Morgunblaðið - 22.03.1996, Side 3
2 C FÖSTUDAGUR 22. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 22. MARZ 1996 C 3
ÚRSLIT
UMFG - Haukar 82:72
íþróttahúsið í Grindavík, fjórði leikur í und-
anúrslitum úrvalsdeildarinnar í körfuknatt-
leik, fimmtudaginn 21. mars 1996.
Gangur leiksins: 0:2, 4:6, 8:12, 11:14,
17:17, 23:20, 36:25, 39:37, 47:41, 50:41,
58:51, 58:57, 63:57, 63:61, 68:62, 70:68,
73:70, 74:72, 82:72.
Stig Grindvíkinga: Rodney Dobard 22,
Marel Guðlaugsson 17, Guðmundur Braga-
son 17, Unndór Sigurðsson 12, Páll Axel
Vilbergsson 7, Helgi Jónas Guðfinnsson 3,
Hjörtur Harðarson 3, Ingi K. Ingólfsson 1.
Stig Hauka: Jason Williford 23, Pétur Ing-
varsson 18, Sigfús Gizurarson 13, Bergur
ISðvarðsson 8, Jón Arnar Ingvarsson 7, Ivar
Ásgrímsson 3.
Dómarar: Kristinn Óskarsson og Jón Bend-
er. Dæmdu ágætlega þó stundum hallaði
heldur á Hauka.
Áhorfendur: Um 900.
UMFA-Valur 22:25
Varmá, undanúrslit karla um fslandsmeist-
aratitilinn í handknattleik, 2. leikur,
fimmtudagirin 21. mars 1996.
Gangur leiksins: 0:1, 2:1, 4:3, 5:6, 7:10,
8:12, 10:13, 11:13, 12:15, 17:15, 18:16,
19:18, 19:24, 21:24, 21:25, 22:25.
Mörk UMFA: Bjarki Sigurðsson 7/2, Ingi-
mundur Helgason 6/3, Jóhann Samúelsson
4, Róbert Sighvatsson 2, Þorkell Guð-
brandsson 2, Páll Þórólfsson 1.
Utan vallar: 10 mín.
Mörk Vals: Ólafur Stefánsson 7/2, Dagur
Sigurðsson 6/1, Jón Kristjánsson 5, Sveinn
Sigfinnsson 3, Valgarð Thorodsen 2, Júlíus
Gunnarsson 1, Ingí Rafn Jónsson 1.
Utan vallar: 10 mtn.
Dómarar: Gunnar Viðarsson og Sigurgeir
Sveinsson. Dæmdu þokkalega. Hefðu mátt
taka harðara á ljótum brotum.
Áhorfendur: 780 (uppgefið) en það var
mun meira í húsinu.
Markahæstir
Markahæstu ieikmenn í úrslitak^ppninni:
Julian Duranona, KA...............39/15
Bjarki Sigurðsson, Aftureldingu...30/ 7
Ólafur Stefánsson, Val............26/ 3
Ingimundur Helgason, Aftureldingu...26/12
Patrekur Jóhannesson, KA..........25/ 2
SigurðurBjamason, Stjömunni.......23/ 1
Dimitri Filippov, Stjömunni.......23/ 6
Hans Guðmundsson, FH..............22/ 1
ValdimarGrímsson, Selfossi........22/ 5
Guðjón Árnason, FH...............19
Jóhann G. Jóhannsson, KA.........18
Halldór Ingólfsson, Haukum.......18/ 3
Jóhann Samúelsson, Aftureldingu..18
Páll Þórólfsson, Aftureldingu....17
Björgvin Björgvinsson, KA........17
Róbert Sighvatsson, Aftureldingu.16
Jón Kristjánsson, Val............16
Björgvin Rúnarsson, Selfossi.....16
Gústaf Bjamason, Haukum..........16/ 3
Dagur Sigurðsson, Val............16/ 4
Sigutjón Sigurðsson, FH..........16/ 4
Þeir hafa varið mest
Þeir markverðir sem hafa varið mest í úrsli-
takeppninni (knötturinn aftur til mótherja,
innan sviga), eru:
Bergsveinn Bergsveinsson, UMFA..69/4 (2-
i)
GuðmundurA. Jónsson, KA......55 (12)
Bjarni Frostason, Haukum......44/4 (17)
MagnúsÁmason, FH..............44/3 (10)
Hallgrímur Jónasson, Selfossi.43/1 (13)
Guðmundur Hrafnkelsson, Val..38/2 ( 8)
Knattspyrna
Evrópukeppni bikarhafa
8-liða úrslit, seinni leikir:
París, Frakklandi:
Paris St. Germain - Parma..........3:1
Rai (9. vítasp., 68 vítasp.), Patrice Loko
(37.) - Alessandro Melli (27.). 43.686.
