Morgunblaðið - 11.02.1996, Blaðsíða 1
L
FERÐIR
FERÐIR
við með
spennandi til-
boð í gangi í
Danmerkur-
ferðum. Flug
og bíl til Bil-
lund á Jót-
landi kostar
27.900 á viku
miðað við tvo
fullorðna og
tvö börn og bíl í B-flokki.
Þetta eru verð sem ég hef
ekki séð enn á markaðnum."
Elnfait í snlðum
Laufey sagði markmiðið
að hafa starfsemina einfalda
í sniðum, enda væri áhersla
lögð á að halda verðinu niðri.
„Fyrst og fremst bjóðum við
færri staði og við verðum
ekki með fjölda lúxushótel á
hverjum stað, heldur veljum
kannski tvö hótel. Eins er það
í bílunum, við bjóðum tvo
flokka B og C. Reyndin er
sú að fólk vel-
ur venjulega
þessar tvær
gerðir þegar
það kaupir
flug og bíl
pakka.“
Laufey
sagði að inn-
rétting skrif-
stofu Plús-
ferða í Faxafeni væri hrá,
meira væri lagt upp úr öðrum
þáttum starfseminnar. „Við
gefum ekki út glans-
myndabækling, heldur ein-
blöðung um hvern stað fyrir
sig. Aftan á þeim er form sem
hver og einn getur fyllt út,
rennt til okkar á faxi og við
sendum staðfestingu á bókun
til baka,“ sagði Laufey, en
einnig er hægt að fá upplýs-
ingar og ganga frá bókunum
á alnetinu. Netfang Plúsferða
er:p/«sf@skima.is. ■
FERÐIR
*
LOKSINS,
LOKSINS
Odýrariferðir
fyrir Islendinga
BRICK LANEI
LONDONER
ÖDRUVÍSI
r’V-”
nt
Kanadabúar minnast
norrænna forfeðra
KANADAMENN minnast nor-
rænna forfeðra sinna með sérstök-
um hætti mánudaginn 19. febrúar
næstkomandi. Sérstakur Heritage
Day, dagur arfleifðarinnar, er hald-
inn árlega í Kanada, þriðja mánu-
dag í febrúar, þegar landsmenn líta
til baka til upphafs byggðar í land-
inu. í ár verður dagurinn helgaður
landnemum frá Norðurlöndum, sem
á öldum áður fluttu vestur um haf
og festu rætur í Kanada.
í tilefni dagsins hefur verið
prentað sérstakt veggspjald sem
hefur verið dreift víða um Kanada,
aðallega í skólum og meðal barna
og unglinga. Á veggspjaldinu er
listaverk, sem unnið er af listakon-
unni Patriciu Guttormsson Peacock,
undir þemanu A Nordic Saga, en
Patricia hafði hina íslensku forfeður
sína í huga þegar hún vann verkið,
„Vonir þeirra og drauma þegar
þeir settust að í nýju landi,“ eins
og segir aftan á veggspjaldnu. Þar
eru ennfremur kynntar ýmsar
uppákomur vegna hátíðahaldanna
og margir möguleikar nefndir sem
kennarar og aðrir leiðbeinendur
barna og unglinga geta nýtt sér til
þess að hvetja þau til að efna tengsl-
in við forfeður sína.
Saga íslensku landnemanna
rlfjuð upp
Samtökin Heritage Canada voru
sett á laggirnar árið 1973. „Mark-
miðið er að leiða kynningu á arf-
leifð okkar sem þjóðar hverrar ræt-
ur liggja víða, og hvetja Kanada-
menn til þess að kynna sér sögu
forfeðra sinna,“ sagði Peter Hynd-
erman, formaður héraðsskrifstofu
Heritage Canada í Halifax, höfuð-
borg Nova Scotia, í samtali við
Morgunblaðið. Hann sagði enn-
fremur að vegna þeirra tengsla sem
nú væru að myndast milli íslands
HALIFAXBÚAR nýta flest tækifæri til að gera sér glaðan dag.
og Nova Scotia vegna áætlunar-
flugs Flugleiða til Halifax, sem
hefst í maí næstkomandi, væri í
Halifax lögð sérstök áhersla á að
rifja upp sögu íslensku landnem-
anna, þó svo að þeir hefðu flestir
fest rætur í vesturhluta Kanada.
