Morgunblaðið - 29.12.1995, Side 3
HANDKNATTLEIKUR
IÞROTTAMAÐUR AKUREYRAR
Pippen og
Jordan fara
á kostum
CHICAGO Bulls hefur leikið liða best í NBA-deildinni og hafa
þeir Michaei Jordan og Scottie Pippen farið á kostum, hafa ekki
verið betri í langan tíma. Pippen hefur sýnt það að hann er besti
aðhliða leikmaðurinn í deildinni, skorar, er sterkur í vörn og tek-
ur mikið af fráköstum og aldrei áður hefur hann átt eins margar
stoðsendingar. Allt sem hann gerir virðist hann gera mjög auð-
veldlega. „Gott gengi okkar er Pippen að þakka, hann hefur leik-
ið eins og sá sem valdið hefur - er allt í öllu í leik okkar," sagði
Michael Jordan.
Jordan hefur skorað mest allra í
deildinni, er með 30 stig að
meðaltali í leik, en næstur kemur
Davið Robinson hjá
Frá San Antonio Spurs
Gunnari með 26,6 stig. Pipp-
Valgeirssyni en segir að ástæðan
i Bandaríkjunum fyrir góðum leik
Chicago-liðsins sé endurkoma Jor-
dans. „Það kom allt annar blær á
leik liðsins þegar Jordan byijaði að
leika á ný,“ sagði Pippen, en við
kornu Jordans losnaði Pippen við
pressuna sem var á honum, sem
arftaki Jordans.
Schrempf fótbrotinn
Þjóðverjinn Detlef Schrempf hjá
Seattle SuperSonics fótbrotnaði og
verður hann frá keppni í fjórar til
sex vikur. Það er missir fyrir
Seattle, sem hefur verið að leika
mjög vel og hefur framheijinn
Shawn Kemp farið á kostum; hann
er einn besti leikmaður NBA-deild-
arinnar.
Shaquille O’Neal er byijaður að
leika á ný með Orlando eftir að
hann fingurbrotnaði fýrir keppnis-
tímabilið.
Hann hefur staðið sig ágætlega,
en aftur á móti hefur liðið ekki náð
sér reglulega á strik eftir að O’Ne-
al hóf að leika, en liðið lék mjög
vel án hans. Brian Hill, þjálfari
Orlando, segist ekki hafa áhyggj-
ur. „Leikur liðsins lagast fljótlega,
það er eins og leikmenn hafi farið
að slaka á þegar O’Neal byijaði
aftur.“
2 C FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1995 C 3
KNATTSPYRNA
IÞROTTIR
KORFUKNATTLEIKUR
Charles
Barkley lék
við hvem
sinn fingur
Charles Barkley lék við hvern sinn fingur þegar Phoen-
ix Suns vann Philadelphia 76ers, 105:90 — skoraði
25 stig og tók fjórtán fráköst, A.C. Green skoraði nítján
stig og tók tólf fráköst og Michael Finley skoraði nítján
stig fyrir Phoenix, sem vann sinn fimmta leik í röð gegn
Sixers frá 1. febrúar 1991.
Brian Williams skoraði 25 stig og tók þrettán fráköst
og Loy Vaught skoraði 22 stig fyrir Los Angeles Clip-
pers, sem vann Charlotte Homets á útivelli, 116:107.
Malik Sealy skoraði 19 stig og Pooh Richardson átján
og átti flestar stoðsendingar sínar í leik fyrir Clippers í
vetur, eða tólf.
Glenn Robinson skoraði fimm af nítján stigum sínum
í framlengingu, þegar Milwaukee Bucks lagði Minnesota
Timberwolves á útivelli 99:93
Clifford Robinson skoraði 30 stig, þar af átján í þriðja
leikhluta þegar Portland Trail Blazers lagði Boston Celtic
heima 135:109. Gary Trent skoraði 19 stig fýrir Port-
land, en Todd Day skoraði 25 stig fyrir Celtic og Greg
Minor 15.
Sigurganga Seattle
heldur áfram
Hersey Hawkins skoraði fimm af sínum 24 stigum
undir leikslok þegar Seattle SuperSonics vann Denvei
Nuggets 99:83. Shawn Kemp skoraði 22 stig og tók 16
fráköst, Gary Payton 22 stig og átti sex stoðsendingar
fyrir Seattle, sem vann sinn þriðja leik í röð og þann tólfta
í fimmtán síðustu leikjum liðsins.
