Morgunblaðið - 17.02.1996, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
VIÐTAL VIÐ LOGA ÓLAFSSON LAIMDSUÐSÞJÁLFARA í KNATTSPYRNU / 02
1996
LAUGARDAGUR 17. FEBRUAR
BLAD
HANDKNATTLEIKUR
Essen og Dormag-
en vilja fá Patrek
Fulltrúar Essen komnirtil fylgjast með leik KA og Selfoss
Fulltrúar þýska handknattleiks-
liðsins TUSEM Essen verða
á Akureyri um helgina í þeim til-
gangi að fylgjast með landsliðs-
manninum Patreki Jóhannessyni
í leik KA gegn Selfossi með það
fyrir augum að fá hann til félags-
ins fyrir næsta vetur. Fleiri þýsk
lið hafa einnig sýnt áhuga á að
semja við Patrek og samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins er
hann númer eitt á óskalistanum
hjá Bayer Dormagen.
Essen hefur góða reynslu af
íslendingum. Alfreð Gíslason,
þjálfari og leikmaður KA, lék með
liðinu um árabil og Jóhann Ingi
Gunnarsson var þjálfari þess í tvö
ár. Kristján Arason er þjálfari
Dormagen til vors en þá fer hann
til Wallau Massenheim og tekur
Christian Fitzek, aðstoðarþjálfari,
við liðinu.
„Ég veit ósköp lítið um málið.
Ég tala við mennina frá Essen á
morgun [í dag] og þá skýrist þetta
væntanlega eitthvað," sagði Pat-
rekur í samtali við Morgunblaðið
í gær.
„Það hefur lengi verið stefnan
hjá mér að fara út og það eru
fleiri lið inni í myndinni sem ekki
er tímabært að greina frá strax.
En ekki má gleyma því að það
gengur mjög vel hjá okkur í KA
um þessar mundir og ég veit að
það er stefna KA að halda sama
mannskap næsta keppnistímabil
vegna Evrópukeppninnar — og ég
held að það séu ekkert minni líkur
á því að ég verði hér áfram en
að ég fari út,“ sagði Patrekur.
Þess má geta að þrír mjög
þekktir leikmenn eru í herbúðum
Essen-liðsins; markvörðurinn
Stefan Hecker og homamaðurinn
Jochen Fraatz — sem báðir léku
með Alfreð og undir stjórn Jó-
hanns Inga á sínum tíma — og
hvít-rússneska örvhenta stór-
skyttan Alexandr Tutskíjn.
„ÞAD hefur
íengl verlð
stefnan hjá mér
að fara út og
það eru flelrl llð
Inni f myndlnnl
sem ekkl er
tímabært að
grelna frá
strax,“ sagðl
Patrekur.
FRJALSIÞROTTIR / STANGARSTOKK
Víkingur fær
25% af greiðsl-
unni fyrir Helga
KNATTSPYRNUDEILD Víkings fær 25% af
greiðslunni sem samið var um að þýska knatt-
spyrnufélagið Stuttgart greiddi fyrir landsliðs-
manninn Helga Sigurðsson. Framarar fá 75% og
allt leigugjaldið sem var lítið brot af heildarupp-
hæðinni. Þetta var niðurstaða gerðardóms KSÍ
og er húnendanleg en samninga- og félagaskipta-
nefnd KSÍ komst að þeirri niðurstöðu í haustað
Víkingum bæri 25% af félagaskipta- og leigugjald-
inu.
Helgi var í Víkingi en skipti yfir í Fram og lék
með liðinu 1993 og 1994. Um haustið fór hann á
leigusamningi til Stuttgarts og gerði samning við
þýska félagið í júlí sem leið. Framarar töldu sig
eiga rétt á öllu gjaldinu en Víkingar fóru fram á
25% af heildargreiðslunni.
Kristinn leikur ekki
framar fyrir Þór
KRISTINN Friðriksson, körfuknattleiksmaður,
leikur ekki fleiri leiki með Þór í úrvalsdeildinni.
„Það var gert samkomulag milli stjórnar körfu-
knattleiksdeildarínnar og Kristins, að við leystum
hann undan samniugi og hann hætti að leika með
liðinu," sagði Guðjón Andri Gylfason, formaður
körfuknattleiksdeildar Þórs, í samtali við Morgun-
blaðið.
Formaðurinn vildi ekki tjá sig frekar um málið
og sagði að ákveðið vandamál hafi komið upp.
„Það var ákveðið að ræða þetta mál ekki frekar
við fjölmiðla, enda hefur það ekkert upp á sig,“
sagði formaðurinn.
