Morgunblaðið - 26.01.1996, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
íiíiM:
1996
■ FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR
BLAÐ
Mæta til að
fylgjast með
Lárusi Orra
FIMMTÁN meðlimir í stuðn-
ingsmannaklúbbi enska
knattspyrnuliðsins Stoke á
Norðurlöndum mæta á Vict-
oria Ground í Stoke-on-Trent,
til að sjá leik Stoke gegn
Birmingham 17. febrúar.
Meðlimirnir mæta sérstak-
lega á leikinn til að fylgjast
með og sjá framfarir Lárusar
Orra Sigurðssonar, sem ber
auglýsingu frá klúbbnum á
keppnistreyju sinni.
FIMLEIKAR / HEIMSMEISTARAMOTIÐ
Rúnar
RÚNAR Alexandersson, eistneski fimleikamað-
urinn sem fékk nýlega íslenskt rikisfang, keppir
á heimsmeistaramótinu á einstökum áhöldum í
Puerto Rico um miðjan apríl. Þar keppir hann á
bogahesti og jafnvel fleiri áhöldum. Arangur kepp-
enda á mótinu gefur ekki þátttökurétt á Olympíu-
leikana í Atlanta, en Rúnar ætlar þar að sanna
sig og getur komist á heimslistann og það gæti
auðveldað honum að komast til Atlanta. Verið er
að vinna í því hjá FSÍ og Ólympíunefnd íslands
að hann keppi á Ólympíuleikunum vegna þess að
hann gat ekki tekið þátt í siðasta heimsmeistara-
móti sem fram fór í Japan í október á síðasta ári
þar sem hann hafði ekkert ríkisfang. Þar var
keppt um ólympíusætin i Atlanta.
Rúnar mun einnig keppa á Norðurlandamótinu
sem fram fer hér á landi í lok mars og verður það
í fyrsta sinn sem hann keppir sem einstaklingur
fyrir hönd íslands. Áður hefur hann keppt með
unglingalandsliðinu í Evrópukeppni liða í St. Pét-
urborg i Rússlandi.
Tomba vill breytingar
á heimsbikarkeppninni
Italski skíðakappinn Alberto Tomba segir
í viðtali við þýska tímaritið Sports að
nauðsynlegt sé að breyta heimsbikar-
keppninni á skíðum og stingur upp á að I
stað þess að keppa í smábæjum verði keppt
í nágrenni stórborga. „Það þarf að gera
keppnina í heimsbikamum meira spenn-
andi og það þarf að fá fleiri áhorfendur.
Besta leiðin til þess er að færa hana nær
stórborgum. Ég sé ekkert athugavert við
að menn geti verið á stórum og þægilegum
hótelum auk þess sem þetta yrði miklu
auðveldara, bæði fyrir keppendur og fjöl-
miðla,“ segir Tomba í viðtalinu.
Heimsbikarmótin eru oft haldin á af-
viknum stöðum þannig að keppendur,
fjölmiðlafólk og áhorfendur þurfa að ferð-
ast á sveitavegum við erfiðar aðstæður og
þegar fresta þarf móti vegna veðurs getur
allt farið í hnút.
„Það gæti líka verið gaman að breyta
aðeins til í sambandi við greinarnar sjálf-
ar. Ég sé til dæmis fyrir mér að keppa í
svigi í fyrri umferðinni en síðari umferðin
væri stórsvig,- það gæti orðið gaman, bæði
fyrir okkur og ekki síður áhorfendur,"
sagði Tomba.
Hann sagði ekki rétt að hann ætlaði að
hætta eftir þetta tímabil. „Fyrst ég hætti
ekki eftir síðasta tímabil þá er ég ákveðinn
í að keppa næsta ár líka og það væri frá-
bær endir á ferlinum ef ég næði að sigra,“
sagði Tomba.
Mark Hughes
dæmdur í fimm
leikja bann
MARK Hughes, framheiji Chelsea, hefur ver-
ið úrskurðaður í fimm leikja keppnisbann —
tveggja leikja bann fyrir að vera búinn að
fá 33 refsistig og þá fékk hann þriggja leikja
bann fyrir að vera rekinn af leikvelli í leik
gegn Everton á dögunum. Hughes byijar að
taka út leikbann sitt um helgina og leikur
því ekki með Chelsea bikarleikinn gegn QPR.
Dennis Wise ieikur heldur ekki með liðinu,
þar sem hann tekur út tveggja leikja bann
vegna 21 refsistiga.
Frakkinn David Ginola fékk þriggja leikja
bann fyrir að vera rekinn af leikvelli í deild-
arbikarleik gegn Arsenal, er hann veittist að
Lee Dixon.
Lee Chapman, leikmaður Leeds, sem var
rekinn af leikvelli í leik gegn West Ham —
fyrir minniháttar brot, fékk einnig þriggja
Ieikja bann.
Asprilla
kominn til
Newcastle
KÓLUMBÍUMAÐURINN
Faustino Asprilla er kominn
til Englands — kom þangað
í gærkvöldi. Asprilla mun
ræða við forráðamenn
Newcastle, sem borga
Parma 6,7 millj. pund fyrir
hann. Kappinn sjálfur mun
fá þijár millj. ísl. kr. I viku-
laun.
„Það verður spennandi
verkefni að leika í Englandi,“
sagði Asprilla þegar hann
hélt frá flugvellinum í
Mílanó.
SIR John HaU, formaður
Newcastle, sagði í gærmorg-
un að liðið væri tilbúið að
kaupa góðan miðherja frá
Ítalíu - Faustino Asprilla
hjá Parma ogjafnvel einnig
Króatann Alen Boksic hjá
Lazíó.
Asprilla, sem er 26 ára, á
nú aðeins eftir að skrifa
undir samning við Newc-
astle. „Það er gott fyrir mig
að breyta til, þó svo að ég
yfirgefi marga góða vini í
Parma,“ sagði Asprilia, sem
er óhræddur við að takast á
við knattspyrnuna í Eng-
landi, en deildarkeppnin þar
þykir sú erfiðasta í heimi.
Stuðningsmenn Newc-
astle bíða nú spenntir eftir
að sjá Asprilla leika við hlið
markahróksins Les Ferdin-
ands, sem eiga tvímælalaust
eftir að skipa hættulegasta
sóknardúett heims.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
RÚIMAR Alexandersson kepplr á HM á einstökum áhöldum í apríl.
SKIÐI
TENIMIS: MONICA SELES MÆTIR ANKE HUBER í ÚRSLITALEIKNUM / C3