Morgunblaðið - 09.02.1996, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 09.02.1996, Blaðsíða 4
Jl____ IÞRDMR KNATTSPYRNA Logi Ólafsson landsliðsþjálfari eftirfund með landsliðsmönnunum Strákamir fá tækifæri til ad bjarga andlitinu íslendingar mæta Rússum í knattspymulandsleik á Möltumótinu í dag. Sigmundur Ó. Steinarsson er á Möltu, fylgdist með 1:7 tapinu gegn Slóven- um í fyrradag ræðir hér við Loga Ólafsson landsliðsþjálfara um hvað fór úrskeiðis þá og um baráttuna gegn hinu sterka liði Rússa. Morgunblaðið/RAX SIGURÐUR Jónsson, sem hér er með knöttinn, fyrirliði lands- liðsins á Möltumótinu, og Arnór Guðjohnsen, til vlnstrl, verða í eldlínunnl gegn Rússum í dag. Arnór kemur inn í byrjunarllð- ið en hann byrjaði á varamannabekknum gegn Slóveníu. Leikurinn gegn Slóveníu var geysilega mikið áfall og stór skellur, þannig að það kann að taka einhvem tíma að koma sér út úr þessu, en mótlætið var sjálfsagt fundið upp til þess að sigrast á því. Eftir að hafa rætt við strákana hafa þeir fullan hug á að breyta og gera'betur. Sem betur fer höfum við tækifæri til þess núna, í stað þess að þurfa að bíða lengi eftir næsta leik. Menn hafa kærkomið tækifæri til að bjarga andlitinu og gera betur en þeir gerðu gegn Slóv- enum,“ sagði Logi Ólafsson, landsl- iðsþjálfari i knattspymu, við Morg- unblaðið eftir fund með lands- liðs- mönnunum í gærmorgun. „Við munum að sjálfsögðu reyna að læra af þessu og lagfæra hlutina í viðureigninni gegn Rússum, leik- um öðruvísi en gegn Slóvenum og reynum að gera okkur grein fyrir hvað gæti hugsanlega gert það að verkum að við náum árangri — hvaða þættir það eru i leiknum, sem stuðla að því. Þegar íslenska lands- liðið hefur náð árangri, hefur það leikið geysilega góða vörn, notað síðan tækifærið þegar það hefur gefst til að sækja fram á við. Það hefur kannski verið ákjósanlegra að hafa aðra andstæðinga en Rússa til að bæta fyrir afglöpin gegn Slóv- enum, en því verður ekki breytt. Því betri úrslitum sem við náum gegn sterku liði Rússa, því gleði- legri verða þau,“ sagði Logi. Tap getur haft fjölþætt áhrif Það er ljóst að þessi árstími hent- ar ekki íslenskum knattspyrnu- mönnum vel þar sem iangt er um liðið síðan menn léku á Islandi. Á íslenskt landslið að vera að keppa á þessum árstíma? „Jú, það er rétt með að tíminn hentar okkur ekki sem best og ofan á það bætist að við erum að leika gegn sterkum þjóðum, sem eru á mikilli uppleið, eins og Rússar og Sióvenar, en þeir léku síðasta lands- leik sinn í desember, á meðan við erum með einn mann sem hefur verið að leika eitthvað að ráði. Það má setja spurningamerki við þetta, þó að við lærum rosalega mikið á þessu, en óneitanlega hefur þetta fjölþætt áhrif. Þetta hefur áhrif á hvar við lendum á styrkleikalistan- um, þetta hefur áhrif á þegar við þurfum að ná í vináttuleiki og svo framvegis. Við verðum svolítið að vega og meta stöðuna. Ég er ekki að segja að við hefðum ekki átt að fara hingað, alls ekki. Þessi ferð nýtist okkur vel — það er betra að fá þennan skell núna, en í heims- meistarakeppninni. “ Eru strákarnir ekki niðurbrotnir eftir þennan skell? „Þeir eru eins og ég, súrir og sárir. Það var ekki annað að heyra á þeim, en þeir vilji ekki sitja með þetta yfír sér og hafa þessi úrslit á bakinu lengi. Þeir ætla að nýta tækifærið núna — þá er möguleiki á því að þetta líði mönnum frekar úr minni. Eins og vinnuslys Það kemur í ljós hvaða menn það eru sem geta rifíð sig upp úr svona öldudal. Auðvitað geta svona slæm mistök orðið öðru hvoru, hjá því verður erfitt að komast. Þetta er eins og ég sagði við strákana, eins og hvert annað vinnuslys sem ger- ist og þegar maður lítur til baka virðist þetta allt saman mjög klaufalegt og það hefði verið ein- falt að koma í veg fyrir það. Maður svekkir sig yfir því sjálfur ef maður til dæmis lendir í árekstri, og spyr: Hvað var ég að hugsa, hvað var ég að gera? Annars er svo að það eru margir hér að koma.saman í fyrsta skipti og þekkja þvi lítið hvern annan. Það eru margir ungir menn í hópnum og ég nýr þjálfari. Ég hef fundið fyrir því að hér eru leikmenn sem ættu að geta tekið svolítið meira frumkvæðið, þeir vilja það kannski