Morgunblaðið - 28.02.1996, Side 4
4 D MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Sönn vinátta
NAFNIÐ á myndinni hennar
Maríu Ragnarsdóttur, 8 ára,
Laufrima 1, 112 Reykjavík,
er svo fallegt, Sönn vinátta,
að ekki er annað hægt en
nota það sem fyrirsögn á
myndinni hennar og bróður
hennar, Jóns Inga, 6 ára.
Vinátta getur í rauninni aldr-
ei verið annað en sönn, ef
einhver er ekki sannur vinur,
er hann ekki vinur manns.
Athugið það, krakkar, að
vinátta er eitt það mikilvæg-
asta sem við öðlumst á lífs-
leiðinni, og ekki gleyma því
að við getum verið vinir ann-
arra, stórra, smárra, gulra,
hvítra, svartra, mjórra, feitra
- skiptir ekki máli hvar eða
hvernig vinir manns eru, ef
þeir eru sannir vinir er það
allt sem þarf. Og þannig verð-
um við meðal annars ham-
ingjusöm. Ekki svo flókið!
Myndin hans Jóns Inga er
nafnlaus en það skiptir engu
máli, hún er falleg.
Morgun-
sjónvarpið
of snemma?
KÆRI Moggi. Ég ætla
að segja dálítið um
morgunsjónvarpið.
1) Það er of snemma.
2) Það á að vera svona
eftir klukkan tíu í einn
klukkutíma og núna er
ég búin.
Signý Sigmundar-
dóttir, Rjúpufelli 4, 111
Reykjavík.
Nafn í mannheimum
KÆRU Myndasögur Mogg-
ans!
Hér sendi ég ykkur sögu,
vonandi finnst ykkur hún
skemmtileg. Sunna
Diðriksdóttir, 10
ára, Brekkutúni
6, 200 Kópa-
vogur. P.S
Ekki breyta
sögunni.
Sunna
mín, Myndasögur
Moggans breyta ekki sögum,
myndum eða neinu öðru sem
þið sendið okkur. Kærar þakk-
ir fyrir söguna og myndina.
Eitt sinn fyrir langa löngu
var naðra sem átti
nafnið Skellinaðra. En prest-
urinn vill ekki breyta nafn-
nafnið
Skellinaðra. Einu sinni
fór hún til mannheima að
biðja um ráð. Hún hitti mann
sem talaði dýramál.
- Sæl vertu, naðra.
- Sæll vertu, manni. Ég
þarf ráð. Sko, mér leiðist
ínu.
- Já, það er auðvelt.
- Er það?
- Já, þú segir bara að
Skellinaðra sé nafn í mann-
heimum.
Það gekk. Hins vegar fann
maðurinn upp farartæki sem
hann nefndi skellinöðru.
ENDIR.
Brandarabartki
Myndasagnanna!
Myndasagnanna! HÆSTU
mögulegir vextir: Gleði og bros
svo að skín í endajaxlana ef
þeir eru þá komnir í ljós — Ef
þið akið ykkur í spiki, leyfið
því að gutla svolítið og hristast
af ykkur með lestri Brandara-
bankans — Brandarabankinn;
besta heilsubót sem völ er á —
Mesta og besta ávöxtunin
Kæru Myndasögur Mogg-
ans.
Hér koma brandarar í
brandarabankann. Ég vona að
þið getið birt þá. Kristrún
Thors, Aðallandi 18, 108
Reykjavík:
Af hveiju eru fílar alltaf í
bleikum balletskóm?
Svo að þeir geti falið sig í
jarðarbeijaklösunum.
xXx
Af hveiju klifraði Ijóskan
yfir glervegginn?
Til þess að sjá hvað væri
hinum megin.
xXx
Hvað sagði Ijóskan þegar
hún sá cheerios hringina?
Vá, þarna eru kleinuhringa-
fræ!
xXx
Kæri Moggi!
Hér koma brandarar í
Brandarabankann. Og stuð-
kveðjur til allra sem þekkja
mig. Ég þakka líka fyrir gott
blað. Valdís Þorkelsdóttir,
Túnfæti, Mosfellsdal, 270
Mosfellsbær:
Einu sinni voru tvær man-
nætur á ferð. Allt í einu sáu
þær riddara:
Oh, í dagfáum við dósamat.
xXx
Strákarnir í mínum bekk
eru svo óþekkir að kennarinn
skrópar.
..........................
’ ' ■