Chris Webber skoraði flest stig sín í leik fyrir Washing-
ton Bullets, eða 40. Þá náði hann sinni fimmtu þrennu
í NBA-deildinni, tók tíu fráköst og átti tíu stoðsendingar
fyrir Bullets, sem vann Golden State Warriors, hans fyrr-
um lið, 115-94. Juwan Howard skoraði 24 stig, tók tíu
fráköst og átti fimm stoðsendingar fyrir Bullets.
Paulo Autuori tekur
við Benfica
PAULO Autuori frá Brasilíu verður þjálfari Benfica í Portúgal að loknu
yfirstandandi tímabili. Botafogo í Rio de Janeiro varð Brasilíumeistari
undir stjórn Autuoris fyrir skömmu en ekki alls fyrir löngu var hann þjálf-
ari Maritimo í portúgölsku deildinni. Benfíca er í þriðja sæti í portúgölsku
deildinni, átta stigum á eftir meisturum Porto. Artur Jorge var þjálfari
Iiðsins en hann var látinn fara í september og hefur ekki verið ráðinn
aðalþjálfari í staðinn fyrr en nú en eins og greint hefur verið frá var
Viðurkenningar fyrir
holu í höggi
RÚMLKGA 70 íslenskir kylfingar fóru holu
í höggi á árinu og fá þeir sérstaka viður-
kenningu I kvöld frá Einheijaklúbbnum.
Afhendingin fer fram i Naustkránni við
Tryggvagötu í Reykjavík og hefst dagskrá-
in kl. 18.
Úrvajslið
gegn „Útlend
ingaher-
sveitinni"
ÚRVALSLIÐ 1. deildar, sem Þor-
björn Jensson, landsliðsþjálfari og
Samtök íþróttafréttamanna völdu,
leikur gegn „Útlendingahersveit-
inni“ í Iþróttahúsinu í Grafarvogi
kl. 20 f kvöld. Alfreð Gíslason valdi
og stjórnar liði erlendra leik-
manna, sem leika hér á landi, en
með þeim leika nokkrir íslenskir
leikmenn. Atli Hilmarsson verður
Alfreð til aðstoðar.
eir sem leika í „Útlendingahersveit-
inni“ eru Alexander Revine, ÍH,
og Hallgrímur Jónasson, Selfossi,
markverðir. Aðrir leikmenn: Zvjezdan
Jovisic, Fylki, Alexei Trufan, Aftureld-
ingu, Juri Sadowski, Gróttu, Davor
Kovasevic, Víkingi, Julian Duranona,
KA, Petr Baumruk, Haukum, Valdimar
Grímsson, Selfossi, Júlíus Gunnarsson,
Val, Leó Örn Þorleifsson, KA, Einar
Gunnar Sigurðsson, Selfossi, Sigurður
Bjarnason, Stjörnunni, og Davíð Ólafs-
son, Val.
íslenska úrvalsliðið er þannig skipað:
Guðmundur Hrafnkelsson, Val, Bjarni
Frostason, Haukum, markverðir. Aðrir
leikmenn: Bjarki Sigurðsson, Aftureld-
ingu, Valgarð Thoroddsen, Val, Ólafur
Stefánsson, Val, Halldór Ingólfsson,
Haukum, Róbert Sighvatsson, Aftur-
eldingu, Sigfús Sigurðsson, Val, Gunn-
ar Beinteinsson, FH, Björgvin Björg-
vinsson, KA, Dagur Sigurðsson, Val,
Gunnar Andrésson, Aftureldingu, Pat-
rekur Jóhannesson, KA, og Jón Krist-
jánsson, Val.
Þorbjörn Jensson, landsliðsþjálfari,
stjórnar liðinu.
Besti leikmaður leiksins verður val-
inn og fær hann matarboð fyrir tvo á
veitingastaðnum Pizzahúsinu við
Grensásveg í verðlaun.
I hálfleik verður viðureign nokkurra
íþróttafréttamanna gegn liði dómara.
