Morgunblaðið - 06.03.1996, Blaðsíða 3
2 D MIÐVIKUDAGUR 6. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
| ' „ t
, * * *
* & *
* * \
. ,..r ;
'
Í-V'fc ,*
. ; '5,
V/ ík
Hver
erég?
ÞAÐ er alveg sama í
hvaða átt þið lítið, þið
hafið mig alltaf fyrir aug-
unum. Hver er ég? Lausn-
ir eru með svarið.
Sönglausa kartan
KÁRI var karta. Mjög söngelsk karta. En þegar hann
reyndi að syngja gerðist ekkert. Hann hafði reynt allt.
En það mistókst alltaf. Hann fór nú til Köru körtu.
- Kara, hefur þú einhver ráð?
- Já það gæti verið. En þá þarf ég líka nokkrar
fágætar jurtir, sagði Kara.
- Ég geri hvað sem er, sagði Kári.
- Farðu þá yfir vatnið og sæktu spergilrót.
Kári lagði af stað. Hann stökk á milli vatnaliljanna.
Allt í einu kom krókódíll. En Kári var fljótur upp á
land. Hann fann rótina og synti til baka.
- Hérna er hún.
- Taktu þá þrjár rósir af vatnaliljum,
0g Kári var fljótur að ná í þær. Kara hrærði þessu
saman. Kári drakk þetta og gat sungið upp frá því.
Höfundur þessarar skemmtilegu sögu og mynd-
skreytingar er stúlka úr Kópavogi, Eva Diðriksdóttir,
Brekkutúni 6. Eva mín, bestu þakkir fyrir.
Pennavinir
HÆ, HÆ, Myndasögur!
Mig langar að eignast
pennavini á aldrinum 8-12
ára. Ég er sjálf að verða 10
ára. Áhugamál: Hestar,.
tennis, leikir og margt
fleira.
Emilía Valdimarsdóttir
Arnarsmára 26
200 Kópavogur
Ég óska eftir pennavinum
á aldrinum 7-10 ára, sjálf
er ég að verða 9 ára. Áhuga-
mál íþróttir, dýr, skautar,
sauma- og pijónaskapur og
fleira. Reyni að svara öllum
bréfum. Mynd fylgi fyrsta
bréfi ef hægt er.
Karítas Gissurardóttir
Jörundarholti 222
300 Akranes
Kæru Myndasögur. Ég
óska eftir pennavinum á
aldrinum 7-9 ára. Ég er 8
ára. Áhugamál: Skíði og
skautar. Svara öllum bréf-
um.
Lára Guðmundsdóttir
Klukkurima 14
112 Reykjavík
Eftirfarandi barst til
Myndasagnanna, merkt
með: XXXXX, bálskotin. -
(Afar dularfullt!):
Mig langar að lýsa
draumaprinsinum mínum.
Hann er 161 cm á hæð, 49
kíló, skolhærður, 13 ára, í
Digró, 7. bekk, hann er al-
gjört krútt.
Við erum tvær úr Kópa-
vogi, 13 ára og eldhressar.,
Okkur langar rosalega að
eignast pennavini úti á
landi, helst Akureyri, og
strákar, þið skuluð ekki vera
feimnir við að skrifa okkur.
Áhugamál okkar - Unnur:
hundar (á tvo), skíði, körfu-
bolti, skautar, handbolti,
vélsleðar, dýr, sætir strákar
og fleira. - Erla. Körfubolti,
hundar, skíði, sætir strákar
og fleira. Við æfum báðar
körfu og eru í Blikum
(Breiðabliki). Við svörum
öllum bréfum. P.S. Mynd
fylgi fyrsta bréfi ef hægt er.
Unnur I. Bjarnadóttir
Gnitaheiði 5
200 Kópavogur
Erla M. Kristmundsd.
Hlíðarhjalla 46
200 Kópavogur
Kæri Moggi!
Við erum tvær hressar
stlepur sem viljum gjarnan
eignast pennavini, helst
bara stráka á aldrinum
11-12 ára. Áhugamál okkar
eru: Hestar, skautar, karfa,
HANW KANN EKKIAPLIFA LÍFINU, OG ' ®
HANN ER LEIPINMPÚKI. SVÖ AP HANN
LES/MIK/P...
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 6. MARZ 1996 D 3
fótbolti, sætir strákar, di-
skótek, skemmtilegir krakk-
ar, góð tónlist, dýr og
margt, margt fleira. P.S.
Mynd má fylgja með og
strákar: Takið upp blýant-
ana og byrjið að skrifa okk-
ur. Bless, bless, Hildigunnur
og Unnur Ósk. Heimilis-
fangið er:
Hildigunnur Helgadóttir
Vogaseli 3
109 Reykjavík
Hæ, Moggi.
Ég heiti Lára Rán og
langar að eignast pennavini,
helst stelpur, á aldrinum 6-7
ára. Ég er sjálf 6 ára. Mynd
má fylgja fyrsta bréfi. Reyni
að svara öllum bréfum.
Lára R. Sveinsdóttir
Túngötu 13
420 Súðavík
Hæ, ég heiti Ragnhildur.
Viltu biðja Gígju Eyjólfs-
dóttur, Suðurvör 11, 240
Grindavík, að senda bréf
eða hringja í mig ef hún er
hætt.
Kæru Myndasögur. Ég
heiti Eva Björg og vil eign-
ast pennavini á aldrinum
10-12, ég er sjálf 10 ára.
Áhugamál mín eru hestar,
sund og fótbolti.
Eva B. Stefánsdóttir
Hjallavegi 18
530 Hvammstangi
100
milljarðar
FJÖLDI' þeirra stjarna, sem eru það
nálægt sólkerfinu okkar, að Ijósið frá
þeim nær til jarðarinnar á 100.000
(eitthundrað þúsund) árum, er um
100.000.000.000 (eitthundrað milljarð-
ar). Ef við reyndum að telja þær, dygði
okkur ekki ævin til þess.
Fjallaplánetan
rannsökuð
HANN Arnmundur Ernst Björnsson, 6 ára, sem á
heima á Framnesvegi 66, 101 Reykjavík, var í heim-
sókn hjá ömmu sinni á Dalvík og þá teiknaði hann
þessa mynd handa okkur.
í geimskipinu eru menn sem eru að rannsaka
fiallaplánetuna.
HVAO y /=6 8AÐ HAUN
’ÖGNi AÐ 6E£A*A UUAÐAIA/ l/ASA
\&6>KJNA MÍNA •
All Rights Reserved.
œ&saíaaaao®?
IkAGGA OG 3Óbl EÓfíU MÐÚg
Tsæ AO A íUNJKAUP.
bEÖf>AU KOMU
>1EVRPU ÞAU A€> SrbnVAÍÍS>lC>
MR i ÖANGl. SVO \ZlRTlSTStM
<ÖTrUKJNN þ&K£A H£F£>1 KJBUcf
\ þ\/i Oö VAR HANN i 'OOA 'Obiu
iO STV OMICA /