Morgunblaðið - 14.08.1996, Síða 3
tfORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 1996 D 3
Morgunblaðið/Golli
etur í skallaeinvígi við Víkinginn Arnar Hrafn Jóhannsson.
Zelezny meiddist á hafnaboltaæfingu
>n og Morceli
góðu gamni
inn í 110 metra grindahlaupi, Allen
Johnson, ólympíumeistarinn í 5.000
metra hlaupi, Venuste Niyongabo
frá Búrundi, hlaupadrottningin
Marlene Ottey frá Jamaíka, banda-
ríski þrístökkvarinn Mike Conley
og alsírska hlaupakonan Hassiba
Boulmerka geti ekki reynt við gull-
pottinn í Zurich vegna veikinda eða
meiðsla.
Eigi að síður mæta margir af
fremstu íþróttamönnum heims til
keppni enda sem betur fer eru þeir
flestir í góðu lagi. Fyrirfram er
búist við að mest spennan verði í
800 metra hlaupinu því þar koma
saman þeir 15 hlauparar sem eiga
bestu tíma í greininn á þessu ári.
Þá má einnig reikna með að 5.000
metra hlaupið verði mjög skemmti-
legt en þar koma meðal annars
saman Haile Gebreselassie, Daniel
Komen og Paul Tergat en Salah
Hissou tók ekki boðinu um þátt-
töku. Hieham E1 Guerrouj frá Ma-
rokkó etur kappi við hóp Kenýju-
mann í 1.500 metra hlaupi.
Svetlana Masterkova frá Rúss-
landi sem sigraði bæði í 800 og
1.500 metra hlaupi á Ólympíuleik-
unum ætlar að keppa í míluhlaupi
á mótinu og láta silfurhafana í 800
metra hlaupinu í Atlanta um að
hlaupa styttri leiðina. Þar verður
eflaust um hörkukeppni að ræða á
milli þeirra Ann Fiedlia Quirot og
Maria Mutola. Jose Maria Perec
verður á meðal þeirra sem spretta
úr spori í 200 metra hlaupinu en
bandarísku stúlkumar Gwen Torr-
ence og Gail Devers ætla að láta
100 metrana nægja að þessu sinni.
Spennan gæti orðið rafmögnuð í
100 metra hlaupinu, þar mæta til
leiks heimsmethafinn, heimsmeist-
arinn og ólympíumeistarinn, Dono-
van Bailey frá Kanada, bronsverð-
launahafinn frá því í Atlanta, Ato
Boldon frá Trinidad, og fyrrum
ólympíumeistari, Linford Christie
frá Bretlandi, en silfurverðlauna-
hafinn frá Atlantaleikunum,
Frankie Fredericks frá Namibíu,
hefur hins vegar tilkynnt að hann
hyggist einungis láta ljós sitt skína
í 200 metra hlaupinu.
Möttubúar sóttu
knöttinn sex
sinnum í netið
Ílenska landsliðið í knattspyrnu,
skipað leikmönnum 21 árs og
yngri vann stórsigur á iandsliði
Möltu í vináttu-
landsleik á Sauðár-
Krístján króki í gærkvöld.
KnsVanssœ leiksins
urðu 6:0 eftir að ís-
lenska liðið hafði leitt í hálfleik 1:0.
Leikur liðanna einkenndist af mikilli
baráttu og fór frekar lítið fyrir vin-
áttunni inni á vellinum. Tveir leik-
manna Möltu gerðu sig seka um
mjög ljót brot og fengu réttilega að
líta rauða spjaldið hjá Braga Berg-
mann dómara. Möltumenn spiluðu
tveimur leikmönnum færri síðasta
hálftímann og eftirleikurinn var því
auðveldur fyrir íslenska liðið.
Það ríkti sannkölluð hátíðar-
stemning á Sauðárkróksvelli enda
var þetta í fyrsta skipti sem þar fer
fram landsleikur í knattspyrnu.
