Morgunblaðið - 15.05.1996, Page 3
2 C MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 1996 C 3
IÞROTTIR
BORIM OG UNGLINGAR
URSLIT
ÚRSLIT
Auðunn og Jón settu
fimm íslandsmet hvor
rettán íslandsmet féllu á ís-
landsmótinu í kraftlyftingum
í íþróttahúsi Garðaskóla í Garðabæ
um helgina. Jón Gunnarsson og
Auðunn Jónsson settu báðir fímm
íslandsmet. Jón keppti í í 100 kg
flokki og setti tvívegis met í hné-
beygju, 360 og 365 kg, tvö í bekk-
pressu 211 og 215 kg og loks met
í samanlögðum árangri 900 kg.
Auðunn, sem er í 110 kg flokki,
setti met í hnébeygju 370 kg, í rétt-
stöðulyftu 360,5 kg og í saman-
lögðu þríbætti hann metið; 940,
958,5 og 965 kg.
Axel H. Guðmundsson setti tvö
íslandsmet í 90 kg flokki. Hann
lyfti fyrst 200,5 kg í bekkpressu
og setti íslandsmet og bætti það
síðan í 205 kg. Jón B. Reynisson
bætti íslandsmetið í hnébeygju í
+125 kg flokki, lyfti 402,5 kg.
Loks setti Flosi Jónsson öldungamet
í bekkpressu, 182,5 kg, í 100 kg
flokki.
Jón Gunnarsson fékk verðlaun
fyrir besta stigaárangur í hné-
beygju og Auðunn Jónsson fyrir
bekkpressu, réttstöðulyftu og í
samanlögðu.
íslandsmeistarar ÍR
ÍR-STÚLKUR slgruðu þrefalt í stúlknaflokki á nýafstaðinnl
leiktíð körfuboltamanna. Þær sigruðu í íslandsmótinu, bikar-
keppninni og í Reykjavíkurmótinu. Efri röð f.v., Jón Örn Guð-
mundsson, þjálfari, Gunnur Bjarnadóttir, Kristín Halldórs-
dóttir, Júlía Sveinbjörnsdóttir, Sara Friðgeirsdóttir, Heba
Hauksdóttfr, Helga Mogensen, Birna Bjarnadóttir, Þórunn
Blrgisdóttir. Neðri röð f.v., Rakel Viggósdóttir, Þórunn Sig-
urðardóttir, Gréta Grétarsdóttir, fyrirliði, Erna Þórðardóttir,
Jófríður Halldórsdóttir.
Atlanta stöðvaði
sigurgöngu Orlando
ATLANTA stöðvaði sigur-
göngu Orlando í úrslitakeppn-
inni með því að sigra 104:99
á heimavelli ífyrrinótt. Or-
lando hafði ekki tapað leik,
sigraði Detroit 3:01'fyrstu
umferð og hafði yfir 3:0 gegn
Atlanta fyrir þennan leik. Stað-
an er því 3:1 og þarf Orlando
einn sigur til að tryggja sér
úrslitaleikinn í Austurdeildinni
og fær tækifæri til þess á
heimaveili í nótt.
Steve Smith skoraði 35 stig og
þar af sjö þriggja stiga körfur
fyrir Atlanta sem hafði 20 stiga
forskot í hálfleik, 67:47. Orlando
náði að minnka muninn niður í
eitt stig, 98:97, þegar ein og hálf
mínúta var eftir. Grant Long kom
Atlanta í 100:97 með skoti úr horn-
inu og í næstu sókn Orlando mis-
notaði O’Neal tvö vítaskot. Steve
Smith kom Orlando í 102:97 þegar
40 sekúndur voru eftir og tryggði
sigurinn.
Horace Grant gerði 29 stig og
tók 20 fráköst fyrir Orlando og
Penny Hardaway var einnig með
29 stig. Shaquille O’Neal hitti illa
af vítalínunni - aðeins 5 af 17
skotum rötuðu rétta leið. Hann
endaði leikinn með 19 stig. „Eg
get ekki annað en hrósað Atlanta.
