Morgunblaðið - 05.12.1995, Side 8

Morgunblaðið - 05.12.1995, Side 8
SKIÐI Kristinn í 54. sæti íVail HANDKNATTLEIKUR Fyrsti sigur- inn í Póllandi ÍSLENDINGAR unnu sinn fyrsta sigur í Póllandi — í sjöttu tilraun þar frá 1966. Pólverjar voru iagðir að velli með sömu markatölu og í fyrsta sigurleik íslendinga gegn Pólverjum; í Laugar- dalshöllinni 1966,23:21. Patrekur með tíu mörk PATREKUR Jóhannesson skoraði tíu mðrk gegn Pól- verjum, en svo mörg mörk hefur engin íslenskur lands- liðsmaður gert í leik gegn Pólveijum. Næstir því eru Ólafur Einarsson sem skoraði níu mörk 1975, en jafnmörg mörk skoruðu Kristján Arason 1987, Alfreð Gíslason 1990 og Sigurður Sveinsson 1992. Átján hafa gert tíu mörk eða fleiri PATREKUR Jóhannesson er átjándi landsliðsmaður ís- lands sem hefur skorað tíu mörk eða fleiri í landsleik, síðan Hermann Gunnarsson skoraði 17 mörk í leik gegn Bandaríkjamönnum 1966. Kristján Arason hefur oftast skorað tíu mörk eða fleiri í leik, eða níu sinnum — flest mörk skoraði hann, fimmtán, í sögulegum sigurleik gegn Ungverjum 1985,28:24, í Frakklandi. Aðeins einn ann- ar leikmaður í landsliðshópn- um í dag hefur skorað tíu mörk eða fleiri í leik — Valdi- mar Grímsson, tvisvar. Valdimar ekki á blað VALDIMAR Grímsson komst ekki á blað yfir markaskorara í Póllandi, enda fékk hann lít- ið að spreyta sig. Fyrir leikinn hafði Valdimar skorað mark í 33 landsleikjum sínum í röð, eða frá því að hann náði ekki að skora í leik gegn Dönum á HM í Svíþjóð 1993. Bogdan mætti TVEIR fyrrum landsliðsþjálf- arar íslands mættu til Poznan til að sjá leik Póllands og f s- lands — þeir Janus Czerwin- sky og Bogdan Kowalczyk, sem mætti á hótelið sem ís- lenska liðið dvaldist á fyrir leikinn. PATREKUR Jóhannesson var besti lelkmaður íslenska liðsins í Evrópuleiknum gegn Pólverjum í Pozna á laugardaginn. Hann gerði 10 mörk í leiknum. Uti er ævintýri Þrátt f/rir sigur íslenska liðsins í síðari leiknum gegn Pólverjum ÍSLENSKA landsliðið í hand- knattleik sigraði Pólverja í síð- ari Evrópuleiknum íPoznan, 23:21, á laugardaginn. Sigurinn var skammgóður vermir því á heimleiðinni fréttu íslensku landsliðsmennirnir að Rússar hefðu unnið Rúmena með átta marka mun og því draumurinn um að komast í úrslitakeppnina á Spáni að engu orðinn. „Auð- vitað vorum við svekktir að heyra þessi úrslit frá Moskvu því stefnan var að komast til Spánar. Nú liggur það fyrir að við þurfum að fara íforkeppni Evrópumótsins strax næsta vetur," sagði Þorbjörn Jens- son, þjálfari íslenska liðsins. Leikurinn í Póllandi var jafn lengst af en þó var íslenska liðið oftast með frurnkvæðið og hafði tveggja marka forskot í leik- hléi, 16:14. Mesti munurinn á liðun- um var um miðjan í síðari háifleik er staðan var 21:17 fyrir ísland. Þá kom slæmur kafli og Póiveijar minnkuðu muninn í eitt mark, 21:20. En íslensku strákarnir stóð- ust pressuna og Patrekur, sem var besti leikmaður liðsins, gerði tvö síðustu mörkin og tryggði sigurinn, 23:21. „Það var ljóst í byijun að Pólverj- ar ætluðu að selja sig dýrt því þeir höfðu ekki unnið leik í keppninni. Það sem blasti við okkur var hins vegar að við urðum að sigra til að halda í þennan veika þráð sem við höfðum, og gerðum það,“ sagði Þorbjöm. „Við lékum betri varnar- leik en í fyrri leiknum í Kaplakrika og sköpuðum okkur mörg sóknar- færi sem við því miður nýttum oft illa.