Morgunblaðið - 02.04.1996, Page 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
BIKARBARÁTTA Á WEMBLEY laugardaginn 11. maí
Manchester Utd. leikur nú til úrslita þriðja árið í röð.
Everton lék þann leiksíðast liða, árin 1984 til 1986.
Fyrri bikarúrslitaleikir liðanna
Sigrar: Töp: Sigrar: Töp:
1909 1957 1965 1914
1948 1958 1974 1950
1963 1976 1986 1971
1977 1979 1989 1977
1983 1995 1992 1988
1985 """ 111
1990 Manchester Utd. vann Liverpool 2:1
1994 í bikarúrslitaleiknum árið 1977.
LONDON
Wembley H
Manchester
United
Liverpool
iJ
BIKARURSLITALEIKIR
á Wembley frá 1988
1995 Everton-Manch. Utd. 1:0
1994 Manch. Utd.-Chelsea 4:0
1993 Arsenal-Sheffield Wed. 2:1*
Arsenal-Sheffield Wed. 1:1
1992 Liverpool-Sunderland 2:0
1991 Tottenham-Nott. Fonest 2:1*
1990 Man. Utd.-Crystal Palace 1:0
Man. Utd.-Crystal Palace 3:3
1989 Liverpool-Everton 3:2*
1988 Wimbledon-Liverpool 1:0
_________________' Framlcrigdur Imkur
□ Manchester
■ KEFL VÍKINGAR hafa ekki oft
tapað með eins miklum mun í körfu-
knattleik og gegn Grindvíkingum á
sunnudaginn. Þriðjudaginn 2. apríl
1991 tapaði lið þeirra þó með 37
stiga mun fyrir Njarðvík í fyrsta
úrslitaleik liðanna, en leikinn var í
Njarðvík. Heimamenn höfðu 39:37
yfir í leikhléi og sigruðu.síðan 96:59.
Til gamans má geta þess að sömu
dómarar dæmdu þá og á sunnudag-
inn og , fengu ágætis dóma fyrir
frammistöðu sína.
■ KEFL VÍKINGAR voru mjög
óánægðir með dómarana og bentu á
að tíu villur voru dæmdar á þeirra lið
i fyrri hálfleik en aðeins tvær á
Grindvíkinga. Þegar leik lauk kom
í ljós að 24 villur voru dæmdar á
heimamenn og níu á gestina.
■ ANNAÐ sem vakti athygli var
að Keflvíkingar fengu ekki eitt ein-
asta vítaskot í leiknum en Grindvík-
ingar fengu 34.
■ MIKIL óánægja var í Keflavík
og í Grindavík vegna þess að leik-
urinn var kl. 16 en ekki um kvöldið.
Bæði félögin reyndu að fá leiknum
seinkað til kl. 20 vegna þess að ver-
ið var að ferma í báðum byggðarlög-
unum, en það fékkst ekki þar sem
Stöð 2 sýndi leikinn í beinni útsend-
ingu.
■ EINN forsetaframbjóðandi fylgd-
Mm
FOLK
ist með leiknum á sunnudaginn, 01-
afur Ragnar Grímsson mætti og
vísuðu Keflvíkingar honum til sætis
í stúkunni - innanum stuðningsmenn
sigurvegaranna.
■ ÞORSTEINN G. Gunnarsson,
útvarpsmaður með meiru, mun á
næstunni taka við starfí Gunnlaugs
Grettissonar hjá IFA (íþróttir fyrir
alla).
■ TVEIR starfsmenn, Barbara
Wdowiak og Edda Jónsdóttir, hafa
nýlega verið ráðnir til starfa á skrif-
stofu Ólympíunefndar íslands.
■ BJARKI Gunnlaugsson kom inn
á sem varamaður á 78. mín. hjá
Mannheim sem vann Liibeck 2:0 í
þýsku 2. deildinni um helgina. Mann-
heim er í 12. sæti deildarinnar með
27 stig. __
■ EYJÓLFUR Sverrisson lék allan
leikinn með Hertha Berlín sem gerði
markalaust jafntefli við Mainz. Ey-
jólfur lék í fremstu víglínu. Hertha
er í 11. sæti með 27 stig. Bochum,
sem lék ekki um helgina, er í efsta
sæti deildarinnar með 45 stig.
■ DAMON Hill frá Bretlandi sigr-
aði í Formula 1 kappakstrinum í
Sao Paulo í Brasilíu á sunnudag-
inn. Þetta var annar sigur ökuþórsins
í röð. Hann kom í mark meira en
17 sekúndum á undan Jean Alesi,
sem varð annar. Heimsmeistarinn
þýski, Michael Schumacher, kom
þriðji í mark.
