Morgunblaðið - 12.01.1996, Page 3
2 C FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 1996 C 3
KNATTSPYRNUSTÓRVELDIÐ AJAX
KNATTSPYRNUSTÓRVELDIÐ AJAX
Louis Van
Gaal las leik-
inn rétt
LOUIS Van Gaal, þjálfari
Ajax, las úrslitaleik Ajax og
AC Milan í Evrópumeistara-
deildinni, sem fór fram í Vín-
arborg 24. maí 1995, rétt,
þegar hann lét tvo 18 ára
táninga inn á á hárréttum
tíma — Nígeríumanninn
Kanu og Kluivert. Kanu
skapaði mikinn usla í vðrn
AC Milan með hraða sínum,
tækni og leikni og það var
svo Kluivert sem kom, sá og
sigraði, þegar hann skoraði
sigurmarkið á 83. mín., 1:0,
eða átján mín. eftir að hann
kom inn á fyrir Litmanen.
Þess má geta að Kanu kom
17 ára til Ajax frá Nígeríu.
Lifa fyrir Ajax
ÞEGAR greinarhöfundur var
á ferð um Amsterdam á dög-
unum — með íslenska lands-
liðinu á leið til Ungveija-
lands, fékk ég þann heiður
að fá að far með leigubif-
reiðastjóranum Guus Issen,
sem var dæmigerður Amst-
erdambúi — Ajax átti hans
hug og hjarta. Issen var ekki
í vafa um að Ajax væri besta
félagslið heima, sem kom svo
á daginn þegar Ajax lagði
Gremio að velli í Tókýó um
nafnbótina heimsmeistari fé-
Iagsliða. Issen sagðistalltaf
fara á heimaleiki Ajax, það
væri ekkert nema veikindi
sem gæti komið I veg fyrir
það. „Ajax og Amsterdam er
það sama — þegar nafnið
Ajax er nefnt, kemur Amst-
erdam upp í hugann og
öfugt,“ sagði Guus Issen
stoltur.
Þegar þú elskar
knattspyrnu
viltu leika
argir héldu því fram fyrir ári
að það væri hættulegt fyrir
Ajax að láta ungu leikmennina okk-
ar leika eins marga leiki og þeir
gerðu. Ég var
ekki á sömu
skoðun og sagði
að' þeir, sem
elska knatt-
spyrnu, _ viiji
leika. Ég væri
tilbúinn að leika
eins marga leiki
sjálfur, en ég er
orðinn of gam-
all,“ sagði Louis
van Gaal, hinn
44 ára gamli
þjálfari Ajax,
sem hefur náð
undraverðum ár-
angri með liðið.
Van Gaal, sem
er fæddur í
Amsterdam, hef-
ur upplifað tvö
gulltímabil hjá
Ajax, því að
hann var leik-
maður með lið-
inu upp úr 1970, þegar liðið var það
besta í Evrópu. Hann tók við þjálfun
Ajax í september 1991 þegar Leo
Beenhakker fór aftur til Real
Madrid á Spáni, en Van Gaal var
aðstoðarþjálfari hans. Eftir að hann
tók við stjórninni varð Ajax UEFA-
meistari 1992, hollenskur bikar-
meistari 1993, hollenskur meistari
1994 og 1995, Evrópumeistari
meistaradeildarinnar 1995 og
heimsmeistari félagsliða í Tókýó
1995.
LOUIS van Gaal.
Ajax sýndi það og sannaði sl.
keppnistímabil að liðið væri besta
félagslið Evrópu, eftir að hafa lagt
þáverandi Evrópumeistara, AC
Milan, að velli í
úrslitaleik í Vín,
en Ajax hafði
áður lagt ítalska
liðið tvisvar að
velli í riðla-
keppninni. „Það
var ljóst eftir að
við vorum búnir
að leggja AC
Milan að velli í
þriðja sinn, að
framundan væri
nýtt ævintýri
hjá Ajax, eins
og upp úr 1970
þegar liðið fagn-
aði Evrópu-
meistaratitli
þrjú ár í röð,
1971-1973.
