Morgunblaðið - 26.01.1996, Side 2
2 C FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
IÞROTTIR
Heimsmet í stangarstökki
DANIELA Bartova frá Tékklandi setti á miðvikudaginn heims-
met í stangarstökki kvenna innanhúss á móti i heimalandinu.
Hún stökk 4,20 metra og bætti met Sun Caiyun frá Kína, sem
var 4,15 metrar og var sett í febrúar á siðasta ári. Til samanburð-
ar má geta þess að Norðurlandamet Völu Flosadóttur í grein-
inni, er 3,90 metrar og þarf hún því aðeins að hækka sig um
30 sentímetra til aðjafna heimsmeti Bartovu.
TENNIS / OPNA ASTRALSKA
Selesíerfid-
leikum
með Rubin
- mætirAnke Huberíúrslitaleiknum
UMFA-Drammen 25:20
Varmá, bogarkeppni Evrópu, 8-liða úrslit,
síðari leikur, fímmtud. 25. janúar 1996.
Gangur leiksins: 2:0, 2:5, 5:5, 5:7, 8:8,
11:9, 11:10, 12:10, 12:14, 13:17, 16:17,
16:18, 22:18, 23:20, 25:20.
Mörk UMFA: Bjarki Sigurðsson 11/4, Páll
Þórólfsson 6, Róbert Sighvatsson 5, Ingi-
mundur Helgason 1, Jóhann Samúelsson
1, Þorkell Guðbrandsson 1.
Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson 6
(þaraf 2 til mótherja), Sebastían Alexand-
ersson 4.
Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk Drammen: Svein Erik Bjerkrheim
5, Glenn Solberg 5, Frode Hagen 4, Helge
Jakobsen 2, Petter Otto Paulsen 2, Geir
Oustorp 1, Marius Riise 1.
Varin skot: Frode Scheie 16/1 (þaraf 5 til
mótheija).
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: F. Rothkranz og B. Rosskamp
frá Belgíu, gerðu fullt af mistökum og þeim
var engin greiði gerður með þvi að setja þá
á leik í 8-liða úrslitum í Evrópukeppni.
Áhorfendur: 650 og studdu sína menn
með látum.
Fram-Haukar 16:15
Framhús, 1. deild kvenna í handknattleik,
fimmtudaginn 25. janúar 1996.
Gangur leiksins: 1:0, 2:2, 3:5, 5:5, 7:6,
8:8, 9:9, 13:9, 14:10, 14:12, 15:14, 16:15.
Mörk Fram: Guðríður Guðjónsdóttir 9/6,
Berglind Ómarsdóttir 3, Hafdís Guðjóns-
dóttir 2, Steinunn Tómasdóttir 1, Þórunn
Garðarsdóttir 1.
Varin skot: Kolbrún Jóhannsdóttir 28/1
(þaraf 8 til mótheija).
Utan vallar: 10 mínútur.
Mörk Hauka: Judit Esztergal 6/1, Harpa
Melsted 4, Heiðrún Karlsdóttir 3, Ema
Ámadóttir 1, Thelma B. Ámadóttir 1.
Varin skot: Vigdís Sigurðardóttir 12 (þar
af 3 til mótheija).
Utan vallar 6 mínútur.
Dómarar: Sigurður Ólafsson og Valgeir
Ómarsson. Slakir og vissu til dæmis ekki
hvenær liðin máttu taka leikhlé.
Áhorfendur: Um 120.
Knattspyrna
Spánn
Merida - Barcelona...............0:0
Afrfkubikarinn
C-riðiU:
Zaire - Líbería..................2:0
Menama Lukaku (5. vsp.), Yves Essende
(72.) 3.000
Lokastaðan
Gabon..................2 1 0 1 3:2 3
Zaire..................2 1 0 1 2:2 3
Liberia................2 1 0 1 2:3 3
Nígeria átti að leika í riðlinum, en mætti
ekki til leiks.
■Gabon og Zaire komin í átta iiða úrslit.