Þetta var frábær leikur,“ sagði
Hardaway.
Fimm leikmenn Atlanta gerðu
meira en tíu stig í leiknum. Christ-
ian Laettner var með 17 stig,
Atök
Morgunblaðið/Bjami
AUÐUNN Jónsson setti fimm íslandsmet á íslandsmótinu í kraftlyfting-
um um helgina. Hér er eitt þeirra í fæðingu.
Reuter
SHAQUILLE O’Neal reynir hér skot úr teignum umkringdur
leikmönnum Atlanta; Sean Rooks (t.v.), Grant Long (t.h.) og
Steve Smith (fyrir aftan), sem var stigahæstur í leiknum
með 35 stig.
Mookie Blayloek 14 og átti auk
þess 11 stoðsendingar, Stacey
Augmon gerði 13 stig og Grant
Long 11. „Þessi leikur var mjög
góður,“ sagði Laettner. „Enginn
okkar vildi tapa þessum leik. Við
komum einbeittir til leiks og lékum
með „hjartanu". Við vorum grimm-
ir og Smitty hitti nánast úr öllum
skotum sínum.“
Markahrókar í
sviðsljósinu
Skagamenn og Blikar leika til úrslita
um deildarbikarinn á Kaplakrikavelli
Islandsmeistaralið ÍA og Breiða-
blik, liðin sem hafa skorað flest
mörk í deildarbikarkeppni KSÍ,
verða í sviðsljósinu í Kaplakrika í
Hafnarfirði í kvöld kl. 20, þar sem
úrslitaleikurinn um bikarinn fer
fram. Bæði liðin hafa skorað 37
mörk og hafa margir leikmenn kom-
ið við sögu - alis hafa fjórtán Blikar
skorað og tíu Skagamenn, níu þeirra
í stórsigri gegn BÍ, 14:0. Blikar
unnu næststærsta sigurinn, lögðu
Reyni frá Sandgerði 10:0. Ljóst er
að um verður að ræða baráttu
markahróka.
Leikurinn er að sjálfsögðu sögu-
legur - fyrsti úrslitaleikurinn í hinni
nýju deildarbikarkeppni og hann er
jafnframt 100. leikurinn í keppn-
inni. Fram til þessa hafa 417 mörk verið skor-
uð, eða að meðaltali 4,2 mörk í leik. Skagamenn
hafa verið mjög sigursælir á undanförnum árum,
aftur á móti hafa Blikar ekki fagnað mörgum
titlum. Sigurður Halldórsson, fyrrum iandsliðs-
maður hjá ÍA, er þjálfari Breiðabliks og með
liðinu leika tveir Skagamenn, sem léku með
meistaraliði ÍA sl. keppnistímabil, Pálmi Har-
aldsson og Theódór Hervarðsson.
Þrír leikmenn liðanna eiga möguleikar á að
verða markakóngar deildarbikarkeppninnar.
Skagamaðurinn Mihjilo Bibercic hefur skorað
flest mörk, eða tíu. Blikinn Arnar Grétarsson
hefur skorað átta mörk, eins og Skagamaðurinn
Stefán Þórðarson, sem skoraði mörk sín í fimm
fyrstu leikjum IA, áður en hann meiddist.
Tryggvi Guðmundsson, Vestmannaeyjum, hefur
einnig skorað átta mörk, skoraði sex mörk í
stórsigri Eyjamanna gegn ÍR, 9:0.
KRAFTLYFTINGAR
í kvöld
Knattspyrna
Deildarbikar, úrslit karla:
Kaplakriki: Breiðablik - ÍA.kl. 20
Meistarakeppni kvenna:
Ásvellir: Breiðablik - Valur.18
KORFUKNATTLEIKUR / NBA
KNATTSPYRNA
Fram spáð sigri í 2. deild og
Þróttur Nes. í 3. deild
FRAMARAR verða sigur-
vegarar í 2. deild karla í
knattspyrnu, samkvæmt spá
þjálfara liðanna í deildinni.