■Paris sigraði 3:2 samtals.
Rotterdam, Hollandi:
Feyenoord - Gladbach...............1:0
Orlando Trustful (84.)
■Feyenoord sigraði 3:2 samtals.
Vín, Austurríki:
Rapid Vín - Dynamo Moskva..........3:0
Jancker (48., 75.), Stoeger (63., vítasp.).
■Rapid sigraði 4:0 samtals.
Zaragoza, Spáni:
Real Zaragoza - La Coruna..........1:1
Morientes (37.) - Bebeto (64.). 25.000.
■La Comna sigraði 2:1 samtals.
NBA-deildin
Leikir í fyrrinótt:
Toronto - Charlotte.............107: 89
Atlanta-Vancouver............... 98: 93
Miami - Detroit.................102: 93
New York - Indiana..............102: 99
Utah - Philadelphia.............107: 84
LA Clippers - Minnesota.........110: 96
Boston - Orlando ............... 90:112
Washington - San Antonio........101:112
Milwaukee - Sacramento.......... 97:122
SKIÐAGANGA
Æfingaáætlun
Þegar skíðagöngumað-
--------------------------
ur ýtir sér segir Olafur
Björnsson nauðsynlegt
að slappa af í öxlunum.
NÚ HÖLDUM við áfram og munið
að almenningsgöngur (Islands-
göngur) eru haldnar víða um land
fram í maí.
Vikuáætlun (12)
• 1. dagur: Róleg æfing með 10-15
stuttum sprettum. Sprettirnir eiga
að vera stuttir, u.þ.b. 15 sekúnd-
ur, og nokkuð hraðir. Þetta er
gert til að fá snerpu í gönguna.
Gleymið samt ekki tækninni. Æf-
ingatími 30-75 mínútur.
•2. dagur: Róleg löng æfíng gjarn-
an í léttum brautum. 60 mínútur
eða meira.
•3. dagur: Æfing með ýtingum.
Inn í æfinguna á að flétta 4-5
sprettum þar sem á bara að ýta
sér. Sprettirnir eiga að vera u.þ.b.
30 sekúndur hver og góð hvíld á
milli. Æfingatími 30-60 mínútur.
Tækni: Þegar gönguskíðamað-
ur ýtir sér er nauðsynlegt að
slappa sem mest af í öxlunum.
Til að geta slappað af er mikil-
vægt að þrengja ólina á stöfunum
hæfilega. Hana á að þrengja það
mikið að haldið á stafnum falli
þétt inn í grópina milli þumalfing-
urs og vísifingurs. Þannig helst
stafurinn mikið betur í höndunum
og ekki þarf að halda eins fast í
stafinn. Með þessu er hægt að
slappa betur af í höndum og öxl-
um. Þetta er lítið atriði en nokkuð
mikilvægt.
Höfundur er íþróttakennari og
skíðaþjálfari.
Rondey Roblnson
bolur og árituð sterkw
Ijosmynd J§g Vávelli
a aðeins \ggcD
kr. 1.200.-# * . Æ
auk sendingarkostnaðar
Pantanir afgreiddar
alla daga frá kl. 13 til 17
í síma 421-4868.
