Morgunblaðið - 13.12.1995, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1995 D 3
Kúst-
urinn
SMÁSAGA eftir dreng sem
heitir Jóhann Már Nardeau,
8 ára, Digranesvegi 32,200
Kópavogur:
Einu sinni var Kústur
sem var heima hjá sér.
Honum leiddist af því að
enginn kom til að leika við
hann. En allt í einu heyrð-
ist í dyrabjöllunni, þá spratt
hann á fætur.
Hann þrumaði út úr sér:
Hver ætli sé við dyrnar?
Hann opnaði dyrnar og
í sama bili kom Tuskan.
Hún sagði hæ!! og hann
sagði hæ!!
Nennirðu að koma út?
spurði Tuskan.
Já, alveg endilega, sagði
Kústurinn.
Þau léku sér allan daginn
þangað til Tuskan sagði:
Ég verð að fara heim.
Ég líka, sagði Kústurinn.
Bless! Bless!
Svo mörg voru þau orð.
Við þökkum Jóhanni Má
kærlega fyrir skemmtilega
sögu, sem minnir okkur á,
að nú er tímabært að dusta
rykið af kústum, tuskum,
ryksugum og taka til við
jólahreingerningarnar.
Sumum finnst tilgerðar-
legt að rjúka til rétt fyrir
jólin og gera hreint hjá sér
einmitt þá. En er það nokk-
uð verri tími en hver ann-
ar?
Sem sagt, verið nú dug-
leg og hjálpið til við hrein-
gemingamar! Þið hafið
gott af því. Og - ekki
gleyma lónni úti í homi
undir rúminu.
Una Björg í Svíþjóð - Amma í Kópavogi
ÁGÆTI ritstjóri.
Þú hefur stundum hvatt
krakka til að skrifa þér og ekki
síst íslenska krakka sem búa
erlendis. Þar sem aðalpersónan
í þessari frásögn hefur ekki
lært að skrifa annað en nafnið
sitt, datt mér í hug að setja á
blað ofurlitla lýsingu á henni.
Una Björg er fimm ára stelpa
sem á heima í Svíþjóð. Hún er
búin að vera á dagheimili þar
frá því að hún var tveggja ára
og er þar enn, en nú fer hún
með nokkmm félögum sínum
og jafnöldrum í alvöru skóla
nokkra tíma á dag. Una Björg
hefur gaman af að syngja og er
í alvöru barnakór Jóhanneslund
kirkjunnar, sem er nálægt heim-
ili hennar. Þó að íslenska sé
alltaf töluð á heimili hennar er
íslenskan hennar orðin ofurlítið
blönduð sænsku. Hún sagði mér
að „man skal vera í bláu pilsi
og í hvít tröja“ - þegar kórinn
syngur í kirkjunni. Fyrir jólin
æfir bekkurinn hennar í alvöm-
skólanum jólasöngva og heldur
hátíðlegan Lúsíudaginn, þá
klæða þau sig í hvíta kyrtla og
hafa stjömuhring á kollinum og
halda á logandi kerti.
Una Björg er líka í litlum
íslenskum skóla og þar eru allt-
af haldin „litlu jól“ og er þegar
farið að undirbúa þau. Þessa
daga em þau að læra íslenska
jólasöngva og jólasálma.
Best er þó að fá að koma
heim til íslands um jólin og
heimsækja fjölskyldur og vini.
Nú er hún þegar farin að hlakka
til og undirbúa sig undir næstu
jólaferð til íslands. í dag fékk
ég með póstinum fyrstu jóla-
myndina hennar, en hún hefur
líka gaman af að teikna og
þama hefur hún teiknað stóm
íslensku flugvélina sem hún
ætlar að koma með á Þorláks-
messudag. Flugvélin er svolítið
afturþung, líklega margar tösk-
ur og margir jólapakkar í far-
angursgeymslunni. Vélin er lent
á Keflavíkurflugvelli og þau
bíða eftir fari heim til afa og
ömmu. Mamma heldur á ferða-
töskunum þeirra og stóri bróðir
á jólatrénu. Það hefur auðsjáan-
lega verið skýjað yfír hafínu.
Vetrarsólin er eilítið föl en bros-
ir, sendir geisla sína niður til
þeirra og hugsar - þarna em
þau nú komin aftur með bagg-
ana sína og jólatréð, sem þau
koma með úr sænsku skógun-
um.
Jólafríið líður alltaf ógnar
UNA Björg með spenntar
greipar í Lúsíubúningnum
sínum og með stjörnuhring á
kollinum.
fljótt, farið er í heimsóknir, í
kirkju, í leikhús, á skauta - já,
vel á minnst, síðustu fréttir af
þessari duglegu stelpu eru að
nú er hún byijuð í skautaskóla,
það verður spennandi að sjá
hvað hún getur á hálu svellinu.
Það verður farið út í Heiðmörk,
niður að Tjörninni að gefa fugl-
unum og margt, margt fleira.
Svo er jólafríið búið og öll
snúa þau heim til Sviþjóðar, til
vinnu, í skóla og á dagheimili.
Eftir eigum við góðar minning-
ar, sem er það dýrmætasta sem
við eigum og enginn getur frá
okkur tekið.
Bestu kveðjur frá ömmu
Diddu.
ÍSLENSKA flugvélin, Una Björg, mamma með töskurnar og stóri bróðir með jólatréð í Leifsstöð á
Keflavíkurflugvelli. Vetrarsólin yfir þeim föl á vanga í svartasta skammdeginu.
iwaw
Ía>LLI 'A KÖTTSEM HANH
ICALLAfZ SAAUAA.
Alu gafsamaaa bolta
SEM HANN LSItcOK 56RAP.
£LÓ SAAAAAL
FOLL HAI&A.
LBGA i BOLT-
ANN SVöH/WW,
FWje i HAusimt a
TeHGpAFABBA
ALLA *