Morgunblaðið - 08.12.1995, Page 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
FIMLEIKAR
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Velkominn í hópinn!
GUÐMUNDUR Haraldsson, formaður Fimleikasambandslns, og Erla Lúðvíksdóttir, framkvæmdastjórl FSÍ, af-
hentu Ruslan Ovtslnnlkov blómvönd frá FSÍ í tilefnl þess að hann hafði fenglð íslenskan ríkisborgararétt.
Fyrlr aftan stendur Matl Kirmes, þjálfari ,og unnusta Ruslans, Auður Inga Þorstelnsdóttir, er lengst tll hægri.
1995
FOSTUDAGUR 8. DESEMBER
BLAD
Skoraði frá
miðju eftir fjór-
ar sekúndur!
FRAMHERJINN Damian Mori, sem leikur knatt-
spyrnu með liði Adelaide City í ástrðlsku deildar-
keppninni, skráði nafn sitt á spjöld sögunnar í
gær er hann skoraði þegar aðeins fjórar sekúnd-
ur voru liðnar frá því að dómarinn flautaði til
leiks. Þetta er liklega heimsmetsjöfnun.
Mori, sem er ástralskur landsliðsmaður, fékk
knðtdnn frá félaga sinum sem tók upphafsspyrn-
una, sá að markvörðurinn var um átta metra fram-
an raarklinunnar og lét vaða. Og viti menn, knött-
urinn fór í markið. Talsmaður áströlsku deildar-
innar staðfesti síðar að aldrei hefði verið skorað
svo snemma áður í deildarleik þar í landi.
í heimsmetabók Guinness er getið um fjóra
leikmenn sem hafa skorað eftir sex sekúndur í
ensku knattspyrnunni en alla jafna er talið að Jim
Fryatt eigi heimsmetið. Hann skoraði fyrir Brad-
ford gegn Tranmere eftir aðeins fjórar sekúndur
í 4. deildarleik í Englandi 25. aprfl 1964 ogþvi
jafnaði Mori heimsmetið i „greininni" skv. þessu.
Andstæðingur Adelaide City i gær var Sydney
United. Þess má geta að leikmenn Iiðsins náðu
sér á strik þrátt fyrir slæma byrjun og gerðu
jafntefli, 2:2, í leiknum sem fram fór í Adelaide.
Tenniskappar
þéna vel á mót-
inu í Miinchen
NOKKRIR fremstu tenniskappar heims eru nú i
Milnchen í Þýskalandi á svokölluðu meistaramóti
meistaranna, þangað sem boðið er þeim átta sem
stóðu sig best á stærstu mótum ársins — Wimble-
don, opna franska, opna ástralska og opna banda-
ríska. Gífurlegt verðlaunafé er í boði, sex milljón-
ir dala; andvirði 390 miljjóna kr.
Pete Sampras sigraði landa sinn Patrick
McEnroe 2-0 í fyrstu umferð í fyrradag og hafði
þá tryggt sér tæpar 50 miiyónir. Verðlaunafé er
greitt út miðað við árangur á mótinu og áður-
nefndum fjórum stórmótum. Sampras sigraði á
Wimbledon og opna bandaríska þannig að með
því að mæta til leiks í Miinchen var hann örugg-
ur með 32 milljónir.
í gær varð ljóst að Sampras verður að láta 50
miHjónirnar duga; hann meiddist í hné í úrslita-
leik Davis keppninnar um helgina, var slæmur í
vikunni og gat sig vart hrært í gær. Hann átti
að mæta Króatanaum Goran Ivanisevic i dag.
Þjóðverjinn Boris Becker sigraði Byron Black
frá Zimbabwe auðveldlega í gær, 7-6 (7-1) 6-1.
Þar með er hann öruggur með rúmlega 430.000
dollara í verðlaun — andvirði um 28 milljóna.