Fram hlaut 80 stig, FH kemur
næst með 71, Þór, Akureyri,
í þriðja sæti rneð 64, Þróttur,
Reykjavík, 55, Skallagrímur
43, Víkingur 40, KA 39, Völs-
ungur 22 og fallliðin, sam-
kvæmt spánni, verða ÍR með
19 stig og Leiknir, Reykjavík,
með 17 stig.
Þjálfarar 3. deildarliðanna
spáðu einnig um Iokaröðina í
sinni deild. Þróttur, Neskaup-
stað, hlaut 75 stig, Víðir 70,
Dalvík 57, HK 48, Grótta 47,
Selfoss 44, Ægir 40 og Reynir,
Sandgerði, 30 stig. Fallliðin í
3. deild verða þá Höttur með
22stig og Fjölnir með 17 stig.
íslandsmótið í knattspyrnu
hefst á föstudag og fara þá
fram þrír leikir í 4. deild;
Léttir - Njarðvík, GG - Aftur-
elding og Bruni - Haukar.
Keppni í 1. deild kvenna
hefst á sunnudag og verður
þá heil umferð: IBV-Í A, KR-
Stjarnan, Afturelding-ÍBA
og Breiðablik-Valur. Keppni
í 2. deild hefst á mánudag
með leik Fram og Þróttar
Reykjavík.
Keppni í 1. deild karla hefst
síðan fimmtudaginn 22. maí.
Þessi/ið leika í fyrstu um-
ferð: íA - Stjarnan, Keflavík
- KR, Breiðablik - Fylkir,
Leiftur - ÍBV og Valur -
Grindavík.
Leikurinn beint hjá Sýn
ÚRSLITALEIKUR í A og Breiðabliks í
deildarbikarkeppni KSI verður í beinni út-
sendingu hjá sjónvarpstöðinni Sýn í kvöld
og er þetta fyrsta beina útsending stöðvar-
innar frá innlendum íþróttaviðburði.
SUND
Elín bætti þriggja
ára met Bryndísar
ELÍN Sigurðardóttir úr Sundfélagi Hafn-
arfjarðar bætti þriggja ára gamalt met
Bryndísar Ólafsdóttir í 50 m skriðsundi á
Sundmeistaramóti Hafnarfjarðar á laug-
ardaginn, er hún synti vegalengdina á 26,33
sek. Met Bryndísar var 26,57 sek., sett 1993.
Elín og Hjalti Guðmundsson urðu sund-
meistarar Hafnarfjarðar fjórða árið í röð,
Elín varð sigurvegari í fjórum greinum eins
og Orn Arnarson, Hjalti í þremur greinum.
Körfuknattleikur
Úrslitakeppni NBA:
Austurdeild:
Atlanta - Orlando..........104:99
■ Orlando hefur yfir 3:1.
GOLF
LEK-mót í Sandgerði
LEK-mót í golfi fer fram á golfvellinum í
Sandgerði laugardaginn 18. maí klukkna 9.
Keppt er f flokkum karla 55 ára og 50-54
ára svo og i A og B flokki kvenna 50 ára
og eldri. Skráning er í síma 423 7802.
Vormót Hafnarfjarðar
Vormót Hafnarfjarðar í golfi fer fram á laug-
ardaginn á Keilisvelli. Mótið er opið. Keppnis-
fyrirkomulag er 18 holu höggleikur. Ræst
verður út frá kl. 08.00. Skráning f síma
5553360.
Pollamótið ívestmannaeyjum
Boðsgestir frá Súðavík og Flateyri
Undirbúningur er nú í fullum
gangi fyrir pollamót knatt-
spyrnufélagsins Týs í Vest-
mannaeyjum í lok júnímánaðar.