Sendum í póstkröfu.
ÍÞRÓTTIR
HANDKNATTLEIKUR
Morgunblaðið/Kristinn
BJARKI Slgurðsson sendir hér boltann Inn á línuna til félaga síns, Róberts Sighvatssonar, sem fiskaði sex vítaköst og skoraði tvö mörk.
Valsmennirnir Ingi Rafn Jónsson og Jón Kristjánsson eru tll varnar en þeir höföu betur í leiknum og sigruðu með 25 mörkum gegn 22.
Liðin þurfa að mætast í oddaleik að Hlíðarenda á sunnudag.
Vaskir Valsmenn
ÍSLANDSMEISTARAR Vals hafa ekki sagt sitt síðasta og sýndu vask-
lega framgöngu er þeir mættu i íþróttahúsið að Varmá í gærkvöldi.
Fullir sjálfstrausts sigruðu þeir Aftureldingu með 25 mörkum gegn
22 og dönsuðu vals á eftir. Leikurinn var jafn og spennandi þar til
síðari hálfleikur var hálfnaður að meistararnir fundu rétta taktinn í
valsinum, gerðu 8 mörk gegn einu á 12 mínútna kafla og það var of
mikið fyrir Mosfellinga sem urðu að játa sig sigraða. Liðin þurfa því
að mætast í oddaleik að Hlíðarenda á sunnudaginn og þar ræðst það
hvort liðið leikurtil úrslita um íslandsbikarinn.
Dagur Sigurðsson, fyrirliði Vals, var
að vonum ánægður eftir sigurinn.
„Við vissum að það kæmi ekki annar
handboltadagur eftir
þennan dag ef við næð-
um ekki að vinna. Við
vorum alls ekki tilbúnir
að fara í sumarírí núna,
gáfum allt í leikinn og sigurinn var
sanngjarn. Við vorum full værukærir
í fyrri leiknum og það dugar bara ekki
í úrslitakeppni. Það þýðir ekkert að
spila af 99 prósent getu, það verður
að gefa sig 100 prósent í þetta eins og
í þessum leik,“ ságði Dagur.
Fyrri hálfleikur var jafn til að byrja
með og alveg upp í 7:7. Þá breyttu
Valsmenn aðeins liðinu hjá _sér. Val-
garð fór í hægra hornið fyrir Ólaf Stef-
ánsson sem fór í skyttuhlutverkið fyrir
Júlíus Gunnarsson. Þessi tilfærsla var
til góðs og Valsmenn gerðu Ijögur
mörk í röð og breyttu stöðunni í 11:7.
Afturelding náði aðeins að klóra í bakk-
ann fyrir hlé og fór inn í búningsklefa
tveimur mörkum undir, 13:11.
Afturelding fékk greinilega góðan
eldivið í hálfleik því þegar 15 mínútur
voru búnar var staðan orðin 18:16 fyr-
ir heimamenn, sem fóru hreinlega á
kostum þessar mínútur. Eldsneytis-
birgðirnar voru of fljótar að brenna
upp því Valsmenn tóku öll völd á vellin-
um næstu mínútur, dönsuðu sinn vals
og skoruðu hvert markið á fætur öðru
á meðan heimamenn nánast horfðu
hugfangnir á lipran dans þeirra. Vals-
menn gerðu átta mörk á móti einu og
þegar þrjár mínútur voru eftir var stað-
an orðin 24:19 fyrir Val og sigurinn
nánast í höfn. Smá neisti náðist úr
glóðum heimamanna í lokin en það
nægði ekki því tíminn var of skammur
og lokatölur 25:22.