■ MARTIN Dahlin, sænski landsl-
iðsmaðurinn sem leikur með Boruss-
ia Mönchengladbach, er á leið til
Juventus á Italíu. Talið er að hann
hafi náð samkomulagi við félagið.
■ PAUL Tergat, hlaupari frá
Kenýa, sigraði í hálfmaraþoni í
Mílanó á Italíu á laugardaginn og
setti um leið nýtt brautarmet, hljóp
á 58,51 mínútu og bætti met landa
síns, Moses Tanui, frá því 1993 um
eina mínútu.
■ KALMAN Meszoly, landsliðs-
þjálfari Ungverja í knattspyrnu, var
rekinn um helgina vegna lélegs
árangurs landsliðsins undir hans
stjórn. Liðið náði ekki að komast í
úrslit Evrópumótsins og hefur ekki
komist í úrsiit HM síðan 1986. í frétt
Reuters segir að síðustu tvö árin
hafi liðið mátt þola tag gegn þjóðum
eins og Slóveníu og Islandi.
KEFLAVÍK
Körfuboltastelpurnar _ frá
Keflavík urðu íslands-
meistarar í meistaraflokki
kvenna á sunnudaginn og þykir
það vart fréttnæmt lengur. Lið
Keflavíkur hefur borið
höfuð og herðar yfir önn-
ur lið hér á landi undanf-
arin ár og hefur liðið
orðið sjö sinnum íslands-
meistari síðustu níu árin,
og bikarmeistaratitlarnir
eru einnig sjö á níu
árum. Árið 1991 er eina árið
þar sem Keflavíkurliðið vann
hvorki deild né bikar. Slíkum
árangri hefur ekkert lið náð, en
KR-stúlkur urðu átta sinnum
íslandsmeistarar á níu árum, frá
1979 til ársins 1987, og ijórum
sinnum urðu þær bikarmeistarar
á þessum árum.
Já, árangur Keflvíkurstúlkna
er frábær og það virðist ekki
skipta miklu málu þótt nokkrar
stúlkur fari úr liðinu - ungu
stelpumar eru tilbúnar að taka
við. Talsverðar breytingar hafa
orðið á liði Keflvíkinga á milli
ára þennan áratug, en kjölfestan
hefur alltaf verið til staðar, þær
stöllur Anna María Sveinsdóttir
og Björg Hafsteinsdóttir. Björg
skipti raunar í KR fyrir nokkru
en var þar aðeins I hálfan vetur
og sneri þá á ný til Keflavíkur.
Anna María og Björg hafa
verið með meistaraflokki síðan
hann var stofnaður árið 1985.
Það ár lék liðið í 2. deild og fór
strax upp í þá fyrstu og varð
síðan íslandsmeistari árið 1988,
eftir tvö ár í deildinni. Þá voru
þær Anna María og Björg í yngri
flokkunum en fengu að leika
með meistaraflokki. Nú eru þær
orðnar „gömlu“ konurnar í ís-
lenskum körfuknattleik en láta
samt engan bilbug á sér finna
og í ár stjórnuðu þær liðinu til
sigurs á þrennum vígstöðvum
því liðið varð einnig deildar-
meistari. Það er vart hægt að
ná betri árangri en Keflavíkurl-
iðið gerði í vetur.
Sigurður Ingimundarson hef-
ur verið þjálfari stúlknanna und-
anfarin fimm ár og hann á mik-
inn þátt í velgengni liðsins. Síð-
an hann tók við hefur liðið misst
af tveimur titlum, bikartitlinum
árið 1992 og íslandsmeistara-
titlinum í fyrra.
Keflavík er mikill körfuknatt-
leiksbær, og raunar má segja
það sama um bæði Njarðvík og
Grindavík. Keflvíkingar hafa
einatt átt fjöldann allan af ís-
landsmeisturum í öllum flokkum
og uppistöðunni í þeim titlum
sem unnist hafa í gegnum árin
hafa stúlknalið félagsins skilað.
Unglingastarfið hefur því verið
mikið og það hefur skipt sköpum
fyrir félagið. Það virðist ekki
hafa skipt máli þótt einhveijar
stúlkur hafi hætt eða skipt yfir
í annað félag, alltaf hafa ungar
stúlkur tekið við og fyllt það
skarð sem aðrar skildu eftir.
Keflvíkingar eiga möguleika
á að vinna tvöfallt í karlaflokki
því þar eru þeir í baráttu við
Grindvíkinga og er staðan jöfn,
1:1. Það væri ekki amalegt fyrir
hið nýja bæjarfélag, Reykja-
nesbæ, að fá sex bikara í meist-
araflokki í körfuknattleik eftir
veturinn, því Njarðvík varð
deildarmeistari karla. Sannar-
lega glæsilegur árangur, þó svo
bikararnir yrðu bara fimm.