Öll félögin sem voru með í fyrra
hafa boðað þátttöku að þessu
sinni, eftir því sem segir í frétta-
tilkynningu frá mótshaldara. Það
eru: Afturelding, Breiðablik,
Fjölnir, FH, Fram, Fylkir,
Grindavík, Haukar, HK, ÍA, ÍR,
KA, Keflavík, KR, Leiknir,
Njarðvík, Selfoss, Stjarnan, Týr,
Valur, Víkingur, Þór - Akureyri,
Þór - Vestmannaeyjum og Þrótt-
ur. Grótta er efsta félag á bið-
lista.
í tilkynningunni segir einnig
að Flugleiðir og Knattspyrnufé-
lagið Týr hafi ákveðið að bjóða
krökkum frá Súðavík og Flat-
eyri, sem eru á sama aldri og
þátttakendur í mótinu, til að taka
þátt. Þau munu þó ekki taka
þátt í aðalkeppni mótsins heldur
leika nokkra gestaleiki.
Þá er einnig ljóst að í fyrsta
sinn kemur erlent drengjalið til
þátttöku í pollamótinu. Það er lið
frá Birmingham í Alabama-ríki
í Bandaríkjunum. Liðið er skipað
tólf leikmönnum og líklegt er að
um þijátíu aðstandendur komi
með drengjunum. Bandarísku
drengirnir keppa sem gestalið í
flokki C-liða.
IMemendur Húsaskóla sterkir
Á SUMARDAGINN fyrsta hélt
Ungmennafélagið Fjölnir í
Grafarvogi skólamót í glímu
og er þetta þriðja árið í röð
sem mótiðfer fram. Keppend-
ur voru 106,77 strákar og 29
stúlkur og hefur fjöldi kepp-
enda vaxið ár frá ári. Mótið fór
fram í íþróttamiðstöðinni í
Dalhúsum undir stjórn for-
manns almenningsdeildar
Fjölnis, Ingólfs Narfasonar,
honum til aðstoðar var Jón
M. ívarsson, formaður Glímu-
sambandsins.
Keppt var á tveimur dýnulögð-
um völlum og glímdu stúlkur
og drengir í 4., 5. og 6. bekk á
öðrum en á hinum 1.-3. bekkur
og 7.-9. bekkur. Dómarar voru
Rögnvaldur Ólafsson og Hjálmur
Sigurðsson en glímustjórar Magn-
ús Jónsson og Orri Björnsson. Þrír
efst menn í hveijum bekk hlutu
verðlaunapeninga en allir aðrir við-
urkenningarskjöl. Keppnin fór
þannig fram að væru keppendur
fleiri en fjórir fór fram útsláttur
og voru menn úr leik við aðra byltu
þar til fjórir stóðu eftir. Þeir kepptu
síðan í hópglímu til úrslita. Þá var
einnig stigakeppni á milli skólanna
og voru gefin stig þannig að fyrsti
maður hlaut fjögur, annar þrjú,
þriðji tvö og fjórði eitt. Stigakeppn-
inni var þrískipt og í keppni 1.-4.
bekkjar sigraði Húsaskóli með 47
stig og næstur kom Rimaskóli með
21 stig. Hjá 5.-7. bekk bar Húsa-
skóli einnig sigurorð, fékk 29 stig
FIMM bestu stúlkurnar í 3.
Auður Óskarsdóttir,
og Foldaskóli kom
næstur með 10
stig. Nemendur
Húsaskóla gerðu
það ekki enda-
sleppt og urðu
einnig hæstir í
stigakeppni 8.-10.
bekkjar, hlaut 13
stig en Rimaskóli
kom næstur með 4
stig. Veittir voru
farandbikarar fyrir
sigur í -hverjum
flokki og komu
þeir allir í hlut
Húsaskóla.
bekk, frá vinstri, Katrín Árnadóttir, Erla Ósk GuAmundsdóttir,
Guðrún ísabella Þráinsdóttir og Giovanna Róbertsdóttir.