Það var allt annað að sjá til Vals-
manna í þessum leik en í fyrri leiknum
að Hlíðarenda. Þeir komu einbeittir til
leiks, léku sem lið — vitandi að sigur
var það eina sem kom til greina í stöð-
unni. Varnarleikurinn var hreyfanlegur
og skytturnar, Ólafur, Jón og Dagur,
gerðu samtals 18 mörk. Homamennirn-
ir Sveinn og Valgarð gerðu ágæta hluti
en Sigfús og Skúli á línunni voru frek-
ar daufír og eins varði landsliðsmark-
vörðurinn Guðmundur Hrafnkelsson
aðeins fímm skot í leiknum. Það kom
ekki að sök því vörnin vann það upp.
Afturelding lék ágætlega en datt
niður á stórum köflum í sitt hvorum
hálfleiknum. Varnarleikurinn var að
vísu góður allan leikinn og markvarslan
hjá Bergsveini var ágæt. Bjarki var
góður og eins Róbert, sem fiskaði sex
vítaköst og skoraði tvö mörk. Ekkert
einasta mark kom úr hornunum. Aftur-
elding hefur ekki nægilega breidd í
leikmannahópnum, því þó sumir leik-
menn væru að spila illa var þeim ekki
skipt út af. Valsmenn geta leyft sér
að breyta liðinu að vild og hvílt lykil-
menn inn á milli og það er styrkleika-
merki.
„Við vorum að gera of mörg mistök
í sókninni og var refsað fyrir það. Við
erum aðeins með þrjá útileikmenn og
það er því mikið álag á þeim. Þeir fá
enga hvíld,“ sagði Einar Þorvarðarson,
þjálfari Aftureldingar. „Annars er ég
nokkuð ánægður með liðið. Það stend-
ur sig vel. Það komu kaflar í báðum
hálfleikunum sem voru slæmir. Nú er
staðan jöfn og það er enn allt opið í
stöðunni. Við erum búnir að ijúfa sig-
urgöngu Valsmanna á Hlíðarenda og
því ættum við ekki að geta gert það
aftur,“ sagði þjálfarinn.
Þannig vörðu þeir
Bergsveinn Bergsveinsson, UMFA
12/1 (3/1): (6 langskot, 2 úr horni, 1
af línu, 2 (2) eftir gegnumbrot, 1 (1)
víti.
Guðmundur Hrafnkclsson, Val 5/1
(1): 4 (1) langskot, 1 víti.
Valur B.
Jónatansson
skrifar
KORFUKNATTLEIKUR
Riley fékk góða gjöf
„ÞEIR hreinlega yfirspiluðu okk-
ur. Miami er mjög gott og hug-
myndaríkt lið,“ sagði Grant Hill,
leikmaður Detroit Pistons, eftir
að hann og félagar máttu þola
tap fyrir Miami Heat 102:93.
Leikmenn Heat, sem eru að
berjast um að komast í úrslita-
keppnina, gáfu þjálfara sfnum
sigur í afmælisgjöf. Pat Riley
hélt upp á 51. afmælisdag sinn.
Chris Gatling og Alonzo Mourn-
ing skoruðu sín 24 stigin hvor
fyrir Miami Heat, sem hefur tekið
stakkaskiptum eftir hinar miklu
breytingar sem gerðar voru á liðinu
á dögunum., „Það tekur sinn tíma
að fínpússa leik liðsins eftir breyt-
ingarnar, þetta er allt að smella sam-
an,“ sagði Mourning. Grant Hill og
Allan Houston skoruðu 21 stig hvor
fyrir Detroit.
Patrick Ewing skoraði 31 stig og
John Starks 19 fyrir New York
Knicks, sem vann Indiana Pacers
102:99. Þetta var fjórði sigurleikur
Knicks undir stjórn nýja þjálfarans
Jeff Van Gundy, sem var ánægður
og sagði: „Ef liðið heldur áfram að
leika þannig á það möguleika á
meistaratitli." Anthony Mason skor-
aði 16 stig og tók níu fráköst fyrir
New York og Derek Harper skoraði
12 stig og átti níu stoðsendingar.