D-riðill:
Túnis - Fíiabeinsströndin........3:1
Imed Ben Younes 2, Abdelkader Ben Hass-
en — Moussa Traore.
Ghana - Mozambique...............2:0
Kwane Ayew (42.), Felix Abcagye (68.).
3.500.
Lokastaðan:
Ghana..................3 3 0 0 6:1 9
Túnis................. 3 1 1 1 5:4 4
Fílabeinsströndin......3 1 0 2 2:5 3
Mozambique.............3 0 1 2 1:4 1
■Ghana og Túnis í átta liða úrslit.
Körfuknattleikur
1. deild karla
IS-Leiknir.....................51:59
Snæfell - Stjaman..............88:60
NBA-deildin
Boston - LA Lakers...........107:124
Charlotte - W ashington......127:113
Miami - New York...............79:88
New Jersey - Houston...........89:98
Philadelphia - Cleveland.......88:91
Minnesota - Phoenix...........91:101
Chicago - Vancouver...........104:84
Milwaukee - Indiana............89:97
San Antonio - Detroit..........84:84
Seattle - Denver...............86:79
Golden State - Utah...........89:100
í kvöld
Handknattleikur
2. deild karla:
Fjölnishús: Fjölnir - BÍ...20
Akureyri: Þór-HK........20.30
Körfuknattleikur
1. deild kvenna:
Akranes: ÍA - KR...........20
1. deild karla:
Strandgata: ÍH - Þór.......20
FÉLAGSLÍF
Þorrablót Vals
Valsmenn halda þorrablót sitt að Hiíðar-
enda á laugardaginn og opnar húsið kl. 19.
Ellert B. Schram er ræðumaður kvöldsins.
Þorrablót KR
KR-ingar halda þorrablót sitt í félags-
heimili KR á laugardaginn. Húsið verður
opnað kl. 19. Hannes Hólmsteinn Gissurar-
son verður ræðumaður kvöldsins, veislu-
stjóri Haukur Hólm.
að munaði ekki miklu að Monica
Seles tapaði í gær sínum fyrsta
leik á Opna ástralska mótinu, en þá
sigraði hún Chanda Rubin 6-7, 6-1
og 7-5 í leik sem tók tæpar tvær
klukkustundir. Seles tapaði fyrstu
lotunni í mótinu í ár, en hún hefur
verið mjög sigursæl á þessu móti og
vann það þrjú ár í röð áður en hún
var stungin með hnífi. Seles mætir
Anke Huber frá Þýskalandi í úrslitum
á morgun.
Hin unga Rubin var 5-2 yfir í
þriðju lotu en Seles tók á öllu sem
hún átti og neyddi mótheija sinn til
að gera mistök og náði að sigra
7-5. Seles átti í miklum erfiðleikum
með uppgjafír Rubin en tókst loks
að svara þeim í síðustu lotunni, ein-
mitt þegar mest reið á. Ótrúlegur
sigur hjá þessari ótrúlegu stúlku.
„Ég trúi þessu varla. Þegar staðan
var 5-2 var ég nokkuð viss um að
nú væri þetta búið,“ sagði Seles ör-
þreytt eftir leikinn. „Ég tel mig mjög
heppna að hafa komist í úrslitaleik-
inn,“ sagði hún og er nú talin mjög
sigurstrangleg. Sigri hún verður það
níundi sigur hennar á svokölluðum
slemmumótum. „Ég leik um hvert
stig eins og það sé mikilvægasta stig-
ið sem ég get fengið - og ég gefst
aldrei upp,“ sagði Seles.
í hinum undanúrslitaleiknum
mættust Huber og Cötzer frá Suður-
Afríku og var þetta í fyrsta sinn sem
ÍÞRÓTTADEILD RÚV hlaut fjöl-
miðlabikar íþróttanefndar ríkis-
ins fyrir árið 1995. ,,Telur Iþrótta-
nefndin að styrkur Iþróttadeildar
RÚV felist fyrst og fremst í sam-
tengdum rásum útvarps og sjón-
varps, langri reynslu og fjöl-
breyttu innlendu efni,“ sagði Ingi
Björn Albertsson, formaður
Iþróttanefndar rikisins, á blaða-
mannfundi á Hótel Borg í gær.
