Morgunblaðið - 30.06.1996, Blaðsíða 1
%
Höfuðborg og stærsta
borg Rúmeníu, Búkar-
est, virkaði andstæðu-
kennd á Ijósmyndarann
Þorkel Þorkelsson, sem
mundaði vélina nýlega á
mannlíf og bygginar í
borg hinna miklu öfga.
Byggingar í borginni
eru til dæmis ýmist feiki-
lega fallegar eða í al-
gerri niðurníðslu.
SUNNUDAGUR 30. JÚNÍ 1996 BLAÐ C
fyrir íslendinga
Tveggja vikna gjald:
Opel Corsa, dkr. 2.995
Opel Astra, dkr. 3.590
Opel Astra st., dkr. 3.990
Opel Vectra, dkr. 4.390
Innif. ótakm. akstur og tryggingar.
Fáið nánari verðtílboð.
Nýkominn
sumarhúsalisti
sendist okeypis
fjölbreytt úrval sumarhúsa ■
um alla Danmörk.
*>.
Fjöldi ferðamanna sækir Vestmannaeyjar á sumrin og mörg stórmót eru haldin
Líf ið í Eyjum breyfisf
með ferðamannatímanum
LÍTIÐ gerist yfir vetrartímann í ferðaþjónustu
í Vestmannaeyjum, en á sumrin lifnar allt við
og vantar þá gistirými þegar mest er um að
vera. Svipmót bæjarins gjörbreytist og sjávar-
plássið fær á sig alþjóðlegan svip.
Örn Ólafsson í Upplýsingamiðstöð Vest-
mannaeyja telur ástæðuna fyrir vinsældum
Eyjanna felast í sérstöðu þeirra. „Það er svo
margt hérna sem ekki finnst annarsstaðar,
til dæmis sprangið og pysjutímabilið," segir
hann.
Gestir í Eyjum hafa margir heillast af sigl-
ingum með P.H. Víking um Eyjarnar, að sögn
Arnar, og eru ferðir tvisvar á dag. Einnig
hefur nýlega verið boðið upp á bátsferðir með
sjóstöng við Úteyjar.
„Sérstakar gönguferðir eru nýjung hjá okk-
ur í sumar,“ segir Óm og bætti við að á föstu-
daginn hefðu börnin gengið syngjandi um
bæinn í góða veðrinu.
Hann sagði einnig að 15 skemmtiferðaskip
kæmu til Eyja í sumar og var eitt þeirra í
heimsókn á föstudaginn, Explorer.
Ferðamálafulltrúi Vestmannaeyja, Páll
Marvin Jónsson, segir að þegar mest sé um
að vera þurfi jafnvel að fá pláss fyrir gesti í
heimahúsum.
Núna stendur Peyjamótið yfir í Eyjum eða
m.ö.o. Shellmót í knattspyrnu drengja, og
talið er að um 1200 gestir gisti Eyjamar af
því tilefni. Heijólfur er uppbókaður fram á
þriðjudag vegna þess, og verður nánast loft-
brú milli lands og Eyja.
Pæjumótið var líka vel sótt en það var hald-
ið í júníbytjun. Landsmót í golfi verður í Vest-
mannaeyjum síðar í þesum mánuði og verður
nýr átján hola völlur vígur á mótinu. Búist
er við miklum fjölda gesta í tengslum við
mótið.
Á morgun, 1. júlí, hefjast lundaveiðar í
úteyjum sem standa í tíu daga. „Það er eftir-
sótt að komast í úteyjar þessa daga,“ segir
Páll Marvin. Loks nefndi hann Þjóðhátíðina í
byijun ágúst og 17. ágúst hefjast Hálandaleik-
ar með kraftakörlum eins og Hjalta Úrsusi.
Ekki eru til staðfestar tölur um fjölda far-
þega til og frá Eyjum með Herjólfi, Flugleið-
um, íslandsflugi og Flugfélagi Vestmanneyja
Morgunblaðið/Sigurgeir
SPRANG hefur heillað marga
sem sækja Eyjamar.
frá maí til september, en 70 þúsund er eitt-
hvað nærri lagi, samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið aflaði sér. ■
Á döfinni
í Dnnmörku
►í MOESGÁRD-safninu í Árós-
um mun standa yfir fram á
haust, firna yfirgripsmikil sýn-
ing á allra handa hlutum og
munum frá Austurlöndum nær,
svo sem kryddjurtum, silfur-
búnaði, fatnaði og gömlum
arabískum handritum.
I Kaupmannahöfn hefur
söngleikur byggður á ævintýri
eftir Hans Christian Andersen
verið sviðsettur í Gladsaxe-leik-
húsinu. Sýningar verða til 3.
ágúst.
„ímyndir frá Afríku 1996“ er
yfirskrift hátíðahalda í höfuð-
borginni. Fram til 6. júlí munu
um 600 afrískir listamenn, dans-
arar, leikarar og tónlistarmenn
koma fram og sýna listir sínar
víðs vegar um borgina.
í Louisiana-nýlistasafninu í
Kaupmannahöfn stendur yfir
sýning á verkum samtímalista-
manna frá Evrópu, Banda-
ríkjunum og Japan. Meðal ann-
ars eru þar til sýnis málverk,
höggmyndir, ljósmyndir og
margt fleira. ■
1