Morgunblaðið - 03.01.1996, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1996
flktirgiuilrifofcifc
■ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR
BLAÐ
McFarland rekinn
frá Guðna og
samherjum
ROY McFarland var látinn fara frá Bolton í
gærkvöldi og tók Colin Todd þegar við stjórn-
inni en félagarnir voru ráðnir fyrir sex mánuð-
um þegar Bruce Rioch fór og gerðist yfirþjálf-
ari Arsenal. Þetta er í annað sinn á skömmum
tíma sem McFarland er látinn taka pokann sinn
en hann var rekinn frá Derby í apríl á liðnu ári.
Gordon Hargreaves, formaður Bolton, sagði
að ákvörðun um að ráða tvo yfirþjálfara hefði
ekki gengið og væri við sig og stjórn félagsins
að sakast en Bolton er sem fyrr í neðsta sæti
ensku úrvalsdeildarinnar. „Todd hefur ráðið
ferðinni og því á ég ekki von á miklum breyting-
um en það verður að koma í ljós,“ sagði Guðni
Bergsson, leikmaður Bolton, við Morgunblaðið
aðspurður um málið.
Atlamir
aftur til
Víkings
HANDKNATTLEIKUR
Júlíus Jónasson byrjar
með TV Suhr í febrúar
NAFNARNIR Atli Helgason
og Einarsson, sem léku með
Fram í fyrra, eru á leið til
Víkings. Þeir hafa báðir æft
með liðinu að undanförnu og
það á aðeins eftir að ganga
frá formsatriðum í sambandi
við félagaskiptin.
„Við gerum okkur vonir
um að vera búnir að fá leik-
heimild fyrir þá áður en
Reykjavíkurmótið innanhúss
hefst um næstu helgi,“ sagði
Ásgrímur Guðmundsson, for-
maður knattspyrnudeildar
Víkings.
Stefán Arnarson, mark-
vörður FH, hefur einnig verið
í viðræðum við Víkinga um
að gerast leikmaður liðsins
næsta sumar og fleiri menn
eru í myndinni en ekki hefur
verið ákveðið með félaga-
skipti í þvi efni.
JÚLÍUS Jónasson, landsliðsmað-
ur í handknattleik, gekk frá
samningi við svissneska félagið TV
Suhr á gamlársdag og byrjar að
leika með liðinu í Aarau í febrúar.
Félagið yfirtók samning hans við
þýska félagið Gummersbach sem
átti að renna út í vor og gerði samn-
ing við Júlíus sem gildir út tímabil-
ið 1997. Þýska félagið Bad Schwar-
tau vildi einnig fá Júlíus til liðs við
sig en hann valdi að fara frekar til
Sviss.
„Ég tók ákvörðun á síðasta degi
og er mjög ánægður með samning-
inn,“ sagði Júlíus við Morgunblaðið.
Hann sagði að tilboð TV Suhr hefði
borist fyrir nokkrum dögum en 29.
desember hefði Bad Schwartau haft
samband. „Það að tvö lið komu til
greina og tíminn naumur auðveldaði
mér samninga," sagði Júlíus, „því
ég vissi að ef ég gerði samning fyr-
ir áramót um að fara annað myndi
Gummersbach spara mikla peninga.
Spurningin var því ekki hvort heldur
hvert og þar sem mér leist betur á
svissneska liðið og stjórn þess valdi
ég þann kostinn. Bad Schwartau er
með sex stig í fallbaráttu og margt
í stjórninni virðist ómanneskjulegt
en þó TV Suhr sé í áttunda sæti
af 12 er liðið talið vera á meðal fimm
bestu í Sviss. Auk þess vildi ég frek-
ar fara í suður en norður. Það er
yfirleitt um sex til sjö tíma akstur
í útileiki hjá liðum í Norður-Þýska-
landi en í Sviss eru þetta ekki nema
einn til tveir tímar. Þá á ég bróður
í Munchen og það verður styttra á
milli okkar.“
Fyrir skömmu gerði Gummers-
bach samning við markakóng HM á
íslandi 1995, Yoon Kyung-Shin frá
Suður-Kóreu, sem gerði 85 mörk í
níu leikjum, og því benti margt til
þess að Júlíus yrði ekki áfram hijá
félaginu að samningnum loknum.
