Morgunblaðið - 02.04.1996, Page 5
4 B ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL1996 B 5
FIMLEIKAR
íslendingar náðu besta árangri sínum á Norðurlandamóti fullorðinna ífimleikum í Laugardalshöll um helgina
Rúnar fyrsti
IMorðurlanda
meistarinn
RÚNAR Alexandersson sigraði
í æfingum á bogahesti og Elva
Rut Jónsdóttir og íslandsmeist-
arinn ífimleikum, Nína Björg
Magnúsdóttir, unnu báðar silf-
urverðlaun á jafnvægisslá á
Norðurlandameistaramótinu í
fimleikum sem fram fór f Laug-
ardalshöll um helgina. Nína
Björg varð fjórða í fjölþraut á
laugardeginum og vann sér
rétt til keppni á öllum fjórum
áhöldum á sunnudag. Var það
í fyrsta sinn sem íslenskum
fimleikamanni tekst það. Elva
Rut hafnaði í áttunda sæti í fjöl-
þrautinni og komst f úrslit á
jafnvægisslá. Árangur Rúnars
í fjölþrautinni á laugardeginum
olli vonbrigðum. Hann hafnaði
i tíunda sæti. En Rúnar bætti
það upp með öruggum sigri á
bogahesti í keppni einstakl-
inga, hlaut 9,61 einkunn, 0,6 á
undan næsta keppanda.
agnus Rosengren varð Norð-
urlandameistari í fjölþraut
karla, hlaut samtals 54,4 stig, en
annar varð Finninn
Jari Mönkkönen
með 53,7 eg í þriðja
sæti hafnaði Norð-
maðurinn Espen
Jansen, fékk 53,65 stig. Rúnar
Alexandersson hlaut 52,00 stig og
nægði það til tíunda sætis. Mestu
munaði um að honum tókst ekki
vel upp í stökki, fékk þar aðeins
7,95 stig. Fyrrum íslandsmeistari,
Guðjón Guðmundsson, kom næst á
eftir Rúnari í ellefta sæti með 50,0
stig.
En Rúnari varð ekkert á í mess-
unni í keppni á einstökum áhöldum
daginn eftir í keppni á bogahesti.
Auk hestsins komst hann í úrslit í
gólfæfingum. Á bogahestinum
framkvæmdi hann æfingar sínar
af örýggi og vann sannfærandi sig-
ur, fékk 9,6 í einkunn. „Ég er að
sjálfsögðu ánægður með gullið fyrir
æfingarnar á bogahestinum. Ég var
Ivar
Benediktsson
skrifar
staðráðinn í að vinna þá grein.
Árangurinn í gær var mér von-
brigði. Þetta var einfaldlega ekki
minn dagur,“ sagði Rúnar að keppni
lokinni. Hann varð fyrstur íslend-
ingurinn til að vinna gullverðlaun
á Norðurlandamóti í fimleikum full-
orðinna. Fjóla Ólafsdóttir náði þeim
áfanga 1988 að verða Norðurlanda-
meistari unglinga á tvíslá.
„Mér fannst ekki vera nein
pressa á mér í gær, ég gerði mistök
á tvíslánni þar sem ég hafði gert
mér vonir um að ná lengra og síðan
var stökkið lélegt hjá mér. Hestur-
inn og gólfið voru í lagi, gólfæfing-
arnar tókst betur en í dag,“ bætti
Rúnar við. Eins og hann sagði tókst
honum betur upp í gólfæfingum í
fjölþrautinni en í einstaklings-
keppninni á sunnudag. Þá hlaut
hann 9,0 á móti 9,2 daginn áður.
Meðal þess sem kom honum í koll
á sunnudeginum var að hann steig
tvisvar útaf gólfinu á meðan á æf-
ingum stóð og fyrir það voru dregn-
ir af honum 0,3.
Svíinn Magnus Rosengren lét
mjög að sér kveða seinni keppnis-
daginn er keppt var á einstökum
áhöldum. Hann vann gullverðlaun
í gólfæfingum og í stökki og brons
í æfingum í hringjum og á svifrá.
Hann var því eðlilega glaðbeittur í
mótslok - að fara heim með Norð-
urlandameistaratitilinn í flölþraut
og fern verðlaun að auki.
