Morgunblaðið - 05.12.1995, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 1995 C 3
Allir knatt-
spyrnu-
menn
tryggðir
FRÁ og með næsta sumri
eiga allir sem stunda knatt-
spyrnu á vegum félaga innan
KSÍ tryggðir. KSÍ sér um að
semja við Sjóvá-Almennar og
byggir samningurinn meðal
annars á því að 1., 2. og 3.
deild karla mun bera nafn
tryggingarf élagsins næstu
þrjú árin og sér KSI um að
innheimta iðgjalda. Iðgjald
og tryggingabætur eru nokk-
uð mismunandi eftir því í
hvaða aldursflokki menn
eru.
Samsetn-
ing full-
trúa
breyttist
MIKLAR umræðururðu um
tillögu stjórnar KSI um að
breyta lögum varðandi full-
trúafjölda á ársþingi og
komu fram tvær breytinga-
tillögur. Á endanum var til-
laga KSÍ þó samþykkt og
skipuð milliþinganefnd til að
finna enn betri lausn á mál-
inu.
Örlítill
hagnaður
eftir af-
skriftir
HAGNAÐUR samkvæmt
rekstrarreikningi KSI fyrir
árið 1995 var 34.407 krónur
eftir afskriftir sem námu
einni milljón 561 þúsundi og
961 krónu. Staða sambands-
ins er hins vegar mjög góð
og eigið fé þess tæplega 51
milljón króna.
Veltan aft-
ur yfir 100
milljónir
VELTA KSÍ á árinu var 134
milljónir rétt rúmar og er
þetta í þriðja sinn sem velta
sambandsins er meiri en 100
milljónir. I fyrra var hún
rúmlega 141 milljón og á
næsta ári er gert ráð fyrir
að veltan verði 148 milljónir
996 þúsund krónur. Hagnað-
ur næsta árs eftir afskriftir
á að vera 302 þúsund krónur.
Deildar-
keppni í
3. flokki
SAMÞYKKT var að taka upp
deildarkeppni í 3. aldurs-
flokk karla og einnig að
bæta við keppni b-liða í 3.
og 4. flokki karla og 3. flokki
kvenna. Þar munu eigast við
b-lið félaga og verða sjö leik-
menn í liði.
50. ÁRÞING KSÍ
Morgunblaðið/Kristinn
Stjórn KSÍ
STJÓRN Knattspyrnusambands íslands næsta árið, aftari röð frá vinstri: Geir Þorsteinsson,
skrifstofustjóri KSÍ, Einar Friðþjófsson, Gunnlaugur Hreinsson, Jón Gunnlaugsson, Róbert
Agnarsson, Lúðvík Georgsson, Jóhann Ólafsson, Aibert Eymundsson, Jakob Skúlason, Rafn
Hjaltalín og Snorri Finnlaugsson, framkvæmdastjóri KSÍ. Fremri röð frá vinstri: Elísabet Tómas-
dóttir, Halldór B. Jónsson, Stefán Gunnlaugsson, Eggert Magnússon, formaður, Elías Hergeirs-
son, Helgi Þorvaldsson og Eggert Steingrímsson.
Meistarar IA fá
Stjömuna ífyrsta leik
Sigmundur valinn
KSÍ-íþróttafrétta-
maður ársins
SIGMUNDUR Ó. Steinarsson,
íþróttafréttamaður á Morgun-
blaðinu, var útnefndur KSÍ-
íþróttafréttamaður árins 1995 á
þingi sambandsins um helgina.
Eggert Magnússon, formaður
KSI, afhenti Sigmundi áritaðan
penna í viðurkenningarskyni og
sagði m.a. að hann væri vel að
þessum lieiðri kominn. Eggert
sagði enga logiunollu í skrifum
Sigmundar enda væri hann bein-
skeyttur og segði skoðanir sínar
umbúðalaust. Hann sagði Sig-
mund góðan íþróttafréttamann
sem hefði knattspyrnuna sem
áhugamál númer eitt. Sigmundur
þakkaði heiðurinn og sagðist líta
á hann sem viðurkenningu fyrir
íþróttadeild Morgunblaðsins.
Ilann vildi einnig tileinka þeim
Halli Símonarsyni og Alfreð Þor-
steinssyni, fyrrverandi íþrótta-
fréttamönnum, viðurkenningu
sína, en þeir hefðu verið Iærifeð-
ur hans.
MÖRG mál voru tekin til afgreiðslu
á 50. ársþingi KSÍ sem fram fór
um helgina. Eitt af því sem kemur
til með að snerta hinnalmenna
áhorfenda hvað mest er að sam-
þykkt var að koma á fót deildarbik-
arkeppni og mun hún hefjast vorið
1997. Hugmyndin er að keppnin
komi að hluta til i stað æfinga-
leikja sem liðin hafa leikið á vorin
og einnig er æ tlunin að fjölga verk-
efnum í meistaraflokki karla og
lengja leiktíðina. Gert er ráð fyrir
að allt að 36 lið geti tekið þátt í
deildarbikarnum, það er liðin í
þremur efstu deildunum og sex lið
til viðbótar sem kæmu þá væntan-
lega úr 4. deild. Milliþinganefnd
KSÍ mæltist til að mótið hefjist upp
úr miðjum mars. Þrátt fyrir að flest-
ir telji að hér sé KSÍ að stíga skref
í rétta átt til að lengja tímabilið og
gera æfingaleiki vorsins að „alvöru-
leikjum" greiddu 17 atkvæði á
móti því að keppninni yrði komið á
eins og hugmyndir KSI gerðu ráð
fyrir.