„Það er álit íþróttanefndar rík-
isins að vönduð og fagleg umfjöll-
un geti miklu ráðið um framþróun
og jákvæðan skilning almennings
þær mætast á tennisvellinum. Huber
sigraði 4-6, 6-4 og 6-2. „Ég átti
ekki von á þessu og ég á erfitt með
að lýsa hvemig mér lýður,“ sagði
Huber eftir sigurinn, en þetta var í
24. sinn sem hún keppir í slemmu-
móti og hefur aldrei náð svona langt.
írar ræða við
Brady, Whelan
og O’Leary
ÍRAR, mótherjar íslendinga í
undankeppni HM, eru enn að
leita eftirmanns Jack Charltons
sem landsliðsþjálfara. Þrír
menn hafa nú verið nefndir til
sögu, sem hafa ekki verið
nefndir áður - það eru fyrrum
leikmenn írlands, Liam Brady,
David O’Leary og Ronnie Whel-
an. Rætt var við Brady á mið-
vikudaginn, O’Leary og Whel-
an í gær. Einnig hefur verið
rætt við Mike Walker, fyrrum
knattspyrnustjóra Norwich og
Everton, Joe Kinnear, knatt-
spymusljóra Wimbledon, Dave
Bassett, fyrrum sijóra Sheffi-
eld United, og Mick McCarthy,
stjóra hjá Millwall.
og stjórnvalda á gildi íþrótta og
íþróttastarfsins í landinu," sagði
Ingi Björn. Hann sagði að umfjöll-
un íslenskra fjölmiðla hefði orðið
faglegri og vandaðri á undanförn-
urn árum.
íþróttanefndin ákvað 1994 að
veita viðurkenningu árlega til
fjölmiðils fyrir góðan fréttaflutn-
ing og faglega umfjöllun um
íþróttir og var bikarinn fyrst af-
hentur fyrir árið 1995 en þá varð
íþróttadeild Morgunblaðsins fyrir
valinu.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
INGI Björn Albertsson afhendlr Ingólfi Hannessynl, iþrótta-
stjóra RÚV, fjömiðlabikar íþróttanefndar rfklsins.
Fjölmiðlabikarinn til RÚV
HANDKNATTLEIKUR
Morgunblaðið/Ásdís
RÓBERT Sighvatsson skorar eitt af fimm mörkum sínum af línunnl og stórskytta Norðmanna,
Glenn Solberg, er grelnilega ekki sáttur viö gang mála. Markvörðurinn Frode Scheie er vonsvik-
inn og þeir Alexei Trúfan og Öysterid Johannesson fylgjast með.
Of Iftill sigur og
Afturelding úr leik
AFTURELDING er úr leik í borgarkeppni Evrópu í handknattleik
en norska liðið Drammen er komið í undanúrslit. Afturelding
sigraði 25:20 í síðari leik liðanna að Varmá í gær, en það var
skammgóður vermir þvíliðið tapaðifyrri leiknum 14:22 í Noregi
og þurfti því að sigra með níu marka mun. Þessi rimma tapaðist
ífyrri hálfleik í Noregi því þar voru Mosfellingar eins og viðvan-
ingar og voru tíu mörkum undir í leikhléi. Það var of mikið.
Bergsveinn byrjaði á því að verja
fyrsta skot Norðmannanna og
Bjarki og Páll gáfu síðan tóninn í
■■■■■i sókninni. 2:0 eftir
Skúli Unnar tvær minútur og
Sveinsson vonarneisti hafði
sknfar kviknað í þeim
áhorfendum sem
voru efins um að níu marka sigur
væri vinnandi vegur. En Norðmenn-
irnir voru fljótir að svara fyrir sig
og heimamenn náðu ekki að fylgja
eftir góðri byrjun. Takturinn náðist
ekki. Gestirnir léku mjög góða vörn,
voru lengstum fljótir aftur þannig
að heimamenn gátu ekki keyrt upp
hraðann, en þeir þurftu verulega á
því að halda, munurinn úr fyrri
leiknum var svo mikill.
