Morgunblaðið - 01.03.1996, Side 4
Sterkasta mót sem fram hefur
farið hér á landi í skvassi hefst
í Veggsporti í dag og lýkur um
helgina. Þetta er hið svokallaða
Norðurljósamót sem nú er haldið
öðru sinni. Mótið er nokkuð sérstakt
fyrir þær sakir að það er liður í
keppninni um Norðurlandameist-
aratitilinn í skvassi, en stigahæsti
einstaklingurinn úr fjórum mótum
hlýtur titilinn. Mótið gefur einnig
stig á heimsafrekalistann.
Þetta er í fyrsta sinn sem norræn
samvinna og samkeppni er um
Norðurlandameistaratitilinn. Kim
Magnús og Magnús Helgason tóku
þátt í fyrsta mótinu sem fram fór
í Svíþjóð og fengu báðir tvö stig
fyrir árangurinn þar en sigurvegari
hvers móts fær 50 stig. Sigurvegar-
inn úr fyrsta mótinu, Svíinn Daniel
Forslund, verður meðal keppenda
hér en erlendir keppendur verða 28
talsins, þar af sjö konur.
Meðal keppenda verður einnig
Svíinn Fredrik Johnson, en hann
hefur afrekað að leika skvass í 46
löndum og verður Island því 47.
landið þar sem hann leikur. Johnson
er einn fárra skvassmanna í heimin-
um sem hafa afrekað að vinna sjálf-
an Janser Kahn. Mikil vinna hefur
verið í að undirbúa mótið og er
Englendingurinn Nigel Gildersleve
kominn til landsins til að aðstoða
við skipulagningu og framkvæmd,
en hann kom fyrst til landsins árið
1989 til að kenna. Nokkur íslensk
fyrirtæki styrkja framkvæmdina og
Ian MacDugal frá Bandaríkjunum
hefur heitið þeim íslendingi sem
lengst kemst ferð til Bandaríkjanna
til að keppa þar á skvassmóti.
Keppt verður í opnum flokki karla
og kvenna og í svokölluðum A-
flokki. Þeir sem tapa fyrsta leik í
opna flokknum fara í A-flokkinn
þannig að þeir fá fleiri leiki fyrir
vikið. Kim Magnús, besti skvassspil-
ari íslands, mætir Finnanum Arttu
Moisio í fyrstu umferð og ætlar sér
sigur þó svo búast megi við mjög
jöfnum leik.
Keppni hefst í dag klukkan 10
árdegis með fyrstu tveimur umferð-
unum í opna flokknum og síðan
verður keppt fram eftir kvöldi og
byrjað aftur kl. 10 á morgun, laug-
ardag. Gert er ráð fyrir að úrslita-
leikurinn í kvennaflokki hefjist kl.
15.30 og í karlaflokki kl. 16.30 á
laugardag. Settir verða upp áhorf-
endabekkir í Veggsporti þannig að
áhorfendur ættu að geta fylgst vel
með sterkasta skvassmóti sem hér
hefur farið fram, en aðgangur er
ókeypis.
Brundrottningin Picabo Street frá Banda-
ríkjunum, sem nýlega fagnaði heims-
meistaratitlinum í Sierra Nevada, hélt áfram
sigurgöngu sinni í bruni í gær, en þá var
keppt í bruni heimsbikarsins í Narvík í
Noregi. Þetta var þriðji sigur hennar í sjö
brunmótum í vetur, auk þess sem hún hefur
tvívegis hafnað í öðru sæti og einu sinni í
þriðja. Varvara Zelenskaya frá Rússlandi,
sem hafði besta tímann .eftir fyrri umferð,
varð önnur og Heidi Ziirbriggen frá Sviss
þriðja. Vegna hvassviðris efst í keppnis-
brekkunni var brunbrautin stytt og famar
tvær umferðir.
„Ég keyrði af öryggi í efri hluta brautar-
innar en tók síðan áhættu í neðri hlutan-
um,“ sagði Street. „Ég fann að ég keyrði
vel neðst og það réð úrslitum. Þó svo að
brautin hafi ekki verið löng var hún erfíð
og krappar beygjur í henni. Það var sama
brautin fyrir alla keppendur, en ég vona að
við getum keppt í allri brekkunni á morgun
[í dag]. Ég er mjög ánægð með sigurinn
því ég náði mér ekki vel á strik á æfíngum
í brautinni fyrir keppnina og átti því ekki
von á góðu gengi.“
„Það er kannski allt í lagi að keppa í
svona stuttri brunbraut einu sinni til tvisvar
á vetri, ekki meira,“ sagði Zurbriggen, sem
vann bronsverðlaunin.
Nú eru aðeins tvö brunmót eftir í heims-
bikarnum og er Katja Seizinger sú eina sem
getur hugsanlega náð Street að stigum. Til
þess að svo verði þarf Seizinger að vinna
bæði brunmótin sem eftir eru og Street að
lenda aftarlega.
PICABO Street frö Bandaríkjunum, sem nýlega
fagnaAI helmsmeistaratitlinum í Sierra Nevada,
hélt áfram slgurgöngu slnnl í brunl í g»r.
