Morgunblaðið - 28.02.1996, Blaðsíða 1
Hestur
og tveir
steinar í
dagrenningu
EVA Diðriksdóttir, 9 ára, Brekkutúni
6, 200 Kópavogur, sendi okkur þessa
mynd í fyrravor og er líklega orðin 10
ára þegar myndin birtist loksins. Þið
sjáið á þessu að ekki er víst að myndin
ykkar birtist ekki þótt hún sé ekki í
blaðinu innan mánaðar frá því að þið
senduð hana.
Dagrenning= sólarupprás, dögun.
Brandarar
Kæri Moggi!
Hér koma brandarar í Brand-
arabankann. Og stuðkveðjur til
allra sem þekkja mig. Ég þakka
líka fyrir gott blað. Valdís Þor-
kelsdóttir, Túnfæti, Mosfellsdal,
270 Mosfellsbær:
xXx
Strákamir í mínum bekk eru
svo óþekkir að kennarinn skróp-
ar.
xXx
Kæru Myndasögur Moggans.
Hér koma brandarar í Brand-
arabankann. Ég vona að þið
getið birt þá. Kristrún Thors,
Aðallandi 18, 108 Reykjavík:
Af hverju klifraði ljóskan yfír
glervegginn?
Til þess að sjá hvað værí hin-
um megin.
xXx
Hvað sagði ljóskan þegar hún
sá cheerios hringina?
Vá, þarna eru kleinuhringa-
fræ!
Félagar
á fyrsta
ári
MORGUNBLAÐIÐ hefur á
sínum snærum fólk út um allt
land til þess að afla frétta úr
heimabyggð sinni og næsta
nágrenni. Margar þeirra frétta
sem birtast í Mogganum á
hverjum degi utan af landi eru
komnar frá þessu fólki, frétta-
riturunum okkar. Nú hefur
einn þeirra, Atli Vigfússon,
Suður-Þingeyjarsýslu, sent
okkur myndasyrpu og texta
með. Við kunnum Atla bestu
þakkir fyrir og gefum honum
orðið.
Húsdýrin hafa lengi fylgt
manninum og margir fá áhuga
fyrir dýrum ungir að árum.
Á myndinni eru félagarnir
Vigfús B. Jónsson á Laxamýri
og íslenska tikin Laxa, sem
nýlega átti eins árs afmæli,
en Vigfús verður ekki eins árs
fyrr en 14. apríl næstkomandi.
Þau leika sér mikið saman,
og Laxa hefur mest gaman
af að þvo andlitið á Vigfúsi,
en slíkir þvottar eru ekki alltaf
vinsælir.
ekki sleikja mig
EG má að
minnsta
kosti hvísla
vinhverjii
HÆTTU þessu'
virðist bar
hætt þessu.