Morgunblaðið - 16.05.1996, Qupperneq 4
„Magic"
Johnson er
hættur með
Lakers
KNATTSPYRNA
Klinsmann og Bayem á
spjöld UEFA-sögunnar
JURGEN Klinsmann og Bayern
Munchen skráðu nafn sitt á
spjöld sögu UEFA-bikarkeppn-
innar í Bordeaux i Frakklandi í
gærkvöldi, þar sem Bæjarar
tryggðu sér UEFA-bikarinn með
því að leggja Bordeaux að velli,
1:3. Klinsmann skoraði eitt mark
og setti markamet og Bayern
varð fjórða liðið til að fagna sigri
i öllum þremur Evrópukeppnun-
um.
Mörk frá Mehmet Scholl, Emil
Kostadinov, sem lagði upp
fyrsta markið og methafanum Klins-
mann tryggðu Bayern fyrsta Evrópu-
bikarinn í 20 ár. Kiinsmann bætti
markametið um eitt mark, áður
höfðu Jose Altafini, AC Milan, skorað
fjórtán mörk 1962-63 og John Wark,
Ipswich, 1980-81. Bayern vann sam-
aniagt 5:1, þar sem þeir Thomas
Helmer og Scholl skoruðu í fyrri leik
liðanna á Ólympíuleikvanginum í
Miinchen, 2:0.
Bayern er komið í hóp Ajax, Juv-
entus og Barcelona, sem hafa unnið
alla Evrópubikarana þijá. „Við kom-
um hingað til að ná í UEFA-bikar-
inn, sem hafði ekki komið til
Miinchen," sagði Klinsmann. Bayern
varð sigurvegari í Evrópukeppni bik-
arhafa 1967 og fagnaði síðan sigri
í Evrópukeppni meistaraliða 1974,
1975 og 1976. Þá varð Bayern
heimsmeistari félagsliða 1976, nokk-
uð sem Ajax og Juventus afrekuðu
einnig, en Barcelona ekki.
Leikmenn Bayern og 1.600 stuðn-
ingsmenn liðsins fögnuðu sigrunum
gífurlega. Lothar Mattháus sagði að
einn maður sem ekki væri á staðn-
um, ætti stóran þátt í þessu afreki
- Otto Rehhager, fyrrum þjálfari
liðsins. „Þetta er jafnmikill sigur fyr-
ir hann og okkur."
Reuter
LOTHAR Mattháus lyftir UEFA-blkarnum sigrlhrósandi í Bordeaux í gærkvöldi, þar sem hann
fagnaðl ásamt félögum sínum á Parc Lescure-lelkvellinum.
EARVIN „Magic“ Johnson,
sem byrjaði að leika með Los
Angeles Lakers í NBA-deild-
inni fyrir þremur mánuðum,
er hættur á ný. Johnson hætti
fyrst fyrir fjórum árum, þeg-
ar hann greindist HTV-
jákvæður. Kom til baka í jan-
úar sl. og hjálpaði Lakers til
að komast í úrslitakeppnina.
Liðið féll út í fyrstu umferð,
tapaði fyrir meisturum Houst-
on Rockets í fimm leikja við-
ureign. Johnson, sem er 36
ára, hefur hug á að leika að-
eins sýningaleiki víðs vegar
um heirn 1 framtíðinui.
ÍÞ/ém
FOLK
■ EINAR Björnsson deildarstjóri
hjá Flugleiðum hefur tekið við for-
mennsku í handknatteiksdeild
Sljörnunnar af Októ Einarssyni.
■ Á aðalfundi Stjörunnar í vik-
unni kom fram í reikningum fé-
lagsins að rúmlea 276 þúsund
króna hagnaður var af rekstri
handknattleiksdeildarinnar sl.
starfsár.
' ■ JULIO Cester, varnarleikmað-
ur Dortmund, sem á eitt ár eftir
af samningi sínum við félagið, seg-
ist vilja komast heim til Brasilíu
og vonast eftir að forráðamenn
Dortmund verði við ósk hans eftir
þetta keppnistímabil.
■ NÆSTA víster að Mario Basl-
er, miðvallarspilari Werder
Bremen, fari til Bayern
Miinchen. Forráðamenn Bayern
sögðu frá því í sigurvímu í Borde-
aux í gærkvöldi.
