Morgunblaðið - 14.09.1996, Page 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
KNATTSPYRNA
1996
LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER BLAÐ
KEVIN Keegan, knattspyrnustjóri enska úrvals-
deildarliðsins Newcastle hyggst ekki gera Stoke
City tilboð í vamarmanninn Lárus Orra Sigurðsson,
skv. upplýsingum talsmanns Newcastle í gær.
Útsendari félagsins hefur fylgst með leikjum
Stoke undanfarið, eins og fram kom í Morgunblað-
inu i vikunni, og heimildir úr herbúðum Stoke
hermdu að hann hefði verið að fylgjast með íslenska
landsliðsmanninum. Um það hefur líka síðan verið
Qallað í enskum fjölmiðlum og raunar minnt á að
Lárus Orri hafi verið orðaður við nokkur félög síðan
hann kom til Stoke.
Morgunblaðið náði ekki í Kevin Keegan, en biaða-
fulltrúi Newcastle, veitti blaðamanni þær upplýs-
ingar eftir að hafa rætt við stjórann, að ekki væri
á döfinni að bjóða í íslending-
inn. „Keegan kannast við Sig-
urðsson og segir hann mjög
góðan leikmann, en segir hann
ekki inni í myndinni hjá sér.
Tiiboðs sé því ekki að vænta."
Sigurreifar Blikastúlkur
BLIKASTÚLKUR fögnuðu innilega að leikslokum i gærkvöldi þegar þær bundu endahnútinn á einn glæsilegasta árangur ís-
lensks knattspyrnuliðs. Þær unnu alla leiki sína og hömpuðu öllum blkurum er í boðl voru á knattspyrnutíðinni. Vanda Sigur-
geirsdóttir þjálfari og leikmaður heldur á íslandsbikarnum umvafin samherjum sínum.
Stoltur af
stúlkunum
„ÉG er mjög stoltur því
frammistaða stúlknanna í
gegnum árin er glæsileg,
öðrum féiögum og íþrótta-
hreyfingunni til fyrirmynd-
ar,“ sagði Logi Kristjánsson
formaður Breiðabliks að
leikslokum í gærkvöldi. „Þær
hafa góð áhrif hér í Kópavog-
inum, allir hljóta að taka eft-
ir því og taka sér til fyrir-
myndar. Við munum sakna
Vöndu en væntum þess að
hennar bíði spennandi verk-
efni og vonum að við fáum
jafnvel að njóta krafta henn-
ar í framtíðinni. Ég held að
Breiðablik hafi frá upphafi
lagt sig fram um að sinna
íþróttastarfi kvenna ekki síð-
ur en karla, þær eiga þó á
brattan að sækja í þjóðfélag-
inu og það útaf fyrir sig er
jákvætt að þeim sé sinnt eins.
En menn þurfa að átta sig á
því hvers vegna það er meira
brottfail í íþróttum þjá stúlk-
um en drengjum og það þarf
að taka á því.“
Ekki von á tilboði
frá Newcastle í
Lárus Orra
!
Gulllið Breiðabliks var
ósigrandi á tímabilinu
Breiðablik innsiglaði einstaka
knattspyrnuvertíð með 11:0
sigri á Stjörnunni í Kópavoginum í
S^rkvöldi. Þar með
Stefán iauk ári þar sem
Stefánsson Blikastúlkur töpuðu
skrifar ekki leik og marka-
talan úr deildinni er
79:3, sem er met er verður seint
ef þá varla slegið. Fyrra metið áttu
þær reyndar sjálfar með marka-
töluna 73:8 árið 1981 en þess ber
að geta að Valsstúlkur unnu alla
tólf leiki sínaí 1. deild kvenna 1986.
Hlutskipti Stjörnunnar í gær-
kvöldi var ekki öfundsvert; að
mæta langbesta liði deildarinnar,
sem ætlaði svo sannarlega ekki að
slaka á klónni og stefndi að stór-
sigri því möguleiki var á að slá sitt
eigið markamet. Mörkin komu líka
á færibandi til að byija með og
eftir fimmtán mínútur voru þau
fjögur. Garðbæingar lögðu þó ekki
árar í bát en það dugði ekki til,
þijú bættust við.
Átta mínútum eftir hlé kom ann-
að mark Ásthildar en eftir það stóðu
gestirnir uppi í hárinu á heima-
mönnum fram á 71. mínútu er Ást-
hildur kláraði þrennu sína. Kristrún
L. Daðadóttir skoraði tíunda mark
Blika og Sigrún fyrirliði batt síðan
endahnútinn á 87. mínútu.
Blikar sýndu svo ekki varð um
villst hversvegna þeir eru á toppn-
um, því þrátt fyrir yfirburði spiluðu
þær skemmtilega knattspyrnu,
nýttu kantana og vörnin var góð.
Það sýnir best hversu baráttuand-
inn er einstakur í liðinu og önnur
félög ættu að bæta sig. Margrét
Sigurðardóttir og Vanda Sigur-
geirsdóttir voru sterkar í vörninni,
Ásthildur og Sigrún tóku miðjuna.
Langbesta liðiö
Stjörnustelpur mega þrátt fyrir
tapið vera þokkalega sáttar með
að komast inní leikinn á köflun.
„Þetta var auðmýking fyrir liðið,
Stjörnuna og íþróttina en þær eru
með langbesta liðið,“ sagði Helga
Helgadóttir, sem stóð á milli stanga
Garðbæinga, en hún varði þrátt
fyrir allt þokkalega og Steinunn
Jónsdóttir var einnig ágæt.
„Þetta var stórkostlegur kveðju-
leikur og það er blendin tilfinning
að fara frá svona góðu liði, við erum
eins og fjölskylda og það er erfitt
að fara frá góðum vinurn," sagði
Vanda þjálfari eftir sinn síðasta
leik með Blikum, en hún mun nú
hverfa á vit nýrra verkefna. „Það
er oft talað um að hætta á toppnum
og það er varla hægt að hætta á
hærri toppi. Það er hinsvegar kom-
inn tími til að breyta til, stelpurnar
hafa gott af að fá nýjan þjálfara
og ég af því að takast á við ný og
ögrandi verkefni. Ég reikna með
að deildin jafnist næsta ár en hin
liðin verða að taka sig á, þó ekki
væri nema fyrir íslenska kvenna-
knattspyrnu. Við í Breiðabliki erum
með góða umgjörð og flota stuðn-
ingsmanna, sem skiptir verulegu
máli og aðrir ættu að taka til fyrir-
myndar. Það er heldur ekki svo að
við séum með aðkeypt lið því flest-
allar stelpurnar eru uppaldar í
Breiðabliki. Sigurviljinn er ótrúleg-
ur, sem sést best á því að markatal-
an úr þremur síðustu leikjunum er
þijátíu og eitt mark gegn engu.
Þetta er afreksmannahugsunar-
háttur og því að þakka að stelpurn-
ar eru tilbúnar að leggja allt í söl-
urnar,“ sagði Vanda eftir leikinn.
HANDKNATTLEIKUR: KA MEISTARIMEISTARANNA / C2
r