Heimamenn ijölmenntu á völlinn
og hvöttu íslensku strákanna til
dáða. Leikurinn fór fremur rólega
af stað og jafnræði var með liðunum
fyrstu mínúturnar. íslenska liðið
komst þó fljótlega vel inn í leikinn
og náði forystu á 20. mínútu. Mark-
vörður Möltu felldi Sigurvin Ólafs-
son, fyrirliða í vítateignum og víta-
spyrna dæmd, sem Bjarnólfur Lár-
usson skoraði úr af öryggi.
Guðni Rúnar Helgason kom bolt-
anum í net Möltumanna á 36. mín-
útu en var réttilega dæmdur rang-
stæður. Alveg undir lok fyrri hálf-
leiks náðu svo Möltumenn að bjarga
á iínu skalla frá Þorbirni Atla
Sveinssyni.
Strax á 49. mínútu fékk einn
leikmanna Möltu rauða spjaldið fyr-
ir gróft brot á Sigurvin og eftir það
fór mótlætið heldur að fara í taug-
arnar á gestunum. Bjarni Guðjóns-
son markvarðahrellir frá Akranesi
kom inná sem varamaður f byijun
síðari háifleiks og hann var fljótur
að setja mark sitt á leikinn. Strax
á 56. mínútu skallaði hann boltann
í markið eftir góða sendingu Sigur-
vins frá vinstri. Skömmu síðar var
öðrum leikmanni Möltu vikið af
velli fyrir gróft brot á Jóhannesi
Harðarsyni og eftir það fór leikur-
inn að mestu fram á vallarhelmingi
gestanna.
Jóhannes var þó ekki lengi að ná
sér og skömmu síðar átti hann j>ru-
muskot í stöng úr ágætu færi. Olaf-
ur Bjarnason sem einnig kom inn á
sem varamaður í síðari hálfleik skor-
aði þriðja mark íslands á 75. mínútu
eftir undirbúning Sigþórs Júlíusson-
ar. Bjarni Guðjónsson var svo aftur
á ferðinni sjö mínútum síðar og skor-
aði annað mark sitt eftir undirbún-
ing Sigþórs og Sigurvins.
Stefán Þórðarson skoraði fimmta
mark íslenska liðsins á 86. mínútu
og enn kom Sigurvin við sögu og
það var svo Valur Fannar Gíslason
sem innsiglaði sigurinn með ágætu
marki einni mínútu fyrir leikslok.
íslensku strákarnir áttu ágætis-
leik en fremstir þar í flokki voru
Valur Fannar Gíslason, Bjarnólfur
Lárusson og Sigurvin Ólafsson og
einnig átti Bjarni Guðjónsson góða
spretti. Lið Möltu var nokkuð jafnt
en bestur á meðal jafningja var
Antoine Zahara.
Atli Eðvaldsson þjálfari íslenska
liðsins var að vonum ánægður með
sigur sinna manna en hann var
ekki eins kátur með framkomu
þeirra leikmanna Möltu er fengu
reisupassann. „Þessi úrslit eru í
sjálfu sér eðlileg miðað við gang
leiksins og Möltumenn sáu sjálfir
um að eyðileggja sinn ieik. Mínir
menn spiluðu vel og agað þrátt fyr-
ir að undirbúningurinn fyrir ieikinn
væri ekki mikiil og ég tel að fram-
haldið lofi góðu,“ sagði Atli.
Wenger til
Arsenal?
ARSENE Wenger, fyrrum þjálf-
ari Mónakó, er sterklega orðað-
ur við starf knattspymustjóra
Arsenal, en félagið rak Bruce
Rioch í fyrradag. Biöð á Eng-
landi halda því fram að Wenger
hafi þegar samþykkt að koma
til Lundúnafélagsins en hann er
samningsbundinn Grampus
Eight í Japan fram í september.
