Morgunblaðið - 10.05.1996, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 1996 D 17
skjólgott svæði þar sem unnt er að
grilla enda stutt þaðan í eldhúsið.
Sívalningurinn verður klæddur með
bárujárni en steyptir útveggir ein-
angraðir að utan og múrhúðaðir.
Húsið er 230 fermetrar auk bíl-
skúrsins sem er 35 fermetrar.
En er hús sem þetta ekki tals-
vert dýrara í byggingu en hefð-
bundið einbýlishús?
„Það er fyrst og fremst hinn
mikli halli lóðarinnar sem gerir
undirstöður dýrari en í hefðbundnu
húsi á jafnsléttu. Að öðru leyti not-
um við þekktar aðferðir og bygg-
ingaefni, steypu, límtré og báru-
járn. Hér er enginn íburður á ferð-
inni. Óneitanlega verða ýmsir verk-
þættir tímafrekir vegna lögunarinn-
ar, til dæmis frágangur á gluggum,
samsetning kúlugluggans við sí
valninginn og önnur slík atriði. En
allt þetta var leyst meistaralega vel
í höndum Valdemars Thorarensens
byggingameistara. “
Hver teiknaði?
Húsbyggjandinn, Júlíus Magnús-
son, segir að ekki muni miklu á
byggingarkostnaði á þessu húsi og
hefðbundnu. Hann hafi líka valið
þá leið að taka nægan tíma í verk-
ið, fengið góðan og röskan smið á
tímakaupi og hann sjálfur unnið
ákveðin verk og ætli sér m.a. að
leggja öll gólfefni.
„En sumir héldu að ég væri orð-
inn ruglaður og vorkenndu mér að
hafa lent í klónum á Vífli með þetta
en ég sé ekki eftir því. Þetta verður
gott hús og þarna getur að líta
óvenju snjallar lausnir á mörgum
málum enda er það fyrsta spurning
flestra sem rekast inn og skoða hjá
mér - hver teiknaði húsið?
Pýramídi hentugur
byggingarmáti
Á Vífill von á því að óhefðbundið
form eigi eftir að ryðja sér meira
til rúms á næstu árum: „Það er
kannski erfitt að segja. Ég bjó og
lærði í Mexíkó og þar kynntist ég
pýramídanum þar sem pýramída-
musteri eru á hverju strái og vöktu
þau hjá mér áhuga á þessu formi.
Nokkur slík hús hafa verið reist
hérlendis. Teiknistofa okkar við
Vesturvör í Kópavogi var fyrsta hús
þessarar tegundar en síðan hafa
verið byggð pýramídaíbúðarhús í
Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ
og síðast var eitt teiknað á Skaga-
strönd.
Þau hafa vakið nokkra athygli
en fyrirspurnir hafa verið mun fleiri
en framkvæmdir. Mér finnst þetta
að mörgu leyti vera hentugur bygg-
ingarmáti. Formið er stöðugt í jarð-
skjálfta, stendur af sér öll veður,
veitir góða birtu inn í húsið um
hallandi þakgluga og skyggir lítið
á nágranna sína.
Vinnustofan við Vesturvör er 64
ferm. á neðri hæð og 20-30 á þeirri
efri. Stærðin er þó kannski svolítið
villandi þar sem flatarmál mælist
aðeins þar sem lofthæðin er meiri
en 1,8 metrar. Gólfflöturinn er í
raun stærri. „Pýramídinn er í raun-
inni bara þak sem reist er á steypt-
um söklum með fjórum límtrés-
sperrum sem klæddar eru með
timbri, pappa og ýmsum þakefn-
um,“ segir Vífill og íslendingar
kunna víst að smíða þök.
Húsasmiðir fúsir
„Á sama hátt og með sívalnings-
húsið við Klukkuberg þarf stundum
að leggja meiri vinnu í eitt og ann-
að varðandi smíði og frágang á ein-
stökum hlutum í húsi með svo sér-
stæðu formi. Hins vegar kemur í
ljós að húsasmiðir hafa gaman að
að fást við nýstárleg verkefni þar
sem kunnátta þeirra nýtist til fulls.
