
Það er líka mjög gaman að fylgj-
ast með hvaða leikmenn koma til
með að verða stjörnur framtíðar-
innar, og þá byija ég að fylgjast
með mönnum alveg niðri, áður en
þeir velja sér háskóla til að fara í.“
Sérðu einhvern efniiegan íHarl-
em?
„Kannski ekki í Harlem, en það
er einn í Lake Forest, sem er í
sama riðli og Jason Williford
[Bandaríkjamaðurinn í liði Hauka]
spilaði í. Hann er stór og mjög
góður. Það er mikið af góðum efn-
um en það versta er að þessir
strákar hætta alltof snemma í
skóla til að komast í NBA, fyrir
peninga. Nýliðarnir í NBA fá allt
of mikla peninga. Þeir verða að
sanna sig áður en þeir fá þessar
fúlgur."