Ég veit allt
um umræðurnar
um að ungu
strákamir okk-
ar vilji fara til
suðrænni landa - Ítalíu og Spánar.
Þessi orðrómur hefur alltaf verið í
kringum Ajax. Það var svo þegar
við unnum UEFA-bikarinn 1992 og
leikmenn fóru til „fyrirheitna lands-
ins.“ Ég held að við höfum nú náð
að afstýra þessu, með því að vinna
tvo Evróputitla á fjórum árum. Það
hefur sýnt leikmönnum okkar að
það er betra að vera heima hjá Ajax,
en að fara annað," sagði van Gaal.
SVARTI gimstelnnlnn hjá Ajax, Patrik Kluivert, grét af gleði þegar hann handlék Evrópubikarinn, eftir að hafa skorað sigurmarkið gegn
AC Milan í Vín. Þessi snjalli knattspyrnumaður á örugglega efir að bera nafnbótlna besti knattspyrnumaður Evrópu innan fárra ára.
Unglingaþjálfarinn er mikilvægasti maðurinn íherbúðum Evrópumeistara Ajax
Ódýr heilsurœkt!
Lausir tímar til útleigu fyrir almenning í sölum
íþróttamiðstöðvar Seltjarnarness.
Tilvalið fyrir hjón.félagahópa og fyrirtæki.
Körfubolti • Fótbolti • Badminton
Pantanir í síma 561 2266
Markviss uppbygging
GLIMUDEILD KR
M\ý
lbyirjjceinKidlai-
MÆUiiíiLslkceiicci)
ceirim ækB IhiceíQcciistt
Aðalþjálfari er Ólafur Haukur Ólafsson.
Æfingar fyrir börn og unglinga 7-12 ára:
Þriðjudagar 19.00-19.50
Föstudagar 19.00-19.50
Allaræfingar fara fram ííþróttahúsi Melaskólans
INNRITUN og frekari upplýsingar
í síma 551 9438 eftir kl. 17.00.
MÖRG félög í Evrópu hafa horft öfundaraugum til Amsterdam, þar
sem hollenska meistaraliðið Ajax er með herbúðir sínar. Það er ekki
nema von, þar sem þar er uppspretta ungra knattspyrnumanna, sem
eiga það eitt sameiginlegt að leika frábæra knattspyrnu. Meðalaldur
leikmanna liðsins er rétt um 23 ár og byrjað er að tala um nýtt Ajax-
tímabil í knattspyrnusögu Evrópu ílíkingu við það þegar Johan Cru-
yff og félagar hans voru nær ósigrandi upp úr 1970, unnu Evrópu-
keppni meistaraliða þrjú ár í röð, 1971-1973. Síðan það gullaldarlið
lagði skóna á hilluna hefur Ajax níu sinnum orðið hollenskur meist-
ari, fimm sinnum fagnað bikarsigrum í Hollandi, orðið Evrópumeist-
ari bikarhafa, unnið UEFA-bikarkeppnina, sigrað í Evrópumeistara-
deildinni og tryggt sér nafnbótina besta félagslið heims. Stjörnuljómi
Cruyff og félaga lýsir nú aðeins upp farinn veg - framtíðin er ungu
mannanna, sem þegar hafa sannað sig.
Það má með sanni segja að upp-
spretta Ajax sé ótæmandi, því að
liðið hefur alltaf haldið reisn sinni þó
mmmmmmmm að ítölsk félög hafl
Sigmundur Ó. keppst við að kaupa leik-
Steinarsson menn fra íélagmu - nku
skrifar félögin á Italíu hafa
keppst við að strá veginn
frá Amsterdam til Ítalíu gulli og hafa
lokkað til sin á undanförnum árum leik-
menn frá Ajax eins og Kieft, Van Bast-
en, Rijkaard, Roy, Van’s Schip, Winter,
Vink, Bergkamp, Jonk, Kirek og Seed-
orf.