Afturelding var 11:10 yfir í leik-
hléi og var Bjarki þá búinn að gera
7 mörk, en hann og Páll voru þeir
einu sem eitthvað létu að sér kveða
í sókninni. Eftir hlé bættist Róbert
í þann hóp, en aðrir voru alls ekki
nægilega sannfærandi og sumir
hreint og beint lélegir og ógnuðu
ekkert.
Heimamenn vissu sem var að
eftir hlé yrðu þeir að bijóta leikinn
upp; færa vörnina framar og spila
stuttar sóknir. Þetta var reynt.
Tveir léku vel fyrir framan í vörn-
inni en það gekk ekki nógu vel;
gestimir komust í 13:17 um miðjan
hálfleikinn og því aðeins formsatriði
að ljúka leiknum. Eða hvað?
Þegar munurinn var kominn nið-
ur í tvö mörk, 16:18, og 11 mínút-
ur eftir var ákveðið að senda fjóra
leikmenn fram á völlinn og halda
tveimur á línunni. Þetta riðlaði að
vonum sóknarleik gestanna og á
næstu átta mínútum gerðu Mosfell-
ingar 6 mörk gegn engu marki
Framstúlkur eru nú einar í öðru
sæti fyrstu deildar kvenna eftir
16:15 sigur á Haukum í spennandi
og skemmtilegum
leik, leik þar sem lið-
in gerðu sig raunar
sek um helling af
mistökum, en góðu
punktarnir voru þó fleiri. Kolbrún
Jóhannsdóttir, hinn gamalreyndi
markvörður Fram, var í miklum ham
og varði 28 skot og þó svo stalla
hennar í Haukamarkinu, Vigdís Sig-
urðardóttir, verði ágætlega komst
hún ekki í hálfkvist við Kolbrúnu,
sem var með góða vörn fyrir framan
sig.
Það vantar nokkuð mikið í bæði
lið. Hjá Fram var Guðríður Guðjóns-
dóttir allt í öllu fyrir utan markteig-
inn. Hún gerði níu mörk og átti frá-
bærar sendingar á línuna. Áberandi
var að Framstúlkur treystu allt of
mikið á hana og hættu jafnvel í
Drammen og staðan orðin 22:18.
Enn vantaði fimm mörk upp á og
í lokin vantaði fjögur mörk.
Drammen er gott lið, heldur betra
en lið Aftureldingar. Markvörðurinn
er ágætur og góð 6-0 vörn fyrir
framan hann. Sóknarleikurinn var
á köflum mjög skemmtilegur hjá
Norðmönnum og í liðinu eru miklar
skyttur, og þar liggur mesti munur-
inn. En ef, og það er alltaf hægt
að segja ef, fyrri hálfleikurinn í
Drammen hefði ekki verið örlítið
skárri hefði allt getað gerst. Mosfell-
ingar eru reynslunni ríkari.
hraðaupphlaupi til að bíða eftir
Guðríði. Hjá Haukum vantaði Auði
Hermannsdóttur og munar um
minna. Liðið er jafnt en það vantar
ógnun frá hægri vængnum. Þar leik-
ur Kristín Konráðsdóttir og er hún
mjög snjall leikmaður, hreyfingarnar
góðar, en það vantar að skjóta.
Haukastúlkur áttu að vera yfir í
leikhléi því þær voru þrívegis einum
leikmanni fleiri og fengu fullt af
ferum, en Kolbrún sá við þeim.
Staðan var 8:8 í leikhléi og Haukar
gerðu aðeins tvö mörk fyrstu 22
mínúturnar í síðari hálfleik og stað-
an orðin 14:10. Þær bitu þó frá sér
í lokin og allt gat gerst, en þeim
tókst ekki að knýja fram sigur.