„Ég er mjög hamingjusamur með
árangurinn. Eg varð Norðurlanda-
meistari í fyrsta sinn í fjölþraut og
dagurinn í dag var góður,“ sagði
Rosengren. „Ég vissi fyrirfram að
ég ætti möguleika á Norðurlanda-
meistaratitlinum næði ég að leggja
mig allan fram. Keppnin var mjög
hörð en drengileg og mótshaldið
íslendingum til sóma.“
„Árangur minn er í samræmi við
það sem ég hafði gert mér vonir
um,“ sagði bronshafinn í fjölþraut,
Espen Jansen frá Noregi, en hann
krækti í tvenn silfurverðlaun í ein-
staklingskeppninni. Jansen er einn-
ig meistari í þolfimi og „freestyle"
dönsum í heimalandi sínu auk þess
að æfa thae-kwon-do. „Mér gengur
vel að samræma þetta allt, en ég
reikna ekki með því að vera með á
NM eftir tvö ár, ætli þetta sé ekki
í síðasta sinn sem ég keppi á NM
í fimleikum, þó veit maður aldrei,"
sagði hinn 27 ára gamli Norðmað-
ur, sem hefur æft fimleika í 20 ár.
HANDKNATTLEIKUR
RÚNAR Alexandersson fyrsti Norðurlandameistari Islendinga í fimleik-
um fullorðinna er hér að ofan í siguræfingum sínum á Norðurlandamót-
inu um helgina. Til hliðar er íslandsmeistari kvenna, Nína Björg Magn-
úsdóttir, í gólfæfingum en hún náði stóð sig einnig með glæsibrag á
mótinu.
Nína Björg Magnúsdóttir
Árangurinn kom á óvart
NÍNA Björg Magnúsdóttir íslands-
meistari í fimleikum undirstrikaði
í keppninni í fjölþraut á laugardag-
inn að hún er besta fimleikakona
landsins um þessar mundir. Hún
varð í fjórða sæti í fjölþraut og
náði í úrslit á sunnudeginum í öll-
um fjórum greinum fyrst íslenskra
kvenna. Síðast en ekki síst hlaut
hún silfurverðlaun fyrir æfingar á
jafnvægisslá ásamt Elvu Rut Jóns-
dóttur og finnsku stúikunni An-
nette Rajala en hún átti titil að
verja frá síðasta Norðurlandamóti.
Flennnning Solberg og Ólympíufari Norðmanna um framtíð Rúnars Alexanderssonar
Meðal átta bestu
Eg hef verið meiddur í ristinni
síðan um áramót og ekki getað
æft sem skyldi þess vegna. Ég
versnaði um síðustu helgi og þegar
ég kem heim eftir helgina fer ég í
ítarlega rannsókn hjá læknum. Eg
vona að þetta sé ekki alvarlegt,"
sagði Flemming Solberg 22 ára fim-
leikakappi frá Noregi, en árangur
hans var langt frá því að vera eins
góður og vonast hafði verið eftir.
Hann varð fjórtándi í ijölþrautinni
en tókst að sigra í einni grein í ein-
staklingskeppninni, á tvíslá. Solberg
er eini fímleikamaðurinn frá Norð-
urlöndunum sem hefur unnið sér
keppnisrétt í karlaflokki á Ólympíu-
leikunum í sumar. „Vegna meiðsl-
anna get ég ekki hiaupið og á erfítt
með að stökkva, en stökk hefur ein-
mitt verið mín besta grein.“
Solberg var spurður um Rúnar
Alexandersson og hvaða álit hann
hefði á honum í framtíðinni. „Hann
er að mínu mati einn af átta bestu
fimleikamönnum heims á bogahesti,
en hann vantar talsvert upp á í
öðrum greinum. Rúnar er ungur að
árum og á framtíðina fyrir sér í fim-
leikumn. Hann þarf hins vegar að
leggja hart að sér við æfingar og
keppni.
Óvæntur sigur á tvíslá
Nauðsynlegt er fyrir hann að
keppa sem mest erlendis og koma
sér inn á landakortið í fimleikaheim-
inum og vekja athygli á sér meðal
dómara og annarra sem standa að
íþróttinni. ísland er ekki þekkt í fim-
leikaheiminum og bara þess vegna
tekur tíma fyrir hann að sanna sig.“
„Ég gerði mér vonir um að sigra
í fjölþrautinni og það gekk eftir og
því get ég ekki annað en unað glöð
við mitt,“ sagði danska stúlkan
Charlotte Andreasen. Auk sigursins
í fjölþrautinni bar hún sigur úr být-
um í stökki á jafnvægislá, þá varð
hún þriðja í gólfæfingum. „Gólfæf-
ingarnar gengu ekki vel hjá mér, en
1 þeim hafði ég gert mér vonir um
sigur, en mér tókst að sigra á tvísl-
ánni í staðinn og það var nokkuð
sem ég bjóst ekki við. Mótið var í
heildina frábært en þetta var í ann-
að sinn sem ég tek þátt í NM fullorð-
inna. Fyrsta mótið var árið 1992
en á síðasta móti var ég handleggs-
brotin," sagði þessi átján ára drottn-
ing fimleikanna á Norðurlöndum,
en hún hefur æft fimleika síðan hún
var fimm ára.
