Morgunblaðið - 09.02.1996, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.02.1996, Blaðsíða 1
HANDKNATTLEIKUR Fimm breyting- ar á landsliðinu i FIMM breytingar verða gerðar á byrjunarliði ís- | lands fyrir leikinn gegn Rússlandi, á Mölturaótinu íknattspyrnuídag, fráþvísemvarí l:7tapinu ] gegn Slóveniu í fyrradag. „Við ætlum okkur að setja fyrir þá leka sem voru hjá okkur gegn Slóven- 1 íu,*‘ sagði Logi Ólafsson landsliðsþjálfari við Morg- unblaðið. Birkir Kristinsson verður í markinu sem fyrr. Þorsteinn Guðjónsson verður aftasti varnar- maður og Ólafur Adolfsson miðvörður fyrir fram- an liann. Þeir voru einnig miðverðir gegn Slóven- um en léku þá flata vörn, þannig að Þorsteinn verður aftar nú. Ágúst Gylfason verður bægri bakvörður og Sigursteinn Gíslason vinstri bak- vörður. Á miðjunni verður Sigurður Jónsson, aftarlega, á köntunum ólafur Þórðarson og Bjarki Gunnlaugsson, á milli þeirra Arnar Grétarsson og Eyjólfur Sverrisson og fremstur í flokki „gamli hershöfðinginn" Arnór Guðjohnsen. Breytingarnar frá leiknum við Slóveníu eru þær að Arnar, Eyjólfur, Bjarki, Ágúst og Arnór koma inn fyrir Lárus Orra Sigurðsson, sem farinn er til Englands, Rúnar Kristinsson, sem er farinn til Flórída til liðs við Örgryte, Þórð Guðjónsson, Harald Ingólfsson og Helga Sigurðsson. Amór og Ólafur Þórðarson eru leikjahæstir af landsliðsmönnunum á Möltu með 62 leiki að baki. Þess má geta að Birkir og Sigurður Jónsson leika j báðir 40. landsleikinn í dag. Keegan keypti skemmtikraftinn GENGIÐ var frá kaupum enska úrvalsdeildarliðs- ins Newcastle á kolumbíska landsljðsframhetjan- um Faustino Asprilla frá Parma á Ítalíu í gær á andvirði um 670 mijjóna króna. Kevin Keegan, knattspyrnusljóri Newcastle, kvaðst í gær „himin- lifandi" með að málið væri í höfn. „Hann er leik- maður sem áhorfendur hér elska. Hann er sigur- vegari; markaskorari og skemmtikraftur. Ég hef borgað sanngjarnt verð fyrir leikmanninn miðað við hve góður hann er.“ Keegan sagðist ekki kvíða því þó Asprilla hefði orð á sér fyrir að vera skap- heitur. „Við höfum öll okkar djöful að draga en knattspymuvöllurinn er sá staður sem skiptir máli,“ sagði hann. „Fólk er of gjarnt á að dæma leikmenn af því sem gerist utan vallar." Branco til Boro BRASILÍSKI varnarmaðurinn Branco skrifaði í gær undir samning við enska félagið Middlesbro- ugh og mun því leika við hlið landa síns, Juninho, í úrvalsdeildinni. Branco, sem er 31 árs og sérstak- lega lunkinn í aukaspyraum nærri vítateig mót- hetjanna, hefur þrívegis verið með Brasillu í loka- keppni HM og eftirminnilegt er sigurmark hans, beint úr aukaspyrnu, gegn Hollendingum í heims- meistarakeppninni í Bandaríkjunum í hittifyrra. Hann skrifaði undir 18 mánaða samning og getur endurnýjað hann til eins árs til viðbótar fái hann atvinnuleyfi. tfrgttttMnMQi 1996 FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR BLAÐ Barist um bikara Morgunblaðið/Kristinn KNATTSPYRNA Amór Guðjohnsen sem, hefur hafið sitt átjánda landsliðsár, er á heimleið Ætlar að snúa sér að þjálf- un eftir næsta leiktímabil ÚRSLITALEIKIR bikar- keppni kvenna og karla verða í Laugardalshöll á morgun og þar verður baráttan mikil um bikarana góðu sem eru í boði fyrir sigur. I karlaflokki leika KA og Víkingur en í kvenna- flokki Fram og Stjarnan. KA og Fram eru handhafar bik- aranna og hér má sjá Hafdísi Guðjónsdóttur, fyrirliða Fram, lengsttil vinstri, nöfnu hennar Ingólfsdóttur, for- mann meistaraflokksráðs kvenna hjá Stjömunni, Björg- ólf Jóhannsson, formann handknattleiksdeildar KA, og Birgi Sigurðsson línumann Víkings og fyrirliða. Arnór Guðjohnsen, landsliðsmað- ur í knattspyrnu, sem hefur Ieikið sem atvinnumaður í nítján ár eða síðan hann fór Sigmundur Ó. tii Belgíu 1978, segir Steinarsson að það sé kominn skrifar tími fyrir hann _að frá Möitu snúa heim á ný. „Ég kem heim eftir þetta keppnistímabil, verð sem leikmaður í eitt keppnis- tímabil og sný mér síðan að þjálf- un.“ Arnór hefur tekið fyrsta grunn- stig í þjálfun í Svíþjóð og ætlar að nema meira áður en hann kemur heim. Hann er nú að hefja sitt átjánda landsliðsár, lék sinn fyrsta landsleik gegn Sviss í Bern í maí 1979. Arnór hefur þar með jafnað met Ríkharðs Jónssonar og Ásgeirs Sigurvinssonar, sem léku í átján ár með landsliðinu á árum áður. Þegar Arnór lék fyrst var hann 17 ára og 296 daga gamall, en Rík- harður var 17 ára og 254 daga gam- all og Ásgeir 17 ára og 65 daga gamall, þegar hann lék sinn fyrsta landsleik. Þegar Arnór lék sinn fyrsta landsleik var sonur hans. Eið- ur Smári, rétt 6 mánaða gamall. Það hefur lengi verið draumur Arnórs að leika landsleik með syni sínum áður en hann leggur skóna á hilluna og það hefði líklega orðið hér á Möltu, ef Eindhoven, liðið sem Eiður Smári leikur með í Hollandi, hefði ekki óskað eftir því_ að hann færi ekki til Möltu. Logi Ólafsson, lands- liðsþjálfari, varð við þeirri ósk. Árnór, sem meiddist fyrir stuttu — liðþófi rifnaði á vinstri fæti, var ekki í byrjunarliði íslands gegn Sló- veníu, en kom inn á sem varamaður og verður í byijunarliðinu í dag gegn Rússum. „Ég er allur að koma til og verð betri og betri með hverjum deginum. Það er mjög gott fyrir mig að fá tækifæri hér til að æfa á grasi. Þá er þetta gott tækifæri fyrir landsliðið að koma saman og æfa og leika 3 landsleiki. Góður undir- búningur fyrir heimsmeistarakeppn- ina, en fyrsti leikur okkar í HM verð- ur gegn Makedóníu í byijun júní,“ sagði Arnór Guðjohnsen. ■ Jafnar metið / C4 KÖRFUKNATTLEIKUR: LEIKIRNIR í ÚRVALSDEILDINNI í GÆRKVÖLDI / C2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.