Hollendingurinn Johan Cru-
yff, sem rekinn var frá Barcel-
ona sl. vor, hefur einnig verið
nefndur. Meðal ástæðna sem
taldar voru fyrir því að hann
hefði líklega áhuga á að koma
til Englands eru að sonur hans,
Jordi, leikur nú með Manchester
United og nítján ára dóttir Cm-
yffs er sambýiiskona landa
þeirra Ruuds Gullit, knatt-
spyrnustjóra Chelsea, sem einn-
ig er staðsett í London. Skv.
nýjustu fréttum eru hins vegar
litlar líkur taldar á að hann komi
tii starfa á Highbury. Cruyff er
sem fyrr búsettur í Barcelona á
Spáni en flytji hann þaðan er
einna helst taiið að hann taki
við þjálfun Feyenoord i Hol-
landi. Þar er Arie Haan reyndar
fyrir en jafnvel talið að hann
verði látinn fara fyrr en síðar.
Gienn Hoddle, nýráðinn
landsliðsþjálfari Englands, lék
undir stjórn fyrmefnds Wengers
hjá Mónakó á sínum tíma og
hefur mikið dálæti á manninum.
Reyndi m.a.s. að fá hann til
starfa við hlið sér hjá enska
knattspymusambandinu, sem
tæknilegan ráðgjafa. „Eg væri
ekki það sem ég er í dag, ef
ekki væri fyrir Arsene,“ sagði
Hoddle í gær. „Það átti mikinn
þátt í því að ég snéri mér að
þjálfun að hafa starfað með
honum hjá Mónakó."
Kvennalandsliðið til Rússlands
Stelpumar
setja stefnuna
á úrslitin
Íslenska kvennalandsliðið í knatt-
spymu heldur til Rússlands á
fimmtudaginn og leikur gegn stöll-
um sínum í Moskvu á laugardag-
inn. Leikurinn er í Evrópukeppni
kvennalandsliða og takist íslenska
liðinu að sigra hefur það tryggt sér
rétt til þátttöku í úrslitakeppninni
sem fram fer í júní á næsta ári, en
þangað komast átta lið.
Kristinn Björnsson, landsliðs-
þjálfari, hefur valið 16 stúlkur til
fararinnar og er einn nýliði í hópn-
um, Sara Smart úr KR. Liðið er
þannig skipað að markverðir eru
Sigfíður Sophusdóttir úr Breiðabliki
og Sigríður F. Pálsdóttir úr KR.
Aðrir leikmenn eru Ásthildur
Helgadóttir, Erla Hendriksdóttir,
Helga Ósk Hannesdóttir, Inga Dóra
V.P. mótið í knattspyrnu
V.P. mótið í knattspyrnu fer fram á Víkurvelli
laugardaginn 17. ágúst nk.
Keppt er í karlaflokki með 7 manna liðum á lítil mörk (2x5m).
Þátttökugjald er kr. 8.000,-
á hvert lið og greiðist við skráningu.
Upplýsingar og skráning í síma 487 1340 eða 487 1381
hjá Árna fyrir 16. ágúst.
USVS og Víkurprjón hf.
Magnúsdóttir Katrín Jónsdóttir,
Margrét Ólafsdóttir, Sigrún S. Ótt-
arsdóttir og Vanda Sigurgeirsdótt-
ir, allar úr Breiðabliki, Guðrún Jóna
Kristjánsdóttir og Sara Smart eru
úr KR, Guðrún Sæmundsdóttir og
Ragna Lóa Stefánsdóttir eru úr Val
og Auður Skúladóttir úr Stjörnunni.
í kvöld
Knattspyma
Vináttulandsleikur:
Laugardal: ísland - Malta.......20
4. deild D:
Reyðarfj.: KVA - Leiknir........19
Höfn: Sindri - Einheiji.........19
4. deild V:
Hólamvík: Geislinn - Reynir.....19
ísafiörður: BÍ - Emir...........19