Valur með vænlega stöðu
Fjórði meistaratitill Valsmanna á jafnmörgum árum ervið þröskuldinn að Hlíðarenda
VALSMENN eru komnir með
aðra höndina á íslandsbikarinn
eftir öruggan sigur á KA 26:23
í öðrum leik liðanna í úrslitum
um meistaratitilinn að Hlíðar-
enda á laugardaginn. Valsmenn
þurfa aðeins einn sigur svo þeir
geti fagnað meistaratitlinum
fjórða árið f röð. KA-menn geta
bitið frá sér og hafa oft sýnt það
og sannað í vetur, en hins vegar
hafa þeir ekki átt svar við góðum
leik Valsmanna í tveimur fyrstu
úrslitaleikjunum. Þriðja lota lið-
anna er á Akureyri í kvöld og
þá er að duga eða drepast fyrir
KA.
Frábær vamarleikur, góð mark-
varsla Guðmundar Hrafnkels-
sonar og stórleikur Dags Sigurðsson-
ar í sókninni lagði
grunninn að sigri
Valsmanna. Hlíðar-
endastrákarnir tóku
leikinn strax í sínar
hendur og náðu fimm marka forskoti
strax um miðjan fyrri hálfleik. Það
bil náðu KA-menn ekki að brúa og
leikurinn aldrei spennandi því yfir-
burðir Valsmanna voru einfaldlega
allt of miklir.
Leikurinn var jafn á upphafsmín-
útunum eða allt þar til staðan var
jöfn, 5:5, og tíu mínútur liðnar. Þá
var Alfreð Gíslasyni vikið af leikvelli
og mínútu síðar fékk Patrekur sömu
meðferð. Þetta nýttu Valsmenn sér
vel og gerðu fimm rnörk í röð og
breyttu stöðunni í 10:5. Þetta var
vendipunkturinn í leiknum og KA-
menn áttu alltaf á brattan að sækja
eftir það. Staðan í hálfleik var 12:9.
í síðari hálfleik héldu Valsmenn
áfram þar sem frá var horfið í fyrri
hálfleik. Þeir voru ákveðnir og sýndu
Valur B.
Jónatansson
skrifar
Ég á þennan bolta...
ÞAÐ var lítið gefið eftir í baráttu leikmanna Vals og KA um
boltann að Hlíðarenda á laugardaginn. Valsmenn höfðu betur á
öllum sviðum. Hér reynir KA-maðurinn Leó Örn Þorleifsson á
ná til knattarins á undan Degi Sigurðssyni og Ólafi Stefánssyni.
oft frábær tilþrif. Mestur var munur-
inn sjö mörk, 23:16, þegar 8 mínútur
voru eftir. Þá gátu þeir leyft sér að
setja minni spámenn inn á og það
kom ekki að sök, þó svo að KA-menn
næðu að klóra í bakkann í lokin var
sigur Valsmanna aldrei í hættu.
Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson
FLEMMING Solberg gekk ekki heill til skógar á NM um helg-
ina en hlaut þó ein gullverðlaun.
„Árangurinn kom mér frekar á óvart því
ég er vön að vera mun neðar á Norðurlanda-
mótum. Það hafði mikið að segja að ég féll
ekkert í æfingunum á jafnvægisslá og stökkið
heppnaðist sérstaklega vel,“ sagði Nína Björg
i mótslok. „Ásamt silfurverðlaununum fyrir
æfingarnar ájafnvægisslá í einstaklings-
keppninni kom það mér mest á óvart að mér
tókst að komast í úrslit í öllum fjórum greinun-
um. Það var nokkuð sem ég bjóst ekki við.
Ástæðurnar fyrir þessum góða árangri mínum
eru nokkrar. Eg hef æft mjög vel og er með
góðan þjálfara. Þá voru áhorfendur frábærir
og hvöttu mig óspart.“
Nína sagði ennfremur að hún hefði farið í
gegnum mótið án þess að reyna neitt nýtt eða
taka einhveija áhættu. Hún hefði gert það sem
hún var viss um að geta. „Ég hef verið að
æfa æfingar með hærri erfiðleikagráðu en
gerði ekkert af þeim hér. Vonandi sýni ég þær
síðar. Það var helst í æfingum á tvíslá sem
ég hefði þurft að sýna erfiðari æfingar til að
ná lengra."