Ajax hefur fengið dágóðar upphæðir
fyrir að selja leikmenn til Ítalíu, eða vel
á fjórða milljarð ísl. kr. Það sem hefur
haldið þessu fræga liði gangandi er
máltækið: „Maður kemur í manns stað.“
Það hefur svo sannarlega sýnt sig hjá
Ajax, að þegar einn leikmaður hefur
farið hefur annar komið til að halda
merkinu á Iofti.
Gott dæmi um það er að þegar marka-
skorarinn Marco van Basten fór til AC
Milan tók Dennis Bergkamp við stöðu
hans og þegar Bergkamp, sem nú leikur
með Arsenal, fór til Inter Mílanó, tók
finnski landsliðsmaðurinn Jari Litmanen
stöðu hans og svona mætti lengi telja.
Þó að leikmenn frá Ajax fari til Italíu
eða Spánar, koma nýir leikmenn upp.
Ajax hefur oft verið kallað útungunar-
stöð fyrir stóru félögin á Ítalíu.
David Endt, talsmaður Ajax, sagði
að það væri stefna liðsins að hlúa sem
best að ungum knattspyrnumönnum
félagsins, þannig að Ajax ætti alltaf
stóran hóp af ungum leikmönnum til
að byggja á. „Við gerðum okkur fylli-
lega grein fyrir þessu þegar Ítalía og
Spánn opnuðu fyrir erlendum leikmönn-
um fyrir sextán árum og félög frá þess-
um löndum horfðu öfundaraugum til
leikmanna okkar. Stefna okkar er að
rækta garðinn okkar eins vel og við
getum, því að við munum uppskera eins
og sáð var.“
Hið mikla unglingastarf Ajax hefúr
gert liðið að einu frægasta liði heims
og um leið hefur það styrkt hollenska
knattspyrnu, því að á undanförnum
árum hafa hátt í áttatíu prósent af
landsliðsmönnum Hollands komið frá
Ajax. Hinir fjölmörgu þjálfarar, sem
starfa fyrir Ajax, vinna saman sem einn
maður í uppeldinu. Nú er svo komið að
þýsk lið hafa ákveðið að byggja upp
unglingastarf sitt á sama
hátt og Ajax.
Unglingastarfið
hefur forgang
„Unglingastarfið hjá
okkur hefur algjöran for-
gang - það er númer eitt,
tvö og þtjú,“ sagði Endt.
„Bæði ég.og aðalþjálfarinn,
Louis van Gaal, vitum vel
að unglingaþjálfari okkar,
Co Adriaanse, er mikilvæg-
asti maðurinn hjá félaginu.
Ef við hugsuðum ekki þann-
ig, þá værum við ekki með
alla þessa ungu leikmenn í
herbúðum okkar.“
Unglingastarfið er geysi-
legt hjá Ajax og æfingasvæði félagsins
eru iðandi á hveijum degi af hátt í tvö
þúsund strákum á aldrinum sjö til tíu
ára. Aðaláhersla er lögð á tækni og
strákarnir fást allir við það sama, að
leika sóknarknattspyrnu að hætti Ajax.
Brýnt er fyrir þeim að það sé ekki aðal-
atriðið að vinna alla leiki; aðalatriðið
er að leika eins og Ajax er þekkt fyrir
- lögð er áhersla á tækni, leikni og
hraða.
„Aðalatriðið hjá okkur er að leggja
ekki pressu á ungu strákana okkar -
menn geta ekki eingöngu lifað á sigr-
um. Við viljum frekar leggja áherslu á
knattmeðferð, tækni, hraða og rétt
hugarfar, sem kemur þeim að notum í
framtíðinni," sagði Endt og allir vita
við hvað hann á - dansandi knatt-
spymumenn, sem leggja aðaláhersluna
á sókn, sem hefur einkennt hollenska
knattspymu og gert hana geysilega
vinsæla. Það er ekki sama knattspyman
leikin í Rotterdam og Amsterdam, enda
eru ungir leikmenn aldir upp við allt
Ungu mennirnir hjá Ajax
Edgar Davids
Frank de Boer
Ronald de Boer
Finidi George (Nígería)
Nwanko Kanu (Nígería)
Patrick Kluivert
Jari Litmanen (Finnlandi)
Marc Overmars
Michael Reiziger
Martijn Reuser
Kizito „Kiki“ Musampa
Andrej Dentsjenko (Rússl.)
