Morgunblaðið - 03.05.1996, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
ÍMmgtntlifattfr
C
1996
FÖSTUDAGUR 3. MAÍ
BLAÐ
Batistuta tryggði
Fiorentína sigur
ARGENTÍNUMAÐURINN og fyrirUði Fiorentína,
Gabriel Batistuta, tryggði liðinu sigiu' á Ataíanta
í fyrri bikarúrslitaleiknum á Ítalíu, 1:0.45.000
áhorfendur fögnuðu sigrinum í Flórenz í gær-
kvöldi. Spurningin er hvort 21 árs bið Fiorentína
eftir titli sé á enda. Seinni leikurinn far fram í
Bergamo 18. maí.
Svíar og Þjóðverjar
Evrópumeistarar
S VÍAR tryggðu sér sinn fimmta Evrópumeistara-
titil í borðtennis karla i Bratislava í Slóvakíu í
gærkvöldi, með því að vinna Frakka, sem höfðu
titil að verja, 4:1. Þjóðverjar urðu meistarar í
kvennaflokki, unnu Ungverja 4:2.
Leikmenn gengu af
leikvelli í Sofíu
Oskar ler með Gunnari
Gunnar Gunnarsson handknattleiks-
þjálfari og Óskar Þorsteinsson, sem
hefúr aðstoðað hann undanfarin ár, eru
báðir á leiðinni til norska félagsins Elver-
um. Þeir voru ytra um síðustu helgi og í
gærkvöldi gekk Gunnar frá samningi við
félagið með þeim fyrirvara þó að innan
nokkurra daga lægi ljöst fyrir hvaða leik-
menn yrðu hjá því. „Eg fer líklega út aftur
KNATTSPYRNA
í næstu viku og þá verðum við með æf-
ingu og leikum einhveija leiki. Annars
hefst ég handa fyrir alvöru um miðjan
júlí,“ sagði Gunnar í gærkvöldi. Samning-
urinn er til þriggja ára og hefur Gunnar
fengið frí frá vinnu í eitt ár. „Ég get þá
komið heim aftur ef allt fer á verri veg,“
sagði Gunnar.
Óskar Þorsteinsson hefur ekki gengið
endanlega frá samningi við félagið. „Það
stefnir allt í að ég fari til Elverum þó svo
ekki sé búið að ganga alveg frá því,“ sagði
Óskar í gærkvöldi. Hann mun þjálfa
kvennalið félagsins, sem leikur í 2. deild-
inni, og varalið karla, sem leikur í 3. deild-
inni, en það er.skipað leikmönnum 17 til
20 ára. Að auki mun hann aðstoða Gunn-
ar með aðalliðið.
• • *
Reuter
DAVID Ginola, útherjl Newcastle, í baráttu vlA Paul McGregor á City Ground.
LEIKMENN Levski Sofía gengu af leikvelli í bikar-
úrslitaleiknum í Búlgariu, þegar fimmtán mín.
voru til leiksloka og liðið undir, 0:1, í baráttu
gegn Slavía á miðvikudaginn. Forseti félagsins
var ekki ánægður með störf dómarans og línu-
varða, þannig að hann kallaði menn sina af leik-
velli. Dómarinn, Mitko Mitrev, og línuverðirnir
fengu fylgd 25 lögregluþjóða þegar þeir yfirgáfu
leikvanginn. Það hefur lengi loðað við knattspyrnu
í Búlgariu, að ekki sé hreint mjög i pokahorninu
í sambandi við úrslit leikja - að þau séu ákveðin
fyrirfram. Mörgum liðum sem hafa leikið gegn
Slavía hafði verið hótað og ógnað fyrir leiki.
Levski Sofía var í fréttum um sl. helgi, þegar
áhorfendi kastaði lifandi snák að dómara. Búlg-
arska knattspymusambandið tók málið fyrir í gær
og dæmdi Slavía sigur, 4:0, í bikarúrslitaleiknum.
Eindhoven í úrslit
EIÐUR Smári Guðjohnsen og félagar hans þjá
Eindhoven tryggðu sér rétt til að leika bikarúr-
slitaleikinn í Hollandi, með sigri á Roda 3:1 í
gærkvöldi. Eindhoven mætii- Sparta Rotterdam í
úrslitum 16. maí. Brasilíumaðurinn Ronaldo kom
inná sem varamaður, eftir langa fjarveru vegna
meiðsla. Hann fór af leikvelli eftir 25 min. meidd-
ur á öxl, eftir slæmt falla.
Einn besti pílukast-
ari heims í heimsókn
JAMIE Harvey frá Skotlandi, sem er fimmti stiga-
hæsti pílukastari í heiminum um þessar mundir,
kom til landsins i gær og mun dvelja hér fram á
mánudag. Hann ætlar að koma við á nokkrum
piulukaststöðum og byijar í dag á Ránni í Kefla-
vík, en þangað kemur hann kl. 19.30. Á morgun,
laugardag, verður hann á Grand Rokk kl. 16 og
Glaumbar kl. 19.30, á sunnudaginn á Garðakránni
kl. 14 og í Hafurbirninum í Grindavik kl. 19.30.