■ JEAN-Pierre Papin, sóknar-
leikmaður Bayern, er óánægður
hjá liðinu og vill komast burt.
■ DORTMUND leggur mikla
áherslu á að þýski landsliðsmaður-
inn Thomas Hassler komi til liðs-
ins frá Karlsruhe. Forráðamenn
liðsins segja að hann og Andy
Möller yrðu frábærir saman á
miðjunni.
Kristóf-
ervill
fráKR
KRISTÓFER Sigurgeirsson,
sem skipti úr knattspymuliði
Breiðabliks í KRI vetur, vill
fara frá KR samkvæmt heim-
ildum blaðsins. Breiðabliks-
menn viija fá hann til baka
en KR-ingar vifja halda hon-
um. Kristófer gerði eins árs
samning við KR og getur því
ekki gengið á nýjan leik til
liðs við Breiðablik nema með
samþykki KR-inga.
Þess má geta að Kristófer
lék með Vfistra Frölunda í
Svíþjóð, áður en hann kom á
ný til liðs við Breiðablik sl.
sumar. *
HANDKNATTLEIKUR
Valdimar Grímsson ráðinn þjálfari Stjörnunnartil tveggja ára
Var erfftt að segja nei
Ieðan ég er leikmaður vil
ég vera í baráttunni um
titlana. Reyndar hafði ég hug-
leitt að fara aftur heim t.il Vals
en þegar mér bauðst að taka við
Stjörnunni fannst mér að viss
ögrun felast í því og reyna að
vera fyrsti þjálfarinn til að vinna
meistaratitil í meistaraflokki
karla í Garðabæ. Það var erfitt
að segja nei,“ sagði Valdimar
Grímsson eftir að hann hafði í
gær undirritað tveggja ára
samning við Stjörnuna um þjálf-
un liðsins. Valdimar mun einnig
leika með liðinu.
Valdimar sagði að aðdragand-
inn að samningi hans við Stjörn-
una hefði verið skammur. For-
ráðamenn félagsins hefðu reynd-
ar haft samband við sig í vor en
ekkert hefði þá af frekari viðræð-
um sökum þess að Valdimar var
enn samningsbundinn Selfossi
þar sem hann þjálfaði í vetur.
„Eftir að Selfyssingar tilkynntu
mér á sunnudaginn að þeir hefðu
ekki í hyggju að endurnýja
samninginn við mig komst á ný
samband á milli mín og Stjörnu-
manna. Við vorum síðan snöggir
að komast að samkomulagi.
Markmið mitt er að hlúa að
þeim breiða hópi leikmanna sem
hér er fyrir og ná meira út úr
honum en tekist hefur. I hópnum
hefur verið sundrung undanfarin
ár en ástandið batnaði síðasta
vetur og ég ætla að bæta það
enn frekar og fá menn til að
vinna saman alla sem einn. Ég
set engar kröfur fram um að
hópurinn verði styrktur frá því
sem nú er, en hafi stjórnarmenn
verið að vinna í einhveijum mál-
um þá er sjálfsagt að þeir ljúki
þeim.“
Frá nýliðnu keppnistímabili
hafa Dmítrí Filippov og Magnús
Sigurðsson yfirgefið herbúðir
Garðbæinga en í stað þeirra hafa
þeir endurheimt þijá leikmenn
sem aldir voru upp hjá félaginu
en hafa reynt fyrir sér að undan-
förnu á öðrum vettvangi. Það eru
Einar Einarsson sem lék með ÍR
í vetur, Rögnvaldur Johnsen frá
Fylki og Sæþór Ólafsson úr ÍH.
„Biðin eftir titlum hjá karla-
flokki Stjörnunnar hefur verið
löng og vonandi styttist sú bið
með komu Valdimars og fleiri
góðra manna auk þess sem við
eigum sterkan hóp leikmanna
sem við vonumst til að springi
út,“ sagði Októ Einarsson, frá-
farandi formaður handknatt-
leiksdeildar Stjörnunnar, eftir að
hann hafði undirritað samning-
inn við Valdimar en það var eitt
hans síðasta verk sem formaður.
VIKINGALOTTO: 5 8 16 21 33 35 + 20 26 42