Morgunblaðið - 30.05.1996, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 1996 C 3
ÍÞRÓTTIR
KNATTSPYRNA
dagskvöld!
LANDSLEIKUR íslands og Makedóníu
fer fram á Laugardalsvelli á laugar-
dagskvöld kl. 19.00. Upphaflega var
gert ráð fyrir að leikurinn hæfist kl.
20.00, en að ósk Makedóníumanna var
hann færður fram til kl. 19.00. Leiknum
verður sjónvarpað beint til Makedóniu.
Fyrr um daginn, eða kl. 14.00, fer fram
leikur þjóðanna 21s árs og yngri á
Kaplakrikavelli og er leikurinn liður í
Evrópukeppninni. Eggert Magnússon,
formaður KSÍ, sagði spennandi að sjá
hvemig þessi leiktimi kæmi út. „Við
höfum ekki áður spilað landsleik á Iaug-
ardagskvöldi og því verður spennandi
að sjá hvernig sá tími hentar til lands-
leikja."
Oll hótel voru
fullbókuð
LANDSLIÐ Makedóníu, sem leikur
gegn íslendingum í undankeppni HM á
Laugardalsvelli á laugardaginn, kemur
tíl landsins með leiguflugvél frá Make-
dóníu í dag. Liðið gistir á Flug-Hótelinu
í Keflavík fram á laugardagskvöld.
Ekki fékkst gisting i Reylqavik fyrir
liðið, þar sem Makedóniumenn höfðu
ekki pantað hótel tímanlega. Þegar
þeir sendu inn pöntun öll hótel fullbók-
uð vegna ráðstefnur í borginni þessa
daga. 50 stuðningsmenn koma með lið-
inu hingað.
Forsala hafin
PORSALA aðgöngumiða á landsleik
íslands og Makedóníu er hafin og fer
fram á bensínstöðvum Esso í dag og
morgun. Safnkorthafar Esso fá 300
króna afslátt af stúkumiða, 200 kr. af
stæðismiða og 100 kr. af barnamiða.
Miðaverð í stúku er 1.800 krónur, 1.000
kr. í stæði og 500 krónur fyrir börn
10-16 ára.
Morgunblaðið/Kristinn
HLYNUR Stefánsson á landsliðsæfingu í gærkvöldi og lengst
til hægri má sjá fyrrum félaga hans hjá Órebro, Arnór Guð-
johnsen, en Hlynur leikur nú með ÍBV.
Þrír nýliðar
bætast í hóp-
inn gegn Kýpur
Islenska landsliðið í knattspyrnu
leikur vináttuleik gegn Kýpur
á Akranesi næsta miðvikudag.
Fyrr um daginn leikur 21 árs liðið
æfingaleik við ÍA.
Sex landsliðsmenn, sem leika
gegn Makedóníu á laugardag, eiga
ekki heimangengt í ieikinn á Akra-
nesi. Það eru Arnór Guðjohnsen,
Sigurður Jónsson og Rúnar Krist-
insson, sem eru að leika með liðum
sínum í Svíþjóð á sama tíma. Sömu
sögu er að segja af Birki Kristins-
syni og Ágústi Gylfasyni, sem
leika með Brann í Noregi. Þá getur
Bjarki Gunnlaugsson ekki leikið.
Logi Ólafsson, landsliðsþjálfari,
hefur valið sex leikmenn í þeirra
stað fyrir leikinn gegn Kýpur og
hafa þrír þeirra ekki leikið A-
landsleik. Þeir eru Þórður Þórðar-
son, ÍA, Hermann Hreiðarsson,
ÍBV, og Sverrir Sverrisson, Leiftri.
Hinir þrír hafa áður leikið lands-
leik, en þeir eru Ólafur H. Krist-
jánsson, KR, Alexander Högna-
son, IA, og Helgi Sigurðsson,
Stuttgart.