Stundum þarf að eyða meiri tíma
í ákveðið handverk en þetta er til-
breyting fyrir þá og eykur reynslu
þeirra enda eru íslenskir húsasmiðir
fúsir að tileinka sér ný vinnubrögð.
Ekki síst fyrir þá sök finnst okkur
líka áhugavert að teikna óvenjuleg
hús,“ segir Vífill Magnússon að lok-
um.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
HÉR eru Vífill Magnússon
arkitekt, Júlíus Matthíasson,
Marianna Haraldsdóttir og
Jón Logi, sonur þeirra við
húsið. Vel sést hvernig aðal-
inngangurinn er tengdur með
brúnni.
ári síðar og hafa staðið allar götur
síðan með hléum. Nú er húsið nán-
ast fokhelt og er ætlunin að flytja
inn seint á þessu ári. Fljótlega voru
lagðar fyrir húsbyggjandann tvær
tillögur:
„Við teiknuðum annars vegar
fremur hefðbundnið hús í virðuleg-
um stíl og hins vegar sívalninginn.
Júlíus og Maríanna kona hans voru
ekki lengi að hugsa sig um. Þau
völdu sívalninginn en litu varla við
því hefðbundna."
Vífill segir að upphaflega hug-
myndin hafi verið að láta sívalning-
inn snúa fram í brekkuna en skipu-
lagsskilmálar gera ráð fyrir að
mænisstefna sé samsíða götu. Því
var sívalningurinn látinn snúa
þannig. En hvernig tóku skipulags-
yfirvöld þessari húsagerð?
„Fyrst í stað stóð óneitanlega í
byggingayfirvöldum að samþykkja
svona skrítið hús. En við vorum
innan byggingaskilmála nema þak-
formið, sem átti að vera 5-15 gráðu
mænisþak. Hins vegar var fordæmi
um bogadregin þök á fjölbýlishús-
um neðar í hverfinu. Fór svo að
lokum að húsið var samþykkt."
Steypa, límtré, bárujárn
Fyrirkomulag í húsinu við
Klukkuberg er í meginatriðum
þannig: Komið er að húsinu norðan-
megin, frá götu og er gengið eftir
brú inn í húsið. Undir brúnni verða
lækir og tjarnir sem stallast niður
eftir lóðinni. Á efri hæðinni er mik-
il lofthæð og þar eru meðal annars
forstofa, eldhús og stofur, einnig
yfirbyggðar svalir með kúluglugga.
I miðju húsinu er stigi milli hæða.
Svefndeildin ásam svölum er á neðri
hæð en í kjallara er geymsla og
sólskáli sem ber uppi hluta sívaln-
ingsins. Þar taka við pallar og
tröppur, sem stallast niður eftir
brekkunni.
Gaflar sívalningsins eru steyptir
og bera þeir uppi þakið ásamt
tveimur hringlaga límtrésbitum.
Húslengdin er 12 metrar á efri hæð
en 10 metrar á þeirri neðri.
Fremst við götuna er síðan bíl-
skúrinn og liggur hann samsíða
henni. Ekið er inn um annan enda
hans og út um hinn. Bílskúrinn er
steyptur á hefðbundinn hátt en
þakinn jarðvegi og torfi og því er
eins og ekið sé inn í hól. Milli „hóls-
ins“ og íbúðarhússins myndast
HÚSIÐ við Klukkuberg stendur í miklum halla.
sunnudaga frá kF.’i2 -14.
sími 588 5700
Suðurlandsbraut 46, 2. hæð. 'V* T : 108 Rvík. Sigurbjörn Skarphéðinsson ig.fs. ÞórðurIngvarsson
Einbvli-Raðhús-Parhús
NORÐURTUN Gott og vel staösett
tæpl. 130 fm einbýli á einni hæö á góö-
um staö innst í botnl. 3-4 svefnherb. gott
fyrirkomul. nýl. eldh., parket. stór tvöf. 58
fm bílskúr Áhv. 5,2 húsnl. Verö 10,5
millj.
VIÐ ELLIÐAÁRDAL Á fráb. staö I
gránu hverfi viö einn fallegasta útsýnis-
og útivistarst. I Rvík. stendur reisulegt
einbýli. Mögul.á sérib. á neöri hæö, fráb.