Nína hefur verið að velta fyrir sér að minnka
við sig ogjafnvel leggja fimleikabolinn til hlið-
ar, en verður þessi árangur um helgina til
þess að hún endurskoði hug sinn? „Já, kannski."
Hugsaði um að standa á slánni
„ÉG er nokkuð sátt, en árangurinn hefði get-
að verið betri. Ég var svolítið taugatrekkt í
æfingunum á jafnvægisslánni og hugsaði bara
um það eitt að standa,“ sagði Elva Rut Jóns-
dóttir, en hún hlaut silfurverðlaun við þriðja
mann fyrir æfingar á jafnvægisslá. Hún varð
í áttunda sæti í fjölþraut og náði þar næst-
besta árangri íslensku stúlknanna á mótinu.
„Mér hefur ekki gengið svona vel á Norður-
landamóti fullorðinna fyrr. Ef ég hefði ætlað
mér að komast lengra í fjölþrautinni hefði ég
þurft að vera með æfingar með hærri erfið-
leikagráðu, en það má segja að ég hafi reynt
að komast öruggu leiðina í gegnum mótið og
ekki gert meira en ég var pottþétt á að geta
gert,“ sagði Elva Rut en hún á ein verðlaun
í safni sínu frá síðasta Norðurlandameistara-
móti unglinga.
„VÖRNIN var mjög góð fyrir framan mig og ég fann mig vel. Við
vorum éJkveðnir í að nýta okkur sigurinn á Akureyri til að ná yfir-
burðastöðu. Við ætlum okkur að klára dæmið í KA-húsinu á þriðjudag-
inn jí kvöldj svo við fáum gott páskafrí,“ sagði Guðmundur Hrafn-
kelsson markvörður Vals.
Dagiu* Sigurðsson átti einn besta leik sinn á tímabiliuu. Hann gerði
niu mörk, þar af sex í síöari hálfleik. „Við höfum verið að spila
nýög vel að undanförnu. Þetta hafa verið erfiðir leikh-, enda ekkert
gefið. Við klipptum xit hornamennina þjá þeim og spiluðum varnar-
leikinn aftarlega og lögðum áherslu á að stoppa Patrek og Duran-
ona. Við erum búnir að vinna þá tvívegis og við getum alveg bætt
við eínum sigri,“ sagði Dagur.
gekk eftir,“ sagði Jón Kristjánsson, þjálfari Vals. „Við erum með
þægilega stöðu og þurfum aðeins einn sigur í viðbót, Vömin og
markvarslan var horasteinninn að sigrinum, öfugt við fyrsta leikinn
fyrir norðan þvi þá var það sóknarleikurinn sem skipti sköpum. Það
gegn Aftureldingu í undanúrslitum. Sá skellur hefur greinilega haft
góð áhrif,“ sagði Jón.
Hræðíleg dómgæsla
Alfreð Gíslason, þjálfari KA, var að vonum svekktur eftir leikinn.
„Þetta er ekki sú staða sem ég hefði óskað mér. Það er Jjóst að við
verðum að spila betur ætlum við okkiu- að sigra Val. Þeir léku flata
vörn og við áttum að geta nýtt okkur það betur. Það vantaði snerpu
í sóknina. Duranona hefur verið mjög daufur og ekki fundið sig
nægilega vel.“ Alfreð var mjög ósáttur við dómgæsluna. „Þetta er
mesta heimadómgæsla sem ég hef orðið vitni að hér á landi fyrsta
stundarfjórðunginn í leiknum. Ég hef áður orðið vitni að svona hræði-
legri dómgæslu f Þýskalandi, en ekki hér á íslandi. Þetta dómarapar
á ekki að fá tækifæri til að dæma svona mikilvæga leiki. Ég vissi
það fyrir leikinn að þetta yi-ði svona og var búinn að segja mínum
mönnum það. Dómgæslan kom mér því ekki á óvart því þetta par
hefur dæmt þjá okkur áður í vetur. Við höfum ekki sagt okkar síð-
asta og ætlum okkur að mæta Val aftur að Hlíðarenda.“
Valsmenn hafa sýnt mjög góðan
leik í þessum tveimur fýrstu leikjum
iiðanna og eru á toppnum á réttum
tíma. Fátt virðist geta stöðvað þá
úr þessu. Varnarleikurinn var mjög
öflugur þar sem hornamenn KA voru
algjörlega ktipptir út úr leiknum, eins
og í fyrri leiknum. Auk þess komust
skyttur KA lítt áleiðis því þær fengu
lítinn tíma. Allir leikmenn Vals léku
vel og var liðsheildin aðal liðsins -
sigurviljinn ódrepandi. Enginn veikur
hlekkur og það er styrkleikarnerki.