Reggie Miller skoraði 25 stig fyrir
Indiana og átti átta stoðsendingar
og Derrick McKey skoraði 20 stig.
Karl Malone skoraði 24 stig fyrir
Utah Jazz, sem lagði Philadelphia
76ers 107:84 í miklum baráttuleik.
Jeff Hornacek hjá Utah og Jerry
Stackhouse hjá 76ers voru reknir
af leikvelli í þriðja leikhluta, eftir
átök.
David Robinson skoraði 33 stig
fyrir San Antonio Spurs úti gegn
Washington Bullets, 112:101, og
Avery Johnson skoraði 19 stig og
átti tíu stoðsendingar. Gheorghe
Muresan skoraði 30 stig og tók tólf
fráköst fyrir Washington.
Penny Hardaway skoraði 35 stig
fyrir Orlando Magic, sem vann Bos-
ton Celtics 102:90 í Boston. Shaqu-
ille O’Neal skoraði 28 stig, tók fjórt-
án fráköst og átti átta stoðsending-
ar, persónulegt met, og Horace
Grant skoraði 19 stig og tók tíu frá-
köst.
íkvöld
Handknattleikur
Brslitakeppni karla, annar leikur:
KaplakrikriFH - KA..................20.30
Körfuknattleikur
Úrslitakeppni karla, 4. leikur:
Keflavík: Keflavík - UMFN..............20
Blak
Úrslitakeppni karla, 2. leikur:
Ásgarður: Stjarnan - Þróttur...........20
Úrslitakeppni kvenna, 1. leikur:
Digranes: HK - Þróttur..............21.30
Borðtennis
íslandsmótið hefst í kvöld kl. 19.30.
íþróttir fatlaðra
íslandsmót íþróttasambands fatlaðra hefst í dag,
ú Akranesi kl. 15 og í Reykjavík kl. 18.15 en
þar verður keppt í sundi.
Knattspyrna
Reykjavíkurmót karla
A-deiId:
Gervigrasið: Fylkir - Þróttur.........20.30
B-deiId:
Leiknisv.: Víkingur - Léttir..........20.30
SKÍÐAGÖNGUKENNSLA
Auður Abenezersdóttir verður á vegum Skíða-
sambandsins á Austurlandi um helgina. Kennt
verður í Oddskarði á morgun og á sunnudag við
skíðaskála Seyðfirðinga í Stafdal. Kennsla verður
á báðum stiiðum kl. 11-12, 12.30-13.30 og 14-15.
ÍÞRÓTTIR
Fjórum sagt upp
RÓBERTI Sighvatssyni og Alexei Trúfan, leikmönnum UMFA, var
í gær sagt upp störfum við íþróttamiðstöðina að Varmá í Mos-
fellsbæ. Um leið var Davíð B. Sigurðssyni forstöðumanni og Matthí-
asi M. Guðmundssyni einnig sagt upp en þeir eru báðir liðsstjórar
Aftureldingarliðsins. Var þetta gcrt sama dag og félagið lék annan
leik sinn gegn Val í undanúrslitum íslandsmótsins. Þótti ýmsum
að Varmá i gærkvöldi tímasetning bæjarsljórnar á uppsögnunum
koma á einkeimilegu auknabiiki.
Á liðnu hausti fór fram úttekt á rekstri íþróttamarinvirkja Mos-
fellbæjar og í niðurstöðu hennar þótti launakostnaður vera hár. í
framhaldinu vann bæjarstjórn að tillögum að breytingum á rekstri
mannvirkjanna og var niðurstaðan kynnt í gær og öllu starfsfólk-
inu, á annan tug, sagt upp og taka uppsagnirnar gildi um næstu
mánaðarmót.
Jóhann nefbrotinn
JÓHANN Samúelsson úr Aftureldingu lék með grímu gegn Valsmönnum
í gærkvöldi. Ástæðan var sú að hann nefbrotnaði í fyrsta leik liðanna að
Hlíðarenda á þriðjudagskvöld. Hann lék með grímu í fyrri hálfleik til að
hlífa nefinu, en fannst hún trufla sig og tók hana því niður í hálfleik. Eftir
hlé gekk betur hjá honum að skora því hann setti þrjú mörk í síðari hálfleik
en aðeins eitt í þeim fyrri.
KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNIN
Reuter
BRUNO N’Gotty, fyrirliði PSG, er hér í baráttu við Massimo
Bramdilla og Dino Baggio hjá Parma í leik liðanna í gær.
Frakkar með þijú
lið í undanúrslit
Urslitakeppnin
í handknattleik
Annar leikur liðanna
í undanúrslitum
íslandsmótsins,
leikinn í Mosfellsbæ
fimmtudaginn
21. mars1996.
Afturelding
Valur
Mörk Sóknir % Mörk Sóknir %
11 21 52 F.h 13 21 62
11 21 52 S.h 12 22 54
22 42 52 Alls 25 43 58
SOKNARNYTING
10
2
2
0
3
5
Langskot
Gegnumbrot
Hraðaupphlaup
Horn
Lína
Víti
PARIS St. Germain varð í gærkvöldi þriðja franska knattspyrnuliðið
sem komst í undanúrslit Evrópumótanna í knattspyrnu í þessarri
viku er það lagði Parma með þremur mörkum gegn einu í Evrópu-
keppni bikarhafa. PSG var um leið annað franska liðið sem kemst
áfram á kostnað ftalsks liðs. í hinum leikjum keppninnar lagði Fey-
enoord Borussia Mönchengladbach 1:0 og heldur áfram keppni.
Rapid frá Vín burstaði Dynamo Moskvu 3:0 og heldur áfram eins
og La Coruna sem krækti íjafntefli gegn núverandi Evrópumeist-
urum bikarhafa Real Zaragoza og sendi þá um leið út í kuldann.
Brasilímaðurinn Rai skoraði tvö
mikilvæg mörk úr vítaspyrnu
fyrir PSG í viðureigninni gegn
Parma. Með markinu úr fyrri spyrn-
unni á 9. mínútu opnaði hann marka-
reikning liðsins en hin síðari tryggði
sigurinn á 68. mínútu. í millitíðinni
KNATTSPYRNA
Bræöur í landsliðshópi Englands
26 ár síðan að Charlton-bræðurnir léku saman landsleik
Paul Ince, fyrrum leikmaður
Manchester United, sem leikur
með Inter Mílanó, hefur verið kallað-
ur á ný í enska landsliðið, eftir að
hafa staðið utan þess í eitt ár. Þá
hefur Terry Venebles, landsliðsþjálf-
ari, valið bræðurna Gary og Phil
Neville, Man. Utd., í 26 manna lands-
liðshóp fyrir vináttuleik gegn Búlgar-
íu á Wembley á miðvikudaginn.
Þeir eiga möguleika á að verða
fyrstu bræðurnir til að leika saman
landsleik fyrir England síðan Bobby
og Jack Charlton léku saman fyrir
26 árum - Bobby sem leikmaður
Man. Utd. og Jack sem leikmaður
Leeds. Þeir urðu heimsmeistarar
1966 á Wembley. Þetta er í fyrsta
skipti sem Phil Neville er kallaður
til liðs við landsliðið, einnig Robbie
Fowler, miðherji Liverpool, og Ugo
Ehiogu, Aston Villa, fyrrum fyrirliði
21 árs landsiiðsins. Bobby Charlton
segir að það sé góður möguleiki á
að þeir bræður leiki gegn Búlgaríu.
„Þeir eru báðir miklir keppnismenn
og góðir leikmenn. Við Jack vorum
alltaf stoltir þegar við lékum fyrir
hönd Englands, ég veit að það sama
verður með þá bræður."