Kolbrún og Guðríður voru bestar
hjá Fram og Berglind traust á lín-
unni. Judit Esztergal var best Hauka
og einnig átti Harpa Melsted ágæta
spretti og Heiðrún Karlsdóttir var
góð í horninu.
Kolbrún í ham
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
FÖSTUDAGUR 26, JANÚAR1996 C 3
ÍÞRÓTTIR
Stóðumst
pressuna
„VIÐ höfðum stjóm á ieiknum og ég
hafði engar áhyggjur þó aðeins hall-
aði undan færi er leið á síðari hálf-
leik. Efyrri hálfleikur var mjög mikil-
Ivar ánægður með hann.
Benediktsson Okkur tókst að standa
skrifar undir pressunni og
misstum þá aldrei
langt framúr okkur,“ sagði Kent And-
erson, þjálfari Drammen.
„Við lékum vel í fimmtíu mínútur
að mínu mati og þó þeir breyttu vöm-
inni í síðari hálfleik hafði ég alitaf þá
tilfinningu að við værum með leikinn
í okkar höndum. Eina skiptið í leiknum
sem ég var örlítið hræddur var í upp-
hafinu þegar UMFA komst tvö núll
yfir, en okkur tókst að komast inn í
leikinn.
„Ég á mér ekkert óskalið í fram-
haldinu. Ég veit að þýska liðið Ham-
eln er eftir auk félags frá Ungveija-
landi og síðan vona ég að sænska lið-
ið hafi komist áfram.
Þrettán þrjú var rothöggið
„Við þurfum nú að leikslokum að
blæða fyrir fyrri hálfleikinn í Dramm-
en, þrettán þijú, það var rothöggið.
En það verður þó að virða okkur að
við tókum áhættu í nú,“ sagði Einar
Þorvarðarson, þjálfari ÚMFA.
„Eftir að við breyttum vöminni í
byijun síðari hálfleiks gekk okkur illa,
en þegar á leið kviknaði á mínum
mönnum. Við náðum aldrei að koma
á þá pressu eins og þarf í svona leikj-
um.“
„Ég fékk alltof lítið pláss í fyrri
háifleik. Ég var með tvo og þijá leik-
menn á mér og við iékum alltof mikið
inn á miðjuna. Síðan gjörbreyttist allt
er Alex kom inn á í síðari hálfleik og
þá má segja að sóknarleikurinn hafi
víkkað." sagði Róbert Sighvatsson.
„Við byijuðum vel en tókst ekki að
fylgja því eftir því miður. Síðan fannst
mér við vera taugaóstyrkir í byrjun
síðari hálfleiks og misstum þá oft
langt fram úr ókkur, en tóskt að snúa
við blaðinu, en oft seint.“
„Mér er sama þó einhveijir íþrótta-
fréttamenn segji að þetta norska lið
sér ekki gott, þetta er að mínu mati
gott og það besta af þeim þremur
norsku félagsliðum sem ég hef leikið
gegn um ævina,“ sagði Bergsveinn
Bergsveinsson, markvörður sem hélt
upp á 28 ára afmæli sitt f gær.“
Landsliðið fer
til Japans
ÁKVEÐIÐ hefur verið að þekkjast boð Japana um að taka þátt
í fjögurra landa handknattleiksmóti þar í landi í aprfl. Örn Magn-
ússon, framkvæmdastjóri Handknattleikssambandsins, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær að ekki væri búið að ákveða
hvemig landsliðið yrði skipað. „Við erum að bíða eftir svömm
frá félögunum og síðan verður ákveðið í framhaldi af því hvort
landsliðið verður valið úr tólf liðum í deildinni eða tíu,“ sagði
Öra. Hann sagðist skilja afstöðu þjálfara fyrstu deildar félaganna
vel að vflja ekki hafa tuttugu daga hlé fyrir úrslitarimmuna.
„Það kemur í ljós hvort valið verður úr tíu liðum eða öllum tóif.