ekki, vegna þess að þeir telja sig þá vera að setja sig á háan hest. Ég sagði við strákana á fundin- um, að þeir væru valdir til þess að geta tekið frumkvæðið þegar það á við og verið virkir aðilar í hópnum. Hver og einn ber ábyrgð á hugar- farinu í hópnum með framkomu sinni og þeirri stemmningu sem þeir geta búið til. Þannig að við eigum að geta lært mikið af því að vera hér saman á Möltu. Þetta er kannski óþarfa stór skellur til að draga lærdóm af. Mörg mistök sem áttu sér stað í leiknum gegn Slóven- íu, koma upp í leikjum sem menn fagna sigri í, en þau verða þá ekki eins áberandi vegna þess að menn eru sigurvegarar. Eins og ég sagði eftir leikinn, þá erum við nánast að falla á eigin bragði — létum lokka okkar inn í hluti sem við vildum að þeir gerðu en við gerðu þá sjálfír. Eg fór yfír það á fundinum með strákunum, það sem við ætluðum að gera en gerðum ekki eða gerðum of lítið af. Við ætluðum að setja Slóvena undir ákveðna pressu á ákveðnum stöðum á vellinum — það gerðum við aldrei. Við komum oft þrír að þeim leikmanni sem var með knött- inn, en hann fékk samt sem áður að gera það sem hann vildi, fékk að stinga knettinum á milli þeirra. Þá segir það sig sjálft að það er einhvers staðar opin leið. Góð pressa byggist á því að menn þurfi annað hvort að leika knettinum til baka, spyrna honum þvert þar sem erfitt er að „stela“ honum eða þá að koma lélegum sendingum fram völlinn. Þetta voru atriði sem mínir menn náðu ekki að koma í veg fýrir. Kannski var jafnvægið á milli þeirra sem léku í vörninni og í sókn- inni ekki nægilega gott. Það er í mörg horn að líta hjá okkur þessa dagana og við erum komnir hingað til þess að læra og taka ákveðna áhættu — prófa eitthvað nýtt og sjá hvort það sé eitthvað sem geng- ur upp. Ef það gerist ekki verðum við að hætta við það,“ sagði Logi. Þrumur og rigning ÍSLENSKA landsliðið þurfti að sleppa tveimur æfingum á Möltu í gær, þar sem þrumu- veður var og grenjandi rigning — æfingasvæðinu var lokað. í staðinn fyrir fyrri æfinguna kallaði Logi Ólafsson leikmenn sína á fund, til að kryfja leikinn gegn Slóvenum og í gærdag hlupu leikmennirnir um smá- bátahafnarsvæðið í bænum Ta’Xbiex, fyrir utan höfuð- borgina Vallettu. Þvegið fyrir 40 þúsund RIGNT hefur á Möltu síðan íslenska landsliðið kom þangað á sunnudaginn og ræða menn hér um að þetta sé versti febr- úar í manna minnum. Ástandið hefur verið þannig á æfinga- svæðunum að þau hafa verið eitt forarsvað sem hefur kost- að að þvo hefur þurft æfinga- búninga íslendinganna tvisvar á dag og var kostnaður við það kominn upp í 40 þúsund ís- lenskar krónur í gær. Geir Þorsteinsson, skrifstofustjóri KSÍ, reyndi að fá magnafslátt ígær! Stærsti sigur Slóveníu SÍÐAN Slóvenia hóf að leika landsleiki 1992, eftir hrun Júgóslavíu, hefur liðið leikið 23 landsleiki. Sigurinn gegn íslandi í fyrrakvöld, 7:1, var þeirra stærsti. Áður höfðu þeir stærst unnið Kýpur 3:01994 og Eistland með sömu marka- tölu 1995. Slóvenar hafa tvisvar leikið gegn Makedóniu, sem leikur með íslandi í riðli í undan- keppni heimsmeistaramótsins, og tapað báðum leikjunum, 1:4 heima og 0:2 á útivelli. Þess má geta að Slóvenía varð sig- urvegari á síðasta Möltumótinu 1994 — vann þá Georgíu 1:0, Möltu 1:0 og gerði jafntefli við Túnis, 2:2. Einu sinni hvassara HALLDÓR B. Jónsson, vara- formaður KSÍ, hafði nokkuð gaman af því að segja móts- höldurum á Möltu — eftir leik- inn við Slóveníu í fyrradag — að hann hefði sjaldan séð ann- að eins, að leika landsleik í knattspyrnu I sjö vindstigum. Sagðist reyndar aðeins einu sinni hafa orðið vitni að öðru eins, þegar ísland vann Níger- íu 3:0 á Laugardalsvelli árið 1981, en þá voru níu vindstig. Arnór jafnar metið Er að hefja sitt 18. ár í landsliðspeysunni Lék fyrst - síðast Arafjöldi Arnór Guðjohnsen Lokeren, Anderiecht, Bordeaux, Hácken, Orebro 1979- IBern 18 RíkharðurJónsson Fram, Akranes 1947-1964 í Reykþvlk Reykjavík 18 Ásgeir Sigurvinsson IBV, StandariTUege, Bayern Miinclten, Sluttgart 1972 -1989 1 Reykjavík Reykjavik 18 Atli Eðvaldsson Valur, Dortmund, Diisseldort, KR 1976-1991 Þúrshöln, Fær. Reykjavik 16

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.