Morgunblaðið - 12.01.1996, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMAMNA
Einn af þjálfurum
Ajax til íslands
Keegan og Robson segja nei!
KEVIN Keegan, knattspyrnustjóri Newcastle, sem var efstur á
blaði hjá veðbönkum í London, og Bryan Robson, knattspyrnu-
stjóri Middlesbrough, tveir fyrrum fyrirliðar enska landsliðsins,
tilkynntu í gær að þeir hefðu ekki áhuga að taka við starfi
Terrys Venables sem landsliðsþjálfari Englands. Þeir sögðu
báðir að þeir væru I góðum störfum, sem þeir væru ekki tilbún-
ir að yfirgefa. Gerry Francis, knattspyrnusljóri Tottenham, sem
er einnig fyrrum fyrirliði landsliðsins, er nú kominn í efsta
sætið þjá veðbönkum — tveir af hverjum þremur nefna nafn
hans. Howard Wilkinson lyá Leeds og Glenn Hoddie lyá Chlesea
eru einnig nefndur og þá er Jack Charlton, fyrrum landsliðs-
þjálfari írlands, kominn í hópinn.
Franz Hoek, fyrrum markvörður
hjá Ajax og núverandi mar-
kvarðaþjálfari félagsins, er væntan-
legur til íslands á vegum Knatt-
spymusambands Islands, til að
miðla íslenskum knattspyrnuþjálf-
urum af kunnáttu sinni. Hoek, sem
varð að hætta að leika knattspyrnu
ungur vegna meiðsla, snéri sér þá
alfarið að þjálfun og skipulagningu
leiksins, hvernig best væri að sækja
að marki andstæðingsins, eða vetj-
ast.
Hoek kemur hingað til lands föstu-
daginn 29. mars og heldur þá um
kvöldið fyrirlestur, en daginn eftir
verður hann með bók- og verklega
kennslu. Það er hvalreki fyrir ís-
lenska knattspymu að þessi vel metni
þjálfari komi hingað, en hann hefur
á undanförnum ámm, með þjálfun
sinni hjá Ajax, ferðast um Evrópu á
vegum Knattspymusambands Evr-
ópu.
Það sýnir best snilld Hoek sem
þjálfara, að Ajax á markverði í öllum
landsliðum Hollendinga og að mark-
vörður Ajax og landsliðsins, Edwin
Van der Sar, hefur ekki fengið mark
á sig úr aukaspymu undanfarin tvö
ár. Það er Hoek að þakka, en hann
leggur sig allan fram \jið að finna
vamir við sóknum andstæðingsins.
Hoek hefur sagt að þegar aðrir finna
svar við vöminni að fá ekki á sig
mark úr aukaspyrnum, væri hann til-
búinn með gagnleik.
Hoek á stóran þátt í velgengni
Ajax, en hjá félaginu vinna þjálfarar,
sem eru fjölmargir, geysilega vel sam-
an. Það er t.d. hlutverk hans að fara
og kynna sér andstæðinga Ajax
hverju sinni. Hann fer þá ekki einu
sinni til þess, heldur tvisvar. Hoek
tekur sér þá stöðu fyrir aftan mark
andstæðingsins og kortleggur allar
hreyfingar markvarðar, hvemig hann
bregst við hveiju sinni. Þar með sér
hann fljótt hvar veikleikamir em og
hvernig best er að sækja að marki
andstæðingsins.
Dýrar 145 sek.
í Portúgal
SÖGULEGUM leik sem hófst fyrir þrettán dögum
lauk í gær í Portúgal - leik Chavers og Sporting
Lissabon, sem varð að fresta á gamlársdag, þegar
145 sek. voru til ieiksloka vegnaþess að flóðljósin
biluðu, þá var staðan 1:1. Það mátti tefia á fingrum
sér þá áhorfendur sem komu til að sjá lokamín.
leiknar í gær, enda voru þær sýndar beint í sjón-
varpi. Leikmönmun liðanna tókst ekki að skora og
urðu lokatölur 1:1. Sportingliðið þurfti að ferðast
1.000 km leið til að leika þessar 145 sek.
Arsenal mætir
Aston Villa
ARSENAL mætir Aston Villa í undanúrslitum
ensku bikarkeppninnar - leika liðin heirna og heim-
an í febrúar. Leeds leikur gegn sigurvegaranum í
leik Birmingham eða Norwich, sem gerði jafntefli,
1:1, á Carrow Road í Norwich. Eftir leikinn sauð
uppúr hjá stuðningsmönnum Norwich, en liðið
hefur ekki fagnað sigri í tiu síðustu leikjum sinum.
