Morgunblaðið - 29.05.1996, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 29.05.1996, Blaðsíða 4
4 E MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ Strokleður í Pennalandi - HVAR er ég? spurði strokleðrið sjálft sig þegar það var dottið úr stóru gati frá himnum. Það sá einn penna, sem það hafði aldrei séð áður. - Sá hefur mjókkað, sagði stok- leðrið við sjálft sig. Það fann síma. Þar stóð: Setjið inn kortið og sláðu númer. - En ég á ekkert kort, sagði strok- leðrið, en síðan sá það annan penna og sagði við hann: - Veist þú hvar hægt er að kaupa kort? - Hvemig kort? Bílakort, búða- kort, símakort. - Símakort. - Þá verður þú að hringja og panta það. - Hvernig á ég að geta pantað símakort þegar ég á ekkert síma- kort til að hringja? - Ég veit ekki. Jú! Ég skal teikna fyrir þig kort. - Vá! Það get ég ekki gert, ég get bara strokað. - Ha?! Ert þú ekki penni? - Penni! Hvað er nú það? - Veistu það ekki. Allir sem ekki eru pennar þurfa að fara til lögg- unnar og sýna ID-kort (persónuskil- ríki), bílakort og allt! Hvernig komst þú hingað? - Ég datt úr gati, Nína Nora gati. Hún tekur öll strokleður og hendir þeim bara eitthvert út í loft- ið og ég datt hingað. - Hvaðan kemur þú? Þú hlýtur að kpma frá annarri veröld. - Ég kem frá plánetunni Stroki. - Nú, en núna ert þú á plánet- unni Penníró. Hvað heitir þú? - Ég heiti Strím, en þú? - Pinnó Pensilason. Þú verður að fela þig eða fara til kóngsins í Pennalandinu og láta skrifa þig inn í þykka bók, og þá mátt þú búa hér. - Við skulum sjá, en hvað með kortið mitt?! (Höfundur: Berglind Þórólfs- dóttir, Váster&s, Svíþjóð.) Lausnir miuoatí oaí 'tuy eSSutj 3o n^tuunj uo buuiui suiaQB jnífaA uu!|2njuqi|9>) flsuuiw ?u ujiaui i>|.iOAq ja uuunfíuiujÁqsrfj Asa og Petra ÞAÐ voru einu sinni tvær stelpur. Þær voru alltaf að keppa hvor við aðra. Einn dag sagði Petra: Ég get hlaupið upp að stóra trénu og klifr- að upp í það og hoppað niður. Það get ég líka, sagði Ása. En þú átt að gera það fyrst. Petra gerði það sem henni var sagt. Nú átt þú að hoppa, hrópaði hún. Ása gerði það sem henni var sagt að gera. Þetta var ekkert merkilegt, skrökvaði hún. Ég get stokkið af bílskúrsþakinu heima hjá mér. Sýndu mér það þá, sagði Petra. Ása hoppaði af bílskúrsþakinu heima hjá sér. Reyndu að gera þetta betur, Petra! hrópaði hún. Petra gerði þetta alveg eins vel. Síðasta greinin sýnir hver er best- ur, sagði hún svo. Petra sagði að þær ættu að stökkva af svölunum hennar Ásu næsta dag. Stelpumar fóru heim til sín og byijuðu að æfa sig. Næsta dag eftir morgunmat hitt- ust þær heima hjá Ásu. Þær önduðu djúpt og hoppuðu samtímis. Petra lenti á götunni og Ása lenti í rósar- unnanum. Báðar lentu illa, en sem betur fer ekki á hausnum. Samt þurftu þær að fara á spítalann. Þær voru saman á stofu. Svo hlógu þær að allri vitleysunni! (Höfundur: Sólveig Sigurðar- dóttir, Vásterás, Svíþjóð.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.