„Draumalið" er-
lendra leíkmanna
gegn landsliðinu
STJÖRNULEIKURINN í körfuknattleik verður í
íþróttahúsinu Smáranum í Kópavogi á morgun
og hefst kl. 16.00. í þessum leik mætir islenska
landsliðið úrvalsliði erlendra leikmanna sem hér
leika. í hálfleik keppa þriggja stiga skyttur lands-
ins í þriggja stiga skotkeppni og bestu „troðarar“
sýna listir sinar í troðslukeppni.
Jón Kr. Gislason, landsliðsþjálfari, hefur valið
landsliðið og er það þannig sldpað: Falur Harðar-
son, Guðjón Skúlason og Albert Oskarsson úr Keflavik,
Teitur Orlygsson, Njarðvík, Guðmundur Bragason,
Hjörtur Harðarson og Helgi Guðfinnsson úr Grindavik,
Jón Arnar Ingvarsson, Pétur Ingvarsson og Sigfús
Gizurarson úr Haukum, Herbert Arnarson úr IR og
Hermann Hauksson, KR.
Lið útlendinganna verður þannig skipað: Ronday
Robinson, Njarðvík, Ronday Dobard, Grindavík, Willie
Rhines, Hetti Egilsstöðum, Ronald Bayless, Val, Fred
WiUiams, Þór, MUton Bell, ÍA, Torrey Jolin, Tinda-
stóli, Jason WUliford, Haukum, Michael Thoele, Breiða-
bliki, Chrístopher Ozment, KFI tsafirði og John Rhod-
es, ÍR.
Vala hélt upp á 18 ára
afmælið með meti: 4.11
Vala Flosadóttir fijálsíþróttakona
úr ÍR hélt upp á 18 ára afmæl-
isdag sinn í gær með miklum glæsi-
brag; sigraði með
Hasse yfirburðum í stang-
Sjögren arstökki á sænska
skrífar frá meistaramótinu í
Borlánge Borlánge og stór-
bætti Norðurlandamet sitt með því
að stökkva 4,11 metra. Hefði sá
árangur gefíð henni fjórða sæti á
heimslistanum í fyrra en þá var hún
í 19. sæti með 3,81 metra.
Vala vakti einna mesta athygii en
þar sem hún keppir fyrir ísland fær
hún ekki að halda meistaratigninni.
Norðurlandamet sitt bætti hún úr
4,00 metrum og er afrekið í heims-
klassa, með því allra besta sem náðst
hefur í heiminum í vetur. Á hún
heimsmet 17 ára og má gera ráð
fyrir að árangur hennar sé einnig
heimsmet í 18-19 ára flokki.
Hvað veldur því að þú stekkur
svo hátt í dag?
„Ég skipti um stöng eftir að hafa
farið yfír 3,90 og það hafði sitt að
segja,“ sagði Vala við tíðindamann
Morgunblaðsins.
Stangarstökkið dróst mjög á lang-
inn og það var ekki fyrr en á síðustu
klukkustund keppninnar að Vala hóf
keppni; hún stökk fyrst eftir að allir
hinir keppendurnir voru fallnir úr.
Næsta viðfangsefni Völu verður
Evrópumeistaramótið innanhúss,
sem fram fer í Globen-höllinni í
Stokkhólmi eftir þrjár vikur.
Þjálfari Völu, Stanislav Sczcyrba,
hefur álit á Völu. „Styrkur hennar
er hversu hugrökk hún er, ef eitt-
hvað er finnst mér hún full æðru-
laus. Hún er kjörgripur að þjálfa, er
býsna kræf og gerir það sem fyrir
hana er lagt,“ sagði þjálfarinn.
Vala stefnir að keppni í sjöþraut
á heimsmeistaramóti unglinga í
Sydney í Ástralíu þar sem ekki verð-
ur keppt í stangarstökki þar.
„Skilaðu kveðju frá mér heim til
Islands," sagði Vala og hvarf inn í
herbergi lyfjaeftirlitsmanna. Allir
sem setja met verða jú að gangast
strax undir lyfjapróf.
Til að gefa hugmynd um árangur
Völu setti kínversk stúlka, Sun Caiy-
un, heimsmet utanhúss í mars í fyrra,
stökk 4,06 metra. Var það smám
saman bætt af henni, Danielu Bartovu
Tékklandi, Andreu Miiller Þýskalandi
og Emmu George Ástralíu í 4,28 á
árinu. Sú síðasttalda er í algjörum
sérflokki í greininni og stökk nú í
janúar síðastliðnum 4,41 metra.