Morgunblaðið - 09.03.1996, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1996
JNmrgtmlrifofrito
■ LAUGARDAGUR 9. MARZ
BLAÐ
Sex íslendingar
hafa unnið
verðlaun á EM
VALA Flosadóttir ÍR er sjötti íslendingfurinn sem
vinnur verðlaun á Evrópumeistaramóti í frjáls-
íþróttum — fékk gull í gærkvöldi.
•Gunnar Huseby KR varð Evrópumeistari utan-
húss í kúluvarpi 1946 í Ósló og aftur í Brussel fjór-
um árum síðar.
•Torfi Bryngeirsson KR varð meistari í Stangar-
stökki í Brussel 1950.
•Örn Clausen ÍR vann silfurverðlaun í tugþraut á
Brussel-mótinu eftir harða keppni um sigur.
•Hreinn Halldórsson KR varð síðan Evrópumeist-
ari innanhúss í kúluvarpi í San Sebastian á Spáni
árið 1977.
•Pétur Guðmundsson vann svo bronsverðlaun á
síðasta Evrópumóti, sem fram fór í París 1994.
FRJALSIÞROTTIR / EM I GAUTABORG
Vala Flosadóttir varð Evrópumeistari í stangarstökki í Gautaborg í gærkvöldi
Morgunblaðið/Golli
VALA Flosadóttir hleypur hér fagnandl eftlr stökklð góöa, sem tryggöl hennl Ewrópumelstara-
titillnn í gaerkvöldi.
Skráði
nafnsitt
á spjöld
sögunnar
íslenski fáninn fyrstur á loft
í Globen-höllinni
ÁTJÁN ára íslensk stúlka kom
heldur betur við sögu á Evrópu-
meistaramótinu innanhúss í hinni
glæsilegu Globen-höll í Stokk-
hólmi í gærkvöldi,
Skúli Unnar þar sem hún fagn-
Sveinsson aði sigri í stangar-
skrifar frá stökki. Vala setti
Stokkholmi ísian(|s- 0g Norð-
urlandamet er hún stökk 4,16
m. Vala reyndi við Evrópumet
innanhúss með því að stökkva
4,23 m, en felldi naumlega. Það
má með sanni segja að þessi stór-
efnilega frjálsíþróttakona hafi
komið, séð og sigrað — hún varð
fyrst til að vinna gullverðlaun á
EM og íslenski fáninn var fyrstur
dreginn að hún undir þjóðsöng
íslendinga. Þar með skráði Vala
nafn sitt í sögu fijálsíþrótta í
heiminum, þar sem hún er fyrst
kvenna til að verða sigurvegari
í stangarstökki á stórmóti, en í
gærkvöldi var í fyrsta skipti
keppt í stangarstökki kvenna á
stórmóti og ákveðið hefur verið
að keppt verði í greininni á
Ólympíuleikunum i Sidney árið
2000. Þá verður Vala reynslunni
ríkari. Það eru 19 ár síðan íslend-
ingar átti Evrópumeistara og
fijálsíþróttamann á efsta prepi
verðlaunapallsins — Hreinn Hall-
dórsson varð Evrópumeistari í
kúluvarpi í Bilbao á Spáni 1977.
Vala er fyrst islenskra kvenna
til að standa á verðlaunapalli og
er það ekki smáafrek þegar þess
er gætt að hún skaut Danielu
Bartovu frá Tékklandi, sem hef-
ur sett tíu heimsmet, ref fyrir
rass. Þar með hrifsaði Vala Evr-
ópumeistaratitilinn, sem flestir
töldu Bartovu eiga vísan. 18 ára
á sínu fyrsta Evrópumóti og
beint á efsta þrep verðlauna-
pallsins
„Þetta er alveg stórkostlegt
og ég er ekki búin að átta mig
á þessu ennþá,“ var það fyrsta
sem hinn nýlcrýndi Evrópumeist-
ari sagði við Morgunblaðið eftir
hina fræknu framgöngu.
■ Vala felldi naum-
lega... 7 D3
Vala kynnt
með sérstök-
um hætti
ÞULURINN á Evrópumeist-
aramótinu í Globen-höllinni í
Stokkhóhni kynnti Völu
Flosadóttur með allsérstæð-
um hætd. Sagði hana frá ís-
landi, Lundi í Svíþjóð. Aðrir
keppendur voru kynntir að-
eins frá sínu heimalandi þann-
ig að greinilegt var að Svíar
vijja eiga eitthvað í Völu.
KÖRFUKIMATTLEIKUR: SIGUR HJÁ KEFLAVÍK OG GRINDAVÍK / D2