FOLX
■ BERTI Vogts, landsliðsþjálfari
Þýskalands í knattspyrnu, var
kjörinn maður ársins hjá íþrótta-
blaðinu Kicker. Vogts hefur náð
góðum árangri sem
FráJóni þjálfari og mótað
Halldórí landslið sem þykir
Garðarssyni í líklegt til frekari af-
Þýskalandi reka_
■ THOMAS Helmer hjá Bayern
Miinchen var útnefndur besti vam-
armaður þýsku deildarinnar hjá
Kicker. Svíinn Patrick Andersson
hjá Gladbach var í öðru sæti og
Markus Babbel hjá Bayern í því
þriðja.
■ STEFAN Reuter hjá Dort-
mund var kjörinn besti miðjumað-
urinn en í næstu sætum voru Har-
ald Spörl og Jörg Albertz, sam-
heijar hjá HSV.
■ BRUNO Labbadia hefur ekki
leikið með Köln á tímabilinu vegna
meiðsla. Bremen vill fá miðherjann
en aðeins gegn tryggingu um að
hann nái sér.
■ BAYERN Miinchen ætlar ekki
að bæta við erlendum leikmönnum
þrátt fyrir úrskurð Evrópudóm-
stólsins sem heimilar ótakmarkaðan
fjölda erlendra leikmanna í liði.
■ JEAN-PIERRE Papin hefur
ekki fundið sig almennilega hjá
Bayern, m.a. vegna meiðsla, en
hann sagði um helgina að hann
ætlaði að vera áfram hjá félaginu
og væri ekki á förum til Frakk-
lands.
■ BJÖRN Jilsen, fyrrum landsliðs-
maður Svía í handknattleik, fer aft-
ur til Svíþjóðar um mitt næsta ár.
Samningur hans sem þjálfari Wal-
lau/Massenheim rennur út 30. júní
og þó félagið hafí lagt hart að hon-
um að halda áfram segist hann hafa
tekið fyrmefnda ákvörðun vegan
fjölskyldunnar og annars starfs.
Reuter
FRÖNSKU landsllðsmennirnir Davis Ginola og Erlc Cantona voru í svlðsljósinu
á Old Trafford - þelrri viðureign lauk með sigri Cantona.
Vernharð
útnefndur
þriðja árið
i roð
„ÉG ER mjög ánægður með þessa
útnefningu og er hún mikil hvatn-
ing fyrir mig. Arið var gott hjá
mér og ég tel mig á réttri leið og
bjartsýnn að ég nái að vinna rétt
til að keppa á Olympíuleikunum í
Atlanta næsta sumar,“ sagði Vern-
harð Þorleifsson, júdókappi úr KA,
sem var í gær útnefndur Iþrótta-
maður Akureyrar 1995. Þetta er
þriðja árið í röð sem hann hlýtur
þessa nafnbót.
Fimm efstu íþróttamennirnir á
listanum fengu viðurkenningu.
Ómar Þ. Arnason, sundmaður úr
Óðni, var í öðru sæti, Erlingur
Kristjánsson, handknattleiksmaður
úr KA, í þriðja sðeti, Leó Örn Þor-
leifsson, handknattleiksmaður úr
KA, í fjórða sæti og fimmti er Þór-
oddur Ingvarsson, skíðagöngumað-
ur úr KA.
Morgunblaðið/Kristján Kristjánsson
VERNHARÐ Þorleifsson,
júdókappiúr KA.
- segir Alex Ferguson, eftirfrábæran leik írans gegn Newcastle
ALEX Ferguson, fram-
kvæmdastjóri Manchester
United, segir að írinn Roy
Keane sé besti leikmaðurinn
á Bretlandi um þessar mund-
ir. Keane átti mjög góðan leik
gegn Newcastle ífyrrakvöld
og skoraði m.a. síðara mark
United. „Hann er hreint ótrú-
legur leikmaður," sagði
Ferguson um Keane. „Hann
lék jafnvel betur gegn Newc-
astle en gegn Leeds, en þá
var hann frábær."