VASKIR glímudrengir úr 3. bekk, frá vinstri Fannar Friðgeirsson, Tryggvi
G. Teitsson, Jóhann Jónsson og Þorgrímur Björnsson.
Glíma og júdó í
sókn á Króknum
Björn
Björnsson
skrifar frá
Sauöárkróki
ÁRNI Friðriksson glímukennarl á Sauðárkrókl sýnlr einum
nemanda sínum réttu brögðin.
Júdó og íslensk glíma eiga vax-
andi vinsældum að fagna á
Sauðárkróki um þessar mundir.
Allstór hópur barna
og unglinga æfir
báðar þessar grein-
ar, júdó á vegum
júdódeildar Tinda-
stóls, en glímumenn eru deild í
knattspyrnufélaginu Þrym.
Nýverið fóru þrír félagar úr júdó-
deildinni á Meistaramót íslands og
þar náði Jakob Smári Pálmason
þeim glæsilega árangri að verða
Islandsmeistari í flokki 15 til 17
ára, en Jakob er 15 ára og keppti
í +78 kg fiokki.
Karl Lúðvíksson formaður deild-
arinnar og þjálfari sagði áhuga á
íþróttinni góðan og væru að jafnaði
tvær æfingar i viku allan veturinn
og um 20 krakkar sem æfðu að
staðaldri.
Árni Friðriksson þjálfari glímu-
manna og formaður glímudeildar-
innar fór með keppendur á Grunn-
skólamótið í glímu og Meistaramót
íslands og að hans sögn náðist
góður árangur á báðum mótunum.
Kristján Ó. Másson, Tinna Björk
Guðmundsdóttir og Valdimar Pét-
ursson unnu öll til verðlauna og
sagði Árni það sérstaklega ánægju-
Glíma
Skólamót Fjölnis
STÚLKUR
1. bekkur:
Hlín V. Aðalsteinsdóttir..
2. bekkur:
Sandra Lind Jónsdóttir....
Rut Ingólfsdóttir.........
Jódís L. Aðalsteinsdóttir.
Berglind Ólafsdóttir......
3. bekkur:
Giovanna Róbertsdóttir....
Guðrún í. Þráinsdóttir....
Auður Óskarsdóttir........
Erla Ó. Guðmundsdóttir....
Katrín Ámadóttir..........
4. bekkur:
Anna R. Harðardóttir......
Harpa Guðmundsdóttir......
Ragnheiður Snorradóttir...
Sonný L. Þráinsdóttir.....
5. bekkur:
Hildur Guðjónsdóttir......
Guðrún E. Ottósdóttir.....
Ólöf M. Guðjónsdóttir.....
6. bekkur:
Hallveig Guðmundsdóttir...
Eva Kristjánsdóttir.......
7. bekkur:
Rósa Jónsdóttir........
Helena Bjarnadóttir.....
Anna M. Sighvatsdóttir...
Sólveig Svavarsdóttir..
Margrét Ólafsdóttir....
...Húsaskóla
...Húsaskóla
..Kársnesskóla
...Foldaskóla
...Húsaskóla
....Húsaskóla
....Rimaskóla
....Rimaskóla
....Húsaskóia
....Húsaskóla
....Húsaskóla
....Húsaskóla
....Húsaskóla
....Húsaskóla
....Húsaskóla
....Húsaskóla
....Húsaskóla
....Húsaskóla
....Húsaskóla
....Foldaskóla
....Rimaskóla
....Foldaskóla
....Foldaskóla
....Foldaskóla
JAKOB Smári Pálmason,
Tindastóll, íslandsmeistari
i Júdó.
legt hversu vel þessum keppendum
hefði gengið. Árni er með eina æf-
ingu á viku og skipta þessar tvær
íþróttagreinar með sér salnum á
sama tíma. Ekki sögðu þeir Árni
og Karl, að nokkuð bæri á milli
þeirra sem íþróttirnar stunduðu og
óþekkt að til átaka kæmi þó að
mönnum hlypi kapp í kinn.
