Morgunblaðið - 10.07.1996, Blaðsíða 4
ímm
WL®t$mnhlufaib
■ BOB Kennedy langhlaupari
frá Bandaríkjunum varð fyrsti
maðurinn sem ekki er ættaður frá
Afríku sem hleypur 5.000 metr-
ana undir 13 mínútum er hann
kom annar í mark á alþjóðamótinu
í Stokkhólmi í fyrradag á
12.58,75 mínútum. Kennedy varð
annar í hlaupinu.
■ HICHAM E1 Guerroudj frá
Marokkó sigraði í 1.500 metra
hlaupi á sama móti á 3.29,59
mínútum. það er þriðji besti tími
í greininni frá upphafi vega.
■ JONATHAN Edwards heims-
methafinn í þrístökki sigraði í 21.
skipti röð í þrístökkskeppni er
hann stökk lengst allra, 17,29
metra, á Stokkhólmsmótinu. Það
er einum metra styttra en heims-
metið sem hann setti á HM í
Gautaborg í fyrra. Að keppni lok-
inni sagði Edwards prísa sig sæl-
an yfir því að hvorki hinir sterku
Kúbumenn né Kenny Harrison
frá Bandaríkjunum hafi verið
með. „Fæturnir á mér voru svo
kraftlausir.“
■ ALÞJÓÐLEGT fijálsíþrótta-
mót verður í kvöld í Nice í Frakk-
landi. Þar verður líklega um
hörkukeppni að ræða í mörgum
greinum en líklega beinast
sviðsljósin einna helst að
stangarstökkinu en þar mætast
heimsmethafinn Sergei Bubka,
ólympíumeistarinn Maksim Tar-
asov frá Rússlandi og Suður-
Afríkumaðurinn Okkert Brits.
Hinn síðastnefndi stökk yfir 6
metra í tvígang í fyrra.
FRJALSIÞROTTIR
Verð að drrfa í þessu
Ofsagt að Vala Flosadóttir hafi sett heimsmet unglinga í Stokkhólmi
_______________________________________________________________________________________________________u
ff
Sögðuð þið frá því að ég hefði
stokkið 4,15 metra? Eg verð
þá að drífa mig í að gera það á
næsta móti,“ sagði Vala Flosadóttir
í samtali við Morgunblaðið í gær.
Fram kom í blaðinu í gær að Vala
hefði stokkið 4,15 metra á alþjóð-
legu mótí í Stokkhólmi í fyrrakvöld
og sett um leið heimsmet unglinga
og jafnframt Norðurlanda- og Is-
landsmet. Það rétta er að hún stökk
4,10 metra á mótinu sem er jöfnun
á Norðurlanda- og íslandsmeti.
Þetta breytir þó ekki þeirri stað-
reynd að Vala sigraði í keppninni.
Þessi ranga frétt var höfð eftir sjón-
varpsstöðinni Eurosport sem sýndi
frá mótinu í beinni útsendingu.
Ekki náðist í Völu stð keppni lokinni
til að fá fréttina staðfesta þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir.
Vala sigraði í stangarstökks-
keppni mótsins eftir að farið hafði
fram umstökk á milli hennar og
bandarísku stúlkunnar Stacy Drag-
illa. Umstökk er það kallað er tveir
keppendur verða jafnir og eru sett-
ir í aukakeppni til að knýja fram
sigurvegara. Vala og Dragilla voru
Reuter
VALA Flosadóttlr slakar hér á eftir sigurinn á EM innan-
húss f vor, en nœstu vlkur gefst lítlll tíml til að slaka á því
mörg mót aru framundan.
jafnai- að keppni lokinni með 4,10
metra og var því stöngin færð upp
í 4,15 í fyrstu umferð umstökksins.
Þær felldu báðar þá hæð og var
því ráin lækkuð um 6 sentimetra í
4,10. Yfir þá hæð fór Vala í fyrsta
stökki, en Dragilla felldi og hafnaði
í öðru sæti. Heimsmethafínn Emma
George varð þriðja með 4 metra.
„Ég var mjög nálægt því að fara
yfir 4,15 metra í umstökkinu, fór
yfír en rétt straukst við á niðurleið.
Svo það er stutt í að ég komist
yfir þessa hæð,“ bætti Vala við.
Hún sagði keppnina hafa verið
skemmtilega og ánægjulegt hafí
verið að sigra á svo stóru móti sem
þetta var þar sem margir af fremstu
ffjálsíþróttamönnum heims hafi ver-
ið á meðal þátttakenda.
„Nú kemur hvíld frá mótum um
tíma vegna þess að Ólympíuleikam-
ir eru að heijast og næsta mót verð-
ur hjá mér í Ungveijalandi um miðj-
an ágúst. Það getur verið að ég
verði með á Norðurlandamóti ung-
linga í fjöiþraut hér í Svíþjóð eftir
tvær vikur,“ sagði Vala er hún var
innt eftir hvað væri næst á dagskrá
hennar. Þar keppir einnig Sunna
Gestsdóttir, USAH. Þá sagðist hún
koma heim og vera með í 1. deild
bikarkeppni FRÍ 10. og 11. ágúst.
Síðustu tíu daga hefur andstæð-
ingur hennar í stangarstökkskeppn-
inni í fyrrakvöld, Dragilla, æft með
henni í Malmö og ætlar hún að vera
í æfingabúðum þar næstu vikuna.
„Það var gott að fá stúlku til að
æfa með og góð tilbreyting frá að
æfa eingöngu með karlmönnum,"
sagði Vala.