Keane, sem er nýbyijaður að
leika á ný með United eftir
meiðsli, sem urðu til að hann missti
af sex leikjum, byijaði að leika á
miðjunni með Rob Lee og Lee
Clark, sem yfírspiluðu leikmenn
Newcastle. Þegar David May, mið-
vörður, meiddist og fór af velli, tók
Keane stöðu hans og lék við hlið-
ina á Gary Neville og héldu þeir
markaskoraranum Les Ferdinand
niðri. Keane kórónaði góðan leik
sinn með því að bruna fram í sókn
og skora annað mark United, 2:0
- hans fjórða mark í vetur. Leik-
menn United fögnuðu sigri og þar
með stöðvuðu þeir versta leikjak-
afla liðsins í þijú ár, því að fyrir
leikinn hafði United ekki fagnað
sigri í fímm leikjum.
Keane kemur til með að leika
sem miðvörður gegn QPR á gaml-
ársdag, þar sem varnarmennirnir
David May, Gary Pallister, Steve
Bruce og Paul Parker eru meiddir.
Keegan óhress
Kevin Keegan, framkvæmda-
stjóri Newcastle, var ekki ánægð-
ur með leik sinna manna gegn
ROY Keane áttl stórgóðan
lelk með Unlted gegn New-
castle og sagði Ferguson,
stjóri United, að hann væri
besti leikmaðurinn á Bret-
landseyjum.
Manchester United á Old Trafford.
„Við náðum okkur ekki á strik og
líklega er þetta lélegasti leikur
okkar í heilt ár. Meinið var að við
náðum okkur ekki á strik á miðj-
unni og sóknarlotur okkar voru
þar af leiðandi bitlausar - leik-
menn mínir misstu knöttinn hvað
eftir annað til United,“ sagði Ke-
egan, sem var heldur ekki ánægð-
ur með að n-írski landsliðsmaður-
inn Keith Gillespie meiddist á læri
og verður frá keppni í nokkrar
vikur. „Það er slæmt að missa
Gillespie, sem hefur leikið svo vel
á keppnistímabilinu.“
„Við tókum áhættu"
Alex Ferguson, framkvæmda-
stjóri Manchester United, var mjög
ánægður með leik sinna manna.
„Við tókum ákveðna áhættu með
því að sækja grimmt, en það
heppnaðist og sigurinn var sætur.
Við hefðum hæglega getað skorað
fleiri mörk.“
Ferguson sagði að allir hafi
verið að ræða um það fyrir leikinn
að Newcastle gæti með sigri náð
þrettán stiga forskoti. „Nú er for-
skot liðsins aðeins sjö stig, sem
hefur opnað deildina á ný.“
Uppgjör Cantona
og Ginola
Leikurinn var hálfgert uppgjör
frönsku Ieikmannanna Eric Can-
tona hjá United og Davis Ginola
hjá Newcastle, sem hafa ekki tal-
ast við síðan í undankeppni HM í
Bandaríkjunum. Eftir leik Frakka
og Rúmeníu í París, sem Rúmenar
unnu óvænt með marki á síðustu
mín. leiksins, þannig að þeir fóru
til Bandaríkjanna en ekki Frakk-
ar, kenndi Cantona Ginola um
hvernig fór. Einleikur hans hefði
kostað það að Rúmenar náðu
knettinum frá Ginola og skoruðu,
1:2.
Fyrir leikinn sagði Ginola að
það væri kominn tími á að þeir
Cantona sættust. „Ég mun ræða
við hann í Manchester."
Reuter
DINO Radja (40) hjá Boston sækir að körfu Portland Trall Blazers, Cllfford
Robinson og Chris Dudley eru til varnar.
NBA-deildin
Leikir í fyrrinótt:
Charlotte - LA Clippers.....107:116
Minnesota - Milwaukee...... 93: 99
■Eftir framlengdan leik.
Washington - Golden State...ll5: 94
Phoenix - Philadelphia......105: 90
Portland - Boston...........135:109
Seattle - Denver........... 99: 83
Scotlie Pippen
stjórnar leik
Chicago
SCOTTIE Pippen hefur leiklð
geysilega vel með Chicago
eftir að Jordan byrjaði aftur
að leika með llðinu. Þelr fé-
lagar hafa sjaldan verlð
betri en um þessar mundlr.
FELAGSLIF
„Keane bestur
á Bretlandi"