Weah aö púsla
saman landsliði
Knattspyrnumaður ársins í Evr-
ópu, Líberíumaðurinn Ge-
orge Weah, vinnur nú hörðum
höndum að því að smala saman
landsliði heimalands síns en mikið
rót hefur komið á það sökum
borgarastyijaldar í landinu. Líber-
ía á að leika á laugardaginn fyrsta
leik sinn í undankeppni HM gegn
Gambíu á útivelli. Weah er nú í
höfuðborg Fílbeinstrandarinnar
við að púsla saman liði fyrir leik-
inn og eru níu knattspyrnumenn
frá heimalandinu nýkomnir til liðs
við hann eftir erfitt ferðlag frá
Líberíu. Weah er einnig að vinna
að því að fá leikstað annars leiks
Líberíu breytt en þeir eiga að taka
á móti liðsmönnum Monróvíu á
heimavelli 15. júní. Vill Weah
gjarnan fá þann leik fluttan á hlut-
lausan leikvöll.
KORFUKNATTLEIKUR
Utah heldur
enn í vonina
Utah Jazz sigraði Seattle Super-
Sonics í framlengdum leik .á
útivelli, 98:95, í úrslitum Vestur-
deildarinnar í fyrrinótt. Jazz náði því
að minnka muninn í 3:2 og fær
næsta leik heima. Það lið sem fyrr
vinnur fjóra leiki mætir Chicago
Bulls í úrslitum um meistaratitilinn.
Karl Malone var hetja Utah, gerði
29 stig og tók auk þess 15 fráköst.
Hornacek kom næstur með 27 stig
og þar af fjórar þriggja stiga körfur
úr fimm tilraunum. „Við vorum að
beijast fyrir lífi okkar og það var
enginn sem vann þennan leik fyrir
okkur nema við sjálfir," sagði Mal-
one. „Við gerðum það sem við ætluð-
um okkur — að fá annan heimaleik.
Ég er þess fullviss að við náum að
spila okkar besta leik heima og eigum
því eftir að koma aftur til Seattle í
sjöunda leikinn."
Þegar rúmlega tvær mínútur voru
eftir af venjulegum leiktíma hafði
Utah yfír, 90:85. Gary Payton setti
niður þriggja stiga skot fyrir Seattle
og Shawn Kemp jafnaði, 90:90, þeg-
ar 28 sekúndur voru eftir. Kemp
náði síðan að veija skot frá Malone
þegar 4,2 sekúndur voru eftir og
tryggði Seattle framlengingu. Anto-
ine Carr gerði fyrstu körfuna í fram-
lengingunni fyrir Utah, 92:90. Pay-
ton skoraði þriggja stiga körfu,
92:93. Homacek lék sama leikinn
fyrir Utah, 95:93 og Payton jafnaði,
95:95, þegar 2,48 mín. voru eftir.
Bryon Russell hitti ekki úr þriggja
stiga skoti, en Stockton náði frákast-
inu og fékk vítaskot eftir að Kemp
hafði brotið á honum. Stockton hitti
úr báðum vítaskotunum og kom Utah
í 97:95 og Hornacek skoraði síðan
síðasta stigið í leiknum fyrir Utah
af vítalínunni, 98:95.
Gary Payton, sem lék síðustu 11
mínúturnar með fimm villur, var
stigahæstur í liði Seattle með 31
stig og er það besti árangur hans í
FOLX
■ DAVE Cowens, fyrrverandi
leikmaður með Boston Celtic, hef-
ur verið ráðinn þjálfari Charlotte
Horentes í NBA-deildinni í körfu-
knattleik. Cowens var aðstoðar-
þjálfari hjá San Atnonio Spurs
síðasta keppnistímabil.
■ RICK Pitino, þjálfari Kentucky
háskólans, hefur verið boðið að
þjálfa New Jersey Nets. Pitino
þykir einn besti körfuboltaþjálfari
Bandaríkjanna. Nets bauð honum
fímm milljónir dollara fyrir fimm
ára samning, en hann neitaði. Síðan
bauð félagið enn betur því honum
var boðið að gerast meðeigandi í
félaginu. Pitino hefur ekki viljað
gefa út neinar yfirlýsingar en búast
má við að hann taki tilboðinu.
úrslitakeppni. Shawn Kemp kom
næstur með 24 stig og 13 fráköst.
„Við vorum of bráðir í lokin,“ sagði
Payton. „Ég veit ekki hvers vegna,
en þetta er það sem gerist stundum.