DRENGIR
1. bekkur;
Daníel I. Þórhallsson.........Rimaskóla
Þór H. Hrafnsson..............Húsaskóla
Sverrir Hermannsson...........Húsaskóla
Haukur V. Alfreðsson..........Húsaskóla
2. bekkun
Ottó M. Ingason...............Rimaskóla
Þórhallur Pétursson...........Rimaskóla
Sæmundur I. Johnsen...........Húsaskóla
Jóhann Friðgeirsson...........Rimaskóla
3. bekkur:
Fannar Friðgeirsson...........Rimaskóla
Tryggvi Teitsson..............Húsaskóla
Jóhann Jónsson................Húsaskóla
Þorgrímur Björnsson...........Húsaskóla
4. bekkur:
Frans V. Kjartansson..........Húsaskóla
Gísli Indriðason..............Húsaskóla
Einar Einarsson...............Húsaskóla
Orri Ingólfsson............Kársnesskóla
5. bekkur:
ívar Bjömsson.................Húsaskóla
GunnarÖrn Jónsson............Foldaskóla
Jörgen Úlfarsson..............Húsaskóla
6. bekkur:
Völundur Jónsson.......Lækjarbotnaskóla
Níls Lyngdal..................Húsaskóla
Ólafur Karlsson...............Rimaskóla
Tandri Waage................. Rimaskóla
7. bekkur:
Ómar R. Magnússon.............Húsaskóla
8. bekkur:
Hafsteinn Þ. Eggertsson.......Húsaskóla
9. bekkur:
Narfi í. Geirsson.............Rimaskóla
Viggó Jensson.................Húsaskóla
Ingólfur Kolbeinsson..........Húsaskóla
Skíðaganga
Skíðadeild Leifturs í Ólafsfirði hélt sitt ár-
lega göngumót fyrir börn þann 1. maí í
samvinnu við Kiwanisklúbbinn Súlur. Úrlsit
urðu sem hér segir.
7 ára strákar -1 km:..............mín.
Birkir Fannar Gunnlaugsson, Sigluf..5,48
BrynjarLeó Kristinsson, Ólafsf......6,34
Ágeir Frímannsson, Ólafsf...........7,06
Sigmundur Jónsson, Ólafsf...........8,20
8 ára stúlkur -1 km:...............mín
Lena Margrét Konráðsdóttir, Ólafsf......6,56
9 ára stúlkur -1,5 km:......,,....mín.
Elsa Guðrún Jónsdóttir, Ólafsf......7,15
Kristín Inga Þrastardóttir, Sigluf......7,34
Anna Lóa Svansdóttir, Ólafsf........8,07
ÁsgerðurEinarsdóttir, Ólafsf............8,58
9 ára strákar -1,5 km:............mín.
Hjalti Már Hauksson, Ólafsf.........6,21
ÖrvarTómasson, Sigluf...................7,52
10 ára strákar -1,5 km:...........mín.
Hjörvar Maronsson, Ólafsf...............5,46
Sigurður Guðgeirsson, Sigluf........8,52
11 ára stúlkur - 2,5 km:..........mín.
Freydís Heba Konráðsdóttir, Ólafsf.11,59
Guðný Ósk Gottlíebsdóttir, Olafsf..12,33
Elín MariaKjartansdóttir, Sigluf...13,16
11 ára strákar - 2,5 km:..........mín.
Freyr Steinar Gunnlaugsson, Sigluf. ...10,46
Jóhann Örn Guðbrandsson, Sigluf....12,01
Sigurjón Óskarsson, Sigluf.........13,00
Jakob Sigurðsson, Sigluf...........13,18
Jón Örvar Gestsson, Sigluf.........13,32
Jón Þorri Kristjánsson, Sigluf.....13,37
12 ára strákar - 2,5 km:..........mín.
Árni Teitur Steingrímsson, Sigluf..10,34
Bragi Sigurður Óskarsson, Ólafsf...11,36
Gunnlaugur Ingi Haraldsson, Ólafsf. ..12,40