Han Xue aftur
með heimsmet
KÍNVERSKA stúlkan Han Xue, 14 ára, bætti fjög-
urra daga gamalt heimsmet sitt 150 m bringusundi
í Peking í gær, er hún synti vegalengdina á 80,98
sek., sem er þrettán hundruðustu úr sek. betri tími
en hún náði á móti í Hong Kong sl. sunnudag, „Ég
reiknaði ekki með að selja heimsmet hér, en ég
hef trú á þvi að ég eigi eftir að bæta það fyrir
Ólympiuleikana i Atlanta í sumar,“ sagði Han.
Þetta var eina heirasmetið sem var sett á tveggja
daga móti.
Papin fer ekki til
Newcastle
BAYERN Miinchen hafnaði í gærkvöldi beiðni
Newcastle um að liðið lánaði franska landsliðs-
manninn Jean-Pierre Papin til St. James Park.
„Papin verður í herbúðum okkar út keppnistimabil-
ið,“ sagði talsmaður Bayern. Franska blaðið l’Equ-
ipe sagði frá því i gær Kevin Keegan, knattspyrnu-
sijóri Newcastle, hafi haft samband við Bayeru
MUnchen í sl. viku og vifiað fá Papin. Frakkinn
David Ginola, sem leikur fyrir Newcastle og á yfir
höfðu sér þriggja leikja bann fyrir að slá Lee Dix-
son, sagði í viðtali við i’Equipe að það væri gaman
að fá Papin til Newcastle og Papin sagði að það
yrði frábært að fara til Newcastle.
■Sheff. Utd. keypti I gærkvöldi Don Hutchinson
frá West Ham á 1,2 miiy. punda.
1996
FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR
BLAD
haft trú á honum sem þjálfara og
aldrei talað illa um hann, þrátt
fyrir hvemig hann var við okkur
Arnar,“ sagði Bjarki við Morgun-
blaðið í gær.
Arnar Gunnlaugsson, bróðir
Bjarka, sem nú er leikmaður með
franska 2. deildarliðinu Sochaux
skoraði fyrir liðið í sigurleik, 2:1,
gegn Valence í deildinni á mið-
vikudaginn. Þetta var fyrsti leik-
urinn eftir áramót en í lok síðasta
árs gerð hann þijú mörk í tveimur
síðustu deildarleikjunum. Honum
gengur því vel í Frakklandi.
Morgunblaðið/Kristinn
BJARKI Gunnlaugsson í Evrópuleik með ÍA
gegn Raith Rovers sl. sumar á Akranesl.
Hugsanlegt er að Bjarki koml aftur helm í
vor og lelkl með ÍA aftur í sumar.
KNATTSPYRNA
Bjarki
til Mann-
heim
Leigðurtil þýska
liðsins fram á sumar
§^jarki Gunnlaugsson, landsliðs-
maður í knattspymu frá
Akranesi, er á föram til þýska 2.
deildarliðsins Waldhof Mannheim.
Þangað er hann leigur frá Feyeno-
ord fram á sumar, en óljóst er
með framhaldið. Möguleiki er á
að hann verði aftur heima í sumar
og leiki með ÍA en ekkert er ör-
uggt í því sambandi að sögn
Bjarka í gær.
Mannheim, sem hafði áhuga á
að fá Sigurð Jónsson til sín fyrir
þetta keppnistímaþil, er í neðri
híuta 2. deildar, tólfta sæti af
átján, með 20 stig. Þórður Guð-
jónsson og félagar hans hjá Boc-
hum eru í efsta sæti með 39 stig.
Bjarki er ekki ókunnugur í 2.
deildarkeppninni í Þýskalandi,
hann lék þar með Núrnberg sl.
keppnistímabil ásamt bróður sín-
um, Arnari. Þjálfari Mannheim
nú, og sá sem hringdi í Bjarka í
gær, er Gunter Sebert, sem tók
einmitt við þjálfun Núrnberg um
áramótin 94/95. „Þá höfðum við
Amar gert helming marka liðsins
á tímabilinu og gengið mjög vel,
en hann notaði okkur aldrei saman
í liðinu og gagnrýndi okkur tals-
vert í blöðunum, án þess þó að
neitt illt væri á milli okkar og
hans. Það er því eiginlega brand-
ari ársins að hann hringi sjálfur
í mig nú. En ég hef samt alltaf
UNGLINGAÞJALFARINN ER MIKILVÆGASTIMAÐURINN HJA AJAX / C2,C3