Faxafeni 5 108 Reykjavík.
SCmi: 568 2277 Fax: 568 2274
LOKSIS,
LOKSINS
Odýrari ferðir
fyrir Islendinga
VIKUDVÖL á Mallorka fyrir fjögurra manna
fjölskyldu kostar 37.900 krónur á mann.
SUNNUDAGUR11. FEBRÚAR1996 BLAÐ C
Brick Lane útimarkaðurinn er athvarf bísa og betlara
og varningurinn sem þar fæst er ekki par fínn.
Ný ferðaskrifstofa, Plúsferðir ehf., hefur starfsemi í dag.
Ódýrari ferðir
fyrir íslendinga
PLÚSFERÐIR ehf. nefnist
ný ferðaskrifstofa sem tekur
til starfa í dag. Plúsferðir eru
í eigu Úrvals-Útsýnar og eru
stofnaðar á grunni ferða-
skrifstofunnar Alís sem Úr-
val-Útsýn keypti fyrir
skömmu. Framkvæmdastjóri
Plúsferða er Laufey Jóhanns-
dóttir, fyrrum eigandi Alís.
Hjá Plúsferðum verður
lögð áhersla á ódýrar ferðir
fyrir íslendinga og hyggst
ferðaskrifstofan ná því tak-
marki með einföldun og
sparnaði í rekstri. Tólf mis-
munandi ferðapakkar verða
í boði og aðspurð um verð-
dæmi nefndi Laufey vikuferð
til Mallorka fyrir 37.900
krónur á mann miðað við tvo
fullorðna og tvö börn. Innifal-
ið er flug, gisting og flugvall-
arskattur. Ennfremur viku-
ferð til Portúgal á 38.800
krónur á mann miðað við
sömu forsendur. „Svo erum
Faxafeni 5 108 ReykjavCk.
SCmi: 568 2277 Fax: 568 2274
COSTA DEL SOL
►„ÞESSI viðbrögð hafa komið
ánægjulega á óvart,“ segir Andri
Már Ingólfsson, framkvæmda-
sljóri Heimsferða, en mikil eftir-
spurn hefur verið eftir ferðum
ferðaskrifstofunnar til Costa del
Sol. „Það eru þrjú ár síðan síðast
var flogið þangað, en það er ljóst
að fólk hefur áhuga á staðnum.11
Heimsferðir kynna sumarbækl
ing sinn nú um helgina, en fréttir
um leiguflugið til Costa del Sol
bárust út fyrir nokkru. Nú þegar
er uppselt í fjögur flug, samtals
280 sæti.
BÆNDUR
►Hjá Ferðaskrifstofu bænda eru
menn að undirbúa flutninga í
nýtt húsnæði. Ferðaskrifstofan
hefur haft aðstöðu á Hótel Sögu,
en flytur bráðlega í Hafnarstræti
1, þar sem verslunin Hamborg
hefur verið lengi.
FLUGLEIÐIR
►í dag lýkur umfangsmikilli
ferðakaupstefnu Flugleiða sem
staðið hefur frá því á fimmtudag.
Þátttakendur eru 230, kaupendur
og seljendur ferðaþjónustu á
áfangastöðum Flugleiða í Skand-
inavíu, Bandaríkjunum og
Kanada. í tengslum við kaup-
stefnuna voru settir upp 55 ferða-
og kynningarbásar, þar af 16 á
vegum íslenskra ferðaþjónustuað-
ila. ■