Glenn Hoddle tekur við
landsliði Englands
Newcastle
náði ekki
sigri
NEWCASTLE færðist fiær þeim
draumi að vinna sinn fyrsta meistara-
titil síðan 1927, með því að gera
aðeins jafntefli 1:1 gegn Nottingham
Forest á City Ground í gærkvöldi.
Möguleikar liðsins eru nú að Man.
Utd. tapi í Middlesbrough, ef liðið
gerir jafntefli þar þarf Newcastle að
vinna Tottenham heima með sjö
marka mun til að draumurinn rætist.
Newcastle fékk nógu góð færi í
leiknum til að sigra en heppnin var
ekki með liðinu og því fór sém fór.
„Við sóttum mikið til að reyna að
skora meira en segja má að það hafi
komið okkur í koll,“ sagði Peter Be-
ardsley, fyrirliði Newcastle.
Beardsley kom Newcastle yfir á
32. mín. með glæsilegu marki. Hann
fékk knöttinn fimm metrum utan
vítateigs, iék snilldarlega á þrjá varn-
armenn, renndi sér inn í vítateiginn
og þrumaði með vinstra fæti efst í
nærhornið. Newcastle sótti mun
meira fram að leikhléinu og á loka-
sekúndunum fékk Les Ferdinand
dauðafæri til að auka muninn — var
einn og óvaldaður fyrir framan mark-
íð, þrumaði yfir það.
Snemma í seinni hálfleik átti Ferd-
inand svo fastan skalla í þverslá For-
est-marksins þannig að annað mark
virtist liggja í loftinu. Og það kom á
75. mín., en reyndar hinum megin.
David Batty, miðvallarleikmaðurinn
sterki hjá Newcastle sem valinn var
maður leiksins, gerði einu mistök sín
er hann missti knöttinn afar klaufa-
lega frá sér á miðsvæðinu, Ian Woan
náði honum á miðlínunni, lék upp
völlinn og lét vaða er hann var 25
metra frá marki. Skotið var glæsilegt
og knötturinn þandi út netamöskvana
að baki Shaka Hisloks markvarðar.
Besta færið eftir þetta fékk Belg-
inn Philippe Albert hjá Newcastle,
sannkallað dauðafæri alveg í lokin,
sem ekki nýttist.
■ Staðan / C1
GLENN Hoddle, knattspyrnu-
stjóri Chelsea og fyrrum leik-
maður Tottenham og franska
liðsins Mónakó, var í gær ráð-
inn landsliðsþjálfari Englands.
Hoddle, sem er 38 ára og verð-
uryngsti landsliðsþjálfari Eng-
lands, tekur við starfi Terry
Venebles eftir Evrópukeppni
landsliðs í Englandi í sumar.
Hoddle hefur verið knattspyrnu-
stjóri Chelsea undanfarin þijú
ár og gert mjög góða hluti með lið-
ið. Hann stjórnar Chelsea í síðasta
sinn á heimavelli, Stamford Bridge,
gegn Blackburn Rovers um helgina.
Þessi fyrrum leikstjórnandi Totten-
ham og enska landsliðsins gerði
fjögurra ára samning við enska
knattspyrnusambandið sem talinn
er gefa honum eina millj. punda í
vasann.
Fyrsta verkefni Hoddles verður
að stjóma enska landsliðinu í und-
ankeppni heimsmeistarakeppninnar
og stefna að því að koma liðinu í
HM í Frakklandi 1998. Fyrsti leikur
liðsins verður við Svartahafið aðeins
níu vikum eftir EM, þar sem verður
leikið gegn Moldavíu 1. september.
Fimm vikum síðar stjórnar hann
landsliðinu gegn Pólveijum á
Wembley.
Hoddle var frábær knattspyrnu-
maður, sem lék lykilhlutverk hjá
Tottenham og fór síðan til Frakk-
lands, stækkaði sjóndeildarhring
sinn er hann gerðist leikmaður með
Mónakó og varð meistari með lið-
inu í tvígang. Hoddle lék stófkost-
lega í Frakklandi og fannst Frökk-
um undarlegt að ekki væri not
fyrir hann í enska landsliðínu.
Knattmeðferð hans var frábær og
einnig sendingar, sem voru hnit-
miðaðar. Michel Platini, fyrrum
knattspyrnumaður Evrópu og
þjálfari franska landsliðsins, var
einn af aðdáendum Hoddles. „Ef
hann hefði verið Frakki hefði
franska landsliðið verið byggt í
kringum hann, hann hefði leikið
yfir hundrað landsleiki fyrir Frakk-
land,“ sagði Platini. Þessi ummæli
eru athyglisverð því að Hoddle lék
ekki nema 53 landsleiki fyrir Eng-
land.
Hoddle sagði á fundi með frétta-
mönnum í gær, að hann ætli að
halda áfram að byggja upp það sem
Venables liefur verið að gera. „Ég
hef alltaf sagt, að ég hefði leikið
fleiri landsleiki ef Venebles hafi
verið þjálfari á þeim tíma sem ég
var að leika."
Venables óskaði Hoddle til ham-
ingju með nýja starfið og sagði að
vera hans lvjá Mónakó komi til með
að hjálpa honum mikið. „Glenn er
einn af bestu leikmönnum sem
England hefur átt.“
KNATTSPYRNA: LEIFTUR AUDVELD BRÁÐ Á AKRANESI / C2