Morgunblaðið - 23.06.1996, Síða 2
2 D SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Grænlendingar kaupa Landcrusser frá íslandi
Nissan Micra
bestur
ÞÝSKA bflablaðið Autobild hefur valið Niss-
an Micra besta bílinn úr hópi sjö smábíla
úr prófi sem blaðið gekkst fyrir. í næstu
sætum komu Peugeot 106, Citroen AX og
Fiat Cinqueeento. Aðrir þátttakendur í próf-
inu voru Suzuki Alto, Daihatsu Cuore og
Seat Marbella. Frá því Nissan Micra var
sett á markað 1992 hefur hún fengið a.m.k.
tólf viðurkenningar af þessu tagi og var auk
þess valinn bill ársins 1993. Micra er smíðuð
í Engla ndi og er flutt út til 38 landa.
LfKNARBELGUR fyrir vélhjól.
Líknarbelgur
fyrir mótorhjól
LÍKNARBELGUR fyrir mótorhjól lofar
góðu ef marka má niðurstöður rannsókna
bresku stofnunarinnar TRL. Fram til þessa
hefur kerfið uppfyllt sex af 14 alþjóðlegum
stöðlum en líknarbelgurinn er af svipaðri
stærð og belgir í bílum. Niðurstöðurnar
sýna að líknarbelgur á mótorhjóli getur
dregið úr alvarlegum slysum sem verða í
árekstrum bíla og vélhjóla um 70%.
NÝR Ferrari.
NýrFerrari
NÝR Ferrari, arftaki 512M Testarossa,
verður frumkynntur á bílasýningunni í Par-
ís í október. Þessi nýi, tveggja sæta sport-
bíll, sem gengur undir vinnuheitinu F133,
verður, ólíkt 512, með V-12 vél að framan.
Sala á bíinum hefst snemma á næsta ári.
Átján mánuðum síðar verður blæjubíll sömu
gerðar kynntur sem kallast Califomia.
bílana?
VÖRUMERKING Toyota aukahluta
er á hlið bílsins.
TOYOTA Landcruiser, breyttur
á íslandi, seldur til Syðri-Straum-
fjarðar á Grænlandi.
P. SAMÚELSSON, umboðsaðili
Toyota á íslandi, hefur selt björgun-
arsveitarútfærslu af Toyota
Landcruiser til Grænlands. Þetta er
fyrsti bíllinn sem er pantaður breytt-
ur erlendis frá. Um er að ræða STD
með 4,2 lítra, fjölventladísilvél. Hann
er með gormafjöðrun, sítengdu al-
drifi og 100% driflæsingu að framan
og aftan. Áætla má að 160 vinnu-
stundir hafí farið í að breyta bílnum
fyrir Grænlendingana hér á landi
en hann verður notaður til þess að
aka ferðamönnum frá flugvellinum
í Syðri-Straumsfírði um byggðina
þar og upp að jökulröndinni. I ráði
er að P. Samúelsson sendi menn til
Grænlands til þess að þjálfa notend-
ur bflsins þar í umgengi um bílinn
og akstri í snjó.
Um 200 hestöfl
Bíllinn var settur á 38 tommu
Dick Cepek jeppadekk og tólf
tommu breiðar stálfelgur. Hann er
hækkaður upp um þrjár tommur á
undirvagn. Flestir björgunarsveit-
arbílarnir hér á landi af þessari
gerð hafa verið settir á 44 tommu
dekk. Bíllinn er með íslenska bretta-
kanta og Downey upphækkunar-
fjöðrunarbúnað. Bíllinn er með
Ramsey 9.000 punda rafmagnsspili
sem hægt er að hafa á framstuðara
eða afturstuðara. Öflug rafmagns-
BÍLLINN er
beinskiptur og
hann er með
100% driflæs-
ingu.
VÉLIN er 4,3
lítra disil með
forþjöppu og
millikæli, rétt
um 200 hestöfl.
Morgunblaðið/Þorkell
loftdæla er í vélarrými með úrtaki
inni í bensínlokinu.
Vélin, sem með forþjöppu skilar
170 hestöflum, er nú nálægt 200
hestöfl eftir að bætt var við milli-
kæli, sem eykur hestaflafjöldann
um 15-20%.
Atvinnuskapandi
Reynir Jónsson hjá P.
Samúelssyni, segir að bíll-
inn taki sjö manns og hægt
er að leggja aftasta sæta-
bekkinn niður. Aftasti
sætabekkurinn var smíðað-
ur hér á landi hjá Bílaklæðn-
ingum Ragnars Valssonar.
Sætabekkurínn er heldur efnismeiri
og þægilegri en sá sem fylgir bíln-
um. Reynir segir að svona breyting-
ar séu mjög atvinnuskapandi. Bíln-
um var breytt á breytingaverkstæði
Toyota. Vinnustundir á verkstæð-
inu við breytingar á bílnum voru
160. Þetta er langur vinnutími mið-
að við framleiðslutíma á nýjum bíl
í verksmiðjum Toyota í Japan. Þar
tekur það um 20-25 klukkutíma að
framleiða einn bíl.
Bíllinn kostar með öllum breyting-
um um 3,5 millj. kr. Líklega myndi
slíkur bíll kosta um 5,3-5,4 milljónir
kr. hérlendis, en ekki eru greidd
aðflutningsgjöld af bílnum þar sem
hann er fluttur aftur út. ■
160 vinnustundir fóru
í breytingar á bílnum
LÖGREGLAN í Reykjavík vinnur að því
að safna munum um sögu sína og hefur
verið opnuð sýning á Árbæjarsafni þar
að lútandi. Þar sýnir lögreglan m.a. þessi
Lögregluhjól
forkunnarfögru vélhjól, Harley Davidson,
ásamt elstu lögreglubílunum. Lögreglan
er að reyna að koma í lag elsta mótor-
hjóli sínu frá 8. áratugnum. Myndirnar
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
að ofan voru teknar þegar lögreglan sýndi
gripina á Árbæjarsafni og brá sér einnig
bæjarleið niður á Lækjartorg fyrir
skemmstu. ■
60% AF evrópskri bíiaframleiðslu á sér alls
ekki stað hjá evrópskum bílaverksmiðjum
heldur hjá birgjum þeirra. Þeir afhenda oft
til smíðinnar heilu íhlutina.t.d. ABS-hemla-
kerfi, sæti eða mælaborð. í nokkrum tilfell-
um fer starfsemi sjálfra birgjanna fram
undir þaki bílaframleiðendanna.
Polio
heimsbíllinn
NÝIR tímar eru að hefjast hjá Fiat með
framleiðslu á heimsbílnum Palio. Fiat
hyggst auka framleiðslu sína um 35% með
nýja bílnum. Bíllinn verður smíðaður í
a.m.k. tíu löndum. Smíðaðir verða 450
þúsund bílar í Suður-Ameríku á ári, 50
þúsund í Indlandi, 150 þúsund í Kína, en
mest í Brasilíu, 350 þúsund bflar. Palio er
ekki ætlaður á markað í Vestur-Evrópu en
þrátt fyrir það er ekki um að ræða hefð-
bundin „þriðja heims“ bfl. Palio er faliegur
útlits og talinn sambærilegur að allri gerð
við evrópska bíla. Bfllinn sem seldur verður
í Evrópu er nákvæmlega eins útlits og heit-
ir Brava/Bravo. ■