Það er a.m.k. ákveðið að fara og við munum fara 7. apríl en
mótið stendur 9. til 14. apríl,“ sagði Örn.
Fimm þjálfarar félaga í 1. deildinni hittust f hádeginu í gær
og ræddu málin.
KORFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN
Miller hetja
Pistons
- skoraði sigurkörfuna með
þriggja stiga skoti gegn Spurs
Terry Miller tiyggði Detroit Pist-
ons 85:84 sigur á San Antonio
Spurs í fyrrinótt með þriggja stiga
körfu er rúmar tvær sekúndur voru
eftir af leiknum. „Þettá var kær-
komin karfa því ég hafði leikið
fremur illa og þessi karfa bjargaði
leiknum,“ sagði Miller eftir sigur-
inn, en þetta er ekki í fyrsta sinn
sem hann gerir sigurkörfu á síðustu
sekúndum leiks. Grant Hill gerði
21 stig fyrir Pistons og tók 13 frá-
köst auk þess em hann átti 7 stoð-
sendingar. Pistons hafði tapað síð-
ustu sex leikjum sínum gegn Spurs
og því var sigurinn kærkominn.
Avery Johnson gerði 19 stig fyrir
Spurs og Sean Elliott 17 og Will
Person tók 17 fráköst og hefur
ekki tekið fleiri í einum og sama
leiknum. David Robinson gerði 17
stig en hann lék aðeins í 30 mínút-
ur þar sem hann var í villuvandræð-
um alveg frá upphafi.
Sam Perkins gerði 18 stig og
Shawn Kemp 16 í Seattle þegar
heimamenn unnu Denver 86:79.
Það er því ljóst að George Karl
verður þjálfari í Stjörnuleiknum, í
annað sinn á þremur árum. Seattle
hefur nú sigrað í 22 af síðustu 28
leikjum og árangurinn á heimavelli
er ýigætur, 17 sigrar og tvö töp.
í Charlotte gerði Glen Rice 28
stig og Kenny Anderson gerði 12
stig og átti 10 stoðsendingar þegar
Bullets kom í heimsókn. Heima-
menn sigruðu 127:113 og hafa ekki
skorað svona mikið í vetur og þeir
settu einnig met í fráköstum í leikj-
um sínum, tóku 53 slík að þessu
sinni.
Sigurganga Chicago heldur
áfram og að þessu sinni urðu nýlið-
ar Vancouver að játa sig sigraða.
Scottie Pippen var í miklu stuði á
heimavelli og gerði 30 stig í þessum
27. heimasigri Bulls í röð, sem er
met í NBA-deildinni, en eldra metið
átti félagið, sigraði í 26 leikjum í
röð árið 1991. Michael Jordan gerði
aðeins 12 stig og hefur ekki skorað
eins lítið í vetur, en þess má geta
að kappinn hefur gert 30 stig eða
meira í síðustu átta leikjum. Jordan
lék í 26 mínútur og skoraði úr fjór-
um af tíu skotum utan af velli.
Nýliðinn Bryant Reeves gerði 23
stig fyrir gestina.
Patrick Ewing gerði 37 stig þeg-
ar Knicks vann Miami 88:79 og þar
með varð Pat Riley, fyrrum þjálfari
New York, að játa sig sigraðan á
heimavelli gegn sínum fyrri læri-
sveinum.
Elden Campbell náði að setja
persónulegt met í vetur þegar hann
gerði 26 stig fyrir Lakers í Boston
en LA sigraði 124:107. Dino Radja
gerði 28 fyrir Boston og tók 12
fráköst.
Reggie Miller gerði 27 stig fyrir
Indiana þegar liðið vann Milwaukee
97:89 þrátt fyrir að Rik Smits,
miðheiji liðsins, léki ekki með vegna
meiðsla. Glenn Robinson gerði 25
stig fyrir Milwaukee.