Ruslan Ovtsinnikov, fimleikamaðurfrá Eistlandi, orðinn íslenskur ríkisborgari
„Eg er í sjöunda himni“
SAMÞYKKT var í gær á Alþingi
að veita 97 manns íslenskan
ríkisborgararétt og var Ruslan Ovt-
sinnikov, fimleikamaður frá Eist-
landi, einn þeirra. Ruslan hafði í
nógu að snúast í gær við að taka
við hamingjuóskum er Morgunblað-
ið hitti hann að máli á æfingu hjá
Gerplu. „Þessi æfing hefur farið
fyrir ofan garð og neðan hjá mér.
Það er líka allt í lagi. Ég er í sjö-
unda himni,“ sagði Ruslan við
Morgunblaðið í gær.
Ruslan sagði daginn í gær, þegar
hann hefði öðlast íslenskan ríkis-
borgararétt, vera einn þann stærsta
í iífi hans. „Nú get ég keppt á öllum
þeim mótum sem ég hef áhuga á,
svo sem heimsmeistaramótum og
jafnvel Ólympíuleikum. Eins gerir
íslenska vegabréfið mér kleift að
heimsækja foreldra mína í Eist-
landi, en ég hef ekki séð þá 1 tæp
tvö ár eða síðan ég kom hingað til
íslands. Þegar ég var í Rússlandi
að taka þátt í liðakeppni Evrópu
fyrir skömmu ætlaði ég að fara
yfír til Eistlands til að heimsækja
foreldra mína en fékk það ekki.
Nú get ég farið hvert sem er. Ég
er ákveðinn í því að heimsækja for-
eldra mína fljótlega á næsta ári,“
sagði Ruslan.
Ruslan er 18 ára og hefur dvalið
hér á landi við æfíngar frá því í
ágúst í fyrra. Hann bjó í Eistlandi
en þar sem hann talar ekki eist-
nesku fékk hann ekki ríkisfang þar
„Á eftir að vera
góð auglýsing fyr-
ir íslenska fim-
leika,“ segirfor-
maður Fimleika-
sambandsins
í landi og ákvað því að koma til
íslands með þjálfara sínum í von
um að fá íslenskt ríkisfang. Hann
er einn besti fimleikamaður heims
í sínum aldursflokki og sannaði það
í liðakeppni Evrópu í Rússlandi fyr-
ir skömmu er hann náði hæstu ein-
kunn allra einstaklinga í saman-
lögðum árangri af öilum sex áhöld-
unum og var með yfir 9 í meðalein-
kunn.
Hann hefur ekki haft keppnisrétt
á alþjóðlegum mótum, nema þá í
liðakeppni, vegna þess að hann
hefur verið ríkisfangslaus. Akvörð-
un Alþingis í gær er því mjög uppör-
vandi fyrir þennan unga fímleika-
mann og opnar honum allar dyr að
helstu fímleikamótum heims.
Fyrsta alþjóðlega mótið sem Ruslan
tekur þátt í sem íslendingur er
Norðurlandamótið sem fram fer hér
á landi í mars á næsta ári og síðan
Evrópumót unglinga sem fram fer
í Kaupmannahöfn mánuði síðar.
Ruslan á erindi á ÓL í Atlanta
„Þessi veiting ríkisborgararéttar
til handa Ruslan hefur gríðarlega
mikla þýðingu fyrir hann og ís-
lenska fímleika í heild. Hann á eft-
ir að vera mikil og góð auglýsing
fyrir ísland. Hann á einnig eftir að
auka áhuga unglinga á fímleikum
hér á landi. Við munum vinna hörð-
um höndum að því í samráði við
Ólympíunefnd íslands og ÍSÍ að
koma honum inn á Ólympiuleikana
í Atlanta því þangað á hann fullt
erindi,“ sagði Guðmundur Haralds-
son, formaður Fimleikasambands
íslands, þegar það var ljóst í gær
að Rusían væri orðinn íslendingur.
KÖRFUKNATTLEIKUR: HAUKAR SIGRUÐU BIKARMEISTARANA / C2