Morgunblaðið - 02.04.1996, Page 1
If
:•?
Vi
f
&
V
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1996 M ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL
KNATTSPYRNA
Aftur skorar
Eiður Smári
EIÐUR Smári Guðjohnsen skoraði
annað mark sitt í hollensku deild-
arkeppninni á laugardaginn þegar
hann innsiglaði sigur PSV á Will-
em II Tilburg. „Eftir að ég hafði
sent boltann utan af kantinum og
inn á miðjan vallarhelming þeirra
fékk ég knöttinn aftur inn í teign-
um og lagði hann framhjá mark-
verðinum," sagði Eiður Smári, en
hann var nú í þriðja sinn í röð í
byrjunarliði PSV. „Það eru sex
umferðir eftir og við höldum enn
í vonina um að geta krækt okkur
í meistaratitilinn."
Eiður sagði þjálfara PSV sáttan
við frammistöðu hans. „Það er gíf-
urlega þreytandi að leika svona
leik eftir leik, en þetta er samt
skemmtileg og góð reynsla."
Þorbjörn
Atli með
þrjú mörk
ÞORBJÖRN Atli Sveinsson, Fram,
hefur skorað þijú mörk í fyrstu
tveimur leikjum unglingalands-
liðsins i knattspyrnu á alþjóðlegu
móti á Ítalíu - hann skoraði tvö
mörk í gær gegn Tyrklandi, 4:1.
Valur Fannar Gíslason, Fram, og
Haukur Ingi Guðnason, Keflavik,
skoruðu sitt hvort markið. Þor-
björn Atli skoraði gegn Sviss í
fyrsta leiknum, sem Svisslending-
ar unnu 2:1.
HANDKNATTLEIKUR
AFREKSMANNASJOÐUR ISI
FRÍ fær milljón
Morgunblaðið/Bjarni
Ráðast
úrslitin
í kvöld?
A'ALTÖLUR
BÓMUSTÖLUH
pa Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæ>
; j "I . 6 af 6 3 16.540.000
r O 5 af 6 i *-■* bónus 0 808.152
. 3. 5»'6 2 105.810
; 4. 4 0,6 229 1.470
C 3af6 1 O. + bónus 803 170
Samtals: 1.037 51.112.912
HéiidarvinhtnqsUpþhæ: Á ístandi:
51.112.912 1.492.912
VINNINGSTÖLUR
VIKUNA
26.03.-1.04.
98
UPPLfSINGAR
• Einn hlatft bónusvinnincjinn oy fékk hánri
í sinn hlut kr. 2CÖ.810. Vinningsmi>inn var
seldur í soluturninum Hríngbraut,
Hringbraut 14 i Hafnarfir’i.
• Athucji- a> lottó-sölukerfi- ver>ur loka>
á skírdacj ocj föstudaginn lancja, en öftb
ver>ur á laucjardayinn fyrir páska.
Afreksmannasjóður íþróttasam-
bands íslands ákvað á fundi
sínum í gær að veita þremur sér-
samböndum styrk, alls 1.325.000
krónur. Afreksmannasjóður hefur
því veitt sérsamböndunum og af-
reksfólki innan þeirra vébanda tæp-
ar sjö milljónir í styrki fyrstu þrjá
mánuði þessa árs.
Frjálsíþróttasambandið fær eina
milljón króna til að standa undir
kostnaði við lokaundirbúning frjáls-
íþróttafólksins fyrir Ólympíuleikana
í Atlanta í sumar. FRÍ fékk 3,2
milljónir í janúar vegna undirbún-
ings íþróttafólksins og hefur því
fengið 4,2 milljónir frá áramótum.
Júdósambandið fær 200.000
krónur vegna lokasprettsins í undir-
búningi Vernharðs Þorleifssonar og
Bjarna Friðrikssonar, en þeir eru í
mikilli baráttu um að komast á
Ólympíuleikana. JSÍ fékk 440.000
króna styrk í janúar.
Sundsambandið fékk 125.000
krónur í gær vegna Elínar Sigurðar-
dóttur, en hún hefur tryggt sér sæti
í Ólympíuhópi SSÍ. Sambandið fékk
500.000 í janúar vegna fjögurra
sundmanna, Eydísar og Magnúsar
Konráðsbarna, feoga Jes Kristjáns-
sonar og Arnars Freys Ólafssonar,
eða 125.000 krónur á mann og nú
kemur annað eins vegna Elínar.
Stefán Konráðsson, fram-
kvæmdastjóri ÍSÍ, sagði í gærkvöldi
að þessir styrkir væru „beinharðir
peningar" þannig að þeir ættu að
nýtast afreksfólkinu vel. Stefán
sagði að ÍSÍ hefði veitt 56 milljónir
í styrk til afreksfólks í íþróttum
síðustu fimm árin.
VALSMENN eru með vænlega
stöðu í úrslitarimmunni gegn KA
um Islandsmeistaratitilinn í
handknattleik, hafa sigrað í
tveimur fyrstu leikjunum. Liðin
mætast þriðja sinni í kvöld á
Akureyri og sigri V'alur verður
liðið íslandsmeistari fjórða árið
í röð, en sigri KA þarf að minnsta
kosti einn leik til viðbótar og
verður hann að Hlíðarenda á
fimmtudaginn.
■ Valsmenn / B5
FIMLEIKAR: RÚIMAR NORÐURLAIMDAMEISTARIÁ BOGAHESTI / B4