ÍÞRÍMR
FOLX
Johnson er
klár í slaginn
SÍÐASTA opinbera hlaup Bandaríkjamannsins Michael Johnsons
fyrir Ólympíuleikana í Atlanta var í Stokkhólmi í fyrradag er hann
kom fyrstur í mark í 200 metra spretti á sjötta besta tíma sögunn-
ar, 19,77 sekúndum. Næst þegarþessi 28áragamliTexasbúi
kemur fram í sviðsljósið og tekur til fótanna hefur alvaran tekið
við af fullum þunga með undanrásum í 400 metra hlaupi Ólympíu-
leikanna í Atlanta. Sem kunnugt er, er það markmið hans að
verða fyrsti maður í sögu Ólympiuleikanna að sigra í 200 og 400
metra hlaupi á sama móti og sóknin hefst föstudaginn 26. júlí.
Þá byrjar riðlakeppni 400 metra hlaupsins.
Reutcr
MICHAEL Johnson kemur í mark sem sigurvegari í 200 m
hlaupl í Stokkhólml á 19,77 sek.
Nú um stundir er talið að enginn
hlaupari geti ógnað Johnson í
400 metra hlaupi. Hann hefur á síð-
ustu árum margoft hlaupið vega-
lengdina undir 44 sekúndum, nokkuð
sem aðeins landi hans Butch Reynolds
hefur leikið eftir. Reynolds á heims-
metið, 43,29 sekúndur, en hefur stað-
ið í skugga Johnsons síðustu ár eftir
að sá fyrrnefndi sneri á ný til keppni
að loknu banni vegna lyfjanotkunar.
I 200 metra hlaupinu gæti hann
fengið meiri samkeppni um gullverð-
launin þrátt fyrir að úrslit síðustu ára
og tímar gefí það ekki til kynna frek-
ar en í 400 metra hlaupi. Namibíu-
maðurinn Frankie Fredericks er í
góðri æfíngu nú um stundir og hafði
m.a. betur í einvígi þeirra á Bislett-
leikvanginum í Ósló á síðasta föstu-
dag. Þriðja greinin sem Johnson kepp-
ir í á leikunum er ein af síðustu keppn-
isgreinum frjálsíþróttadagskrárinnar
í Atlanta, en þá hleypur hann ásamt
félögum sínum í 4x400 metra boð-
hlaupi. Þar eru sigurlíkur Johnsons
verulegar vegna þess að þrír fljótustu
400 metra hlauparar heimsins í ár
skipa sveitina ásamt þeim fjórða sem
er enginn aukvisi.
Lokahnútana í undirbúningi sínum
fyrir leikana í Atlanta hnýtti Johnson
á þremur mótum sem hann tók þátt í
í Evrópu, í Lausanne í Sviss, þar sem
hann kom langfyrstur í mark í 400
metra hlaupi á 43,66 sekúndum, á
Bislett leikunum, en þar tapaði hann
fyrir Fredericks og loks í Stokkhólmi
í fyrradag. Hann ætlaði sér sigur í
öllum hlaupum, en það tókst ekki, sem
var nokkuð sem hann hafði ekki
reiknað með. Johnson lét það ekki slá
sig út af laginu og hljóp glæsilega í
Stokkhólmi, var fyrstur frá fyrsta
skrefí til þess síðasta. Þar sendi hann
andstæðingum sínum í Atlanta, s.s.
Fredericks, Ato Boldon frá Trinidad
og löndum sínum Jon Drummond og
Jeff Williams skýr skilaboð um að
hann myndi ekkert gefa eftir þegar
á hólminn verður komið.
„Ég var illa einbeittur í hlaupinu á
Bislettleikvanginum og var refsað
fyrir vikið. Fékk slæmt viðbragð og
tapaði," sagði Johnson. „En þegar
litið er á hlaupið burtséð frá viðbragð-
inu þá var það gott og tíminn fínn,
19,85 sekúndur." Johnson segir það
af og frá að nú séu þeir Fredericks
af svipuðum styrkleika í 200 metra
hlaupi. „Ef skoðaðir eru tímar mínir
í greininni á undanförnum tólf mán-
uðum og þeir bornir saman við árang-
ur hans á sama tímabili getur hvert
mannsbarn séð hvor okkar hefur
hlaupið hraðar. í þessu eina hlaupi
gerði ég mistök og gegn jafn góðum
hlaupara og Fredericks þá kosta ein
mistök tap.“
Fredericks var ekki á meðal kepp-
enda í Stokkhólmi en þar var Boldon
og hann hefur verið í mikilli framför
allt þetta ár og hljóp meðal annars á
19,85 sekúndum í Lausanne á sama
móti og Johnson sigraði 400 metra
hlaupi. Boldon varð annar í Stokk-
hólmi á 19,94 sekúndum og sagði
eftir hlaupið að ekki þyrfti að efast
um að Johnson væri í góðri æfingu
um þessar mundir. „En það mun eng-
inn gefa honum þumlung eftir þegar
í úrslitin verður komið."
Johnson er ánægður með ferð sína
til Evrópu og sagði hana hafa náð
tilgangi sínum. „Þegar úrtökumótinu
lauk heima vildi ég athuga betur hvar
ég stóð líkamlega og þess vegna fór
ég til Evrópu. Niðurstaðan er á svip-
uðum nótum og ég reiknaði með.
Þegar ég kem heim ætla ég að halda
mér á því róli. Eftir leikana ætla ég
að slaka á og gera ekki handtak í
nokkurn tíma.“
Það er ljóst að úrslit 200 metra
hlaups Ólympíuleikanna verða einn
af hápunktum ef ekki hápunktur
frjálsíþróttakeppninnar. Þar mun
koma í ljós hvort Johnson fær nafn
sitt ritað við hliðina á landa sínum
Valerie Briscoe-Hooks, sem kom fyrst
í mark í 200 og 400 metra hlaupi
kvenna á Ólympíuleikunum í Los
Angeles árið 1984.