Morgunblaðið - 08.09.1996, Page 1
LÚXUSÚTGÁFA AFMERCEDEZ-BENZ220ÁRGERÐ ’52 - SÉR-
SMÍÐAÐ220HESTAFLA OFURHJÓL - SAAB 90 ÁMARKAÐ
1999 - NÝIBENZ A VV JEPPINNÁ FERÐ OGFLUGI
lltargtiiilrifaMfe
SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER
1996
BLAÐ
PEUGEOT 406
TIMAM OTA BÍLL
Komdu og reynsluaktu.
Verð tr»
■ þtUturfyilrþaglndl Slmi 554 2600
Prowler
kominn
á götuna
NÝR VW Passat verður með nýrri VR5 vél og sjálfskiptingn sem unnt verður að nota eins og um handskiptan bíl væri að ræða.
NÝR VW Passat sem verið er að
setja á markað verður með 11
ára ábyrgð gegn ryðtæringu. Þar
með er VW leiðandi framleiðandi
á þessu sviði því almennt bjóða
framleiðendur ekki lengri ryð-
ábyrgð en til sex ára þótt ein-
staka framleiðendur, eins og
Fiat, Volvo og Renault bjóði átta
ára ábyrgð og Audi til tíu ára.
11 ára ábyrgð gegn ryðtæringu
Talið er að endursöluverð á
Passat verði tryggara fyrir vikið
jafnvel þótt billinn skipti oft um
eigendur. Fimm árum eftir að
bíllinn er skráður verður hann
enn með jafnlanga ryðábyrgð og
flestir aðrir nýir bílar.
Nýr Passat brýtur einnig blað
hvað varðar vélbúnað. í boði
verður ný fimm strokka vél og
þótt um línuvél sé að ræða liggja
stimplarnir þétt saman og vinna
líkt og í V-vél. Vélin er 2,5 lítrar
að slagrými og kallast VR5. Hún
er afleidd af VR6 vélinni. Onnur
nýjung í Passat er fimm þrepa
sjálfskipting sem einnig verður
hægt að handskipta, likt og í
Porsche og Jaguar.
Passat verður með fjórum líkn-
arbelgjum og verður einnig fáan-
legur með fjórhjóladrifi. ■
Innf luttir notnðir bflar fró Bandaríkjunum
Kílómetramælum snúið til baka?
BJÖRN Vfglundsson kynningarfulltrúi hjá P.
Samúelssyni, umboðsaðila Toyota á íslandi,
telur hugsanlegt að fluttir hafi verið inn notað-
ir bílar frá Bandaríkjunum sem sýni ranga
kílómetrastöðu á mælum. Nýlega var fjallað
um það í bandaríska bílablaðinu Automotive
News að aldrei hafi verið jafn mikið um svik
með kílómetramæla þar í landi. Kílómetramæl-
um er m.ö.o. snúið til baka til þess að auka
endursöluverð bílsins.
Richard Morse, yfirmaður sérstakrar deildar
innan bandaríska umferðaröryggisráðsins sem
fjallar eingöngu um svik af þessu tagi, segir
í samtali við blaðið að hann hafi ekki orðið
var við jafn mörg tilfelli svika síðan hann hóf
afskipti af þessum málum 1978.
VerA sem stenst ekki
Bjöm Víglundsson segir að fyrirtækið hafi
engar sannanir fyrir því að fluttir hafi verið
inn notaðir bíiar með ranga kílómetrastöðu.
„Innflutningur á notuðum bílum er orðinn
mjög mikill og í einhvetjum tilfeilum gæti
þetta hafa átt sér stað. Ekki endilega með
vitund og vilja þeirra sem flytja bílana inn
heldur geta þeir lent í klóm þeirra sem stunda
vafasöm viðskipti af þessu tagi,“ sagði Björn.
Hann segir að verð á innfluttum, notuðum
bílum geti í sumum tilfellum ekki staðist ef
litið er til þess sem vitað er að þeir kosti er-
lendis. „Samkvæmt þeim tölum sem við höfum
séð virðist það vera næsta ómögulegt að ná
þessu hagstæða verði á bíla nema eitthvað
misjafnt sé á ferð og þá á ég að sjálfsögðu
við söluaðilana úti en ekki hér heima. ■
PLYMOUTH Prowler sýn-
ir ef til vill best djarfhug
sem ríkir meðal banda-
rískra bílaframleiðenda
um þessar mundir. Prowl-
er er tveggja sæta opin
hraðkerra og útlitið minnir
meira á kappakstursbíla
frá þriðja áratug aldarinn-
ar en þeim tuttugasta. Frá
og með janúar á næsta ári
verður hægt að kaupa
þennan bíl í útvöldum um-
boðum Plymouth í Banda-
ríkjunum fyrir innan við
40 þúsund dojiara, tæpar
2,7 milljónir ÍSK.
Skiptir Plymouth lltlu máll
Prowler skiptir Plym-
outh í raun engu máli hvað
afkomu varðar. Aðeins 3
þúsund bílar verða smíðað-
ir í næsta ári og framleiðsl-
an kemst mest í 30 þúsund
bíla á ári. Það sem skiptir
máli er að vekja á sér at-
hygli og sýna að nýjungar
séu á næsta leiti og það
gerir Plymouth einmitt
með Prowler. Sama gerði
Dodge með Viper fyrir
nokkrum árum og Chrysl-
er með sama bíl í Evrópu.
Fátt eitt er nýtt í Prowl-
er þótt útlit bílsins sé engu
líkt. Stýrisbúnaður er
t.a.m. úr fjölnotabíl Chrysl-
er, hemlabúnaður úr Neon,
gormar og höggdeyfar úr
Viper og miðstöðin úr
Neon.
Prowler verður boðinn
með 3,5 lítra, V-6 vél
Chrysler, sem er 214 hest-
öfl. ■