“ Patrekur var besti leikmaður ís- lands. Hann gerði 10 mörk og þar af fjögur úr vítaköstum. Guðmund- SÓKNAR- æGf NÝTING l'V'! Evrópukeppni landsliða 10 22 45 F.h 12 22 54 11 26 42 S.h 11 27 41 21 48 44 Alls 23 49 47 5 Langskot 8 1 Qegnumbrot 1 5 Hraðaupphlaup 2 4 Hom 6 4 Lína 2 2 Vfti 4 ur Hrafnkelsson stóð sig einnig vel og varði ellefu skot. Þorbjöm sagð- ist nokkuð ánægður með liðið í Jieild. „Við undirbjuggum okkur mjög vel fyrir leikinn. Vorum búnir að skoða myndband af fyrri leiknum og það var ekkert í leik þeirra sem kom okkur á óvart. Við lékum sex núll vörn allan tímann og gekk hún vel upp.“ Þorbjöm sagði slæmt að komast ekki áfram í úrslitakeppnina með átta stig. „Það er ljóst að það voru úrslitin gegn Rúmenum sem réðu úrslitum, en bónusinn var að við unnum Rússa og við héldum að það myndi duga, eða vonuðum það alla- vega.“ Um framtíðina hjá landslið- inu sagði hann: „Nú þarf að kanna hug leikmanna og athuga hvort þeir eru tilbúnir að halda áfram. Það getur verið að það sé komin þreyta í eldri leikmenn liðsins og þeir segi að nú sé nóg komið. Þá þurfum við að velja nýja í þeirra stað. En í iiðinu eru margir ungir og efnilegir strákar sem eiga mörg ár eftir. Það þarf að marka stefnu sem kemur til með að skapa liðinu fullt af verkefnum til að byggja upp gott lið fyrir undankeppni EM, sem er næsta stóra verkefni liðsins,“ sagði Þorbjörn. ■ Úrslit / C6 Kristinn Björnsson, skíða- kappi frá Ólafsfirði, náði sér ekki á strik í fyrsta risasvigi heimsbikarsins í Vail í Colorado á laugardaginn. Hann hafnaði í 54. sæti af 66 keppendum og var 2,19 sekúndum á eftir sigur- vegaranum Lasse Kjus frá Nor- egi. Kristinn hlaut 21,87 punkta (fis-stig), en hann á best 11,22. Landsliðsþjálfarinn Zbigniew Kaminski sagðist ekki hafa verið ánægður með Kristin og það hafi margt verið að. „í fyrsta lagi var rennslið ekki nægilega gott og síðan átti hann í erfiðleik- um í efri hluta brautarinnar. Þar voru miklir hólar sem hann fór ekki rétt í og lenti því mjög neð- arlega þegar hann kom ut úr þeim hluta brautarinnar og tap- aði miklum tíma. Hann er einnig óvanur að keppa í svona mikilli hæð, en brautin var í yfir 3.000 metra hæð. Það er því mjög erf- itt að keyra á fullu langa braut. Hann er á réttri leið og fékk þama smjörþefinn af heimsbik- amum. Nú þarf hann að und- irbúa sig vel fyrir næsta risasvig heimsbikarsins sem fram fer eft- ir áramót,“ sagði þjálfarinn við Morgunblaðið. Arnór Gunnarsson frá ísafirði og Haukur Arnórsson úr Ár- manni kepptu í stórsvigi í Bandaríkjunum á föstudag. Arnór fékk 40,00 punkta fyrir árangur sinn, en átti áður best 44,44. Haukur hlaut 43,00 punkta sem er nálægt besta árangri hans. Sigríður bætti sig verulega Isfirðingurinn Sigríður Þor- láksdóttir, sem keppir fyrir Akureyri, bætti sig verulega í svigi á tveimur mótum í Inge- marbacken í Svíþjóð um helg- ina. Hún varð í 9. sæti báða dagana og bætti punktastöðu sína með þessum tveimur mót- um úr 89,95 í 41,06, sem er 54% bæting. Ingrid Helander frá Svíþjóð sigraði í fyrra svig- mótinu og landa hennar, Linda Ydeskog, í því síðara. Theodóra Mathiesen úr KR keppti í stórsvigi í Bjorli í Nor- egi um helgina og bætti sig. Fyrir árangur sinn fékk hún 47,82 punkta, en átti best áður 63,77. Sigurvegari í mótinu var norska heimsbikarkonan, Mar- ianne Kjörstad. Daníel í 26. sæti í Luleá Daníel Jakobsson, göngu- maður frá Ólafsfirði, hafnaði í 26. sæti á sænska bik- armótinu í 15 km göngu með hefðbundinni aðferð sem fram fór í Luleá í Svíþjóð á laugar- dag. Daníel var 2,42 mín. á eft- ir sigurvegaranum Ilenrik Fors- berg, sem gekk á 38,09 mín. Næstur á undan Daníel var Nik- las Johnsson, sem er A-lands- Iiðsmaður Svía. Gísli Einar Árnason tók einnig þátt í göngunni en hætti. ENGLAND: X X X XXX 121 2112 ITALIA: 2 X X 211 2X1 211X

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.