útsýni, tvöf. bílskúr, sólskáli, fallegur
garður. Áhv. ca. 5,4 Verö 19,7 millj.
DOFRABORGIR Skemmtilega
hannaö einbýli á einni hæö tæpl. 180.
fm á einum besta staö I Borgunum I
Grafarvogi. Húsiö selst fullb. að utan
og fokhelt aö innan. Teikningar á skrif-
stofu. Verö 9,6 millj.
BARMAHLIÐ-SERHÆÐ Mjög
góö efri sérhæö I góöu þríbýlishúsi
tæpl. 100 fm ásamt 32 fm bílskúr á ró-
legum stað, parket, nýtt eldhús. yfir-
byggöar svalir(sólstofa). Byggingar-
réttur á rishæð fylgir. Ahv. 1.3 Verö
10.3 millj.
HRAUNBÆR M/AUKAH. Ein
staklega falleg 4ra herb. íb. á 3ju og
efstu hæö í góöu fjölbýli viö Rofabæ.
Nýtt eldhús og baö, parket og flísar.
Aukaherb. f kj. Áhv. 5,0 Verö 7,9
mlllj.
BJARNASTAÐAVÖR Sériega fal-
legt og vel búiö einbýli ca. 160 fm ásamt
tæpl. 30 fm bílskúr, fallegur garöur
m/heitum potti og stórri verönd . Áhv.
ca.5,8 Verö 12,5 millj.
KLYFJASELMjög vandaö og
skemmtilegt 2ja íbúöa einbýli á góöum
stað í Seljahverfi. Skipti ath. á minni eign
hagst. langt.lán. Verö 19,3 millj.
GARÐHÚS Vel skipulagt endahús á
tveimur hæöum ca. 160 fm með sér-
stæöum 24 fm bílskúr. Húsið er til afh. nú
þegar fullb. aö utan og fokhelt að innan.
Verö aöeins 7,9 millj.
EINIBERG HF. Skemmtilegt timbur-
hús á einni hæö á góöum stað ásamt bil-
skúr I Setbergslandi, góöar innréttingar,
4 svefnherbergi, suöurverönd og garður.
Skipti ath. á minni eign. hagst.
langt.lán. Verö 12,8 millj.
Hæðir og 4-5 herb.
ÞINGHOLTIN-SERHÆÐ Sérlega
góö og vönduö efri sérhæö rúml. 180 fm
f góöu steinsteyptu þrfbýlishúsi á einum
eftirsóttasta staö í Þinholtunum. Stórar
stofur, nýtt eldhús. Fllsal. baöh. Tvennar
svalir, vönduö eign á góöum staö. Áhv.
5.0 húsbr. Verö 15.3 millj.
SAFAMYRI Góð neöri sérhæö í þrí-
býli ca. 135 fm ásamt 25 fm bilskúr á
góöum staö, nýtt baöherb. parket, stórar
stofur, mögul. á arni ath. skipti á minni
eign. Áhv. 4.3 Verö 11,9 millj.
FELLSMÚLI Mjög góð 4ra herb. íb. á
2.hæö ca. 100 fm f vel útlftandi fjölbýli,
nýtt eldhús, suöursvalir. Skipti á ód.
Áhv. 4,7 Verö 7,9 mlllj.
DÚFNAHÓLAR Góö 4ra herb. á
6.hæö. ca. 104 fm ibúö í nýstandsettu
lyftuhúsi, parket, yfirb. vestursvalir, fráb.
útsýni. laus fljótlega Verö 7,3 millj.
BREIÐÁS GBÆ. Neöri sérhæö í tví-
býli ca. 116 fm ásamt 25 fm bílskúr. Góð-
ur staöur innst í botnlanga. Ath. skipti á
minni eign. Áhv. 5,8 Verö 9,3 millj.
ÁLFATÚN KÓP. Sérstaklega fal-
leg og vönduö 3ja herb. íb. á 1. hæö I
góöu fjórbýli ásamt bílskúr samtals
rúml. 105 fm.á þessum sivinsæla
staö. íbúðin er hin glæsilegasta í alla
staöi, eikarinnréttingar, parket, marm-
ari, flísal. baöh. Sérgaröur ( suöur og
fl. Áhv. 5,7 Verö 9,7 millj.