Nordin Wooter
DenisSchulp
IgnacioTuhuteru
miðvallarspilari
varnarleikmaður
sóknarleikmaður
miðvallarspilari
miðvallarspilari
sóknarleikmaður
sóknarleikmaður
sóknarleikmaður
varnarleikmaður
miðvailarspilari
miðvallarspilari
sóknarleikmaður
sóknarleikmaður
sóknarieikmaður
sóknarleikmaður
22
25
25
24
19
19
24
22
22
21
18
19
19
18
22
annað andrúmsloft í þessum tveimur
stórborgum Hollands.
Stór þáttur í þessu er að í Amsterdam
búa yfir 150.000 manns ættaðir frá
Surinam í Suður-Ameríku, þ. á m. eru
Ruud Gullit og Frank Rijkaard, tveir
af frægustu knattspyrnumönnum Hol-
lands fram til þessa. Nýjustu nöfnin í
þessum hópi eru hinir 19 ára Patrick
Kluivert og Clarence Seedorf.
„Knattspyrnumenn frá Surinam eru
stór hluti af sögu Ajax. Þeir sameina
vel léttleikandi knattspymu, eins og hún
er leikin í Suður-Ameríku, og hug-
myndaríka og skipulagða knattspyrnu,
eins og hún er leikin í Evrópu. Surin-
amskir knattspyrnumenn hafa sett
sterkan svip á leik Ajax síðustu tíu til
fimmtán árin,“ sagði Endt.
Það þarf ekki að fara um það mörg-
um orðum að lið Ajax hefur ekki verið
eins öflugt síðan á árunum upp úr 1970.
Það er hvað athyglisverðast við liðið,
að margir leikmenn þess hafa þroskast
á annan hátt en aðrir ungir leikmenn
- þeir hafa fengið lítinn tíma til að
leika gegn jafnöldrum sínum, heldur
hafa þeir rétt verið orðnir 18 ára
þegar þeir eru famir að leika gegn
bestu leikmönnum Evrópu.
„Það er mikill munur á Ajax-liðinu
síðustu ár og því sem var og hét -
við höfum misst marga góða leik-
menn til Ítalíu. Þegar Cruyff og fé-
lagar voru að koma upp, léku þeir
saman fram til 26 til 27 ára aldurs,
þar sem lokað var fyrir útlendinga á
Italíu og Spáni á þessum árum. Við
eigum núna frábært lið og það sem
hefur hjálpað okkur er að við fögnuð-
um sigri í Evrópukeppninni og erum
nú komnir í átta liða úrslit. Það hef-
ur gefið okkur peninga til að halda
leikmönnum okkar.
Við þurfum ekki að fara leynt
með, að takmarkið hjá okkur er að
endurtaka leikinn frá árum áður, að
hampa Evrópubikarnum þrjú ár í
röð,“ sagði David Endt.
Svarti gim-
steinninn
erdývgrip-
urAjax
AJAX hefur verið þekkt fyrir
að fá til sín unga stórefnilega
leikmenn, láta þá þroskast
eins og túlípana f réttu um-
hverfi. Það vakti geysilega
athygli eftir heimsmeistara-
keppnina í Bandaríkjunum
1994 þegar Ajax bauð 455
millj. ísl. kr. í 17 ára Brasilíu-
manninn Ronaldo. Liðið hafði
ekki verið þekkt fyrir að kaupa
leikmenn frá útlöndum, held-
ur ala upp og selja fullþrosk-
aða leikmenn til erlendra liða.
Ekki vakti það minni athygli
þegar Ronaldo hafnaði boði
Ajax, valdi frekar að fara til Eind-
hoven, en í því átti Romario, fyrr-
um leikmaður liðsins, mestan þátt.