Gary, 21 árs, bakvörður, hefur
leikið einn landsleik. Phil, sem er
miðvallarspilari og varð 19 ára í jan-
úar, hefur aðeins leikið sextán leiki
með Man. Utd. Þess má geta að
bræðurnir Denis og Les Compton
léku saman í liði sem keppti fyrir
hönd Englands, ekki í leik sem var
skráður landsleikur.
Ian Walker, markvörður Totten-
ham, og Trevor Sinclair hjá QPR eru
einnig í hópnum, þeir hafa ekki leik-
ið landsleik.
Þar sem miðverðirnir Tony Ad-
ams, Arsenal, og Gary Pallister,
Man. Utd., eru frá vegna meiðsla,
hefur Venables kallað á Mark
Wright, Liverpool, sem hefur ekki
leikið landsieik í þrjú ár. Félagi hans
Jamie Redknapp og David Platt,
Arsenal, eru komnir á ný í landsliðs-
hópinn eftir fjarveru vegna meiðsla.
Annars er landsliðshópurinn skipað-
ur þessum leikmönnum: David Sea-
man, Ian Walker og Tim Flowers,
markverðir. Aðrir leikmenn eru Rob
Jones, Steve Howey, Stuart Pearce,
Phil Neville, Mark Wright, Gareth
Southgate, Ugo Ehiogu, Gary Ne-
ville, Steve Stone, Trevor Sinclair,
Jamie Redknapp, Paul Gascoigne,
David Platt, Paul Ince, Dennis Wise,
Peter Beardsley, Robbie Fowler, Al-
an Shearer, Les Ferdinand, Teddy
Sheringham, Robert Lee, Steve
McManaman og Nicky Barmby.
hafði Patrice Loko skorað annað
mark Frakkanna á 37. mínútu. Ales-
sandro Melli klóraði reyndar í bakk-
ann fyrri Parma á 27. mínútu en
þeim tókst ekki að skora fleiri og
verða að sætta sig við að falla nú
úr keppni eftir að hafa leikið til úr-
slita í einhverju stórmóti síðastliðin
þrjú ár.
Annar Brasilíumaður, Bebeto,
setti mark sitt á leikina í Evrópu-
keppninni í gærkvöldi. Hann jafnaði
fyrir félag sitt La Coruna í viðureign
þess við meistara síðasta árs, Real
Zaragoza.
Varamaðurinn Orlando Trustful
skoraði eina mark leiksins er Fey-
enoord sigraði Gladbach í Rotterd-
am. Mark Trustful skoraði hann sex
mínútum eftir að hann kom inn á
78. mínútu. Fyrri leikur liðanna
endaði með jafntefli 2:2. Þar með
er ljóst að Þjóðverjar eru aðeins
með eitt liða eftir í fjögurra liða
úrslitum Evrópumótanna líkt og ít-
alir.
Dynamo Moskva átti undir högg
að sækja lengst af gegn frískum
leikmönnum Rapid frá Vín og geta
þeir sjálfum sér um kennt. Á 29.
mínútu fékk Dmitri Cheryshev að
líta rauða spjaldið hjá dómaranum
fyrir brot á leikmanni Rapid. Einurn
færri voru Dynamómenn Rapid-
drengjum engir fyrirstaða sem
gerðu 3 mörk gegn engu. Sjö mínút-
um fyrir leikslok fékk einn leikmað-
ur úr hvoru liði að yfirgefa völlinn
með skömm í hatti eftir slagsmál.
Föstud. 22. mars í Kaplakrika kl. 18.30 FH - GSS (Grænlandi) mffl. kvenna.
kl. 19.30 Rdíusbræður hita upp.
kl. 20.30 FH - KA mffl. karla.
FH-bolir seldir í anddyrinu á kr. 200 (tombóluverð).
Stuðningsmenn, mætum tímanlega og sköpum stemmingu.
Handhafar dómarakorta sæki miða kl. 17.00-18.00 í Sjónarhól.
Miðaverö
600 kr. fullorðnir / 200 kr. börn.
SPARISJÓÐUR HAFNARFJARÐAR