Júlíus
Jónasson
Hann hefur verið frá undanfarnar
vikur vegna meiðsla en sagðist vera
orðinn leikhæfur. „Ég má bytja að
leika 30 dögum eftir undirritun
samningsins og það kemur mér vel
því fyrir vikið hef ég lengri undir-
búningstíma.“ Rússneski landsliðs-
maðurinn Igor Vasiliev hefur leikið
með TV Suhr að undanförnu en
Júlíus taldi líklegt að hann væri á
förum þar sem félagið væri ekki
ánægt með hann.
Júlíus verður 32 ára í ágúst.
Hann lék með Val en hefur spilað
með erlendum liðum síðan 1989, var
í þrjú ár í Frakklandi, tvö ár á Spáni
og hefur verið í eitt og hálft ár hjá
Gummersbach í Þýskalandi. „Ég
geri ráð fyrir að flytja til Sviss um
miðjan mánuðinn en á næstu dögum
fer ég til Aarau og hitti forsvars-
menn og leikmenn félagsins í fyrsta
sinn en umboðsmaður minn sá alfar-
ið um samningana fyrir mína hönd.“
KNATTSPYRNA
Ríkharður í
raðir KR-inga
RÍKHARÐUR Daðason, knatt-
spyrnumaður úr Fram, hefur
gengið til liðs við KR-inga. Hann
skrifaði undir tveggja ára samn-
ing við félagið á Iaugardaginn.
„Eg er búinn að vera að velta
þessu fyrir mér í tvo mánuði og
þetta voru frekar erfið spor að
stíga en ég held að félagaskiptin
geri mig að betri knattspyrnu-
manni. Eg er búinn að vera sjö
ár hjá Fram og ég held að það
sé gott að skipta um umhverfi.
Ég tel mikilvægt að spila í fyrstu
deild ef ég á að eiga möguleika
á að komast í iandsliðið, sem ég
stefni auðvitað að. KR var besti
kosturinn í því sem mér stóð til
boða. KR er með gott lið og góð-
an þjálfara og mér líst vel á allar
aðstæður hjá félaginu,“ sagði Rík-
harður.
Hann hefur verið í hagfræði-
námi í New York í Bandaríkjun-
um undanfarin þrjú ár og liyggst
ljúka BA-prófi í vor. Hann er
staddur hér á íslandi í jólafríi og
heldur til Bandaríkjanna eftir
viku og kemur til íslands aftur
10. maí, eða rétt fyrir Islands-
mót. „Ég reyni að koma mér í
góða æfingu áður en ég kem heim
því ég veit að það er liörð sam-
keppni um hvert sæti í byijunar-
liði KR, sem er annað af tveimur
bestu liðum landsins," sagði Rík-
harður.
Ríkharður, sem er 24 ára og
hefur leikið með öllum yngri
landsliðunum og auk þess þrjá
A-landsleiki. Hann var að hugsa
um að reyna fyrir sér í nýju at-
vinnumannadeildinni í Bandaríkj-
unum og hafði verið boðinn
tveggja ára samningur, en sagði
hann ekki mjög spennandi og þvi
Morgunblaðið/Þorkell
KR-treyjan mátuð á fyrstu æfingunni
RÍKHARÐUR Daðason mætti á fyrstu æflnguna hjá KR í gærkvöldi og mátaðl KR-treyjuna. Hér
er hann tll vlnstri á æfingunni í Reiðhöllinnl í Víðldal ásamt Lúkasl Kostic, þjálfara KR.
ákveðið að koma heima og spila
í 1. deildinni með Vesturbæjarlið-
inu.
KR-ingar hafa misst tvo leik-
menn frá því í fyrra; Steinar
Adolfsson og Mihajlo Bibercic,
sem fóru til IA, en fengið í stað-
inn; Þorstein Guðjónsson frá
Grindavík, Kristórfer Sigurgeirs-
son úr Breiðabliki og nú Ríkharð
Daðason frá Fram.
KIMATTSPYRIMA: IMEWCASTLE SIGRAÐIARSEIMALOG ER í GÓDRISTÖDU / C2