Meistarakeppni KSÍ verAur
tvisvar á næsta ári
Einnig var samþykkt á ársþingi
KSÍ að gera breytingu á Meistara-
keppninni, þar sem eigast við Ís-
lands- og bikarmeistarar hvers árs.
Hingað til hefur leikurinn farið
fram að vori, áður en keppnistíma-
bilið er hafið að fullu, en samkvæmt
samþykkt þingsins á leikurinn að
fara fram í lok keppnistímabils, það
er að segja að hausti. Næsta ár
verða því tveir leikir. íslandsmeist-
arar ÍÁ mæta bikarmeisturum KR
með vorinu og síðari leikurinn verð-
ur eftir íslandsmótið þegar ljóst er
hvaða lið verður íslandsmeistari og
hvaða lið hampar bikamum.
Eggert Magnússon endurkjörinn formaður en Guðmundur
Pétursson varaformaður hættur í stjórn KSÍ
Morgunblaðið/Kristinn
SIGMUNDUR Ó. Stelnarsson tekur við pennanum góða af
Eggerti Magnússyni, formanni Knattspyrnusambandsins.
Dregið var um töfluröð á íslands-
mótinu á 50. ársþingi Knatt-
spymusambandins sem fram fór um
helgina. Islandsmeistarar Skag-
manna fá nýliðana úr Garðabæ,
Stömuna, í heimsókn i fyrstu um-
ferð. Keflvíkingar taka á móti KR,
Eyjamenn bregða sér til Ólafsfjarð-
ar, Grindvíkingar fara að Hlíðarenda
og Breiðablik tekur á móti Fylki.
Ef búast má við svipuðum styrk-
leika liðanna og í sumar má reikna
með að tvær síðustu umferðimar verði
spennandi því í 17. umferð fara
Skagamenn til Eyja og í þeinn 18.
og síðustu tekur ÍÁ á móti KR-ingum.
Konurnar byija einnig með látum
því í fyrstu umferð 1. deildar verður
stórleikur í Kópavogi þegar Breiða-
bliksstúlkur taka á móti Val. Eyja-
stúlkur fá Skagastúlkur í heimsókn,
KR tekur á móti Stjömunni og Aftur-
elding á móti Akureyringum.
I fyrstu umferð 2. deildar karla
leika Leiknir og Völsungur, FH og
Þór, Þróttur og Fram, KA og Víking-
ur og ÍR-ingar heimsækja Skalla-
grím. í þriðju deildinni mtekur Þrótt-
ur á móti Reyni, Fjölnir fær Selfoss
í heimsókn, Grótta og HK mætast,
Ægir fær Dalvíkinga og Víðir tekur
á móti Hetti.
Eggert Magnússon, formaður
Knattspymusambands íslands, var
endurkjörinn formaður til næstu
tveggja ára. Ekkert mótframboð kom
og var Eggert kjörinn með dynjandi
lófataki, en þetta verður fjórða kjör-
tímabil Eggerts sem formanns.
Guðmundur Pétursson, sem verið
hefur í stjóm KSÍ i 6 ár og varafor-
maður allan tímann, gaf ekki kost á
sér til áframhaldandi setu. Fimm
gáfu kost á sér í aðalstjóm, en aðeins
komust fjórir að. Þeir sem gáfu kost
á sér voru Andrés Pétursson, Eggert
Steingrímsson, Helgi Þorvaldsson,
Jón Gunnlaugsson og Lúðvík Georgs-
son. Jón Gunnlaugsson frá Akranesi
hlaut 81 atkvæði, Lúðvík 76, Eggert
75, Helgi 52 og Andrés 40.
46 stunda
þing
SVEINN Jónsson, fyrrum
formaður KR, og Baldur
Maríusson, formaður Knatt-
spyrnuráðs Reykjavíkur,
voru þingforsetar. Sveinn sá
að mestu um fundarstjórn
og var mjög röggsamur
þannig að afgreiðsla mála
gekk hratt og örugglega fyr-
ir sig. Þingið var sett kl. 17
á föstudag og því var slitið
kl. 15.15 á sunnudag, rúmum
46 kiukkustundum síðar.
Bikar-
keppninni
breytt
TILLAGA um að 23 ára lið
félaganna mættu ekki taka
þátt í bikarkeppninni var
feUd en strangari reglur
voru settar um hlutgengi
leikmanna með þessum lið-
um. Nú mega engir eldri
leikmenn vera í liðunum og
ekki heldur þeir ú A-liðum
félaganna sem voru í byrjun-
arUði í næsta deildarleik á
undan.
Drago til
Keflvík-
inga og
Fylkis
KEFLVÍKINGAR fengu
Drago-styttuna fyrir að vera
prúðasta liðið í 1. deild í
sumar. Keflvíkingar fengu
32 stig en Eyjamenn 33.1
2. deild fékk Fylkir styttuna,
með 33 stig en næsta lið,
Skallagrimur, var með 46
stig. Afturelding hlaut
kvennabikarinn fyrir gott
starf að kvennaknattspyrnu.
Deildarbikar-
keppni komið
á vorið 1997