Morgunblaðið - 16.03.1996, Page 1
BLAÐ ALLRA
LANDSMANNA
1996 ■ LAUGARDAGUR 16. MARZ
BLAD
Valdimar
með slitin
krossbönd?
„ÞAÐ er best að segja sem minnst á þessari stundu,
eitt er víst að mér líst ekki vel á þetta,“ sagði
Valdimar Grímsson, þjálfari Selfoss, sem rann í
bleytu á gólfí vallarins um miðjan síðari hálfleik
gegn KA á Akureyri í gærkvöldi og meiddist í hné.
Var jafnvel haldið að um slitin krossbönd væri að
ræða. Vaidimar vildi ekkert um það segja fyrr en
að iokinni ítarlegri skoðun. Ef svo er væri það skarð
fyrri skildi í landsliðinu sem fer tii Japa'ns í næsta
mánuði.
„Við fórum aðeins saman yfír tapleikinn gegn
Selfossi strax á miðvikudagskvöldið, ákváðum síðan
bara að far í bíó og slaka vel á fyrir þennan," sagði
Alfreð Gíslason, þjálfari KA, aðspurður hvort hann
hefði kortlagt Selfyssinga eftir tapið í öðrum leiknum.
HANDKNATTLEIKUR
Haukar féllu með foringjanum
FH-ingarfögnuðu sigri íframlengdum spennuleik, 28:27. Magnús Árnason varði vítakast þegar leiktími var úti
Morgunblaðið/Kristinn
MAGNÚS Árnason, markvörður FH og fyrrum markvörður Hauka, áttl snilldarleik. Hér halda félagar Magnúsar honum á lofti.
HAUKAR féllu með foringja sín-
um, Gunnari Gunnarssyni þjálf-
ara þegar þeir urðu að játa sig
sigraða í framlengdum leik í
Hafnarfjarðarbaráttunni gegn
FH. Spennan var geysileg, náði
hámarki þegar leiktíminn var
úti og Haukar áttu eftir að taka
vítakast — gátu jafnað, þannig
að leikurinn yrði aftur fram-
lengdur. Staðan var 27:28 fyrir
FH-inga þegar Gunnar gekk
fram til að taka vítakastið,
brást bogalistin — Magnús
Árnason, fyrrum markvörður
Hauka, varði vítaskot Gunnars
og kórónaði þar með frábæran
leik sinn, varði alls 23 skot. Það
hefði verið sárt fyrir FH-inga
ef Gunnar hefði skorað, þvf að
Haukar fengu vftakastið á silf-
urfati, eftir að Jón Freyr Egils-
son fór inn úr horni og náði
ekki að skora. Félagi Jóns
Freys gekk til hans til að hug-
hreysta hann... FH-ingar vökn-
uðu upp við vondan draum og
áhorfendurtrúðu ekki sínum
eigin augun... Magnús varði
vítakastið og FH-ingar stigu
trylltan dans, ruku að Magnúsi
til að hylla hann.
Guðmundur Karlsson, þjálfari
FH-liðsins^ var ánægður að
,Eg get ekki annað
en þakkað Haukum
fyrir drengilega bar-
áttu — leikirnir þrír
voru frábær
skemmtun fyrir
Hafnfirðinga. Betra liðið stóð uppi
sem sigurvegari — það sýnir ákveð-
in styrk að leggja Hauka tvisvar
að velli hér í Strandgötu. Þetta var
dæmigerður leikur, sem tók á taug-
arnar; hjá leikmönnum, þjálfurum
og áhorfendum — tveggja til
þriggja marka forskot fauk út í
veður og vind á augabragði. Nú
fögnum við lítillega í kvöld, hefjum
síðan undirbúninginn fyrir slaginn
gegn KA, sem hefst á miðvikudag-
inn á Akureyri," sagði Guðmundur.
FH-ingar sýndu gífurlega bar-
áttu á lokakaflanum, er þeir náðu
að snúa leiknum sér í vil — voru
undir 26:24. Guðjón Árnason sýndi
klókindi er hann sneri á vörn Hauka
og einnig Héðinn þegar hann skor-
aði eftir gegnumbrot, með einn
Haukamann á bakinu, 26:26. Hall-
dór Ingólfsson svarði fyrir Hauka,
þá kom Héðinn með langskot,
27:27. Sigurður Sveinsson sýndi
hvað hann var yfirvegaður á örlaga-
stundu, skoraði 27:28 með glæsi-
legu undirhandaskoti. Þetta glæsi-
lega mark reyndist síðasta mark
kvöldsins.
Spennan var ótrúleg — sigur FH
virtist í höfn strax í upphafi seinni
hálfleiksins — staðan 9:14. Haukar
fóru síðan fljótlega að taka Guðjón
Árnason úr umferð og náðu að jafna
18:18 um miðjan seinni hálfleikinn
og komast síðan yfir, 19:19, í fyrsta
skipti síðan þeir voru yfir 1:0 og
4:3. Undir lokin var spennan raf-
mögnuð — Guðjón kemur FH yfir,
21:22. Gunnar Gunnarsson, foringi
og þjálfari Hauka, jafnaði 22:22
með glæsilegu undirhandarskoti
þegar 2.56 mín. voru eftir. Hans
Guðmundsson svarar með sínu
fyrsta marki, 22:23, síðan var mik-
ill darraðadans stiginn, þegar fjór-
tán sek. voru eftir skoraði Gunnar
Gunnarsson með langskoti, 23:23 —
framlengja varð leikinn.
Guðjón skoraði 23:24, síðan
koma þijú mörk Hauka í röð. Gunn-
ar Gunnarsson skoraði það þriðja,
26:24 — með glæsilegu langskoti,
hljóp fagnandi frá marki, en féll
síðan á gólfið. Gunnar tognaði illa
á nára og kom ekki rneira við sögu
fyrr en leiktíminn var úti — til að
taka vítakastið, eins og áður hefur
verið sagt frá. Það má því með
sanni segja að Haukar hafi fallið
með foringjanum.
Magnús Árnason var maður
FH-liðsins, sýndi frábæra mark-
vörlsu. Þá lék Sigurðúr Sveinsson
vel og Héðinn Gilsson og Guðjón
Árnason voru ómetanlegir í fram-
lengingunni. Halldór Ingólfsson,
Petr Baumruk og Gústaf Bjarnason
voru bestu leikmenn Hauka.
Sigmundur Ó.
Steinarsson
skrifar
KÖRFUKN ATTLEIKUR: KVEIMNAUÐ KR OG KEFLAVÍKUR LEIKA TIL ÚRSLITA / D4