Phoenix vann Minnesota á úti-
velli 101:91 og gerði Charles Bark-
ley 22 stig og tók 16 fráköst fyrir
Suns. Þetta var 26. sigur Suns á
Minnesota í síðustu 27 leikjum fé-
laganna.
Hakeem Olajuwon var með 36
stig þegar meistarar Houston unnu
New Jersey 98:89, og var þetta sjö-
undi sigur Houston í röð á Nets.
Cleveland hefur gott tak á 76ers
og sigraði í sjötta sinn í röð, að
þessu sinni 91:88. Chris Mills gerði
22 stig.
Karl Malone gerði 25 stig fyrir
Jazz er liðið sigraði 100:89 í Golden
State.
■ STAN Collymore, miðheiji Liv-
erpool, fær ekki hluta af söluverð-
inu sem Nottingham Forest fékk
fyrir hann, þegar Collymore vai
seldur á 8,5 millj. pund. Hann hafði
farið fram á að fá 425 þús. pund
af söluverðinu í eigin vasa. Forest
þarf ekki að greiða kappanum hluta
söluverðsins, þar sem hann fór fram
á sölu frá liðinu.
■ BARRY Fry, knattspyrnustjóri
Birmingham, hefur ákveðið að efla
lið sitt fyrir lokasprettinn í 1. deild-
arkeppninni. Hann keypti í gær
Vinnie Jones frá Wimbledon á
300 þús. pund og einnig Vinny
Samways, leikmann Evertons,
sem hefur verið í láni hjá Úlfunum.
■ GEORGI Slavchev, miðvallar-
spilari frá Búlgaríu, hefur gengið
til liðs við svissneska liðið St. Gal-
len. Slavchev, sem er 26 ára, lék
með Levski Sofia.
■ JEAN-Pierre Papin, miðheiji
hjá Bayern Miinchen, sem hefur
ekki leikið með franska landsliðinu
f eitt ár vegna meiðsla, sagði í gær
að hann væri tilbúinn að leika með.
í EM í Englandi.
■ JVNINHO hjá Middlesbrough
mun ekki leika með liðinu í mánuð,
þar sem hann heldur til Brasilíu
eftir leik liðsins gegn Chelsea 3.
febrúar. Juninho tekur þátt í und-
ankeppni ÓL með landsliði Brasilíu
og kemur ekki á ný til Englands
fyrr en 6. mars.
■ IAN Wright, sem er þriðji
markahæsti leikmaður Arsenal frá
upphafi, hefur verið sektaður hjá
Arsenal um 808 þús. ísl. kr. fyrir
orðaskak við Bruce Rioch, knatt-
spyrnustjóra liðsins, inni í' búnings-
klöffl,
■ LEIKMENN Chelsea fóru á
þriðjudaginn snögga ferð til Mar-
bella á Spáni til að undirbúa sig
fyrir bikarleik gegn QPR, sem verð-
ur á Loftus Road á mánudaginn.
■ PETER Shmeichel, markvörð-
ur Man. Utd., fór til Kaupmanna-
hafnar á miðvikudaginn, til að
skrifa undir samning við íþrótta-
vörufyrirtækið Reebok, sem gefur
gefur honum rúmar 33 millj. ísl.
kr. í vasann.
■ STEFAN Pettersson, fyrrum
leikmaður Ajax, sem leikur nú með
IFK Gautaborg, verður frá æfing-
um og keppni a.m.k. fram í miðjan
apríl. Hann fékk verk fyrir bijóst
og handlegg í sl. viku — eftir æf-
ingu og var lagður inn á sjúkrahús.
f ljós kom að hann hafi að öllum
líkindum fengið sýkingu í hjarta-
vöðva.
■ LÆKNAR hafa þó ekki kveðið
upp endanlegan úrskurð og því er
ekki hægt að útiloka með öllu að
um einhverskonar hjartabilun sé um
að ræða. Pattersson er 32 ára —
var útnefndur leikmaður ársins hjá
Gautaborgarliðinu í fyrra.
I sambandi vib neytendur
frá morgni til kvölds!
- kjarni málsins!