Þetta tap gerir okkur aðeins erfiðara
fyrir en herðir okkur um leið.“
„Við eigum möguleika á að kom-
ast í úrslit, en erum langt frá því
að vera komnir þangað,“ sagði Jerry
Sloan, þjálfari Utah. „Heppnin var
með okkur í þessum leik.“
ÚRSLIT
Frjálsíþróttir
Alþjóðlegt mót í Bratislava
KARLAR:
Langstökk:
Jaime Jefferson (Kúbu)..............8,30
Nelson Ferreira (Brasilíu)..........8,19
Erik Nijs (Belgíu)..................7,79
Hástökk:
RobertLeitl (Slóvakíu)..............2,21
Robert Ruffini (Slóvakíu)...........2,21
Tomas Ort (Tékklandi)...............2,18
200 metra hlaup:
Patrick Stevens (Belgiu)...........20,38
Ramon Clay (Bandar.)...............20,50
Troy Douglas (Bermúda).............20,70
100 metra hlaup:
Darren Campbell (Bretlandi)........10,17
Donovan Powell (Jamaika)...........10,20
Terrance Bowen (Bandar.)...........10,24
400 metra grindahlaup:
Samuel Matete (Zambía).............48,65
Derrick Adkins (Bandar.)...........49,00
DusanKovacs (Ungveijal.)...........49,40
Kúluvarp:
Aleksandr Bagach (Úkraínu).........20,64
Sven Buder (Þýskalandi)............20,42
. Paolo Dal Soglio (Ítalíu)........20,22
110 metra grindahlaup:
Tony Jarrett (Bretlandi)...........13,24
Colin Jackson (Bretlandi)..........13,27
Igor Kovac (Slóvakiu)..............13,36
3.000 hindrunarhlaup:
Christopher Koskei (Kenýa).......8.17,70
Wilson Kipketer (Danmörku).......8.19,46
Johnstone Kipkoech (Kenýa).......8.23,10
KONUR:
Stangarstökk:
Nastya Ryshich (Þýskalandi).........4,12
Vala Flosadóttir (íslandi)..........4,06
Eszter Szemeredi (Ungveijalandi)....4,06
Þrístökk:
Sarka Kasparkova (Tékklandi).......14,41
Ashia Hansen (Bretlandi)...........14,21
Yelena Blazavica (Lettlandi).......14,06
100 inetra hlaup:
Mary Onyali (Nígeríu)..............11,13
Eldece Clarke (Bahamas)............11,44
Marcia Richardson (Bretlandi)......11,47
400 metra hlaup:
JulietCampbell (Jamaiku)...........51,37
Taty ana Cheby kina (Rússlandi)....51,66
Olabisi Afolabi (Nígeríu)..........51,70
Spjótkast:
Okasana Ovchinnikova (Rússlandi) ..62,.02
Nikola Tomekova (Tékklandi)........61,94
Sonia Vicet (Kúbu).................61,74
Hástökk:
Stefka Kostadinova (Búlgaríu).......1,98
Alica Javat (Slóvakíu)..............1,95
Donata Wawrzyniak (Póllandi)........1,92
Leiðrétting
1 grein um árangur íslenska sundfólksins á
mótinu í Mónakó i blaðinu í gær var ekki
rétt farið með tíma nokkurra keppenda.
Magnús Konráðsson synti 100 m bringu-
sund á 1.06,39 mín. Eydís Konráðsdóttir
synti 100 m flugsund á 1.03,66 mín., Logi
Jes Kristjánsson synti 200 m baksund á
2.07,85 mín., Elín Sigurðardóttir synti 100"
skriðsund á 1.00,07 mín. og Arnar Freyr
Ólafsson synti 400 m skriðsund á 4.10,1
m(n. og 200 m skriðsund á 1.55,51 min.
Golf
Opið unglingamót
í Leirunni laugardaginn 1. júní
(Ath. breyting frá dagsetningu í kappleikjaskrá)
Pepsí cola verðlaunaveisla
Ræst út kl. 7.00 til kl. 12.30
Fyrirkomulag: Flokkar.
Aukaverðlaun:
Næst holu á öllum par 3 holum/fæst pútt og fl.
Utdráttur í mótslok.
Skráning hafín í síma 421 4100.