DUNHAGI M/BILSKUR Mikiö
endurnýuð 4ra herb. íbúð á 3ju hæð
og efstu á góöum staö i vesturb. Nýtt
eldhús og baöh. Húsiö klætt aö utan.
Eign I toppstandi. Laus strax. Áhv.
5,0 Verö 7.9 mlllj.
HRAUNBÆR M/HERB. Góö 3ja
herb. íbúð ca. 96 fm á 2. hæö í góöu fjöl-
býli við Rofabæ. Húsiö allt klætt aö utan.
Nýtt parket á stofu og gangi, suöursvalir.
Aukaherb. I kj. Áhv. 3.5 millj. Verö 6,7
millj.
DRÁPUHLÍÐ Góö 3ja herb. ib. rúm-
lega 66 fm íbúö i kj. á góöum staö ( Hlfö-
unum. Hugsanlegt að taka bíl uppí. Hag-
stætt verö Áhv. 3,3 millj. Verö aöeins
5.1 millj.
VESTURBÆR Mjög góö 3ja
herb. íb. ca. 77 fm á 2. hæö í fjölb.
Nýlegt eldhús, parket og fl. Laus lljótl.
Verö 6,2 millj.
ÓSKUM EFTIR:
> 2-3ja herb. íbúðum á svæði 107
> 2-3ja herb. íbúðum á svæði 104 og 108
REYNIMELUR SERH. Mjög
góð neöri sérhæð ca. 106 fm á besta
staö i Vesturbænum. Nýtt eldhús,
gler, ofnar, rafl. og fl. Mögul. á bílskúr.
Ahv. 4,4 húsbr. Verö 9,8 millj.
HRAUNBÆR LAUS Mjög góö
3ja herb. íb. ca. 90 fm á 1. hæö í fjölb.
Nýlegt eldhús, parket og fl. Laus strax
Áhv. 3,1 Verö 6,4 millj.
KVISTHAGI Mjög góö 2ja herb.
kj.íb. ca. 52 fm I góöu endurn. stein-
húsi. Nýlegt eldhús, parket, gler og fl.
Áhv. 2.4 Verö 4,9 millj.
MIÐBÆR RVIKUR. Á besta staö í
hjarta Reykjavíkur er til sölu falleg 2ja
herb. ib. ca. 40 fm á l.hæö í góöu litlu
húsi. Áhv. 2,4 Verö 4.1 millj.
BRAÐVANTAR 2JA HERB.
Vegna mikillar sölu á 2ja herb. íbúöum
síðastliðnar vikur bráövantar okkur 2ja
herb. ibúðir á skrá strax. Hringdu
núna í 588-5700
Atvinnuhúsnæði
SKÓLAVÖRÐUSTÍGUR Tæp
lega 80 fm mjðg gott verslunar- og
skrifstofuhúsn. á götuhæö. Góöar
leigutekjur. Hagstæð lán áhvflandi.
Góö fjárfesting. Uppl. á skrlfstofu.
Ymislegt
SKORRADALUR Nýlegur bú-
staöur ca. 40 fm ásamt 20 fm svefn-
lofti og stórri verönd i landi Vatnsenda
í Skorradal. Húsið stendur norðan viö
vatnið og er landið skógi yaxið. Raf-
magn og rennandi vatn. Áhv. hagst.
lán. Verö 3,9 millj.
ÁLFHÓLSVEGUR - ALLT SÉR
Falleg 3ja herb. ca. 66 fm jaröhæð (ekk-
ert niöurgr.) Gott skipulag Parket, fllsar,
sérinng. Húsiö nýtekiö I gegn aö utan.
Áhv. 3,1 millj. byggsj. o.fl. Verö 5,8
millj.
REYNISFELLSLAND Vandaöur
bústaöur ca. 32 fm ásamt svefnlofti og
verönd í Reynisfellslandi I Rangárvalla-
sýslu. Húsiö er á 1 ha. eignarlandi sem
er kjarrvaxið og gróöursælt. Útsýni Verö
2,5 millj.
FELAG FASTEIGNASALA
VELJIÐ
FASTEIGN
rf
Félag Fasteignasala