Það leið ekki langur tími þar til
Louis van Gaal, þjálfari Ajax, hrós-
aði happi yfir því að Ronaldo hafn-
aði boði Ajax. Einn af leikmönnum
hans, hinn 19 ára Patrick Klui-
vert, sýndi að hann var jafningi
Brasilíumannsins, ef ekki betri en
hann. „Eini munurinn á þeim er
verðið. Kluivert hefur ekki kostað
okkur eitt hollenskt gyllini," sagði
Van Gaal.
Kluivert er markamaskína af
guðs náð og eins og Ruud Gullit
og Frank Rijkaard er hann af sur-
inömsku bergi brotinn. Hann byij-
aði að æfa hjá Ajax aðeins sjö
ára. Kluivert byijaði strax að hrella
markverði víðs vegar um Evrópu
á sínu fyrsta keppnistímabili og
vildi hann þakka það Finnanum
Jari Litmanen. „Það var stórkost-
legt að hafa Jari við hliðina á
mér, því að þar sem hann hafði
skorað svo mikið af mörkum, voru
varnarmenn alltaf með gætur á
honum, þannig að ég fékk gott
svæði til að leika lausum hala á.“
Litmanen gerði sér fyllilega grein
fyrir þessu og sagði að fyrir hann
væri knattspyrnan leikur liðsheild-
arinnar. „Það skiptir engu máli
hver skorar mörkin, aðeins að þau
séu skoruð.“
Kluivert sagðist allt í einu hafa
vaknað upp við það, að frami hans
hafi verið ævintýralega skjótur.
„Það eru ekki nema tvö ár síðan,
að ég var með myndir af fyrirmynd
minni, Rijkaard, uppi á vegg -
draumurinn var að verða eins og
hann. Eins og hendi væri veifað
var ég bytjaður að æfa og leika
með honum og það sem meira
var, ég var herbergisfélagi hans á
Ajax-uppsprettan
Þ AÐ hefur lengi verið Ijóst að flestir af bestu knattspyrnumönnum
heims undanfarin ár hafa komið úr Ajax-uppsprettunni í Amster-
dam, eins og hægt er að sjá á þessari upptalningu...
Johan Cruyff, Piet Keizer, Arie Haan, Sjaak Swart, Wim Suubier,
Theo Van Duivenboe, Johnny Reb, Ruud Krol, Barry Hulshoff, Ric-
hard Witschge (Bordeaux), Rob Witschage (Feyenoord), Dennis Berg-
kamp (Arsenal), Frank Rijkaard, John Van’t Schip (Genúa), Gerald
Vanenberg (Jubilo Iwata, Japan), Aron Vinter (Lazíó), Bryan Roy
(Nott. Forest), Wim Kieft (Eindhoven), Stanley Menzo (Eindhoven),
Michel Kreek (Padova), CÍarence Seedorf (Sampdoria), Edwin Van
der Sar, Frank de Boer, Michael Reizinger, Sonny Siíooy, Clyde
Wijnhard, Edgar Davids, Tarik Oulida (Sevilla), Martijn Reuser,
Ronald de Boer, Kizito „Kiki“ Musampa
ferðalögum. Hvaða annar atvinnu-
knattspyrnumaður hefur mynd af
félaga sínum við rúm sitt?“
Juventus, AC Milan, Inter
Mílanó og Barcelona eru lið sem
hafa augastað á þessum frábæra
leikmanni, en Kluivert segist ekki
vera tilbúinri enn að fara frá Ajax.
„Ég hef lært mikið á að kynnast
Rijkaard og vera herbergisfélagi
hans á ferðalögum - þannig að
ég hefði ekki getað fengið betri
læriföður í knattspyrnunni. Hann
sagði mér frá allri pressunni sem
hefur verið á honum, og hvernig
væri að velja og hafna, og ganga
frá samningum. Rijkaard hefur
gengið í gegnum svo margt - hann
var ungur leikmaður með Ajax og
Hollandi, og hann fór til Ítalíu.
Hann sagði mér að tíminn sem
hann hafi verið hjá AC Milan hafi
verið stórkostlegur. Hann sagði
mér einnig að ég yrði að vega og
meta - taka rétta ákvörðun á rétt-
um tíma,“ sagði Kluivert, sem
skrifaði undir þriggja ára samning
við Ajax eftir að liðið varð Evrópu-
meistari í maí 1995. Hann gat þá
farið frá Ajax hvert sem hann vildi,
án þess að liðið hefði fengið mikinn
pening fyrir hann.