KA-menn fundu ekki svar við leik
Vals. Þeir voru oft ráðvilltir í sóknar-
leiknum og það var aðeins Patrekur
sem var að reyna eitthvað. Duranona
fann sig ekki, hefur ekki sömu leik-
gleði og áður. Hann náði sér aldrei
á loft og þrumufleygar hans sáust
ekki. Guðmundur Arnar varði ágæt-
lega í markinu en betur má ef duga
skal. Norðanmenn verða að finna
svar við varnarleik Vals ætli þeir sér
að snúa blaðinu við. Þeir fá þann
möguleika í kvöld og ef þeir nýta sér
hann ekki er ævintýrið úti.
Þannig
vörðu þeir
Guðmundur Hrafnkelsson, Val
17/1 (9): 7(2) langskot, 4(3) eftir
hraðaupphlaup, 3(3) eftir gegnum-
brot, 1(1) af línu, 1 úr horni og 1
vítakast.
Guðmundur A. Jónsson, KA 16
(7): 8(3) langskot, 4(1) eftir hraða-
upphlaup, 3(2) úrhorni og 1 af línu.
Björn Björnsson, KA 2/2: 2 víta-
köst.
Morgunblaðið/Bjarni Eiriksson
ÍÞRÚmR
FOLK
■ KA-MENN gerðu níu mörk í
fyrri hálfleik gegn Val og skoruðu
Patrekur Jóhannesson og Julian
Duranona öll mörkin, Patrekur 4
og Duranona 5, þar af fjögur úr
vítaköstum. Þeir gerðu samtals 19
af 23 mörkum liðsins í leiknum.
■ ELLEFU af 12 útileikmönnum
Vals skoruðu í leiknum. Ari Allans-
son, sem lék síðustu mínúturnar,
fiskaði vítakast þegar leiktíminn
rann út. Hann kallaði á þjálfarann
og sagði: ,.Má ég taka það.“ Hann
fékk grænt ljós frá Jóni Kristjáns-
syni og skoraði úr vítinu af öryggi.
■ ANDREI Siiyak, landsliðsmað-
ur Hvít-Rússa í handknattleik, hef-
ur skrifað undir samning við þýska
félagið Lemgo um að leika með því
á næstu leiktíð.
■ STEFFI Graf frá Þýskalandi
sigraði á tennismóti á Flórída á
laugardaginn. Hún sigraði Chandu
Rubin frá Bandaríkjunum í úrslit-
um 6-1 og 6-3. Þetta var aðeins
annað mótið sem Graf tekur þátt í
á þessu ári og hún hefur unnið þau
bæði.
■ ANDRE Agassi sigraði á Lip-
ton-tennismótinu sem fram fór í
Key Biscayne á Flórída um helg-
ina. Hann vann fyrstu þijár loturn-
ar í fyrsta setti og var kominn í
40-0 í fjórðu lotu gegn Goran
Ivanisevic í úrslitum, en þá varð
Króat.inn að hætta vegna meiðsla.
Urslitakeppnin
í handknattleik
Annar leikur liðanna
í úrslitum
íslandsmótsins,
leikinn að Hlíðarenda
laugardaginn
30. mars 1996.
Valur
MörK Sóknir %
Mörk
KA
Sóknir %
SOKNARNYTING
12 24 50 F.h 9 24 37
14 24 58 S.h 14 24 58
26 48 54 Alls 23 48 48
7 Langskot 5
3 Gegnumbrot 5
4 Hraðaupphlaup 1
3 Horn 0
3 Lina 5
6 Vfti 7
Þjálfaramenntun KSÍ
C-stig
Fræðslunefnd KSÍ heldur C-stigs þjálfaranámskeið
dagana I I.-I4. apríl nk.
Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt.
Námskeiðsþættir eru: Leikfræði, kennslufræði,
þjálffræði, sálarfræði, næringarfræði og íþróttameiðsl.
Skráning er hafin á skrifstofu KSÍ sem veitir allar nánari
upplýsingar í síma 581 4444.
Góð þjálfun — betri knattspyrna
Fræðslunefnd KSÍ