Skúli Unnar
Sveinsson
Uppbyggingin
hjá stúlkunum í
Keflavík er einstök
Hvers vegna valdi ERLA REYIMISDÓTTIR körfuboltann frekaren fótboltann?
Körfuboltinn
skemmtilegri
ERLA Reynisdóttir er ein af máttarstólpum íslands-, bikar-
og deildarmeistara Keflavíkur íkörfuknattleik kvenna. Hún lék
mjög vel ífjórða úrslitaleik Keflavíkurog KR í Hagaskóla á
sunnudagskvöldið en íþeim leik tryggði Keflavíkuriiðið sér
meistaratitilinn. Erla er sautján ára gömul, stundar nám við
félags- og viðskiptabraut Fjölbrautaskóla Suðurnesja og hefur
æft körfuknattleik í sjö ár. Hún byrjaði að leika með meistara-
flokki Keflavíkur fyrir þremur árum og strax á fyrsta ári varð
hún íslands- og bikarmeistari. Hún leikur í stöðu skotbakvarð-
ar og hefur leikið 2 A-landsleiki og 15 unglingalandsleiki.
Erla býr enn í húsum foreldra
sinna. „Það er sjálfsagt að
nota aðstöðuna meðan ég er í
skóla,“ segir hún.
Foreldrar hennar
eru þau Helga
Ragnarsdóttir og
Reynir Ólafsson
og kærasti Erlu er Eiríkur Daníel
Kristinsson. Keflavíkurliðið sigr-
aði KR I tveimur fyrstu viðureign-
um liðanna um íslandsbikarinn
en tapaði síðan þriðja leiknum á
heimavelli á föstudaginn, leik sem
þær ætluðu að vinna. Var tapið í
þeim leik ekki vonbrigði?
„Tapið á föstudaginn var okkur
mikil vonbrigði en við getum sjálf-
um okkur um kennt því eftir tvo
auðvelda leiki á undan var eins
og við reiknuðum með að sigurinn
kæmi af sjálfum sér.“
Hver var þá skipunin sem þið
fenguð fyrir fjórða leikinn?
„Hún var sú að leggja sig allar
fram og koma bijálaðar til leiks.
Strax í upphafi lékum við svæðis-
vöm sem gekk frábærlega og við
náðum forystu 19:0 og eftir það
gekk allt upp og við unnum stór-
sigur, 70:37.“
Hver er lykillinn að velgengni
Keflavíkur í kvennakörfunni und-
anfarin ár?
„Liðið er vel samæft með leik-
mönnum sem þekkja vel hver
annan og margar hafa verið lengi
í þessu. Sigurður Ingimundarson
þjálfari hefur þjálfað liðið í nokk-
ur ár og gert góða hluti. Þá má
Eftir
ívar
Benediktsson
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
GLAÐBEITTUR íslandsmeistari í körfuknattleik, Erla Reyn-
isdóttlr, slakar á fyrir utan heimlll sltt í gær.
ekki gleyma öflugu starfi í yngri
flokkunum.“
Ertu r.ú komin í sumarfrí frá
körfunni?
„Nei, sem betur fer. Nú taka
við æfingar hjá unglingalandslið-
inu en það fer út til írlands eftir
páska og tekur þátt í móti þar.
Síðan er ég að gera mér vonir
um að vera með A-landsliðinu á
Norðurlandamótinu í Svíþjóð í
maí. Það er skemmtilegt við
íþróttina að það tekur eitt við af
öðru og það er aldrei frí.“
Hvað varð þess valdandi að þú
byrjaðir í körfubolta?
„Fyrst og fremst það að mér
þótti körfubolti skemmtilegur.
Þegar ég var yngri æfði ég einnig
knattspyrnu en hætti því til þess
að geta verið í körfunni sem mér
líkaði betur. Þá hjálpaði einnig
áhugi og velgengni körfuboltans
hér í Keflavík."
Hefur þú einhver áhugamál
fyrir utan íþróttirnar?
„Skólinn og körfuboltinn taka
mikinn tíma þannig að þegar ég
á lausan tíma reyni ég að eyða
honum með kærastanum. Hann
leikur með unglingaflokki Njarð-
víkur og hefur einnig í mörg horn
að líta.“
Er engin rígur á milli ykkar,
hann í Njarðvík og þú í Keflavík?
„Jú, það kemur fyrir, einkum
þegar liðin eigast við eins og til
dæmis í úrslitakeppninni á dögun-
um. Þá vorum við ekki á sama
máli og ég hrósaði sigri.“