„Ég ákvað að skrifa undir samn-
ing við Ajax, þar sem ég skuldaði
Ajax mikið - alla þjálfun mína og
þroska. Það hefði því ekki verið
heiðarlegt af mér að hverfa á
braut, án þess að þakka Ajax fyr-
ir mig. Ég skulda Ajax mikið og
vona að ég sé borgunarmaður fyr-
ir þeirri skuld,“ sagði þessi skyns-
ami og geðþekki knattspyrnumað-
ur, sem á eftir að verða besti knatt-
spymumaður Evrópu áður en langt
líður.
Þeir eru hetjur
Hollands
Þ AÐ eitt sýnir hinn mikla styrk
Ajax, að átta leikmenn liðsins
léku í byrjunarliði Hollands,
sem léku hinn þýðingarmikla
leik gegn frum á Anfield Road
- sigurleik sem tryggði Hol-
lendingum farseðUinn á EM í
Englandi, 2:0, með tveimur
mörkum Patrick Kluiverts.
Leikmennirnir sem léku voru
Edwin van der Sar, markvörð-
ur, varnarmennirnir Michael
Reiziger, Danny Blind, Wins-
ton Bogarde og Ronald de
Boer, miðvallarleikmaðurinn
Edgar Davids ásamt sóknar-
leikmönnunum Patrick Klui-
vert og Marc Overmars. Fyrir
utan það léku tveir fyrrum
leikmenn Ajax í byrjunarlið-
inu, Clarence Seedorf, Sampd-
oría, og Dennis Bergkamp,
Arsenal. Þá kom einn fyrrum
leikmaður Ajax, Aron Winter,
inn á sem varamaður.
Ajax kaupir
Hoekstra
ÞEGAR b'óst var að sóknarleik-
maðurinn Marc Overmars, sem
var skorinn upp vegna meiðsla
í hné á dögunum, myndi ekki
leika meira með Ajax fyrr en
á næsta keppnistímabili,
ákváðu forráðamenn liðsins að
styrkja það fyrir baráttuna
sem framundan er með því að
kaupa Peter Hoekstra frá
Eindhoven á 202 miiy. ísl. kr.
Það urðu þó nokkrar breyt-
ingar í herbúðum Ajax eftir
að Uðið varð Evrópumeistari í
Vínarborg. Gamli snillingurinn
Frank Rijkaard lagði skóna á
hilluna eftir þann leik - sagði
að ungu strákarair væru klárir
í slaginn. Hinn 19 ára Clarence
Seedorf var seldur til Sampd-
oría á Ítalíu. Nokkrir leikmenn
sem voru ekki í byrjunarliðinu
fóru - Tarik Oulida til Sevilla
á Spáni og þeir Peter Van
Vossen og John Van der Brom
fóra tU Istanbulsport, þar sem
fyrrum þjálfari Ajax, Leo Be-
enhakker er þjálfari.
Ajax keypti Brasilíumanninn
Marcio Santos frá Fiorentina
og fékk Rússann Andrej
Demtsjenko frá CSKA Moskvu
og Arnold Scholten frá Fey-
enoord, sem hafði áður verið
í herbúðum Ajax, til liðs við sig.
Knattspyrnumót 1996
Skráning í knattspyrnumót íyrir keppnistímabilið
1996 er hafin.
Þátttökutilkynningar skulu berast fvrir
20. janúar til skrifstofu KSÍ.
Nauðsynleg gögn liggja frami á skrifstofu KSÍ.
Skrifstofa KSÍ
íslandsmótiö
í innanhús sknatts pyrnu
12.-14. janúar 1996
í Laugardalhöll
1. deild karla:
Laugardaginn 13. janúar kl. 10.00-19.00.
Úrslitakeppni í 1. deild karla og 1. deild kvenna:
Sunnudaginn 14. janúar kl. 14.00.
Mótanefnd