Oriando Magic enn tap-
laust á heimavelli
Street nær örugg
með bruntitilinn
ORLANDO Magic hélt áfram
sigurgöngu sinni á heimavelli í
fyrrinótt er liðið lagði Miami
Heat, 116:112. Þetta var 29.
sigur liðsins í röð í Orlando í
vetur. Það er nú aðeins tveimur
sigrum frá því að slá met Bos-
ton Celtics frá keppnistímabil-
unum 1985-1986 og 1986-1987,
en liðið vann þá 38 heimaleiki
i röð yfir tvö keppnistímabil.
Shaquille O’Neal var stigahæstur
í liði Orlando með 31 stig og
Penny Hardaway kom næstur með
27 stig. Dennis Scott gerði 25 stig
og Nick Anderson 17. Tim
Hardaway var stigahæstur í liði
Miami með 22 stig og tók auk þess
13 fráköst. Alonzo Mouming og
Chris Gatling komu næstir með 18
stig hvor.
„Ég held að Orlando sé með besta
byrjunarliðið í NBA-deildinni,“ sagði
Pat Riley, þjálfari Miami Heat. „Eg
held að flestir séu sammála um það.“
„Við höldum okkar striki, leikum
okkar besta leik á heitnavelli eins
og við höfum verið að gera í allan
vetur,“ sagði O’Neal.
David Wesiey setti niður 33 stig
fyrir Boston Celtics í sigri á Charl-
otte Homets, 121:116, í framlengd-
um leik. Wesley og Todd Day gerðu
fyrstu sex stigin í framlengingunni
og komu Boston í 120:114 þegar
tvær og hálf mínúta var eftir og
þá var sigurinn í höfn. Dino Radja
og Rick Fox voru með 16, stig hvor
fyrir Boston, en Larry Johnson gerði
26 stig fyrir Charlotte og Kenny
Anderson 21.
Atlanta sigraði Portland á heima-
velli, 90:88. Mookie Blaylock gerði
23 stig og þar af þriggja stiga körfu
þegar 11 sekúndur voru eftir og
tryggði sigurinn. Steve Smith gerði
17 stig og Christian Laettner 15
fyrir Atlanta, sem sigraði í 999.
leiknum undir stjóm Lenny Wilkens,
þjálfara. Arvydas Sabonis var stiga-
hæstur gestanna með 26 stig og
Harvey Grant kom næstur með 17
stig.
Charles Barkley var með 24 stig,
11 fráköst og níu stoðsendingar er
Phoenix vann Minnesota 117:93.
Michael Finley gerði 21 stig og
Danny Manning 17 stig. Isaiah Rid-
er var stigahæstur í liði Minnesota
með 21 stig.
Seattle sigraði Detroit 94:80 þar
sem Shawn Kemp var stigahæstur
með 23 stig og tók 14 fráköst.
Gary Payton kom næstur með 19
stig og Detlef Schrempf gerði 18
og tók 11 fráköst. Allan Houston
var stigahæstur gestanna með 29
stig, en hittni leikmanna Detroit var
aðeins 23,5% í síðari hálfleik.
Karl Malone gerði 26 stig og
þeir John Stockton og Jeff Hornacek
17 hvor fyrir Utah Jazz, sem burst-
aði Washington 115:93. Utah hefur
nú unnið 16 af síðustu 20 Ieikjum
sinum og fór upp í efsta sæti mið-
vesturriðils. Gheorghe Muresan var
með 20 stig og tók 14 fráköst fyrir
Washington.
Los Angeles Lakers fór til
Vancouver og sigraði 99:80. Cedric
Ceballos var með 23 fyrir Lakers,
Eddie Jones 18, Anthony Peeler 15
og Vlade Divac tók 17 fráköst. Þetta
var 10. sigur liðsins í síðustu 11 leikj-
um. Bryant Reeves var stigahæstur
heimamanna með 22 stig og Byron
Scott og Blue Edwards komu næstir
með 11 stig hvor.
Sacramento vann New York
90:85 á heimavelli. Mitch Richmond
gerði 22 stig fyrir Sacramento.
Brian Grant og Billy Owens komu
næstir með 16 stig hvor. Patrick
Ewing, sem missti siðustu þijá leiki
New York vegna meiðsla, var stiga-
hæstur í liði sínu með 29 stig. Þetta
var fjórða tap liðsins í röð.
Reuter
PENNY Hardaway settl nlður 27 stig fyrlr Orlando sem vann
Miaml 116:112. Þetta var 29. slgur IIAsins f röA á heimavelll.
Kjartan og
félagar halda
í vonina
BORÐTENNISUÐ Bronshoj,
sem teflir m.a. fram Kjartani
Briem, vann sinn fyrsta sigur S
úrslitakeppni um sæti í úrvals-
deildinni í Danmörku. Liðið sigr-
aði Olstykke 6-4 og er nú í þriðja
sæti með þijú stig þegar tvær
umferðir eru eftir. Olstykke er
í tjóiAa sæti með 2 stig.
„Ef við höldum okkur fyrir
ofan Olstykke spilum við aukal-
eik við liðið sem verður í 2. sæti
í 1. deild um sæti í úrvalsdeild-
inni," segir Kjartan. „Það er
leikur sem við ættum að vinna
nokkuð örugglega.“
SKIÐI / HEIMSBIKARKEPPNIN I ALPAGREINUM
ÍÞRðfflR
SKVASS
KORFUKNATTLEIKUR / NBA
Norðurljósamótið
Fjölmargir
eriendir
keppendur